Tíminn - 21.03.1972, Side 1
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR
Skákeinvígið hefst f Belgrad 22. júní
Sigurvegarinn
fær 9.5 millj. kr.
Oó—Reykjavik.
Samningar hafa nú tekizt i Amsterdam um tilhög-
un heimsmeistaraeinvigisins i skák, og verður
fyrri hluti einvigisins tefldur i Belgrad, en siðari
hlutinn i Reykjavik. Samningar hafa verið langir og
strangir, og leit jafnvel um tima svo út, að slitna
mundi upp úr þeim. Seint á sunnudagskvöldið gekk
þó saman, og gengu Júgóslavar að mestu að kröfum
íslendinga, en báðir aðilar slökuðu nokkuð á.
Samningafundirnir i Amsterdam halda enn áfram,
og er verið að ganga frá ýmsum minni háttar atrið-
um i sambandi við einvigið.
Þar beljar hún fram undan jökli
Einvlgið um heimsmeistaratit-
ilinn hefst i Belgrad 22. júni.
Verður teflt á sunnudögum,
þriðjudögum og fimmtudögum.
Er fyrirhugað að siðasta skák
þess hluta einvigisins, sem tefld
veröur i Belgrad, verði háð 18.
júli.
Siðan verður einvigið flutt til
Reykjavikur, og hefst sá hluti
þess, sem hér verður tefldur 6.
ágúst.
Fari svo, að þeir Spassky og
Fischer þurfi að tefla allar 24
skákirnar, mun einviginu ljúka
31. ágúst.
Það eru einkum ýmis fjármála-
atriði i sambandi við heimsmeist-
arakeppnina, sem eftir er að
ganga frá. Ákveðið er að verðlaun
in verði um 13 millj. isl. kr. Er
búið að ákveða, að sigurvegarinn
fái 72,5% upphæöarinnar, en sá
sem biður lægri hlut fær afgang-
KJ—Reykjavik.
Blaðamannafélaginu hefur enn
hvorki borizt bréf né skeyti frá
Bernadettu Devlin til skýringar
á, hversvegna hún kom ekki til Is-
lands á föstudaginn eins og hún
var margsinnis búin að segja að
hún myndi gera.
Bernadetta hefur gefið I skyn i
blaðaviötali, að hún hafi fyrir
helgina sent blaðamannafélaginu
skýringu á þvi hversvegna hún
kom ekki, en það bréf var ekki
komiðigærkvöldi.
inn. Fær þvi sá sem vinnur úm 9,5
millj. kr., en sá sem tapar 3,5
millj. kr.
Dómarar I Reykjavik verða
Guðmundur Arnlaugsson og
Þjóðverjinn Lothar Schmith.
1 Belgrad veröur teflt kl. 4 til 9
að staðartima, eða 6 til 11 að is-
lenzkum tima. 1 Reykjavlk hefj-
ast skákirnar kl. 5.
^ - -v '.-v- ;
, - .. • ....- . . - - .
« >«.■ Sl. ■ -j
Myndin var tekin á sunnudaginn og sést á henni, hvar Skeiöará beljar fram kolmórauð undan jöklinum.
(Tímamynd Gunnar)
Rannsóknamenn
ósköpunum við
bíða eftir
Skeiðaró
ÞÓ—Skaftafclli I öræfum,
mánudag
Hlaupið i Skeiðará hefur aukizt
jafnt og þétt, en þó telst aukning
hæg, miöað við nokkur siðustu
hlaup, að sögn Ragnars Stefáns-
sonar i Skaftafelli. Hér austur
við Skeiðará biða menn nú eftir
ósköpunum, sem verða þegar
hlaupið vcröur i hámarki. t dag
hafa málmar litazt, og er það i
fyrsta skipti i þessu hlaupi, sem
slikt gerist. Fellur þá á bæði eir
og silfur, jafnt utan húss sem
innan.
Þeir Ragnar i Skaftafelli og
Sigurjón Rist telja, að á næstu
tveim sólarhringum muni hlaupið
fara að nálgast hámark, en eins
og áin er i dag, er hún mun meiri
en þegar hún er mest á sumrin.
Er hún þá i kring um 7 hundruö
teningsmetrar á sekúndu,- en i
dag var hún oröin rúmlega eitt
þúsund teningsmetrar.
Þegar hlaupið er komið i fullan
vöxt, getur vatnsmagnið i ánni
orðið 7 — 10 þúsund tenings-
metrar á sekúndu, þannig að áin
er nú um einn tiundi af þvi, sem
hún getur mest oröið.
Skeiðará rennur nú að mestu i
„Tækifæri aldarinnar til að
rannsaka miðalda kirkjugarð”
Klp—Reykjavik.
Fyrir þrem árum kom i ljós
forn grafreitur i hólma, sem
nú er niöur við sjávarmá! rétt
hjá bænum Stóruborg undir
Austur-Eyjafjöllum. Stóra-
borg er m.a. þekkt vegna
skáldsögunnar önnu á Stóru-
borg eftir Jón Trausta, sem
hann lét gerast þar. Þórður
Tómasson, safnvörður að
Skógum hefur fylgzt með
þessum minjum og skoðað
svæðið. Aö undanförnu hefur
verið mikið brim á þessum
slóðum, og hefur gengið upp i
hólmann og skolaö þaðan burt
mold og öðru, og hefur þá
grafreiturinn komið enn betur
i Ijós.
