Tíminn - 23.03.1972, Page 3
Fimmtudagur 23. marz 1972.
TÍMINN
3
Fara Svíar og Rússar að
ganga í Gefjunarfötum?
Klp—Reykjavik.
— Það hefur verið ieitað tii okk-
ar með tilboð um útflutning á
herrafatnaði til Sviþjóðar og
Rússlands, en vegna anna á inn-
anlandsmarkaði hefur ekki veriö
möguleiki á að sinna þvi enn sem
komið er. En nokkrar likur eru á
að slikir samningar gætu tekizt,
ef afkastageta væri fyrir hendi.
betta sagði Sigtryggur Hall-
grimsson, verksmiðjustjóri hjá
Fataverksmiðju Gefjunnar á
Snorrabraut, er við áttum tal við
hann i gær i sambandi við,að nú er
búið að endurskipuleggja verk-
smiðjuna, kaupa nýjar vélar og
taka upp nýja tækni i sambandi
við saumaskap.
Sigtryggur sagði, að árið 1969
hefði verið hafizt handa um að
endurskipuleggja verksmiðjuna.
M.a. hefði verið fenginn maður
frá Noregi til að gera úttekt a
fyrirtækinu, og gerði hann tillög-
ur til úrbóta.
Þær voru m.a fólgnar i kaupum
á nýjum vélum og tækjum,
verkaskiptingu i saurhasal og
sniðastofu, kennslu i nýjum að-
ferðum i jakka- og buxnasaumi
og pressun, gerð nýrra sniða á
grundvelli þess stærðarkerfis,
sem gildandi er i Mið-Evrópu og
Skandinaviu, kennslu starfs-
manna i sniðagerð og svo ák-
væðisvinnu, sem grundvölluð er á
timamælingu.
Um siðastnefnda atriðið var
gerður sérsamningur við Iðju til
6. mán. reynslu og hún tekin upp
skömmu eftir áramót, og virðist
sú reynsla, sem komin er á þetta
nýja ákvæðiskerfi, lofa góðu.
Fataverksmiðjan er 40 ára um
þessar mundir, og er hún elzta
starfandi fyrirtækið i fatagerð á
tslandi.
Fjárfesting i vélum og tækjum i
sambandi við endurskipulagn-
inguna var samtals rúmar 5 millj.
kr., og fékk verksmiðjan lán til
hennar frá Iðnþróunarsjóði að
upphæð kr. 3.5 millj. Aætlað er, að
afkastaaukning verksmiðjunnar
á yfirstandandi ári ver,ði 40-50%
frá þvi sem var fyrir breyting-
una.
Sigtryggur gat þess að lokum,
að markaður innanlands væri
nægur miðað við framleiðslu-
möguleika, en til verksmiðjunnar
hefði verið leitað með tilboð
um útflutning til Sviþjóðar f og
Rússlands. bessa dagana væri
nóg að starfa við framleiðslu á
fermingafötum, og mikil eftir-
spurn væri eftir þeim.
Reyna að renna bátunum út
Klp—Rcykjavík.
Við höfðum í gær samband
við Þorgeir Jósefsson hjá
Dráttarbrautinni á Akranesi
og spuröum hann,hvernig út-
liðið væri nú með að ná niður
bátunum, sem festust uppi,
þegar lyftan meðGissuri hvita
lagöist á hliðina snemma i
vetur.
Þorgeir sagöi að þeir væru
þarna 5 saman, og væri nú
unnið að því að bjarga þeim
niður. Þessa dagana væri ver-
ið að skipta um jarðveg á ein-
um stað, og væri hugmyndin
að útbúa þar braut, svo að
hægt yrði að renna þeim út.
Ekki væri enn búið að fá stað-
festingu á leyfi til að gera
þetta frá þeim sem ættu bát-
ana, og þeim sem hefðu þá i
tryggingu.
Þetta yrðu all óvenjuleg sjó-
setning, ef af henni yrði, þvi að
út i hafnleysu væri að fara.
Þetta yrðu öllu likara björgun
á strönduðum skipum en sjó-
setningu, en sumir þessara
báta væru ný smíðaðir og
þyrftu að komast niður, svo
hægt yrði að ljúka við þá.
739 gistiherbergi
í Reykjavík í sumar
2 ný hótel opna úti á landi
SJ—Reykjavik.
f sumar var 721 gistiher-
bergi á hótelum i Reykjavik
og voru þá Hjálpræðisherinn
og Stúdentagarðarnir með-
taldir. Gistirúm voru samtals
1332.
