Tíminn - 28.03.1972, Qupperneq 2
2
TÍMINN
Þriðjudagur 28. marz 1972.
Æpt í vindinn
Ýmsir blaðalesendur hafa
orð á þvi þessa dagana, að það
sé bæði kimilegt og grátlegt að
lesa stjórnmálaskrif ihalds-
blaðanna, eða i einu orði sagt
grátbroslcgt. Þetta á við um
óhljóðin, sem berast úr ihalds-
herbúðunum eftirað vörn þess
hers fyrir ihaldsskattakerfið
var brostin, vörn sem minnti á
aðfarir grimms dýrs, sem ver
afkvæmi. Nú er sem ihalds-
blöðin finni sér helzt fró i þvi
að æpa i vindinn. Sú svölun er
gamalkunn að tapaðri
orrustu.
Eitt rekur sig á annars
horn
Þcssi óp i vindinn eru af
undarlegasta tagi. Fólk hefur
tekið eftir þvi, að stjórnarand-
staðan hefur ekki ásakað
þessa rikisstjórn fyrir að-
gerðalcysi, sem þó er al-
gengastur ásteytingarsteinn,
heldur fyrir það að hafa gert
of mikið, verið offljótað ráðast
i storvirki, og sá áróður verið
rekinn undir þvi yfirskyni, að
flaustrað væri að málunum.
Menii muna lciðarana, sem
Vfsir skrifaði um flaustrið
cftir áramótin, og Mbl. hafði
þó enn fleiri og stærri orð um
það. Þctta voru sem sagt
kveinstafir ihaldsins undan
þvi, hve rösklega og vasklega
rikisstjórnin tók til höndum,
live órög hún var að ráðast á
ihaldsgarðinn þar sem hann
var hæstur.
Nú er komið annað hljóð i
ihaldsstrokkinn. A laugardag-
iun hrópar Mbl. i leiðarafyrir-
sögn i vindinn og spyr, hve
lengi rikisstjórnin ætli að sitja
mcð liendur i skautil! Það er
skammt öfganna á milli. A
sunnudaginn er svo vindópið:
Algert stjórnlcysi i efnahags-
máluin, og látnar fylgja við-
cigandi kviður og rokur i
ýmsar áttir. Visir herðir á
hljóðunum i gær og æpir:
óvinsæl rikisstjórn. Engar
röksemdir tilgreindar fyrir
staðhæfingunni.
Þannig cr ástandið þessa
daga. Stjórnarandstaðan virð-
ist kappkosta að sýna þjóðinni
hið aumlega ástand sitt og al-
gera truflun, og að hún telji út-
hurðarvælið skásta úrræðið á
flóttanum. Það er von, að sú
sönglist sé mönnuin hugstæð á
ihaldsheimilinu. svo mjög scm
nálgast útburður
flokksforingja ihaldsins , og
mun þá gert ráð fyrir að frem-
ur verði að bera út tvo eða
þrjá en einn.
Hrollvekja fædd - en
verður borin út
Bragð kunnáttumanna er
alkunnugt úr þjóðsögum, að
þcir létu ókindur, er þeir vildu
koma á aðra, taka á sig liki
fallegrar stúlku. Þess bragðs
hugðist Jóhann íhaldskappi
neyta fyrir siðustu kosningar.
Hann sýndi meyna tágranna
og kallaði hana Verðstöðvun.
Ilins vegar skyldi hún vera
með barni, en ekki mætti sjá á
henni fyrir kosningar. ólafur
Björnsson gerði galdramanni
þann grikk að Ijóstra upp um
þungann, senvhann sagði að
fæðast mundi á næsta vetri, og
skfrði hann afkvæmið þegar
Hrollvekju og lýsti vel hvað
fælist undir meyjarskinninu.
Nú er Hrollvekja fædd, en
rlkisstjórnin hefur fullan hug
á að bera hana út. —AK
Hvers vegna
mundi hann ekki
eftirþví fyrr?
I ■ ■l|ll|i|l"'l 111
niifl, M l[ H, Ifi!! m ffll i: M R M A sl,
Hér kemur fyrst bréf frá J. D.
og minnir það á gamla og kunna
visu, sem hófst svo:
Meinleg gleymska manninn
hrjáði
meðan i stjórn og þingi sat.
Landfari góður!
Alþýðuflokkurinn er nú að
burðast við að tylla sér upp á
söngpallinn i tvisöngskórinn
mikla um skatta og tekjuöflun
til milljarðaþarfa rikisins,
sem að verulegu leyti eru
„fornar syndir” Viðreisnar.
En eitt munum við m.a. frá
fyrstu viðbrögðum Viðreisnar
iskattamálum. Þá fékk tekju-
hæsti maðurinn i minni sveit,
sem var þá ómagalaus, 10 þús.
kr. skattalækkun, eða jafn-
mikla og 34 aðrir gjaldendur i
hreppnum. Það munaði um
minna, þvi að isl. krónan var
þá ekki nær hórfallin.
