Tíminn - 22.03.1972, Side 1

Tíminn - 22.03.1972, Side 1
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR - 68. tölublað-Miðvikudagur 22. marz 1972—56. árgangur. v. Enn eru sumir álar.minnstu álar.Skeiöarár væðir, og iiklega hefur áin vart verið vaöin meira i annan tifna. Hér eru rannsóknarmenn aö vaða yfir austasta álinn, en þyrla er vestan við, en hún getur ekki flutt alla, þótt hún sé góð. (Timamynd Gunnar) Þjóðhátíðarmerkið: 163 NÝJAR TILLÖGUR IGÞ—Iteykjavik. í gær var brugðið tölu á þær tillögur, sem borizt hafa um þjóðhátiðarmerki og vegg- skilti i samkeppni þeirri, sem efnt var til á sinum tima og framlcngd var til 20. marz s.l. Hafa borizt hundrað sextiu og þrjár nýjar tiiiögur i sam- keppnina, ef umsiögin ein eru taiin, en auðvitað geta fieiri en ein tiilaga verið i umslagi. Um sextiu tillögur eru enn fyrir hendi úr hinni uppruna- legu samkeppni, og munu þær að sjálfsögðu einnig verða lagðar til grundvallar nú, þeg- ar dómnefnd tekur til starfa að nýju. Ðómnefndin mun þvi vinna úr yfir tvö hundruð til- lögum að þessu sinni. Þar sem ekki er alveg vist að allar tillögur séu komnar til skila enn — þær sem settar kunna að hafa verið i póst úti á landi — verður aðeins beðið með að afhenda dómnefnd- inni tillögurnar. Þessi mikla þátttaka i sam- keppninni um þjóðhátiðar- merkið er gleðilegur vottur þess, að fólk vilji sitt af mörk um leggja til málsins. Er pjoo- hátiðarnefndin þakklát hinum mörgu þátttakendum og vonar að árangurinn verði hinn glæsilegasti. Skeiöará vex óðfluga ÞÓ—Skaftafelli, þriðjudag. Nú mun rennslið i Skciöará vera komið i 2500 til 3000 tcnings- metra á sekúndu, og hefur áin þar með aukið vatnsmagnið um 1500 til 2000 teningsmetra á sekúndu, á einum og hálfum sólarhring. Ain er nú farin að sækja meira i austur og er farin að nálgast varnargarða þá, sem komið var upp árið 1969. Eiga þessir garðar að sýna, hvort fyrirhugaðir varnargarðar, sem eiga að vera eins og þessir, þola Skeiðarár- hlaup. Ekki er við að búast, að áin skelli á görðunum, fyrr en hún veröur komin i 6000 teningsmetra á sekúndu. Vatnsyfirborðið hefur hækkað um 20 sm s.l. sólarhring, og þar af leiðandi fara sifellt fleiri eyrar á sandinum undir vatnið. í gær var áin 330 metra breið fyrir framan Skaftafell, en á þeim slóðum er hún nú orðin 350 metra breið. Neðar á sandinum, sunnan við simalinurnar, þar sem vegur- inn og brúin eiga að koma, hefur áin breikkað úr 400 metrum i 800 metra á tveim sólarhringum. Þar sem áin hefur breikkað svona mikið á þessum slóðum, mun simalinum ekki vera búin bráð hætta i bili. En i öllum Skeiðarár- hlaupum til þessa hafa sima- linurnar brostið, hversu tryggi- lega sem frá þeim hefur verið gengið. Eins og skýrt var frá i blaðinu i gær, hafði frétzt um vaxandi vatn i Gigjukvisl, og eftir hádegi i dag fóru Sigurjón Rist og Haukur Tómasson með þyrlu Andra Heið- berg að kvislinni og voru þar við mælingar i dag. Frá þeim fréttist, að vatnið i kvislinni hefði hækkað um 80 sm frá þvi að siðast var lit- ið á mælinn. Vatnsmagnið þar er um 300 teningsmetrar á sekúndu. Einnig hefur frétzt um vöxti Súlu, sem rennur undan Skeiðarárjökli að vestanverðu. Allt þetta vatn virðist koma úr Grimsvötnum. Ekki er vitað hve mikið hefur lækkað i Grimsvötn- um, en i fyrradag hafði vatns- borðið lækkað um einn metra, Talið er að það eigi eftir að lækka um 90 metra, svo mikið Framhald á bls. 19 Fullt samrað við utanríkismálanefnd - f sambandi við endurskoðun varnarsamningsins EB—Reykjavík. í ræðu, sem Einar Agústsson utanrikisráðherra fiutti á Aiþingi i gær, lagði hann áherzlu á að samráð yröi haft viö utanrikismálanefnd Alþingis i sambandi við endurskoðun á varnarsamningi Islands og Bandarikjanna. Utanrikisráð- herra