Tíminn - 23.03.1972, Side 6

Tíminn - 23.03.1972, Side 6
6 TIiVIlJNN Fimmtudagur 23. marz 1972. Frá umræðum á Alþingi s.l. þriðjudag um varnarmálin Engin ákvörðun tekin nema fyrst verði leit- að umsagnar Alþingis EB-Reykjavik. Eins og greint hefur verið frá I blaöinu, urðu miklar umræður um öryggismál landsins, á fundi i Sameinuðu Alþingi siðast liðinn þriðju- dag, þegar þar voru á dagskrá tillögur frá þinemönnum Sjálfstæðis- flokksins og Azþýöuflokksins, um öryggismálin.Tóku margir þingmenn til máls og varð að fresta umræðunni um kl. 7 um kvöldið og taka málið af dagskrá. sagði Einar Agústsson, utanrikisráðherra Umræðurnar hófust með þvi að Geir Hallgrimsson (S) mælti fyrir þingsályktunartillögu þingmanna Sjálfstæðiflokksins um fyrir- komulag viðræðna um öryggis- mál landsins. i upphafi máls sins sagði þingmaðurinn, að Lúðvik Jósefsson sjávarútvegsráðherra, túlkaði ákvæði málefnasamnings rikisstjórnarinnar um varnar- samninginn við Bandarikin á annan veg en Einar Agústsson, utanrikisráðherra, túlkaði hann. Fór þingmaðurinn þess á leit við forsætisráðherra, að hann segði tilum það, hvor þessara ráðherra túlkaði ákvæðið rétt. Þessu næst minnti þingmaðurinn á ummæli nokkurra þingmanna Fram- s<Jknarflokksins um varnarmálin i stúdentablaði Vöku. Þingmaðurinn sagði, að i Noregi hefðu komið fram áhyggjur út af stefnu islenzku rikisstjórnarinnar i varnar- málunum. Hefðu Norðmenn miklar áhyggjur af auknum flotastyrk Sovétmanna á N- Atlantshafi. Afstaða okkar til varnarmála ok'kar væri ekki einkamál okkar, heldur einnig viðkomandi nágrannaþjóða okkar. Við þyrftum þvi að kynna okkur alla málavöxtu sem bezt. Utanríkismálanefnd geri ítarlega athugun segja þingmenn Alþýðuflokksins um öryggismálin EB-Reykjavik. Þingsályktunartillaga Al- þýðuflokksins um öryggis- málin er flutt af öllum þing- mönnum flokksins, en Jón Armann Iléðinsson er fyrsti flutningsmaður hennar. Tillagan hljóðar svo: ,, Alþingi ályktar að fela utanrikismálanefnd að gera itarlega athugun á öryggis- málum Islands. Nefndin skal meðal annars athuga: 1. Gildi varnarsamtaka Atlantshafsbandalagsins fyrir öryggi tslands. 2. Gildi tslands innan þessara varnarsamtaka. 3. Ahrif hinna miklu aukn- ingar á flotastyrk stórvelda á Norður-Atlantshafi á stöðu Islands og nágranna þess. 4. Viðhorf næstu nágranna- þjóða til eftirlitsstöðvanna á Islandi með sérstöku tilliti til Grænlands, Færeyja og Noregs. 5. Gildi radarstöðva og orustuflugsveitar á íslandi fyrir öryggi landsins og varnarkerfi i heild. 6. Starf varnarliðsins með tilliti til hlutverks þess. 7. Möguleikar tslendinga til að taka meiri þátt i eftirlits- starfi yfir Atlantshafi, a.m.k. yfir landgrunninu eða að 100 milna mengunarlögsögu. Ö.Kostnað við varnir lands- ins og efnahagslega þýðingu þeirra fyrir Islendinga. Utanrikismálanefnd er heimilað að ráða starfslið til að vinna að rannsókn þessari og senda fulltrúa til næstu landa til gagnasöfnunar. Nefndin skal gera itarlega skýrslu um öll þessi mál og leggja hana fyrir Alþingi svo fljótt sem unnt er.” o o o Alþýðubandalagið verði ekki með - í viðræðum við erlenda aðila um endurskoðun