Tíminn - 05.04.1972, Qupperneq 9
Miðvikudagur 5. apríl 1972
TÍMINN
9
■^■'■■■■■■■■■■:'<'-:':\.
Ö>g?íancii; Fraði*6ktta r«okkurfnn
Fra:iT>kv?enKla»ti(iri; Krlstíán BemtdfkfsSört, ftjtstjórari Þórarirtrt
Þórarlnsson |ábL Artdtás KrlífíánSSört, Jón Hóigáíórt, Ihdrtði
G. Þorsteinsson og Tómas Karfsson. AugJýsingastjóri: Steírt-
grímur öíslason. Ritstiórnarskrifstofur I 6<fdubú$irtU, sftnar
18300 — JáSúó. 5ícrif?tofitr RankastrætJ 7. — Afgreiðslusfmi
12323. Augfýsingasiroj 19533( ASrar skrifstofur simi TSÍúú.
Áskriffargíald kr. 22S.0Q: :á:: tnánuSt: innanlands.:: J:: tartsasolu
ktv IS.OO álntákií. ^ Ðiaðaprertt h.f. (Offtatf
Hótanir EBE-ríkja
Enginn vafi er á þvi, að stefnu okkar i land-
helgismálum vex nú verulega fylgi i samfélagi
þjóðanna. Telja má nú all öruggt, að meirihluti
þjóða heims muni telja eðlilegt að strandrikj
um beri viðtækur réttur til nýtingar fiskimiða
út til sanngjarnrar fjarlægðar frá ströndum
sinum eða 50-200 milur.
En þessar staðreyndir mega ekki verða þess
valdandi, að menn haldi, að sigur okkar I bar-
áttunni fyrir 50 milna fiskveiðilögsögu við ís-
land eftir 1. september n.k. verði andstöðu- og
fyrirhafnarlaus. Riki Efnahagsbandalags
Evrópu, með Bretland og Þjóðverja i broddi
fylkingar, hóta okkur hörðu. Efnahagsbanda-
lagið hefur viðtæka möguleika til að beita
okkur þvingunum. Raunar er þessi barátta
Efnahagsbandalags Evrópu gegn okkur þegar
hafin. Efnahagsbandalagið hefur gert íslend-
ingum lang óhagstæðasta tilboð þeirra þjóða,
sem leita eftir viðskiptasamningum við banda-
lagið nú, eftir að sýnt er, að EFTA leysist upp
með aðild Breta, Dana og Norðmanna að Efna-
hagsbandalagi Evrópu. Efnahagsbandalagið
hefur bundið hagstæðara tilboð til íslendinga
þeim skilyrðum, að íslendingar hætti við
áform sin um að færa fiskveiðilögsöguna i 50
milur 1. september. Að slikum kröfum munu
íslendingar aldrei ganga. Þeir munu heldur
ekki undan láta, þótt Efnahagsbandalaginu
muni ekki þykja nóg að gert með þvi að neita
okkur um eðlilega viðskiptasamninga á grund-
velli gagnkvæmra réttinda, heldur láti einstök
EBE-riki innflutningsbann fylgja i kjölfarið.
En séum við staðráðin i að láta ekki kúga
okkur i þessu lifshagsmunamáli okkar, þurfum
við að gera okkur sem bezta grein fyrir þvi,
hvað barátta okkar kann að kosta okkur i bili,
hvaða fórnir við þurfum að færa til að standa á
lifsrétti okkar, og siðast en ekki sizt, til hvaða
ráða við eigum að gripa til að mæta þeim erfið-
leikum, sem Efnahagsbandalagslöndin geta
bakað okkur.
