Tíminn - 28.03.1972, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 28. marz 1972.
TÍMINN
7
0
Vill verða
sérkennilegri.
Franska visnasöngkonan
Juliette Greco, sem er 44 ára
gömul, hafði lengi vel miklar
áhyggjur af útliti sinu. Verst
þótti henni að þurfa að burðast
með nefið, sem var bæði langt
og með krók. Svo gerðist það, að
hún hitti bandariska kvik-
myndastjórann David Selznick,
og hann kostaði upp á nýtt nef
fyrir hana. Árangurinn varð sá,
að hún sló i gegn, eftir nefbreyt-
inguna. En nú er hún aftur orðin
þreytt á nefinu og útlitinu, og
hefur ákveðið að gangast undir
nýja andlitsaðgerð, og ætlunin
er, að andlit hennar verði enn
sérkennilegra eftir aðgerðina en
fyrir. — Ég er stórhrifin af þvi,
hvað mikið er hægt að gera fyrir
andlitið á manni með þessum
aðgerðum segir Jiliette Greco.
☆ #
Loks kom sonurinn.
Maureen Swanson, eiginkona
greifans af Dudley hefur gert
margitrekaðar tilraunir til þess
að gefa manni sinum son, en það
tókst ekki i fimm fyrstu skiptin.
Alltaf reyndist nýi erfinginn
vera dóttir, og eins og sjá má á
myndinni, er ekki ástæða til
þess að vera óánægður með
þessar fimm litlu dætur. Þær
eru hver annarri myndarlegri.
En fólk getur langað i syni, ekki
sizt, þegar dæturnar eru orðnar
svona margar. Enn gerðu
hjónin tilraun, og hvað gerðist
ekki. Þeim fæddist myndar-
legur sonur, og nú eru allir hinir
ánægðustu, og dæturnar fimm
eflaust himinlifandi yfir að vera
búnar að eignast bróður. Litlu
stúlkurnar- heita Suzanne,
Cressida, Omalia, Melissa og
Victoria, en nafn sonarins vitum
við þvi miður ekki.
Erfingi er fæddur.
Kikiserfingi er fæddur i
Kanada, ef hægt er að kalla
hann það, þvi faðir hans er að-
eins forsætisráðherra. Móðirin
er Margaret Trudeau, tuttugu
og þriggja ára gömul, en
maöurinn hennar er Pierre
Ellíot Trudeau, hinn 52 ára
gamli forsætisráðherra. Hér er
mynd af frú Trudeau, þegar
I dóttir Kosygins forsætisráð-
3 herra Sovétrikjanna heimsótti
Kanada i haust. Kanadiska for-
II sætisráðherrafrúin er hér kom-
a in alllangt á leið, en er að sýna
11 sóvézku stúlkunni það helzta,
e sem til sýnis er i hennar eigin
a heimabyggð.
☆
Bítlaklúbbarnir
lagöir niöur
Ringó Starr, einn af Bitlunum
frægu, sagði, þegar tilkynnt
var, að hætta yrði starfsemi
brezka bitlaklúbbsins, að ekki
væri ástæða til að halda honum
starfandi lengur, þar sem Bitl-
arnir væru ekki lengur saman.
Þessu mætti likja við það, þegar
brezka heimsveldið breyttist i
brezka samveldið og nú væri
þetta allt aö breytast i eins
konar efnahagsbandalag með
tilkomu EBE. Það þýddi ekki að
reyna að breiða yfir breyting-
arnar. Fólk yrði að horfast i
augu við þær, hvort sem um
brezka heimsveldið eða bitlana
væri að ræða. t Bandarikjunum
hafa einnig verið starfandi
Bitlaklúbbar, en þeir hafa hætt
starfseminni. Ekki er talið lik-
legt, að Kingo Starr, John
Lennon, Paul Mc Cartney og
George Harrison eigi eftir að
koma fram opinberlega aftur
aliir saman, en að sjálfsögðu á
fólk eftir að spila plötur þeirra
lengi enn.
Bauö blaöamönnum
næturgistingu
Elie de Kothschild baron var
að opna nýtt hólel nýlega, og
eftir það var skrifuð frétt um
hann i Washington Post, en það
var fréttaritari blaðsins i Paris,
sem fréttina skrifaði. Hann
lurðaði sig á þvi, að Rothschild
barón skyldi hafa sent hópi
blaðamanna boöskort, þar sem
þeim var boðið að koma og eyða
kvöldi og einni nóttu á hótel-
inu. A boðskortinu var spurzl
l'yrir um það, hvort bglaða-
mcnnirnir hyggðust verða einir,
eða hvort þeir hefðu einhvern
með sér. Ástæðan mun hafa
veriö sú, að meö þvi að vita
fyrirfram, hvort blaðamenn-
irnir kæmu einir eða ekki, gátu
hótelyfirvöldin sparað sér að
þurfa að spyrja mjög nákvæm-
iega um það, þegar að innskrift
á hótelið kæmi, hvort blaða-
mennirnir væru með eiginkon-
urnar með sér, eða hvort um
einhverjar aðrar vinkonur
þeirra væri að ræða.
Ansjósa er dýr sem felur sig i dós,
og sézt bara, þegar gestir koma.
—Óskar, hvað á ég að segja
pabba? Hann er alltaf að spyrja,
hvað ég sjái við þig.
—Hvernig veiztu að þessi
páfagaukur er 4000 ára gamall?
—Hann er ennþá að kalla á
Kólumbus.
Ungi maðurinn heilsaði ken-
naranum kurteislega, þegar hann
mætti honum á götunni, en fékk
bara smánikk i staðinn.
—Þér þekkið mig vist ekki, sagði
ungi maðurinn.
—Jú ég þekki þig alveg siðan það
var þér að kenna, að móður þinni
var vikið úr skólanum.
—Ég var asni, þegar ég giftist
þér.
—Já, og ég var svo ástfangin, að
ég tók ekki eftirþvi*
Árni var svo latur, að það var
yfirgengilegt. Hann reyndi alltaf
að koma sér undan öllum
skyldum sinum. Það var loks ,
þegar hann fór i herinn, að hann
varð allt i einu ein bezta skytta
þar. Skýringin sögðu félagarnir,
að væri sú, að hann nennti ekki að
láta hendurnar skjálfa, þegar
hann miðaði.
—Amanda! Það er búið að ákveða
að gera mig að framleiðslustjóra!
DENNI
DÆAAALAUSI
llvernig geta þeir sett djúsinn úr
flöskunum inn i appelsinurnar?