Nú er unnið að stækkun
Hótel Holts við Bergstaða-
stræti, bætast þar við 18
tveggja manna\herbergi.
Sennilega komast þau i gagnið
i sumar og verða þá væntan-
lega 739 gistiherbergi i borg-
inni með 1368 rúmum.
Hótel það, sem Lúðvig
Hjálmtýsson er að láta byggja
við Rauðarárstig verður i
fyrsta lagi tilbúið ’73, en þar
verða 60 tveggja manna her-
bergi. Þá er einnig i bigerð að
stækka Hótel Sögu, en þvi
verður tæpast lokið fyrr en
1975-’76, þar bætast væntan-
lega við a.m.k. 100 herbergi.
Núverandi gistirými Hótel
Sögu eru 90 herbergi með 150
rúmum.
Talsverð gróska er i hótel-
málum landsbyggðarinnar .
Nýtt, að sögn fallegt og
skemmtilegt,hótel tekur vænt-
anlega til starfa á Húsavik
sumar. bað er i tengslum
félagsheimili og er eign
ýmissa félagasamtaka.
I Stykkishólmi er einnig að
risa hótel og félagsheimili,
sem búizt er við að opni i sum-
ar. Bygging þess gekk hægt
framan af, en nú er kominn
skriður á framkvæmdir.
bigtryggur IIallgrímssou verksmiðjustjóri Fataverkstniöjunnar
Gefjunnar, og nýr Gefjunarjakki . (Timamynd G.E.)
Ferðahandbókin '72
í undirbúningi
Þýzk útgáfa af bókinni
kemur einnig i vor
KJ—Reykjavik.
Ferðahandbókin 1972 er nú i
undirbúningi, og verður nú efnis-
meiri og itarlegri en nokkru sinni
fyrr. Verður þetta niunda útgáfa
bókarinnar á islenzku, en auk
þess má geta þess, að Ferðahand-
bækur hafa lika i undirbúningi
þýzka útgáfu af Ferðahandbók-
inni, og nefnist hún Island — die
insel im Nordatlantik.
1 islenzku útgáfunni af Ferða-
handbókinni verður að þessu
sinni sérstakur kafli um Viðey, og
ætti sá kafli að vera hinum fjöl-
mörgu Viðeyjarförum kærkom-
inn. í bókinni verða nýjar upp-
lýsingar um kauptún á landinu,
og sömuleiðis nýjar upplýsingar i
öllum auglýsingum.
Kaflinn um bifreiðaslóðir á há-
lendinu kemur endurnýjaður i
bókinni, enda leiðir alltaf að
breytast þar.
Veiðimálastjóri hefur endur-
nýjað yfirlit um veiðiár og veiði-
vötn, og hverjir séu leigusalar og
leigutakar einstakra áa og vatna.
Leiðarlýsing Gisla Guðmunds-
sonar hefur verið að þróast, og
nær hún nú orðið um allt landið.
Verður ferðalýsingin i ’72 útgáf-
unni endurnýjuð og færð til dags-
ins i dag.
Kaflinn þar sem i , eru upp-
lýsingar um kauptúnin, er mjög
mikið notaður, og ekki aðeins not-
aður af ferðamönnum, heldur
fjölmörgum öðrum aðilum. Eru
þeir, sem vilja koma upplýsing-
um á framfæri i þennan kafla,
beðnir að snúa sér til útgáfunnar
hið fyrsta. Sem dæmi um mann
sem notað hefur Ferðahandbók-
ina við feröalög á íslandi, má
nefna, að Desmond Bagley
höfundur bókarinnar Út i óviss-
una, sagði: „Ferðahandbókin er
ómissandi hverjum þeim, sem
leið sina leggur um Islands”.
77 7 erlendir
Samkvæmt talningu Land-
helgisgæzlunnar 20.-21. marz, var
71 erlent veiðiskip þá að veiðum
við landið. Brezku togararnir
voru 40 talsins, og langflestir, eða
20, i hnapp út af Straumnesi.
Vestur-þýzkir togarar töldust
vera 21, og voru tiu þeirra fyrir
suð-vestan land. Á meðfylgjandi
mynd sést nánar hvar þessi er-
lendu veiðiskip voru, en B merkir
belgiska togara og A austur-
þýzka.
Saumastofa
BS—Hvammstanga.