varnarsamningsins, segja þingmenn SjálfstæðisflJ EB-Reykjavik. Þingsályktunartillaga Sjálf- stæðijsflokksins um öryggis- mál landsins, er flutt af tiu þingmönnum flokksins og er Geir Hallgrímsson fyrsti flutningsmaður tillögunnar, sem hljóðar svo: „Alþingi ályktar að fela hverjum þeirra þingflokka, sem styðja þátttöku Islands i Atlantshafsbandalaginu, að tilnefna einn fulltrúa, sem skuli starfa með utanrikisráð- herra i viðræðum við Banda- rikjamenn og aðrar þjóðir bandalagsins um endurskoðun á varnarsamningi tslands og Bandarikjanna á grundvelli Norður-Atlantshafssamnings- ins, þátttöku tslands i störfum bandalagsins og skipan öryggismála landsins.” Flutningsmenn tillögunnar leggja hér til, samkvæmt þvi sem upplýst hefur verið, að Alþýðubandalagið skuli ekki eiga fulltrúa i þessum við- ræðum, og var mikið rætt um það atriði i umræðunum um þessa tillögu og tillögu þing- flokks Alþýðuflokksins um öryggismálin, sem fram fór i Sameinuðu Alþingi siðast liðinn þriðjudag, og greint er frá annars staðar hér á siðunni. Aðrar þjóðir létu okkur ekki af- skiptalausa. Þá sagði þingmaðurinn og þótt við hefðum her hér, hlytum við að geta gert okkur grein fyrir þvi, hvernig öryggismálum okkar væri bezt fyrirkomið. Það hefði ekki á undanförnum árum, verið hugað vel að þessu. Þingmaðurinn sagði, að stefna rikisstjórnarinnar i varnar- málunum hefði skaðað Island út á við. Við þyrftum að skapa ák- veðna stefnu i þessum málum svo að nágrannaþjóðirnar vissu hvar við stæðum. Að lokum taldi þingmaðurinn að Alþýðubandalagið ætti ekki að vera með i ráðum, þegar fjallað væri um þessi mál, vegna þess að það væri mótfallið aðild tslands að NATO. Jón Armann Iléðinsson (A) mælti fyrir tillögu þingflokks Alþýðuflokksins um öryggis- málin. Rakti hann sögu hersetu á tslandi frá þvi brezkir hermenn stig á land i Reykjavik 10. mai 1940. Hann sagði, að NATO væri meira en hernaðarbandalag. Það stuðlaði að félagslegum, menn ingarlegum og viðskiptalegum tengslum milli aðildarþjóðanna. Þá sagði þingmaðurinn, að i Time væri nýleg grein um aukinn flotastyrk Sovétmanna. Hefðu Sovétmenn aukið flotastyrk sinn gifurlega á undanförnum árum. Ef svo færi fram sem horfði, yrðu Sovétmenn með lang stærsta flota i heiminum eftir nokkur ár. Sagði þingmaðurinn að þetta ylli sér áhyggjum og gerði þvi næst tölu- lega grein fyrir núverandi flota- styrk Sovétmanna. Að lokum sagði hann m.a. að djúpur ágrein- ingur væri nú innan rikisstjórn- arinnar um þessi mál, og ekki væri nú meiri hluti fyrir þvi á Alþingi að gera landið varnar- laust. Einar Agústsson, utanrikis- ráðherra, sagði að Sjálfstæðis- flokksmenn væru sömu skoðunar nú og 1956, þegar þeir áttu ekki heldur aðild að rikisstjórn, að engum væri treystandi að fara með utanrikismál þjóðarinnar, nema þeim sjálfum. Það sem væri frábrugðið við tillöguflutn- ing þeirra þá um þessi mál og til- löguflutninginn nú væri að 1956 hefðu þeir gert tillögu um hlut- fallskosningu i nefnd til að fjalla um þessi mál, en nú leggðu þeir til að hluta þingmanna yrði haldið utan við það að fjalla um þennan hluta af málefnum þjóðarinnar. — Ég tel það ekki lýðræðisleg