Á siðasta ári fór 27% útflutnings okkar til
Efnahagsbandalagsrikjanna og Danmerkur,
Noregs og Bretlands. Við þurfum þvi kannski
að afla fjórðungi útflutningsframleiðslu okkar
nýrra markaða. Þetta verða menn jafnan að
hafa i huga, um leið og þeir fagna hverri nýrri
yfirlýsingu rikja utan Efnahagsbandalagsins,
sem lýsa stuðningi við málstað okkar og bar-
áttu i landhelgismálinu.
f þessu sambandi skiptir það okkur geysilega
miklu máli, hver afstaða Bandarikjastjórnar
og stuðningur við okkur verður. Bandarikin
eru fyrir okkur ekki aðeins öflugasta veldið
meðal hinna vestrænu rikja, heldur er þar i
landi stærsti og hagstæðasti fiskmarkaður
okkar — sá markaður, sem liklegastur er til að
taka við þeim fjórðungi útflutningsframleiðslu
okkar, á hagstæðu verði, sem EBE kynni að
loka fyrir. —TK
ERLENT YFIRLIT
AAól I.T.T. getur reynzt
Nixon þungt í skauti
Það sýnir nSo miklc vo!d stórhringanna í Bandaríkjunum
ÞAÐ er sagt, að Harold
Geneen, aðalforstjóri I.T.T.,
hafi látið svo um mælt fyrir
rúmu ári, að það ylli honum
talsverðum heilabrotum, að
hægt væri að inna 15 manns á
götunni eftir því, hvað I.T.T.
væri, án þess að nokkur þeirra
gæti svarað því.
Sennilega hefur þetta verið
rétt. I.T.T. var að sönnu stórt
fyrirtæki 1959, þegar Geneen
tók við stjórn þess. Það fékkst
þá aðallega við simarekstur,
eins og lika nafn þess bendir
til. International Telephone
and Telegraph Corp. Það
stundaði þá þennan rekstur i
mörgum löndum, og árleg
velta þess var nálægt 800
millj. dollara. Undir forustu
Geneens hefur það stöðugt
fært út kviarnar og lagt undir
sig eða keypt upp fyrirtæki i
hinum ólikustu starfsgreinum.
Það hefur lagt undir sig einn
af stærri hótelhringum i
Bandarikjunum, Sheraton-
hótelin, eitt stærasta trygg-
ingafyrirtækið (Hartford
Fire), einn stærsta bilaleigu-
hringinn (Avis) o.s.frv. Jafn-
framt hefur það fært út
kviarnar erlendis, einkum i
Evrópu, en áður hafði það
aðallega fengizl við sima-
rekstur i Suður-Ameriku.
I.T.T. er nú talið áttunda
stærsta fyrirtækið i Banda-
rikjunum. Velta þess var talin
7,3 billjónir dollara á siðastl.
ári. Hreinn ágóði var áætlaður
337 millj. dollara. Talið var, að
það hefði um 400 þús. manns i
þjónustu sinni i 67 löndum.
HAROLD GENEEN getur
ekki lengur kvartað und
an þvi, að þetta fyrirtæki hans
sé óþekkt. Það getur hann
þakkað sænsk-danska blaða-
manninum Jack Anderson.
Hitt er vafasamara, hvort
Geneen er þakklátur fyrir þá
frægð eða umtal, sem fyrir-
tæki hans hefur hlotið. En sá,
sem er vafalaust minnst þakk-
látur Anderson, er Nixon for-
seti, þvi að I.T.T.-málið komst
á dagskrá rétt eftir að hann
kom heim frá Kina og hefur
siðan verið meira blaða-og
sjónvarpsefni en nokkurt
annað mál. Það hefur hins-
vegar orðið demokrötum mjög
kærkomið, þvi að það hefur
dregið athygli frá prófkjörun-
um, sem eru demokrötum nú
mjög til leiðinda og erfiðleika.
Upphaf þessa máls var það,
að Mitchell dómsmálaráð-
herra dró sig i hlé til þess að
gerast aðalkosningastjóri
Nixons við væntanlegar for-
setakosningar. Nixon tilnefndi
i hans stað Kleindienst
aðstoðardómsmálaráðherra.
