Tíminn - 23.03.1972, Page 11
Fimmtudagur 23. marz 1972.
TÍMINN
11
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
GRÆNT UOS TIL MUNCHEN!
Níu marka sigur
gegn Búlgaríu, 19:10
- Aðeins eitt mark
vantaði til að
vinna riðilinn
ALF—Reykjavfk.
— Með glæsilegum sigri yfir
Búlgörum i gærkvöldi, 19:10
tryggði islenzka landsliðið sér
sæti i handknattleikskeppni
Ólympiuleikanna i Míinehen.
Sigur tslands var enn stærri en
búizt hafði verið við — og ekki
ínunaði nema einu marki, að
þeim tækist að sigra i riðlinum og
hljóta þar með rétt til aö leika úr-
Geir — skoraði sex mörk i gær.
slitaleik i Madrid um efsta sætið i
þessari handknattleikskeppni á
Spáni. En Norðmenn sigruðu
Austúrrikismenn með 19:9 — og
skoruðu þvi einu marki fleira og
leika þvi til úrslita gegn Sovét-
mönnum, en island keppir um
þriðja sætið.
En mestu máli skipti að sigra
Búlgara. Það tókst með glæsi-
brag — og það var vel viðeigandi,
að útvarpið lék „Táp og fjör og
friskir menn” eftir að lýsing Jóns
Ásgeirssonar hafi borizt á öldum
ljósvakans frá San Sebastian á
Spáni.
Staðan i hálfleik var 8:5 og
ómögulegt að spá um úrslitin i
siðari hálfleik. En snemma varð
þó ljóst, að Búlgörum myndi ekki
takast að brúa bilið. Og þegar
staðan var orðin 13:8 — og 7
minútur til leiksloka — gerðu þeir
örvæntingafulla tilraun til að
rétta hlut sinn, en þá hófu þeir að
leika „maður á mann”. En sú
leikaðferð þeirra hrundi eins og
spilaborg, þegar þeir misstu
mann út af i 5 minútur. Og á þeim
kafla leiksins, sem nú fór i hönd,
tókst islenzka liðinu að auka bilið
i 17:8, 9 marka mun, en þá tókst
Búlgörum að skora tvö mörk i
röð. En ekki var öll nótt úti enn.
Sigurbergur skoraði 18:10 og
Björgvin 19:10, og vantaði þá að-
eins eitt mark til að ná sömu
markatölu og Norðmenn náðu en
búlgarska markverðinum tókst
að verja. Sekúndurnar liðu ein af
annarri. Og rétt fyrir leikslok átti
Gisli Blöndal skot, en skot hans
hafnaði i markverðinum og tim-
inn var útrunninn.
Þannig var islenzka liðið aðeins
feti frá þvi að sigra i riðlinum, en
það hefðu þeir gert, hefði þeim
tekizt að skora eitt mark til við-
bótar. En fyrsta sæti i riðlinum
var ekki aðalatriðið — heidur
öruggur sigur gegn Búlgariu — og
þar með grænt ljós til Miinchen.
tslenzku leikmennirnir stóðu
sig, allir með tölu, mjög vel i
þessum leik, einkum og sér i lagi
þeir Geir Hailsteinsson, Gisli
Blöndal, Björgvin Björgvinsson
og Sigurbergur Sigsteinsson, svo
og IHjalti markinu, sem varði vel
á þýðingarmiklum augnablikum.
Þá munu þeir Ólafur H. Jónsson
og Gunnsteinn fyrirliði hafa leikið
sérlega vel.
Þetta var fimmti leikur is-
lenzka liðsins i Spánarkeppninni.
Þrir hafa unnizt og tveir orðið
jafntefli. Góð frammistaða það!
SigurbcMgur — gcysigóðurá loka-
minútunum.
Körfuknattleikur:
Línurnar farnarað
skýrast í 2. deild
Linurnar fara nú að skirast i
annarri deild. Auðséð er, að
Njarðvikurbúar og Vestmanna-
eyingar koma til með að berjast
um sæti i fyrstu deild á næsta
ári.
Þótt þessi lið séu i annarri
Stúdentafélag
HÍ höfðar
ekki mál
Að gefnu tilefni vill stjórn
Stúdentafélags Háskóla ts-
lands taka það fram, að það
hefur ekki i hyggju að höfða
má á hendur einum né nein
um, og visar öllum söguburði
um slikt heim til föðurhús-
anna.
Reykjavik, 20,dag marz-
mánaðar 1972.
Stjórn Stúdentafélags Há-
skóla islands.
„Róðurinn getur orðið erfið-
ur hjá íslenzku stúlkunum”
Unglingalandslið stúlkna hefur verið valið
J.Herm. — Reykjavík.
— Dagana 7.—9. april n.k. fer
fram i Sviþjóð Norðurlandamót i
handknattleik kvenna (stúlkur 22
ára og yngri). Auk islands taka
þátt i mótinu Sviþjóð, Danmörk
og Noregur.
Að sögn Gunnars Kjartans-
sonar landsliðsnefndarmanns,
hefur islenzka liðið æft vel að
undanförnu undir stjórn lands-
liðsþjálfarans, Stefáns Sandholt.
Gunnar sagði enn fremur,að i
lenzka liðið væri samstillt — og
meiri breidd, hvað getu snertir,
en oft áður. „En það er vitað mál,
að hinar Norðurlandaþjóðirnar
standa framarlega i kvennahand-
knattleik, og má þvi búast við, að
róðurinn verði þungur fyrir okkar
stúlkur”, sagði Gunnar enn-
fremur.
Auk Gunnars og Stefáns, verða
með i förinni til Sviþjóðar þeir
Sveinn Ragnarsson og Sigriður
Sigurðardóttir (Val).