sagði, að viðræður viö Bandarikjastjórn um varnar- samninginn hæfust innan tiðar, en hingað til hefði landhelgismál- ið setið fyrir öðrum verkefnum utanrikisráðuneytisins. Hins vegar yrðu niðurstööur cn- durskoðunarinnar ekki lagðar fyrir þetta Alþingi heldur hið næsta. Þá sagði utanríkisráð- herra m.a., að þegar væru farnar að berast skýrslur frá erlendum aðiium, scm utanrikisráðuneytið hefði óskað'i sambandi viö endur- skoðunina, og yrðu þær skýrslur lagðar fyrir utanrikismálanefnd. Utanrikisráðherra skýrði frá þessu á fundi i Sameinuðu Al- þingi, en þar fóru fram i gærdag miklar umræður um varnarmálin og utanrikismál, þegar á dagskrá fundarins voru tillögur þing- manna Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins um öryggismál landsins. I þessum umræðum fullyrti Geir Hallgrimsson, að stefna rikisstjórnarinnar i var- narmálunum hefði skaðað Island út á við. Einar Agústsson utap- rikisráðherra mótmælti þessum ummælum varaformanns Sjálf- stæðisflokksins og bað hann að sanna fullyröingar sinar, sem þingmaðurinn var ekki búinn að gera, þegar umræðum um tillög- urnar var frestað og teknar út af dagskrá fundarins um kvöld- matarleytið. Sagði utanrikisráð- herra, að ekkert, sem styddi þessi ummæli Geirs, hefði komið fram i viðræðum sinum við erlenda valdamenn, heMur hefðu þeir talið eðlilegt að rikisstjórnin færi fram á endurskoðun á varnar- Framhald á bls. 19 Líkur á verulegum útflutningi til vöruhúsa í Kanada KJ—Reykjavik. Verulegar likur eru nú á þvi að skriður niuni komast á viðskipti milli islands og Kanada innan skamms, þvi að vöruhúsa fyrirtækið T.E. Eaton's hefur ákveðið aö beita sér fyrir kynningu og sölu á islenzkum vörum i hinuin fjölmörgu vöruhúsum sinum viðsvegar um Kan- ada. Eru fulltrúar frá Eatons’s væntanlegir liingað i mai til aö ræða um kaup á vörum héðan. Heimir Hannesson lög- fræðingur var fyrir nokkru á ferð i Kanada i boði Vestur- lslendinga, og sat hann þá m.a. þing Þjóðræknisfélags- ins. Var hann þá boðaður á fund með einum. af fram- kvæmdastjórum Eaton’s i Winnipeg, en sá maður er af islenzkum ættum. Skýrði hann Heimi svo frá, að fyrir- tækið hefði ákveðið að is- lenzkar vörur yrðu að jafn- aði til sölu hjá Eaton’s, og væri þriggja ára kynningar- og söluáætlun i undirbúningi, sem ætti að byrja á næsta sumri. — Astæðan fyrir þess- ari ákvörðun fyrirtækisins er sú, sagði framkvæmdastjór- inn, — að Islendingar bjóða upp á margskonar nýstár- legar vörur, sem fólk hefur áhuga á, og einnig að i Mani- toba, þar sem kynningar- og söluáætlun mun hefjast, er mjög vinsamleg afstaða gagnvart öllu islenzku og þvi sem frá tslandi kemur. Þá kom einnig fram i samtali þeirra Heimis Hannessonar og framkvæmdastjóra Eaton’s i Winnipeg, að fram- undan eru merk timamót i tslandssögunni, þegar ts- lendingar halda upp á 1100 ára afmæli Islandsbyggðar, og verður þá góður jarðveg- ur til að bjóða fram islenzkar vörur og vekja athygli á ts- landi. Vöruhúsafyrirtækiö Eaton’s verzlar með allskon- ar vörur, svo sem tiðkast i vöruhúsum, en Eaton’s mun vera ein stærsta vöruhúsa- samsteypa i heimi. Meðal þess sem þeir hafa áhuga á hér á landi má nefna tizku- fatnað úr ull, keramik, sæl- gæti, skartgripi, hverskonar, matvæli og fleira. Heimir Hannesson sagðist á ferð sinni hafa orðið var við mikinn áhuga ýmissa for- ystumanna V-tslendinga um mál þetta, og hefðu komið fram hugmyndir um að is- lenzkur verzlunarfulltrúi starfaði að þessum málum fyrir hönd isl. aðila. Til mikils væri að vinna að komast i gott viðskiptasam- band við þetta mikla og virta verzlunarfyrirtæki. Bætt sambúð Sovétríkjanna og Kína? — sjá ræðu Bresjnefs á blaðsíðu 20

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.