Tíminn - 26.03.1972, Side 16
16
TÍMINN
Sunnudagur 26. marz 1972.
Jörð til sölu
Til sölu er jörðin Hvammur i Skaftár-
tungu, ef viðunandi boð fæst. Á jörðinni er
fjárhús fyrir 450 kindur, fjós fyrir 8 gripi
tún 35 hektarar, og góðir ræktunarmögu-
leikar, jörðin er góð fjárjörð og afgirt, 6
kw dieselrafstöð á staðnum, vélar og
áhöld geta fylgt.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum. Upplýsingar gefa
ábúendur jarðarinnar, ekki i sima.
Stúlkur
Nokkrar stúlkur geta fengið vinnu strax,
við ýmiss konar störf.
Belgjagerðin.
UTBOÐ
Óskað er eftir tilboðum i frágang malbik-
aðra bilastæða og gangstiga, við Hraunbæ
2—60. Útboðsgagna skal vitja hjá Verk-
fræðistofunni OPUS, Skólavörðustig 12,
gegn 4000 kr. skilatryggingu.
Auglýsing
um skoðun bifreiða í lögsagnar-
umdæmi Reykjavíkur
Aðalskoðun bifreiða i lögsagnarumdæmi
Reykjavikur i april 1972.
Þriðjudaginn 4. apríl R-2401 til R-2550
Miðvikudaginn 5. ” R-2551 til R-2700
Fimmtudaginn 6. ” R-2701 til R-2850
Föstudaginn 7. ” R-2851 til R-3000
Manudaginn 10. ” R-3001 til R-3150
Þriðjudaginn 11. ” R-3151 til R-3300
Miðvikudaginn 12. ” R-3301 til R-3450
Fimmtudaginn 13. ” R-3451 til R-3600
Föstudaginn 14. ” R-3601 til R-3750
Mánudaginn 17. ” R-3751 til R-3900
Þriðjudaginn 18. ” R-3901 til R-4050
Miðvikudaginn 19. ” R-4051 til R-4200
Föstudaginn 21. ” R-4201 til R-4351
Mánudaginn 24. ” R-4351 til R-4500
Þriðjudaginn 25. ” R-4501 til R-4650
Miðvikudaginn 26. ” R-4651 til R-4800
Fimmtudaginn 27. ” R-4801 til R-4950
Föstudaginn 28. ” R-4951 til R-5100
Bifreiðaeigendum ber að koma meö bifreiöar sinar til bif-
reiðaeftirlitsins, Borgartúni 7, og verður skoðun fram-
kvæmd þar alla virka daga kl. 8,45 til 16,30.
Aöalskoöun veröur ekki framkvæmd á laugardögum.
Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja
bifreiðunum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn bif-
reiðanna leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber skil-
riki fyrir þvi, að bifreiðaskattur og vátryggingagjald öku-
manna fyrir árið 1972 séu greidd og lögboðin vátrygging
fyrir hverja bifreið sé i gildi. Þeir bifreiðaeigendur, sem
hafa viðtæki i bifreiðum sinum, skulu sýna kvittun fyrir
greiðslu afnotagjaida rikisútvarpsins fyrir árið 1972.
Ennfremur ber að framvisa vottorði frá viðurkenndu við-
gerðarverkstæði um.að ljós bifreiðarinnar hafi verið stillt.
Athygli skal vakin á þvi, að skráningarnúmer skulu vera
vel læsileg.
Vanræki einhver aö koma bifreið sinni til skoöunar á aug-
lýstum tima, veröur liann látinn sæta sektum samkvæmt
umferöarlögum og bifreiöin tekin úr umferð, hvar sem til
hennar næst.
betta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli.
Lögreglustjórinn i Reykjavik, 24. marz 1972.
Sigurjón Sigurðsson.
Listahátíðin 72:
HAFA
TVÆR FRA BRASILIU
PANTAÐ MIÐA
Klp—Reykjavik.
Dagskrá Listahátiöarinnar
1972 hefur nú vcrið gerð aö
mcstu leyti. Var hún sýnd á
blaöamannafundi i Norræna
húsinu i gær, þar sem var
saman komin fram-
kvæmdastjórn hátiöarinnar,
svo og Vladimir Ashkenazy,
sem hefur veriö henni mjög
hjálplegur viö aö fá erlenda
listamann til aö koma hingað
á hátiöina.
Undirbúningsvinna að
þessari hátið hófst fyrir ári.
Þessi hátið á ekki að verða
siðri hinni fyrri. Hún verður
stærri i sniðum, og mun fleiri
erlendir listamenn taka þátt i
henni nú. Má þar m.a. nefna
Simfóniuhljómsveit Sænska
rikisútvarpsins, sem Ashk-
enazy sagði að væri ein sú
bezta sinnar tegundar i
Evrópu, leikflokk frá Fin-
nlandi og balletflokk frá
konunglega danska ballet-
inum.