Eftirtaldar stúlkur hafa verið
valdar til fararinnar:
Magnea Magnúsdóttir, Armanni
Sigurbjörg Pétursdóttir, Val
Björg Guðmundsdóttir, Val
Björg Jónsdóttir, Val
Elin Kristinsdóttir, Val
Sigurjóna Sigurðardottir, Val
Erla Sverrisdóttir, Armanni
Katrin Axelsdóttir, Ármanni
Guðrún Sigurþórsdóttir, Ármanni
Oddný Sigsteinsdóttir, Fram
Guðrún Sverrisdóttir, Fram
Alda Helgadóttir, Breiðablik
Hjördis Sigurjónsdóttir, KR
Sigþrúður H. Sigurbjörnsdóttir
Mörgum þykir valið á unglingalandsliði pilta einkennilegt:
Nefndarmenn hafa sárasjaldan
sézt á leikjum yngri flokkanna
Eins og oft vill verða, þegar
úrvalslið eru valin, verður sú
nefnd manna, sem velur þau,
fyrir gagnrýni. Og var engin
undantekning þar á, þegar
Unglingalandslið pilta, sem
leika á fyrir hönd tslands á
Norðurlandamóti pilta i
Noregi, dagana 7—9. april n.k.,
var opinberlega birt i s.l. viku
Þegar liðið var birt, vakti
það mikið umtal og deilur —
og allir voru á sama máli um,
að unglinganefnd þeirri, sem
valdi liðið, hefði þar orðið á i
messunni, þegar það kom
fram, að einn af leikmönnum
fslandsmeistaranna, Fram,
Andrés Bridde, sem hefur
aldur til að leika með ung-
lingarlandsliðinu, var ekki i
hópnum sem á að leika i .
Noregi. Þá vakti það furðu
manna, að Guðmundur Jó-
hannesson, hin stórhættulega
vinstri handar skytta Þróttar,
Jens Einarsson, hinn bráð-
efnilegi markvörður IR, og
nokkrir leikmenn bezta 2.
flokks liðs okkar nú, Vikings,
eru ekki i hópnum. Þá var
okkur bent á af manni,sem séð
hefur leiki milli 2. flokks pilta
á Akureyri, að þar væru
a.m.k. tveir til þrir leikmenn,
sem ættu heima i unglinga-
landsliðinu.
Og nú velta menn þvi fyrir
sér, hvaða kröfur til leik-
manna sú nefnd geri, sem
valdi liðið, og eftir hverju hún
fór, þegar hún valdi það. Og
þá kemur stóra spurningin:
Hvaða menn eiga sæti i ung-
lingalandsliðsnefndinni?
Þegar fréttist hvaða menn
skipuðu nefndina, varð undir-
ritaður mjög undrandi, þvi að
hann hefur fylgzt með keppni
yngri flokka i vetur og ekki
orðið var við a.m.k. tvo nefn-
darmanna og veit ekki betur
en að einn þeirra hafi ekki séð
leiki i yngri flokkum i mörg
ár. Ef hafa á svona nefndar-
menn, sem sýna okkar ungu
handknattleiksmönnum jafn-
mikla litilsvirðingu, megum
við ekki búast við árangri i
handknattleik á komandi
árum.
Ef svona kæruleysi verður
látið viðgangast, fer þetta að
verða alvarlegt mál. —Skora
ég hér mað á H.S.l. að gera
breytingu á þessu alvarlega
vandamáli. Væri ekki heilla-
ráð að skipa „einvald” til að
velja unglingalandsliðið,
a.m.k. mann, sem gæfi sér
tima til að horfa á leiki i yngri
flokkunum og okkar unga
handknattleiksfólk i kapp-
leikjum, en ekki aðeins á
nokkrum æfingum
Ef einhver hefur eitthvað
við þessa grein að athuga, má
benda á, að iþróttasiða
Timans stendur öllum opin til
skoðanaskipta. SOS
deild, mættu fyrstu deildar liðin
margt af þeim læra.
Það, sem gerði útslagið i
þessum leik, var að Njarðvikur-
búar beittu pressu eftir vægast
sagt lélega byrjun, en þá var
staðan 11 — 11, og ekki hátt á
Njarðvikurbúum risið, þvi liði,
sem fyrir stuttu átti setu i fyrstu
deild.
Pressunni voru KA menn auð-
sjáanlega óviðbúnir, og i hálfleik
var staðan því 41—20.
1 seinni hálfleik jafnast leikur-
inn nokkuð, enda sýnir Kristbjörn
þjálfari UMF'N ekki meira af
pressunni, þvi að hann ætlar sér
auðsjáanlega að nota hana i
fyrstu deildinni á næsta ári, og
þvi óþarfi að flagga henni
framan i njósnara fyrstu deildar
liðanna á áhorfendapöllunum.
Seinni hálfleikinn vinnur
UMFN ekki nema með 25—22, og
endar þvi leikurinn 66—42.
Gjafirnar voru mjög til fyrir-
myndar hjá KA^fastar og hnit-
miðaðar.
Beztu menn KA voru Rögn-
valdur, eitilharður og fljótur
fram i hraðupphlaup, Viktor með
skinandi gott rek og Gunnlaugur,
harður undir körfu og falleg „step
away” stökkskot.
UMFN vantar meira öryggi og
festu i leik sinn fyrir utan ótima-
bærskot, sérstaklega hjá Hilmari
i fyrri hálfleik, og enga baráttu
við fráköstin, sem réttlæta slik
skot.
Annars átti Brynjar beztan leik
UMFN- manna.
ENSK
FÉLAGSAAERKI
Póstsendum
SPORTVÖRUVERZLUN
INGÓLFS ÓSKARS
SONAR
Klapparstig 44 — simi 11783
Reykjavik