Samkvæmt venju þurfti dóms-
málanefnd öldungadeildar-
innar að samþykkja tilrrfningu
hans, og var ekkert talið þvi til
fyrirstöðu. En það breyttist,
þegar Jack Anderson kom
til sögunnar. Kleindienst
var svo óhygginn að óska
eftir að nefndin athugaði s-
rstaklega söguburð hans og
hreinsaði sig af þeirri ákæru,
sem fólst i honum. Þetta hefur
orðið til þess, að nefndin hefur
frestað að taka afstöðu til út-
nefningar Kleiridienst, og
þykir nú nokkur vafi leika á
þvi, hver endanleg niðurstaða
hennar verður.
ÞATTUR Andersons var sá,
að hann birti i hinum fræga
blaðadálki sinum eins konar
minnisblað, sem einn af erind-
rekum I.T.T., frú Dita D.
Beard, hafði skrifað einum
forstjóra fyrirtækisins 25. júni
siðastl. Efni þessa minnis-
Ilarold Geneen
blaðs var það, að ekki mætti á
neinn hátt vitnast, að I.T.T.
hefði lofað að greiða 400 þús.
dollara sem framlag til
flokksþings republikana næsta
sumar, þvi að það gæti haft
hin verstu áhrif á samningana
við dómsmálaráðuneytið. Frú
Beard lagði áherzlu á, að þetta
minnisblað hennar yrði tafar-
laust eyðilagt, en það var ekki
gert, og barst það siðan An-
derson i hendur eftir króka-
leiðum. Anderson birti min-
nisblaðið og bætti þvi siðan
við, að Kleindienst hefði átt
aðild að umræddum samning-
um I.T.T. við dómsmálaráðu
neytið, en Kleindienst hafði
skýrt dómsmálanefndinni frá
þvi, i desember siðasliðnum,
að hann hefði ekkert nálægt
þvi máli komið.
ÁÐUR en Anderson birti
þetta minnisblað, hafði ekkert
verið vitað um þetta framlag
I.T.T. til flokksþings republik-
ana. Fréttin um það kom eins
og þruma úr heiðskiru lofti, og
þó einkum vegna þess, að
fáum dögum eftir að frú Beard
hafði skrifað umrætt minnis-
blað, hafði náðst samkomulag
milli I.T.T. og dómsmálaráðu-
n,eytisins i máli, sem hafði
vakiðmikla athygli. Þetta mál
var þannig til komið, að rétt
eftir valdatöku sina fól Nixon
velmetnum lögfræðingi,
Richard M. McLaren, að
vinna á vegum dómsmála-
ráðuneytisins að þvi að hindra
óeðlilegar hringamyndanir.
Eitt af þeim málum, sem
McLaren lét sérstaklega til sin
taka, voru kaup I.T.T. á
tryggingafyrirtækinu Hart-
ford Fire. McLaren krafðist
þess, að I.T.T. hætti við þessi
kaup, en þegar það neitaði,
hugðist hann visa málinu til
hæstaréttar. A siðustu stundu
breytti McLaren um stefnu.
Hann samdi viö I.T.T. á þeim
grundvelli, að það fengi að
kaupa Hartford Fire, en seldi i
staðinn önnur minni fyrirtæki.
McLaren gekk skömmu siðar
úr þjónustu dómsmálaráðu-
neytisins og gerðist dómari. I
yfirheyrslum hjá dómsmála-
nefndinni kvaðst hann hafa
skipt um skoðun vegna þess,
að sérfræðingar hefðu sann-
færthann um, að það gæti haft
óheppileg áhrif á verðbréfa
markaðinn i Bandarikjunum
og gjaldeyrisstöðu Bandarikj-
anna, ef I.T.T. yrði að hætta
við kaupin á Hartford Fire.
Það upplýstist einnig, að það
hafði verið Kleindienst, er
hafði komið McLaren i sam-
band við umrædda sérfræð-
inga, enda þótt hann væri áður
búinn að segja, að hann hefði
hvergi nálægt þessu máli
komið. Það upplýstist, að bæði
hann og Mitchell höfðu rætt
við ýmsa helztu forstjóra
I.T.T., en Mitchell heldur fast
við það, að Hartford-málið
hafi aldrei borið þar á góma.