vinnubrögð, sagði utanrikisráðherra. Ráðherrann upplýsti, að innan tiðar yrðu hafnar viðræður við Bandarikjastjórn um endur- skoðun varnarsamningsins, en niðurstöður endurskoðunarinnar yrðu ekki lagðar fyrir þetta Alþingi heldur hið næsta. Þá sagði hann, að þegar væru farnar að berast utanríkisráðuneytinu skýrslur erlendra aðila, sem óskað hefði verið eftir i sambandi við endurskoðun varnarsamn- ingsins. Lagði utanrfkisráðherra áherzlu á, að gott samstarf yrði haft við utanrikismálanefnd ATþi'ngis varðandi þessi má'l ÖÍT. Þegar meiri upplýsingar bærust, kvaðst utanrikisráðherra, láta nefndinni þær i té. Varðandi þau ummæli Geirs Hallgrimssonar um að stefna rikisstjórnarinnar i varnarmál- unum, hefði skaðað málstað tslands út á við, sagði utanrikis- ráðherra, að hann hefði alls ekki orðið var við slikt hjá þeim erlendu valdamönnum, sem hann hefði rætt við, teldu þeir eðlilegt að rikisstjórnin færi fram á en- durskoðun á nær óbreyttum varnarsamningi i 20 ár. Bað ráð- herrann Geir Hallgrímsson að sanna þessi ummæli sin. Þessu næst sagði utanrikis- ráðherra að mikill hluti greinar gerðar með tillögu þingmanna Sjálfstæðisflokksins, væri byggður á röngum forsendum. t greinargerðinni segir: „Allt frá þvi, að tsland gerðist aðili að Atlantshafsbandalaginu, hefur verið leitazt við að hafa sem nánast samráð milli lýðræðis- flokkanna um framkvæmd varnar mála og starfsemi tslands i bandalaginu, og verður að telja sjálfsagt, að slikt samstarf haldi áfram’.’ Utanrikisráðherra sagði, að þetta væri ekki rétt. Ef Fram- sóknarflokkurinn væri talinn lýðræðisflokkur þá hefði þetta samráð ekki verið haft við hann. t tíð fyrrverandi rikisstjórnar, hefðu tveir fulltrúar Fram- sóknarflokksins i varnarmála- nefndinni, verið látnir vikja úr henni og enginn tekinn inn i staðinn, fyrr en hann hefði látið gera það nú i vetur. Þá segir i greinargerðinni: „Eðli málsins samkvæmt er úti- lokað, að þeir, sem andvigir eru áframhaldandi aðild tslands-að Atlandthafsbandalaginu, taki þátt i viðræðum við það og Bandarikjamenn um varnarmál Islands. Þeir hafa sjálfir lýst yfir þvi, að um þau mál hafi íslend Einar Agústsson ingar ekkert að ræða við Atlants- hafsbandalagið, þvi að þeir eigi þegar að slita öll tengsl við það og hverfa úr samtökunum.” Utanrikisráðherra sagði, að þetta væri ekki heldur rétt. t mál- efnasamningi rikisstjórnarinnar stæði, að varðandi aðild landsins að Atlantshafsbandalaginu skyldi núgildandi skipan haldast að óbreyttum aðstæðum. Alþýðu- bandalagið ætti auðvitað að vera með i ráðum um mikilsvert mál sem þessi. Ennfremur segir i greinargerð þingmanna Sjálfstæðisflokksins: „Upplýst hefur verið, að rikis- stjórnm hefur ákveðið að setja ráðherra við hlið utanrikisráð- herra til að fjalla um endur- skoðun varnarsamningsins.” Utanrikisráðherra sagði, að þetta væri ekki heldur rétt. Hann hefði i byrjun þings sagt, að utan- rikismál og þar með talin varnar- mál heyrðu undir hann og það gilti enn. Um tillögu þingmanna Alþýðu- flokksins, sagði utanrikisráð- herra meðal annars, að þar væri farið fram á breytta starfshætti Alþingis, þ.e. að ein af nefndum