Tíminn - 23.03.1972, Qupperneq 1
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR
69. tölublað - Fimmtudagur 23. marz 1972—56. árgangur.
Við upptök Skeiðarár
Eins og
sjóðandi
grautar-
pottur
l»ó—Skaftafelli i öræfum,
miðvikudag.
Skeiðará hefur haidið áfram að
vaxa jafnt og þétt i dag, og er
vatnsmagnið nú komið i 3500
teningsmetra á sekúndu. Ef
hlaupið í Gigjukvisi og Súiu er
talið með, er hlaupið um 4500
teningsmetrar á sckúndu, að þvi
talið er, en ekki er vitað hvort
vatnsmagnið i Gigjukvisl og Súlu
hefur aukizl i dag.
Sigurjón Rist vatnamælinga-
maður fór meðfram Skeiðarár-
jökli i gær og taldi útkomustaði
vatns frá jöklinum. Vatn kom
undan jöklinum á 17 stöðum. Þar
af reyndist vera hlaupvatn á 11
stöðum. Sigurjón telur, að hlaupið
fari að ná hámarki úr þessu, þar
sem það hafi staðið svo lengi yfir,
en aftur á móti telur Ragnar i
Skaftafelli svo ekki vera, og
bendir á, að þegar hlaupið kom,
hafi verið komið eitt og hálft ár
fram yfir venjulegan hlauptima.
Ragnar segir þetta þá ekkert
hlaup vera, og hann telur að
hlaupið geti enn vaxið mikið.
Þess ber þó að gæta, að hlaupið
virðist hafa komið undan jöklin-
um á fleiri stöðum en áður, og
getur vatnsmagnið þvi dreifzt á
fleiri staði. 1 dag, þegar sjón-
varpsmenn flugu yfir Gigjukvisl,
sáu þeir, að mikill vöxtur hafði
hlaupið i kvislina, og þvi greini-
legt,að hlaupsins gætir mikið þar
einnig.
Eins og allt
Þingvallavatn.
Fyrstu einkenni hlaupsins fann
Ragnar i Skaftafelli 1. marz, en
þá lagði megna fýlu af jöklinum.
Ef miðað er við fyrri hlaup, þá
getur Ragnar þess til, að enn geti
liðið einn til tveir dagar, þar til
hlaupið nær hámarki. Sigurjón
Rist vatnamælingamaður sagði i
dag, að allt vatnasvæði Skeiðar-
ár, næði yfir 1100 ferkilómetra, en
það er u.þ.b. 1/10 af landinu. Þar
af næði vatnasvæði Grimsvatna
yfir 300 ferkilómetra. Vatnsmagn
það, sem kemur i hverju Skeiðar-
árhlaupi, nemur 4 þúsund giga-
litrum, en það samsvarar vatns-
magninu i Þingvallavatni öllu.
1 dag hefur áin náð yfir að
varnargörðunum, sem gerðir
voru 1969, en ekki er það magn
mjög mikið. Það hefur þó aukizt
stöðugt, eftir þvi sem á daginn
hefur liðið, og á morgun ætti að
koma i ljós, hvort fyrirhugaðir
varnargarðar vegna vega-
lagningarinnar verða nógu sterk-
ir.
Farið að upptökum.
t morgun fékk blaðamaður
Timans far með þyrlu Andra
Heiðberg upp að upptökum
Skeiðarár, þar sem hún kemur
undan Skeiðarárjökli. Með i för-
inni var einnig ósvaldur Knud-
sen, sem hér er staddur til að
kvikmynda hlaupið. Dvöldumst
við við upptökin i rúma tvo tima,
og var það stórkostleg sjón að sjá
ána koma undan jöklinum, og er-
fitt er fyrir ókunnuga að gera sér i
hugarlund, hvilikur ógnar kraftur
Framhald á bls. 15
Myndin er tekin i vikunni af höfninni á Stokkseyri og bjargvættur Stokkseyringa — nýji hafnargarðurinn tii
hægri á myndinni, en bryggjan og frystihúsið náiægt miðri mynd. (Timamynd Gunnar)
BÁTARNIR HEFÐU
BROTNAÐ í SPÓN
ef nýja hafnargarðsins d Stokkseyri hefði ekki notið við
KJ — Reykjavik
Við vorum með sex báta við
bryggjuna hér, i stærsta flóði sem
komið hefur á Stokkseyri siðan
1925, og það er ekki nokkur vafi á
þvi, að bátarnir hefðu allir
brotnað i spón, hefðum viö ekki
verið búnir að fá garðinn, sagði
Steingrimur Jónsson sveitarstjóri
á Stokkseyri i viðtali við Timann i
gær.