Þetta eru stærstu erlendu
flokkarnir, en auk þeirra
koma svo fram margir ein-
staklingar og má þar t.d.
nefna hinn heimsfræga fiðlu-
leikara Yehudi Uenuhin, sem
m.a. leikur ásamt Ashkenazy
á hljómleikum i Laugardals-
höllinni, gitarleikarann John
Williams, sem sagður er
arftaki Andre Segovia,
söngvarana John Sirley-Quirk
og Kim Borg ásamt fjölda
annarra. Er áætlað, að
erlendu listamennirnir verði
eitthvaðum 200 talsins, en auk
þeirra koma fram á hátiðinni
tugir innlendra listamanna
þ.a'.m. flestir þeir fremstu i
sinni grein.
Ekki er enn ákveðið hvaða
erlendu listamenn það verða,
sem koma fram fyrir popp-
unnendurna , en það verður
annað hvort hljómsveitin The
Who eða þjóðlagasöngkonan
Joan Baez.
Hinum fræga italska kvik-
myndastjóra Antonioni, sem
m.a. gerði kvikmyndina
Zabriskie Point, hefur verið
boðið að koma á hátiðina, og
er mjög líklegt.að hann komi.
Eins og á hátiðinni siðast
verða tvö listaverk afhjúpuð.
Að þessu sinni verður annað
þeirra málverk eftir Kristján
Daviðsson og má kalla það
varanlegt verk, en það
óvaranlega er eftir Kjartan
Guðjónsson og ber það nafnið
Menningavitinn. Hvorugu
þeirra hefur enn verið valinn
staður, en fyrir það siðar-
nefnda verður að velja staðinn
i samráði við Slökkviliðið og
eldvarnareftirlitið, þvi það á
að brenna til ösku i lok hátiðar.
Framkvændastjórn hátiðar-
innar býst við góðri að-sókn á
alla liði hátiðarinnar. Meðal
annars hefur henni borizt
pantanir og fyrirspurnir
erlendis frá. Hafa t.d. tvær
konur frá Brasiliu þegar
pantað miða á hana.
Fjöldi miðapantana berst
vegna skákeinvígisins
OÓ—Reykjavik.
Skáksambandi tslands hafa
engin boð borizt vegna kröfu
Fischers um að ágóða af ein-
viginu verði skipt milli hans og
Spasskys. Eins og sagt var frá i
Timanum sendi Fischer
Guðmundi G. Þórarinssyni skeyti
og heimtaði ágóðann af mótinu.
Guðmundur sendi þegar i stað
svarskeyti til viðkomandi aðila og
sagði, að ekki kæmi til mála aö
breyta gerðum samningum.
Skyggnzt um Frh. af 17. siðu.
mánaöarlaun er hann hætti en
starfiö gildi nú 50 þús., miðast
greiðslan við þá upphæð. Enginn
skyldi ætla, að þessum forrétt-
indum hafi skotið upp eins og
ætisveppi i skugganum, þjóðinni
sjálfri, frá hinni geysiháu fjár-
hæð,sem þetta kostar. Ég hef
heldur ekki orðið þess var, að
BSRB hafi brugöið á loft þessu
djásni úr guliastokki sinum, þótt
ekki hafi skort skraf, undir-
skriftir, og fundahöld, meira að
segja út til fjærstu kima landsins.
Við þekkjum iistsýningar,
búgreinasýningar, fegurðarsam-
keppnir o.s.frv. en að menn
hlaupi sUð úr stað til aö hafa
héraðssýningar á „óvinsældum”
sinum mun einsdæmi.
Það er stutt siðan þjóðinni gaf á
að lita. Ymsir listamenn hennar
birtust i sjónvarpinu og hefðu
sjálfsagt verið betri, ef mynda-
tökumaðurinn væri á listamanna-
iaunum. Svo vill þó til, að Japanir
o.fl. framleiða vélar, sem eru
„idiotproof” en i þessu sambandi
mun það þýða, að þær verki, hver
sem á þeim heldur. Efnafræðin og
glöggskyggni myndatökumanns-
ins ræður samt úrslitum, svo sem
einn járnsmiöur gæti smiðað
listileg skaflajárn undir
Svar hefur ekki borizt frá
FIDE, Fischer, né Edmondson,
forseta bandariska skáksam-
bandsins. Hinn siðastnefndi sagði
i viðtali við fréttastofu útvarps-
sins i gær, að hann hefði aldrei
heyrt um þessa nýjustu kröfu
Fischers.
Þótt enn sé langt i einvigið, eru
farnar að berast pantanir i miða
á einvigið. Áfimmtudag barst
Skáksambandinu beiðni um 40
miða á hverja einustu umferð
pegasusinn en anna ekki. Þvi var
þarna lýst yfir, að 45 þús. kr.
dygðu fyrir 20 sek. afreksverki ,
en allt um það var sýningin hin
snyrtilegasta, enda látprúðir
menn og tillögugóðir mættir þar
þótteinnig sæjust aðrir, sem voru
haldnir einhverri geðvonzkugleði
út af eigin verðleikum.
