Tíminn - 28.03.1972, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 28. marz 1972.
TÍMINN
Fagnað sögulegum
þáttaskilum
Aðalfundur miðstjórnar Framsóknarflokks-
ins, sem haldinn var 24. - 26. þ.m., bar glöggan
vott um þann fögnuð, sem myndun vinstri
stjórnarinnar, undir forystu Ólafs Jóhannes-
sonar, hefur vakið meðal Framsóknarmanna
um land allt. Þessi fögnuður er sprottinn af
þvi, að stjórnin gefur fyrirheit um mikil og
heillarik þáttaskil i sögu þjóðarinnar, og sjást
þegar mörg merki þess i verki, þótt starfstimi
stjórnarinnar sé ekki orðinn lengri en niu mán-
uðir.
1 stjórnmálaályktun aðalfundarins er bent á
nokkur atriði þeirra sögulegu þáttaskila, sem
hér hafa orðið. íslenzkt frumkvæði og framtak
er á ný leitt til öndvegis, og kappkostað verður
að islenzka þjóðin sjálf nýti gæði landsins.
Skipulagshyggja er lögð til grundvallar við
stjórn efnahags- og atvinnumála. Hafið er náið
samstarf rikisvaldsins og hinna fjölmennu
félagsmálahreyfinga, verkalýðssamtakanna
og samvinnufélagsskaparins. Sjálfstæð utan-
rikisstefna hefur verið mörkuð. Gjörbreytt
vinnubrögð hafa verið tekin upp i landhelgis-
málinu.
Það mun að sjálfsögðu valda hinni nýju st-
jórn verulegum erfiðleikum, að hún tók við
slæmum arfi i efnahagsmálum þjóðarinnar. Er
þar skemmst að minnast hins mikla viðskipta-
halla við útlönd, sem nam hvorki meira né
minna en 4000 millj. kr. á siðasta ári. En þrátt
fyrir erfiðleika, sem af þessu stafa, horfa
stuðningsmenn vinstri stjórnarinnar vonbjört-
um augum til framtiðarinnar.
Framundan biða mörg stór verkefni. Nauð-
synlegt er að gera róttækar aðgerðir vegna
hinnar óhagstæðu gjaldeyrisstöðu. Þá verður
að búa sig undir það, að sóknin i landhelgis-
málinu geti kostað einhverjar fórnir um skeið.
Togaraflotann verður að endurnýja, og stór-
bæta verður rekstur frystihúsanna. Hefja þarf
nýja sókn i landgræðslumálum. Stuðla verður
að auknu jafnvægi i byggð landsins. Þannig
mætti telja áfram. Verkefnin, sem biða vinstri
stjórnarinnar, eru vissulega mikil, en sigur-
launin verða lika mikil, ef það tekst að leysa
þau.
Til þess að vinstri stjórnin fullnægi þeim
vonum, sem við hana eru bundnar, skiptir
höfuðmáli, að allir fylgismenn hennar skipi sér
fast um hana og láti rógsiðju stjórnarandstöð-
unnar engan árangur bera. Þá getur stjórnar-
samstarfið ekki aðeins borið góðan árangur á
þessu kjörtimabili, heldur orðið upphaf að far-
sælu samstarfi vinstri aflanna.
Hér hvilir sérstök skylda á Framsóknar-
mönnum, jafnhliða þvi, að þeir þurfa að vinna
vel að eflingu flokks sins. Efling hans er, eins
. og segir i stjórnmálaályktun aðalfundarins for-
senda þess, að landinu verði framvegis stjórn-
að i anda félagshyggju og samvinnu, og með
jöfnuð og félagslegt öryggi að markmiði.
Þ.Þ.
r
Stjórnmálaályktun aðal-
fundar miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins 1972
A&alfundur miöstjórnar Framsóknarflokksins
lýsir ánægju sinni meö myndun vinstristjórnar-
innar og málefnasamningi hennar. Fundurinn
þakkar formanni og öörum ieiötogum flokksins
skelegga forustu um stjórnarmyndun og fagnar
ötulu umbótastarfi rikisstjórnarinnar.
Með myndun ráöuneytis ólafs Jóhannessonr
hefur veriöbrotið blaö I islenzkri sögu. islenzkt
frumkvæöi og Islenzkt framtak er ieitt til önd-
vegis og kappkostað aö islenzka þjóöin sjálf nýti
gæöi landsins. Skipulagshyggja er lögö til
grundvallar viö stjórn efnahags- og atvinnu-
mála. Hafið er náiö samstarf ríkisvaldsins og
hinna fjölmennu félagsmálahreyfinga, verka-
lýös- og samvinnuhreyfingar. Sjálfstæö utan-
rfkisstefna mörkuö. Gjörbreytt vinnubrögð tekin
upp I landhelgismálinu.