Garður þessi er austan við
bryggjuna á Stokkseyri, og var
lokið við byggingu hans i des-
ember. Er garðurinn um þrjú
húndruð metra langur, og var
stærsta grjótið i hann sótt um 30
km leið, eða að Ásgarði i Grims-
nesi. Jafnframt garðbyggingunni
var höfnin dýpkuð þannig, að
sprengt var neðansjávar, en
siöan byggður malargaröur út i
höfnina, og mokaði krani grjótinu
upp af botninum og einnig malar-
garðinum i burtu. Er þetta i
fyrsta skipti, sem þessi háttur er
hafður á hér á landi.
Steingrimursveitarstjóri sagði,
að garðurinn hefði ekkert
skemmzt i þessum tveim miklu
flóðum og brimi, sem orðið hafa
nú með stuttu millibili i suð — suð
— austanátt. Allir sex bátarnir
voru við bryggjuna, en árið 1967
kom mun minna flóð, og slitnuöu
þá tveir bátar frá bryggju og
eyðilögðust, og tveir aðrir
skemmdust. Hefur garðurinn þvi
þegar sannað ágæti sitt og veitir
bátunum á Stokkseyri öruggt sk-
jól, þótt mikið brim verði i slikum
flóðum, sem urðu á dögunum.
Samningar
við
sjúkra-
húslækna
hjá sátta-
semjara
IGÞ — Heykjavík.
Kjarasamningar við lækna á
rikisspilöluin og sjúkrahúsuin
borgarinnar hafa verið lausir frá
þviá áraniótuin. Ilafa saniningar
gemtið liæát til bessa. en læknar
munu vera orðnir órólegir yfir
þvi. að enn skuli ekki hafa
dre'gið i samkomulagsátt og niun
jafnVel liafa boriðá góma, að þeir
inuni fara að beita uppsögnum,
verði einhverrar niðurstöðu ekki
að vænta hráðlega.
Kjaradeila þessi hefur nú veriö
i höndum sáttasemjara, Torfa
Hjartarsonar, i allt að mánaðar-
tima, og hafa nokkrir fundir verið
haldnir með samninganefndum.
Fyrrverandi formaður nefndar
iækna er nú oröinn formaður
félags þeirra, en i stað hans hefur
Guðmundur Oddsson læknir tekíð
við starfi nefndaríormanns.
Læknum lil aðstoðar er Guð
mundur Ingvi Sigurðsson lögfr.
Þrir menn eru i samningahefnd
af hálfu rfkisins, þeir Guðjón
Hansen tryggingafræðingur, Jón
Ingvarsson og Georg Lúðviksson
framkvæmdastjóri rikisspital-
anna. Af hálfu borgarinnar sitja
þeir Haukur Þ. Benediktsson
framkvæmdastjóri Borgar-
sjúkrahússins og Magnús
Óskarsson i samninganefndinni.
Búizt er við fundum nú um
næstu helgi. Eiga þeir að hefjast
á laugardaginn, og er þá búizt við
að fjör fari að færast i leikinn.
Fyrir utan ýms minniháttar
atriði, hefur vinnutimastytting
verið til umræðu fram að þessu.
Nú er fjörutiu stunda vinnuvika
lögskipuð, en um niutiu af hun-
draði þeirra lækna, sem nú eiga i
samningum, skila lengri
vinnuviku i starfi. Kaupkröfur
læknanna munu nema nokkuð
hærri prósenttölu en samið var
um á hinum almenna vinnu-
markaði.
Forseti Skáksambands íslands*
Erum ekki
um neinar
Oó—Reykjavik.
— Við eruni ekki til viðræðu
um breytingar á fjármálahlið
þessa samnings, sem við gerð-
um I Amsterdam, sagði Guö-
mundur G. Þórarinsson for-
seti Skáksambands tslands I
gær.
Fischer sendi mér skeyti I
morgun, sagði Guðmundur,
þar sem hann segir, að Ed-
mondson hafi ekki haft umboð
til að semja fyrir sig i Amster-
dam, og muni hann ekki fall-
ast á að tefla á Islandi, nema
öllum hagnaði af einviginu
veröi skipt milli hans og Rúss-
anna. Ég sendi honum þegar i
stað svarskeyti um,að við vær-
til viðræðu
breytingar
um ekki til viðræðu um breyt-
ingar á fjármálahlið sam-
ningsins. Einnig sendi ég Al-
þjóðasambandinu skeyti, þar
sem sagt var frá viðbrögðum
Fischers og svarskeyti minu.
Einnig hafði ég samband við
sovézka sendiráðið og bað þar
um aö koma sams konar skila-
boöum til Skáksambands
Sovétrikjanna, og jafnframt
færði ég júgóslavneska aðal-
ræðismanninum afrit af skeyti
Fischers og svari minu, og
sendi hann júgóslavneska
skáksambandinu boðin.
— Mitt álit á þessu er,sagði
Frh. á bls. lf^.