Tíminn - 30.03.1972, Qupperneq 24
Páskarnir heima og heiman
Hér á eftir er ætlunin að hafa
samtining um það, sem Islend-
ingar eru að gera og geta gert um
páskana. Eins og gengur, leggja
margir land undir fætur, hjól eða
vængi, en aðrir verða einhverra
hluta vegna að vera heima. Þeir
geta lika gert ýmislegt, altént
horft á sjónvarp og hlustað á út-
varp, en þar verður ýmislegt til
hátiðabirgða, eins og sést af dag-
skránni á öðrum stað i blaðinu.
Páskaveðrið
Veðurstofan treysti sér ekki i
gærtilaögefa nákvæma spá fyrir
alla páskadagana, en búizt var þó
við, aö snjórinn héldist fyrir
norðan og vestan. Von er á
sunnanátt bráðlega, sem liklega
tekur upp allan snjó hér sunnan-
lands fyrir helgina. Litillega mun
hlýna i veöri um allt land, en þó
ekki gera asahálku.
Akureyri
lvar Sigmundsson, fram-
kvæmdastjóri Hliðarfjalls, kvað
allt þar til reiðu fyrir páskagesti.
Raunar væru mjög margir
komnir og heföu notað nýfallna
snjóinn siöan um helgi. 1 Hliðar-
fjalli fer fram Unglingameistara-
mót tslands á skiöum, og lengi
var óttazt, að snjórinn léti ekki
sjá sig. En nú er hann sem sagt
kominn, og starfsfólk skiða-
hótelsins hefur haft ósköpin öll aö
gera þessa vikuna, við að sinna
gestum.
Flugfélagið
Svo mikið var að gera hjá F.t. i
fyrradag, að simakerfið lét undan
og samband náöist ekki i um klst.
Sveinn Sæmundsson sagði okkur,
að óskaplega mikið væri um aö
vera, bæöi innanlands og utan,
hjá félaginu. Þota verður i förum
i dag milli Reykjavikur og Akur-
eyrar og flytur mörg hundruö
manns norður. Til tsafjarðar
fljúga einnig mörg hundruð, og er
langur biðlisti i hverja einustu
flugvél, sem þangað fer fram að
helgi. Þá fiytur Flugfélagið
einnig hundruð manna til sólar-
land i páskaferðir.
I sumri og sól
Sifellt færist nú i vöxt, að
tslendingar fari utan um páska.
Lauslega áætlað verða núum 1000
manns erlendis i sérstökum
páskaferöum ferðaskrifstofa, auk
allra hinna, sem eru á eigin veg-
um. Guðni i Sunnu sendi i gær 340
manns til sólarlanda i þotu Loft-
leiöa, leiguflugvél frá F.t. og
annari frá BEA. Þá verða um 60
manns i Kaupmannahöfn á
vegum Sunnu um páskana, og 40
manns i London. Sagði Guöni, aö
þetta væri með langmesta móti af
páskaferðalögum til þessa.
ísafjöröur
A tsafirði fer skiðalandsmótið
fram aö þessu sinni. Þar er nægur
snjór i skiöalandinu, en iitill niðri
i bænum. Að venju verður mikið
um að vera i mannlifinu i kring
um mótiö, skemmtanir, kvöld-
vökur og dansleikir flest kvöld.
Gullfoss er kominn vestur með
250 farþega, sem margir verða
eftir á lsafirði, þegar skipið
heldur norður fyrir og til Akur-
eyrar, þar sem þaö liggur um
helgina. t bakaleiðinni tekur
Gullfoss svo þá sem eftir urðu
meö sér til Reykjavikur aftur. t
gær voru um 600 manns komnir
meö flugvélum til Isafjarðar, og
verður flutningum haldið áfram i
dag af enn meiri krafti.
Fjölnir gaf 100
þús. f hjartabíl
Lionsklúbburinn Fjölnir hefur
gefið 100 þúsund kr. i söfnun
Blaöamannafélags tslands til
kauþa á fullkomnum sjúkrabil til
minningar um Hauk Hauksson
blaöamann. Formaður klúbbsins,
Richard Hannesson, afhenti for-
manni Blaðamannafélagsins
upphæöina i gær. Þá er vitað, að
margir starfshópar eru með
söfnun i gangi innan sinna vé-
banda, en eins og áöur hefur veriö
getið, taka gjaldkerar dagblað-
anna á móti framlögum i söfnun
Blaðamannafélagsins.