— 0 —
Fundurinn vekur athygli á þvl, aö viðskilnaður
rikisstjórnar Jóhanns Hafstein var meö þeim
hætti, aö valdiö hefur og valda hlýtur verulegum
erfiðleikum i efnahagsmálum þjóöarinnar.
Arfurinn frá fyrrverandi stjórn er meöal annars
fólginn i þessu :
Viðskiptahalli s.l. árs nam 4000 milljónum
króna.
Fyrirfram ráöstafaö fé af rikistekjum þessa
árs nam á þriöja þilsund milljónum króna.
Vantalin útgjöld á fjárlögum siöasta árs námu
þúsund milljónum króna.
Skuldahalli vegna opinberra framkvæmda
nam hundruðum milljóna króna.
óhjákvæmilegum veröhækkunum haföi meö
verðstöðvuninni veriö skotiö á frest um skeiö.
Slik var hrollvekjan.
— 0 —
Aöalfundurinn telur, aö útfærsla fiskveiöilög-
sögunnar sé forsenda fyrir efnahagslegu sjálf-
stæöi þjóðarinnar. Hann fagnar þvi, sem þegar
hefur áunnizt i landhelgismálinu og sérstaklega
þeirri samstööu, sem náöist viö endanlega af-
greiðslu málsins á Alþingi.
Fundinum er ljóst aö framundan er hörö
barátta viö volduga andstæðinga I þessu lifs-
hagsmunamáli en er sannfærður um aö sigur
muni vinnast fyrir örugga forystu rikisstjórnar-
innar og órofa samstööu þjóðarinnar.
Fundurinn lýsir ánægju sinni meö þann mikil-
væga áfanga, sem náöist i kjaramálunum meö
samningunum i desember og margvislegar aö-
geröir rikisstjórnarinnar til þess aö bæta kjör
þeirra lægst launuðu. t efnahagsmálunum
varöar nú mestu aö tryggja þaö, að veröbólga og
dýrtíö fái ekki eytt þessum kjarabótum.
Fundurinn fagnar þvi myndarlega átaki, sem
verið er aö gera til aö byggja togaraflota lands-
manna upp aö nýju og vekur jafnframt athygli á
þeim mikilvægu endurbótum sen nauösynlegar
eru á næstu árum, á frystihúsum og öörum mat-
vælaiðjuverum og umhverfi þeirra, og lýsir
þeirri skoöun sinni, aö þær framkvæmdir séu
meðal þeirra mikilvægustu, sem þjóöarinnar
biöa nú, þvi aö matvælaiönaöur landsmanna
veröi aö vera hinn fullkomnasti og samkeppnis-
fær á öilum mörkuöum og fiskiönaöurinn veröi
framvegis aö vera sú lyftistöng fyrir þjóðarbú-
skapinn og hin fjölmörgu byggöarlög, sem hann
hefur veriö og þarf aö veröa um langa framtið.
Jafnframt standa fyrir dyrum miklar fram-
kvæmdir á öörum sviðum atvinnulifsins og
auknar opinberar þjónustuframkvæmdir, sem
óhjákvæmilegar eru vegna vanrækslu Iiöinna
ára. Framkvæmdaþörfin er því mjög mikil en
framkvæmdagetan takmarkast af vinnuafli og
öörum þáttum. Sé reynt aö framkvæma umfram
þá getu, leiöir þaö aðeins til veröbólgu og viö-
skiptahalla. Nauösynlegt er þvi aö tryggja sam-
ræmi milli fjárfestingarfyrirætlana, fram-
kvæmdagetu og fjáröflunar meö forgangsrööun
og vali á framkvæmdum.
Fundurinn fagnar þvi, aö komið hefur veriö á
fót Framkvæmdastofnun rikisins, sem m.a.
hefur þetta hlutverk, og telur aö meö þvi sé
stigið stórt skref til aukinnar skipulagshyggju i
islenzkum þjóöarbúskap.
Nauösynlegt er, aö afla þess fjár til fjár-
festingar, sem tryggi fulla nýtingu fram-
kvæmdagetunnar og jafnframt er óhjákvæmi-
iegt aö styrkja greiðslustöðu rikissjóös og
þjóöarbúsins I heild i þvi góöæri, sem yfir
stendur, ekki sizt meö tilliti til þeirra viöskipta-
öröugleika, sem gætu fylgt I kjölfar þeirra bar-
áttu, sem viö nú heyjum fyrir stækkaöri land-
helgi.