Alþýðublaðið er i leiðara
sinum að hæla fyrrverandi
sjávarútvegsmálaráðherra
sinum fyrir það, að hann hafi
flutt það mál nú a. þessu
þingi, að gjaldendur yrðu ekki
eftir leiðis að tviborga álög
sin og skatta, sem atvinnurek-
endur hefðu dregið frá kaupi
þeirra, en svo týnt
peningunum á leiðinni frá
eigin innheimtu til rikis-
kassans.
En mér er spurn, hvers-
vegna mundi hann ekki eftir
Atvi nnu rekendu r
Að gefnu tilefni skal vakin athygli á, að
samkvæmt ákvæðum heilbrigðissam-
þykktar Reykjavikur þarf löggildingu
heilbrigðismálaráðs (heilbrigðisnefndar)
á húsakynnum, sem ætluð eru til:
Tilbúnings, geymslu og dreifingar á mat-
vælum og öðrum neyzluvörum.
Matsölu, gisti- og veitingahússstarfsemi.
Skólahalds.
Reksturs barnaheimila, ennfremur sjúkr-
ahúsa og annarra heilbrigðisstofnana.
Reksturs rakara-, hárgreiðslu- og hvers
konar snyrtistofa.
Iðju og iðnaðar.
Umsóknir skulu sendar heilbrigðismála-
ráði áður en starfrækslan hefst, og er til
þess mælzt, að hlutaðeigendur hafi þegar i
upphafi samráð við skrifstofu borgar-
læknis um undirbúning og tilhögun starf-
seminnar um allt, er varðar hreinlæti og
hollustuhætti.
Heilbrigðismálaráð.
GARÐYRKJUBÆNDUR
Nú getum við útvegað yður plast gróður-
hús frá MUOYIHUONE i Finnlandi.
Lægri stofnkostnaöur
Fljótleg uppsetning
Breidd 6,5 og 7,5 m, hæð 2,9 og 2,5 m
Lengd ótakmörkuð
Heilsárshús og sumarhús
Hringiö, skrifið eöa komið og við munum gefa nánari upp-
lýsingar.
H.G. GUÐJÓNSSON
Stigahlið 45-7, Suöurveri,
Reykjavik, sími 37637.
þessu fyrr, — meðan Viðreisn
var og hér?
Varla er þetta spánnýtt
fyrirbrigði, eða hvað?
14/3 1972
Glímuvísur um
góðan kappa
Og hér kemur annað bréf
fra Þórarni á Skúfi og hljóðar
svo:
„Heill og sæll, Landfari góður.
Ég sný mér til þin upp á
gamlan kunningskap. Þetta
erindi hefði þó máski átt
fremur heima i „Islendinga-
þáttum”, en hvort tveggja er,
að ég er enginn eftirmæla-
smiður eða afmælisgreinahöf-
undur i venjulegum stil, en hef
komið til þinna húsa fyrr og er
vanafastur, eins og stundum
vill verða um þá, sem gamlir
eru orðnir.
Bjarni Frimannsson bóndi
og oddviti á Efri—Mýrum i
Engihliðarhreppi er sjötiu og
fimm ára I dag, 12 marz. Nú
datt mér i hug að minnast
hans með gamaldags stökum,
þvi að við erum kunningjar, en
ég kann náttúrlega ekki nýju
lögin. Visurnar koma þvi hér á
eftir.
Með vinsamlegri kveðju til
þin Landfari.
Glimuvisur til Bjarna
Frimannssonar
75 ára, 12 marz 1972:
Man ég háan, hreysti knáan,
hlaupafráan, ungan mann.
Mátti sjá'ann, minnast á'ann,
Mýra—Páann nýgiftan.
Manndómsára orku neytti
á hann bárust félagsstörf,
tökin ára þá við þreytti
þung var bára — timahvörf.
Breyttu menn um búskaps
hætti.
Burtu rennur liðin tið.
Glimt er enn af öllum mætti,
ennþá brennur keppnistrið.
Grána Páa höfuðhárin,
heldur máist fjaðraskraut.
Til að ná á elliárin
ekki smá er glimuþraut.
Heldur velli, kjark og kjarna
kallinn brellinn margt við
þing.
Fellir Elli enn ei Bjarna,
er þó kelling glimuslyng.
Blönduósi. 12. marz.
Þórarinn Þorleifsson frá
Skúfi.
TIL SÖLU
Vörubill Mercedes
Benz 1513, árgerð
1971, ekinn 60 þúsund
km., sem nýr. Uppl. i
sima 52157.
TIL SÖLU
6 cyl. Trader dieselvél ásamt
girkassa og sturtuúrtaki.
Stálpallur og sturtur. Hásing
með nýlegu drifi, felgur og
dekk, og vökvastýri (drag-
stöng). Upplýsingar i síma
52157 á kvöldin.