þingsins, utanrikismálanefnd, tæki upp sjálfstæða starfsemi og réði til sin starfslið. Aleit ráð- herrann, að slikt þyrfti að athuga á breiðari grundvelli, én taka ekki aðeins eitt mál út úr. Utanrikisráðherra lagði enn áherzlu á, að gottsamstarf yrði haft við utanrikis- málanefnd og engin ákvörðun yrði tekin i öryggismálunum, nema fyrst yrði leitað umsagnar Alþingis. Utanrikisráðherra sagði, að eðlilegt væri að þessar tillögur fengju skoðun i utanriks- málanefnd, en itrekaði það álit sitt, að hann lita á tillögu þing manna Sjálfstæðisflokksins, sem ódulið vantraust á sig. Þá tók til máls Garðar Sigurðsson (AB) og réðst hann harkalega á stefnu Sjálfstæðis- flokksins i þessum málum. Næst tók Svava Jakobsdóttir (AB) til máls og sagði hún m.a. að hún liti ekki á tillögu Sjálfstæðisflokks- þingmanna sem vantraust á ák- veðinn aðila, heldur á lýðræðis- legt stjórnarfar. Ennfremur tóku til máls þeir Bjarni Guðnason (SFV) og Matthias A Mathiesen (S). Um- ræðunni var þvi næst frestað og málið tekið út af dagskrá, enda var komið að kvöldmat. Framkvæmd verði þjóðfélagsleg rannsókn á flutningi fólks til þéttbýlisvið Faxaflóa Tillaga um að Alþingi álykti að fela rikisstjórninni að beita sér fyrir framkvæmd þjóðfélags- legara rannsókna á orsökum fólksflutninga frá hinum ýmsu iandshlutum til þéttbýlissvæð- anna við Faxaflóa, hefur verið lögð fyrir Sameinað Alþingi af fjórum þingmönnum Fram- sóknarflokksins. Greinargerð tillögunnar er svo- hljóðandi: „Á undanförnum áratugum hafa hinir miklu búferlaflutn- ingar verið eitt helzta einkenni islenzkrar þjóðfélagsþróunar. Fólksflóttinn til höfuðborgar- svæðisins hefur skapað margþætt vandamál, er setja mjög svip á islenzka þjóðfélagsgerð nú. Rikisstjórnir og önnur ráðaöfl hafa reynt að beita margvis- legum aðgerðum til að stöðva þenna fólksflótta, en yfirleitt án verulegs árangurs. Byggð hafa verið hafnarmannvirki, sam- göngur-efldar, atvinnufyrir- tækjum komið á fót, menntunar- aðstaða bætt o.s.frv. Þrátt fyrir þetta rýrnar hlutfallslegur ibúa- fjöldi landsbyggðarinnar gagn- vart þéttbýlissvæðinu við Faxa- flóa. Fari svo fram sem horfir i þessum efnum, hlýtur fækkandi ibúafjöldi landsbyggðarinnar að þýða, að örðugra verði um nýt- ingu landsgæða, og af þvi leiði aukinn vanda á sviði framleiðslu til lands og sjávar. Mörg dæmi sýna og sanna, að þótt næg og mikil atvinna sé fyrir hendi, getur ibúum byggðarlags allt að einu fækkað. Auðvelt er oft að geta sér til um orsakirnar i hverju einstöku tilviki. Engu að siður virðist þó full ástæða til að skoða forsendur þessa mikla þjóðarvanda i ljósi nútima félags visinda. Á undanförnum árum hefur þjóðin eignazt unga og áhuga- sama fræðimenn á þessu sviði, einnig hefur verið komið á fót námsbraut i félagsvisindum við Háskóla tslands. Verður að ætla, að hér sé um viðeigandi verkefni að ræða fyrir þessa aðila, og þá þeim mun fremur sem með þvi yrði reynt að finna orsakir válegrar þjóðfélagsmein- semdar.” Flutningsmenn tillögunnar eru þeir Kristján Ingólfsson, Haf- steinn Þorvaldsson, Ingi Tryggvason og Eysteinn Jónsson.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.