Eftir skuldasöfnun undanfarinna ára eru
miklar erlendar lántökur varasamar, en fundur-
inn er þess fullviss, aö þjóöin vilji mikiö á sig
leggja til aö tryggja uppbyggingu atvinnulifsins
og efnalegt sjálfstæði. Leggur fundurinn þvi til,
aö fjár veröi aflaö I þessu skyni einkum meö lán-
tökum innanlands t.d. útgáfu spariskirteina og
nýrrá tekna veröi aflað meö þeim hætti aö sem
minnst áhrif hafi á almennan framfærslukostn-
aö I landinu.
Fundurinn telur, aö i byggöamálum hljóti
jöfnuöur meöal landsmanna aö vera megin-
markmiö aögena. t þvi skyni vill miöstjórnin
minna á nauösyn þess aö skapaö af fjölþættara
atvinnu- og menningarlif, treysta heilhrigöis-
þjónustu, bæta samgöngur og flytja ýmsar opin-
berar stofnanir til dreifbýlisins. Ber því a6
leggja rika áherzlu á kerfisbundna eflingu at-
vinnuvega og atvinnulifs I dreifbýli landsins og
mun Framkvæmdastofnunin einnig á þvi sviöi
gegna mikilvægu híutverki.
Jafnframt minnir fundurinn á þann mikla
þátt, sem samvinnuhreyfingin hefur átt og
hlýtur aö eiga I aö skapa fólkinu viösvegar um
land viðunandi afkotnu.
Fundurinn legur áherzlu á þaö mikilvæga
hlutverk, sem landbúnaöurinn hefur I þjóöar-
búskapnum m.a. sem undirstaða helztu vaxtar-
greina islenzks iönaöar og aö gerö veröi heildar
áætlun um landgræðslu og skipulega nýtingu
landsins.
Fundurinn lýsiránægju sinni meö þriggja ára
áætlun um rafvæöingu dreifbýlisins og ákvöröun
um áframhaldandi virkjun fallvatna landsins.
Hann væntir þess, aö orkulindir landsins veröi
hiö fyrsta rannsakaðar til hlitar og unnið aö
skipulegri nýtingu þeirra til bættra lifskjara
fyrir þjóöina alla. Fundurinn telur nauösynlegt
aö hraðaö veröi gerö iönþróunaráætlunar og
veröi i henni lögö höfuöáherzla á uppbyggingu
fjölþætts iönaöar i eigu landsmanna sjálfra.
Fundurinn lýsir ánægju sinni meö þá yfir-
lýsingu dómsinálaráöherra aö hann muni efna
til endurskoðunar á dómaskipun I landinu og
vekur jafnframt athygli á þvi ófremdarástandi,
sem er rikjandi i fangelsismálum og iram-
kvæmd refsidóma og hvetur til umbóta I þeim
efnum.
Fundurinn telur aökallandi aö taka til endur-
skoöunar stjórnsýslukerfi sveitar- og héraös-
mála og lögfesta stööu landshlutasamtaka.
Miöstjórnin telur þær endurbætur i skattalög-
gjöfinni og lögunum um tekjustofna sveita-
félaga, sem lögfestar hafa veriö, stórt skref I
rétta átt, en áréttar jafnframt, aö heildarendur-
skoöun þessara mála eigi aö fylgja I kjölfarið.
Fundurinn telur aö athuga beri sérstaklega
skattalega verndun sparnaöar.
Miöstjórnin itrekar ályktun seinasta flokks-
þings I utanrikismálum og fagnar ákvöröuninni
um endurskoöun varnarsamningsins.
Aðalfundinum er ljóst, aö meö myndun vinstri
stjórnarinnar var hiö mikilvægasta skref stigiö
til myndunar þess stjórnmálaafls, sem 15.
flokksþingiö ákvaö aö vinna aö. t þessu sam-
bandi lýsir miöstjórnin samþykki slnu viö ák-
vöröun framkvæmdastjórnar um aö gerast aöili
aö stofnun nefndar fjögurra flokka sem hafi þaö
hlutverk, aö kanna og gera tillögur á hvern hátt
veröi bezt mótaö sameiginlegt stjórnmálaafl
allra þeirra, sem aöhyllast hugsjónir jafnaöar,
samvinnu og lýöræöis. Jafnframt leggur fundur-
inn áherzlu á aö um stjórnarsamstarfiö þarf
fyrst og fremst aö standa vörö, þá getur þaö
oröiö grundvöllur aö áframhaldandi og nánara
samstarfi vinstri flokkanna I landinu.
Aö lokum hvetur fundurinn flokksmenn og
stuöningsmenn til þess aö efla flokkinn og
flokksstarfiö og þjóöina alla til aö veita Fram-
sóknarflokknum aukiö brautargengi. Efling
hans er forsenda þess aö landinu veröi framveg-
is stjórnaö I anda félagshyggju og samvinnu og
meö jöfnuö og félagsöryggi aö markmiöi.