En allt hefur þetta orðið til
að gefa þeirri sögu vængi, að
I.T.T. hafi fyrst náð hinu hag-
stæða samkomulagi við dóms-
málaráðuneytið eftir að það
var búið að leggja fram 400
þús. dollara til flokksþings
republikana. Um það framlag
segja þeir Kleindienst og
Michell þó, að þeim hafi verið
alveg ókunnugt.
SIÐAN yfirheyrslur hófust
hjá dómsmálanefndinni i til-
efni af minnisblaði brú Beard,
hefur sitthvað dularfullt gerzt.
Fyrst hvan frú Beard, en siðar
spurðist, að hún hefði fengið
kransæðastiflu, er hún var i
flugvél á leið frá Washington
til Denver, og hefði hún verið
lögð þar á spitala, þungt hald-
in. í fyrstu viðurkenndu ráða-
menn I.T.T. að hún hefði
skrifað umrætt minnisblað, en
þvi var borið við, að hún væri
drykkkfelld og taugaæst og
hefði skrifað þetta i einhverj-
um æsingi, og þvi fært allt i
stilinn og sagt meira en rétt
var. Þá var gefið í skyn, að
ekki hefði verið lofað nema 100
þús.$ framlagi til flokksþings
ins. Eftir að þrjár vikur voru
liðnar frá þvi að Anderson
birti minnisblaðið, kom fyrst
yfirlýsing frá lögfræðingi frú
Beard um að minnisblaðið
væri falsað, og það sama
endurtók hún, þegar þing-
mannanefnd yfirheyrði hana á
spitalanum. Þeirri yfirheyrslu
lauk þó aldrei, þvi að frú
Beard veiktist áður. Það er
hins vegar upplýst, að frú
Beard var búin að segja
blaðamanni frá Anderson það
i votta viðurvist, áður en hún
veiktist, að hún hefði samið
umrætt minnisblað. Þá hefur
það ekki dregið úr tortryggni,
að I.T.T. hefur viðurkennt, að
það hafi látið eyðileggja öll
minnisblöð frá frú Beard, og
ýms minnisblöð önnur, svo að
þau lentu ekki i höndunum á
Anderson! En ekki virðist'
þetta þó hafa nægt, þvi að rétt
á eftir birti Anderson mörg
minnisblöð frá erindrekum
I.T.T., er sönnuðu, að þeir
höfðu verið með ráðagerðir
um að koma i veg fyrir valda-
töku Allende i Chile, en þar á
I.T.T. miklar eignir. Utan-
rikismálanefnd öldunga-
deildarinnar hefur nú ákveðið
að rannsaka það mál sérstak-
lega.
A ÞESSU STIGI verður það
ekki talið sannað, að I.T.T.
hafi lagt fram stórfé til flokks-
þings republikana gegn þvi, að
það næði hagkvæmri lausn á
máli, sem það var að semja
um við dómsmálaráðuneytið.
Hins vegar hefur þetta mál
sýnt ótvirætt, að stórhringarn-
ir eiga greiðan aðgang að
æðstu valdamönnum Banda-
rikjanna og að hagsmunir
hringanna eru oft taldir slikir,
að það er talið skerða hags-
muni Bandarikjanna sjálfra,
ef eitthvað er við þeim
hróflað. Þetta mál getur átt
eftir að hafa óheppileg áhrif
fyrir Nixon i kosningabarátt-
unni, þar sem republikanar-ru
taldir enn tengdari stórhring-
um en demokratar, enda segir
Anderson, að érindrekar
Hvita hússins og stjórnarinnar
geri nú allt, sem þeir geti, til
að eyðileggja mannorð hans,
en hann muni samt halda fyrri
iðju sinni óhikað áfram. Þ.Þ.