Út í náttúruna
Að venju halda þeir fjallafarar
Guömundur Jónasson og Úlfar
Jakobsen uppi páskaferðalögum
út i náttúruna. Að þessu sinni er
hætt við að Grimsvatnahlaupiö
hafi einhver áhrif á öræfaferðir,
en þá verður bara gert eitthvað
annað i staðinn. Meö Guðmundi
munu um 60 manns fara austur á
bóginn um páskana, i öræfi,
Núpsstaöaskóg og ef til vill i
Þórsmörk i bakaleiðinni. 80-90
manns eru i ferðum Guðmundar,
og verður farið upp undir Jökul til
að skoða hlaupið, siðani Meðal-
land, Þykkvabæ og á Hjörleifs-
höföa, auk fleiri staða, e.t.v.
Sigöldu.
Feröafélagið
efnir til gönguferða um fjöll og
firnindi alla páskadagana, i dag á
Vifilsfell, á morgun i Lækjar-
botna og á Sandfell, á laugardag i
Bláfjöll á Páskadag á Helgafell
og Valahnúka, og a annan páska-
dag veröur gengin strandganga
frá Kúagerði. Þá efnir félagið til
lengri ferða, til dæmis 5 daga i
Þórsmörk, sem farið var i i
morgun, og 2 1/2 dags ferð á sama
stað. Fullt mun vera i báðar
þessar ferðir.
Vikuhátiö á Selfossi
Sæluvika Selfyssinga, eða
Arvakan, eins og þeir nefna hana,
hófst i gærkvöldi og mun öllum,
sem leggja leið sina til Selfoss um
páskana, gefast tækifæri til að
skoða þar fjölda sýninga og
skemmta sér við eitt og annað, og
það verður satt að segja ekkert
smávegis, sem Selfyssingar
bjóða uþp á. Arvakan stendur
óslitið fram á mánudagskvöld, og
er tilvalið fyrir þá Reykvikinga,
sem ekki hafa fri alla páskana, að
skreppa þarna austur til hátiða-
brigða.
Þeir, sem heima sitja
Hér á undan höfum við talið upp
það helzta sem ferðalangar gera
um páskana. Þeir eru nú flestir
farnir af stað og óskum við þeim
bara góðra páska. En i Reykjavik
eru margir, sem ekki fara neitt
um páskana, ýmissa hluta vegna.
Auðvitað geta þeir skemmt sér
lika. Eins og áður var minnzt á,
er fjölbreytt dagskrá útvarps og
sjónvarps i blaðinu, og ef menn
vilja fara i bió eða leikhús, þá
bendum við einnig á þeirra aug-
lýsingar.
Tónlistarlifið i borginni virðist
vera fjölbreytt um hátiðarnar.
Pólýfónkórinn flytur Mattheusar-
passiuna i Háskólabiói á föstu-
dag, laugardag og páskadag og
skal tekið fram, að miöar, sem
áttu aö gilda aö hljómleikunum,
sem fella varö niöur i Háteigs- og
Landakotskirkjum, gilda á
laugardaginn. Niu einsöngvarar
taka þátt i flutningunum.
Þá er finnskur kór hér staddur,
og syngur hann einnig i Háskóla-
biói á laugardaginn kl. 2. Dóm-
kórinn flytur passiu i Dóm-
kirkjunni á morgun kl. 5, og er að-
gangur ókeypis og öllum heimill.
Jesús og „súperstjarnan"
Aðfararnótt páskadags veröur i
safnarðarheimili Langholts-
sóknar nýstárleg næturvaka. Þaö
er- skiptinemar þjóðkirkjunnar,
sem þargangastfyrir Jesú-vöku.
Alla nóttina verður eitthvað á
dagskránni, fylgzt verður með
pislarsögunni, rætt um málefni
fanga og alkóhólista og um
hjálparstarf kirkjunnar. Undir
morguninn annast biskupinn
helgistund. Súpa, kaffi og te
veröur á boðstólum alla nóttina.