Það er eitt af undrum
listarinnar, að menn verða fyrir
innblæstri, og þessa dagana fær
þjóðin enn á ný að skynja eitt slikt
dásemdarverk, þ.e. Passiusálma
Hallgrims, sem hann orti sjúkur
og auralaus. A ýmsan annan hátt
birtist tilvist listarinnar, þótt
fram að þessu kvöldi væri álíka
ótitt að virða fyrir sér útblástur
hennar og að sjá heilagan anda.
Maður i hópnum spurði einn dóm-
endanna, hvort hann mætti vera
að þvi að fara frá kúnum til list-
könnunar. Vafalaust átti með
þessu að vanvirða bóndann, og
munu nautgripirnir hafa átt að
undirstrika það. En svona lista-
menn ættu að vera varkárir
þegar kýr eiga i hlut, þvi að þegar
hollenzkur málari einhvers
staðar i þvi blauta landi vildi
mála kúahóp i haganum, fékk
hann sér hvildarblund skammt
frá trönum sinum, En á meðan
hnusuðu kýrnar af listaverkinu og
fóru grönum og slefu um votan
myndflötinn, svo að fram komu
hin furðulegustu mynztur, og sem
siðar urðu tilefni igrundaðra
mótsins, frá ferðaskrifstofu i
London. Er skrifstofan búin að
tryggja hótel fyrir jafnmarga,
Áður barst pöntun um 20 miða á
allac umferðirnar frá Puerto
Rico, og var einnig beðið um að
taka frá hótelherbergi.
Ferðaskrifstofu rikisins hefur
einnig borizt talsvert af pön-
tunum og mikið af fyrirspurnum
erlendis frá, i sambandi við ein-
vigið.
bollalegginga, um frumlega með-
ferð lita og forms. Eitt sinn
gerðist það, að erl. listaverk
komu hingað á sýningu. Fyrir
slysni ráku okkar listamenn seint
og siðir augun i ótilhlýðilega,
rauða klessu á myndinni og töldu
skemmdarverk. Sú niðurlæging,
sem af þvi hlauzt, þegar það
fregnaðist, að klessan var
hlekkur i fullkomnun verksins,
var smá miðað við það skop, sem
Kuh-isminn, til orðinn á safa-
mýrum Hollands, vakti á sinum
tima.
Þótt til séu með hverri þjóð
listamenn, búnir slikum yfir-
burðum, að um þá er varla deilt,
eiga jafnvel „sérfræðingar” i
orrahríð út af öðrum. Okkar
aðferð við að verðleggja listir
hefur ekki gefizt vel, enda illt að
gera til hæfis, þótt fyllstu am-
vizkusemi sé gætt. Sýnna væri, að
listgreinafénu yrði skipt, t.d.
fengi útvarpið hljómlistarhlut-
annn gegn þvi að útvarpa 2-3 kl.
tima á dag isl. tónlist. Þannig
fengju tónlistarmenn laun, sem
gætu mismunazt með óskaþáttum
eingöngu fyrir innlenda nútima
tónlist. Bókmenntaféð ætti að
ganga til útgáfu allra isl. skáld-
verka, sem stæðust bók-
mennalegt mat, og greiða mætti
höfundi strax nokkur ritlaun, en
aðaltekjur hans kæmu frá söl-
unni, t.d. með 50% af andvirði
hverrar bókar. Góð sala, sem um
leið er dómur fólksins, mun gefa
höfundinum nokkra fúlgu.
Við einn þátt hinnar „skapandi
listar” verður erfiðara að fást.
Spaug Magnúsar Árnasonar um
að láta fávita dæma um gildi
myndlistar kemur varla til fram-
kvæmda. Annars má hann gerst
um þetta vita, þvi að stéttar-
bræður hans eru þeir einu menn,
sem hafa tapað i samkeppni við
apa, þótt ég vildi ekki skjóta
verkum hans né annarra góðra
listamanna undir svo vafasama
útkomu.
..List um landið” og erlendis,
alhliða útgáfustarfsemi o.fl. gæti
einnig komið til hjálpar, og ef þær
menningarstofnanir, sem nú eru
til. kæmu hér ekki höndum að.
ættu listgreinafélögin að njóta
styrkja i þessu skyni.
Friðrik Þorvaldsson.
Menntamálaráð
veitir á þessu ári kr. 500 þúsund til is-
lenzkra kvikmyndagerðarmanna. Ráðið
áskilur sér rétt til að veita styrkinn i einu
eða tvennu lagi.
Umsóknum um fé þetta skal fylgja itarleg
greinargerð um verk það, er umsækjandi
vinnur að.
Umsóknir skulu hafa borizt til Mennta-
málaráðs, Skálholtsstig 7, fyrir 20. april.
Menntamálaráð íslands.