Að stóruborg var byggð
fram til 1840, og er álitið að
grafirnar séu þaðan og frá
hjáleigunum i næsta nágrenni,
og eru þær elztu taldar vera
allt frá 11. öld.
Þórður Tómasson sagöi i
viötali við blaðið, að þarna
sæjust um 80 grafir, en þær
væru vafalaust mun fleiri.
Sumar þeirra væru tómar, en
þó mótaði þar enn skýrt fyrir
beinagrindunum" sem þar
hefðu legiö, en þarna heföu
flestir veriö jarðaðir kistu-
laust.
Hann sagði, að það væri
eftirtektarvert, hve þarna
væri mikið um grafir barna og
unglinga, og mætti því fá þar
nokkuð öruggt hlutfall um
dauðsföll frá þessum timum,
þvi að grafirnar væru heilleg-
ar og hægt aö mæla þær á alla
vcgu. Hann sagði að fundizt
hefðu nokkrir góðir hlutir,
m.a. beltishringur frá miðöld-
um.
Þórður sagði, að þetta væri
bezta tækifæri aldarinnar til
að rannsaka miöalda kirkju-
garð. Þarna væri oft mikið
brint, og eftir það mætti lesa
úr þessu eins og opinni bók.
tveim farvegum, og er sá eystri,
sem rennur undir Skaftafells-
brekkum, mun stærri. 1 dag hafa
smá jakastykki veriö að veltast
niður ána, og eins var það i gær,
þá bar hún með sér smá jaka-
stykki. Jakaburðurinn hefur
stöðugt aukizt i dag, þótt hann sé
ekki orðinn neitt á við það, sem
hann verður.
12 manns vinna nú að rannsók-
num hér við Skeiðará vegna
fyrirhugaðrar vegalagningar.
Eru visindamennirnir frá Orku-
stofnun, Vegagerö rikisins og
Raunvisindastofnuninni.Hafaþeir
verið að gera hallamælingar,
jarðvegsrannsóknir, rannsaka
framburð og unnið önnur störf
vegna fyrirhugaðrar vegagerðar.
Vegagerðarmenn eru að vonum
ánægðir með aö fá að rannsaka
þetta hlaup, en hitt er svo annað
mál, að næsta hlaup i Skeiöará
getur hagað sér allt öðru visi.
Nefna má, að þegar hlaupiö varð
1934, voru stórar ishrannir um
allan sand, — svo stórar, að engin
mannverahefði getaö staðizt þær,
segir Ragnar i Skaftafelli. Þetta
hlaup er það stærsta, sem komið
hefur á þessari öld.
Þetta hlaup hjálpar aðeins
rannsóknamönnum, en sýnir
þeim ekki til fullnustu, hvernig
Skeiðará hagar sér, þegar hún er
verst. Rannsóknirnar hafa gengið
vel fram til þessa, en þær hafa
staðið i tvo daga. T.d. hafa rann-
sóknamenn athugað aurburöinn I
sambandi við fyrirhugaða brú á
Skeiðará, sem áætlað er að komi
fimm kilómetrum suður frá
Skaftafellsbrekku. Þá hafa verið
gerðar hraðamælingar, og er
nraðinn i ánni nú fjórir metrar á
sek, en i jær var hann aðeins
rúmir 3 metrar á sek. Sést á þvi,
að vatnið hefur aukizt að mun. Þá
hefur það heyrzt, að vatnsmagniö
i Sandgigukvisl, eöa Gigjukvisl,
hafi aukizt mikið siðustu dægur. I
dag var fyrirhugað að Sigurjón
Rist færi þangað i þyrlu Andra
Heiðberg til að kanna vatns-
magnið i kvislinni.
Helgi Hallgrimsson verk-
fræðingur hjá Vegagerðinni sagði
okkur i dag, að brúin yfir Gigju
kvisl væri að mörgu leyti erfiðari
viðfangs en brúin yfir Skeiðará.
þar sem kvislin ber miklu meiri
aur fram, sem hleðst upp þegar
hún er i hlaupi. Aætlað er að
stólparnir á brúnni yfir Skeiðará
verði 6 metra háir, en ekki er ák-
veðið með hæð stólpanna á
brúnni yfir Gigjukvisl.
Skeiðará ber
fram 30
millj. tonn
ÞÓ—Skaftafelli í öræfum.
Til marks um það, hve mikið
Skeiöará ber fram af aur og
öörum föstum efnum i
hverju hlaupi, telja Helgi
Hallgrimsson og Sigurjón
Rist, að aurburöurinn sé i
kring um 30 milljónir tonna,
af föstum efnum. Er þá mið-
að viö meöalhlaup.
íslenzkar konur á vinnumarkaði Sjá opnu