A páskadagskvöld heldur ungt
fólk samkomu I Tónabæ um
páskahátíöina. Er þetta tilraun
unga fólksins til aö flytja
páskaboðskapinn á einlægan og
óhefðbundinn hátt. A dagskránni
verða erindi og tónlist, m.a. úr
„Jesus Christ Superstar”, flutt af
verzlunarskólakórnum. Bæði
ungir og eldri eru þarna hjartan-
lega velkomnir.
Á skíöi í nágrennið
Ems og fram kom i gpjallinu við
veðurstofuna, er von á suölægri
átt og hlýnandi veðri og jafnvel
úrkomu á suð-austurhorninu. Ef
snjórinn skyldi þó haldast hér i
grenndinni, er hægt að bregða sér
á skiði skammt frá, til dæmis
r————————v
Fimmtudagur 30. marz 1972.
-
suður i Bláfjöll, þar sem risa á
skiöaparadis Reykvikinga i ná-
inni framtið.
Fyrir þá, sem hyggjast fara i
bilferöir út i bláinh, er vert að
geta þess, að bensinafgreiðslur
eru i dag og á annan i páskum
opnar frá 9.30 til 11.30 og 13-18. A
laugardag verða þær opnar allan
daginn, en lokaðar allan daginn á
morgun og páskadag.
Strætisvagnar
En ekki eiga allir eigin bila, og
þá er vert aö athuga með aksturs-
máta strætisvagnanna, þvi að
einhverntima verða þeir bil-
stjórar að eiga fri. Bezt er auð-
vitað að eiga leiðabók, en þó er
sitthvaö i henni, sem gildir ekki
núna. Til dæmis hefst akstur á
morgun og páskadag ekki fyrr en
kl. 13.00. Hina dagana er akstur
eins og venjulega á helgidögum,
og á laugardag eins og á venju-
legum laugardegi.
t dag og á mánudaginn aka
Hafnarfjarðarvagnarnir eins og á
sunnudögum, og á laugardag eins
og venjulega. A morgun og
Páskadag hefjast ferðir kl. 14.00.
Kópavogsvagnar aka i dag frá
10-24,00 á morgun frá 2-24.00,
Framhald á bls. 14
---;—
É' t-ú
f
_________________I_________I_________________1_____________
OSTA
BAKKINN
er einstaklega skemmtilegur og fjölbreytilegur réttur. Tihalinn sjónvarps-
réttur, daglegur eftirréttur, milli eda eftirréttur vió hútíóleg tcekifœri og sér-
réttur ú köldu borói. Reynid'-ostabakka - þad er auóvelt.
Ostabakki
Raðið saman á fat ostum og ávöxtum eða græn-
meti og berið fram sem eftirrétt. Gott er að velja
saman milda og sterka osttegund. Þegar ostabakki
er borinn fram sem daglegur eftirréttur, eru tvær
til þrjár osttegúndir settar á bakka ásamt einum til
tveim tegundum af ávöxtum eða grænmeti, ost-
stykkin borin fram heil, svo hver og einn geti skorið
sér ostbita eftir vild.
t
A hátíðaborðið má skera oststafi, teninga og
sneiðar af ýmsum osttegundum og raða smekk-
lega á stóran bakka ásamt ávöxtum eða grænmeti.
Á meðfylgjandi mynd má sjá: Gráðost, camembert
ost, stykki af port salUl tvær ostsneiðar vafðar
upp ofan á ostinum, valhnetukjarna stungið í,
tilsitterost skorinn í þykkar, þríhyrndar sneiðar,
teninga af goudaosti ásamt grænum og rauðum
kokkteilberjum, stungið í appelsínu og teninga af
sterkum goudaosti með mandarínurifi. Ennfremur
eru á bakkanum appelsína, banani, epli og vínber.
Fallegt er að skreyta með grænu grænmeti, svo sem
steinselju, dilli eða blaðsalati, þegar völ er á því.
Ymsa fleiri ávexti og grænmeti má hafa með ost-
unum á ostabakka, svo sem hreðkur, tómata,
agúrkur, ólífur, döðlur, gráfikjur, perur og ananas.
OMas-ct/ Am/ötea&mfy