1 athugun er nú að setja hér á
fót saumastofu. Yrði hún þá
væntanlega i tengslum við Ála-
fossverksmiðjuna. Húsnæði fyrir
°aumastofuna er fyrir hendi i
félagsheimilinu.
Vilji einhver gefast til þess að
veita þessari starfsemi forstöðu
og fáist til hennar nauðsynlegur
og nægur vélakostur er ekkert þvi
til fyrirstöðu, að hún geti hafizt
hér á næstunni.
:IS.IS.IS:.!!::Si!:m: 1:iS:m::1S.iS:Í !S.:ffl:.
m
Si'maskráin
Þá er simaskráin að koma —
enn ein útgáfa hennar en hún mun
vera útbreiddari en biblian hvað
þá sálmabókin, sem ekki hefur
fengizt nú um tima.
Fyrir utan að veita upplýsingar
um simanúmer manna og
kvenna, er simaskráin hið nauð-
synlegasta heimildarrit um
heimilisföng i borg og bæ, og auk
þess er i henni að finna ágætt bú-
endatal, þar sem reikna má með
þvi að simi sé til á flestum sveita-
bæjum.
Svo er að sjá, að þeir sem þurfa
að senda frá sér tilkynningar
bréflega til einstaklinga, noti
simaskrána til að afla sér upp-
lýsinga um heimilisföng. Þeir
sem flytja á milli útkomudaga
endurskoöaðrar simaskrár, fá
bréf sin krotuð af póstinum, sem
öðru hverju cr að heimta að
heimilisfang sé leiðrétt. Nú er er-
fitt fyrir cinstaklinga, sem hafa
flutt, að tilkynna það öllum
hugsanlegum bréfriturum, að
viökomandi sé ekki lengur búsctt-
ur í Séstvallagötu 8, heldur sé
hann fluttur á Leynimel 13. Póst-
urinn verður eins og aðrir að biða
eftir nýrri simaskrá, ef þaö þá
dugir, þvi að sum menningar- og
félagasamtök virðast hafa komiö
sér upp ákveðinni nafnaskrá
snemma á öldinni. Þar sem hún
virðist ekki endurskoðuð, eru mý
mörg dæmi þess, að fólk fær send
bréf með fimmtán eða tuttugu
ára gömlu heimilisfangi. En
margur hefur flutt á skemmri
tima.
Áréttingar póstsins utan á um-
slögum viðtakanda eru vita þýð-
ingarlausar, nema bréfunum sé
snúið við til sendanda. Það fer
ekki nakkur iifandi maður að
hringja i liknarstofnun kvenna i
stuttum pilsum til að tilkynna
henni að pósturinn sé móðgaöur
út af breyttu heimilisfangi. Nóg
er að þurfa að kaupa fjóra happ-
drættismiöa fyrir meðalgöngu
giró.
En nú er nokkur von á lagfær-
ingu, þ.c.a.s. ef einhver hirðir um
að sækja leiðréttingu i sima-
skrána, i slaö þess að láta trúna á
hið luttugu ára gamla heimilis-
fang duga. Og pósturinn ætti að
sjá til þess að simaskráin komi út
árlega. Honum er málið skylt.
Þetta er lians bók. Annars er sim-
inn oröinn slikt alvanalegt tæki,
að það tckur þvi varla að vera að
minnast á skrána.
Menn léku sér að þvi hér áður
fyrr að læra heilar markaskrár
utan að og kannski fleiri en eina.
Simaskráin virðist ekki freista
ncins til slikrar iþróttar. Og þá cr
sá góði siður aflagöur að hafa
klukkuna tveimur timum of
fljóta, en kalla hinn skynsamari
tima simaklukku. Menn hafa ef-
laust haldiö að vinnudagurinn
yrði of stuttur annars og treyst
þvi að enginn færi að leggja það á
sig að ganga tvær eða þrjár
bæjarlciðir til að vita hvað klukk-
an væri raunverulega. En nú er
ckki lengur neitt misræmi i
klukkunni. Simaklukkan er alls
ráðandi, og jafnvel búið að reikna
út, að haldi fram sem horfir um
styttingu vinnutima, verði búið að
semja liann niöur i núll að tólf áv-
um liönum. Þá verður ekkert
annað ráð tiltækt en grafa
simaklukkuna sjö fet i jörð niður
og taka upp gamla kerfið að vera'
tveimur timum á undan.
Svarthiifði.