Tíminn - 05.04.1972, Side 16

Tíminn - 05.04.1972, Side 16
16 TÍMINN Miftvikudagur 5. april 1972 Árni óðinsson og Haukur Jóhannsson FÓRU DAGLEGA 40 KÍLÓMETRA A SKÍÐUM í BANDARÍKJUNUM Rætt við Hauk Jóhannson og Árna Óðinsson frá Akureyri, íslands meistarana í alpagreinunum Haukur Jóhannsson og Arni Óðinsson, báðir frá Akureyri, höfðu þó nokkra yfirburði fram yfir aðra keppendur i alpagreinunum á Landsnóti - nu á tsafirði. Haukur sigraði i sviginu, varð annar i stór- sviginu og sigraði alpatvi- keppnina. Arni sigraði hins vegar stórsvigið og varð annar i stórsviginu. bað er næstum óþarft að kynna Árna fyrir skiðaunn- endum, en hann varð tslands- meistari i stórsvigi árið 1969, en þá keppti hann i fyrsta skipti i karlaflokki. Stór- svigið vann hann einnig i fyrra. bá sigraði Árni i sviginu 1970 og 1971. Haukur keppti hins vegar i fyrsta skipti i karlaflokki á Landsmótinu i fyrra, og varð hann þá þriðji i stórsvigi og svigi, og núna ári seinna varð hann tslandsmeistari i fyrsta sinn. Arni og Haukur sögðu okkur, er við ræddum við þá, að þeir hefðu verið við æfingar frá þvi i byrjun desember i Sun Valley i Bandarikjunum. bangað komust þeir á vegum Magnúsar Guðmundssonar, hins landskunna skiðamanns. beir Haukur og Arni sögðust sérstaklega vilja þakka Magnúsi fyrir alla þá aðstoð, sem hann hefði veitt þeim. Til Isiands komu þeir i byrjun marz, og höfðu þeir þá verið þar i rúma þrjá mánuði. bessi timi, sem við vorum þarna úti, sögðu þeir, hjálpaði okkur geysilega. Við vorum alla daga á skiðum frá 9—5, og gátum við rennt okkur upp i 4 kilómetra i einu. Ef við reiknum með að hafa farið 10 ferðir á dag, höfum við farið allt upp i 40 km á skiðum á degi hverjum. — Er ekki mikill munur að geta æft erlendis? Jú, munurinn er geysi- legur, og allan þann tima., sem við dvöldumst i Bandarikjun- um, fórum við aldrei i braut, lieldur stunduðum við það, sem Bandarikjamenn kalla ,,free-skiing”, það er að segja við fórum i frjálsu allan daginn. betta er miklu raun- hæfari leið til þess að breyta sjálfum sór. En þvi miður er enginaðstaða til ,,free-skiing” hér á landi. — llafið þið ráðgert að reyna að æfa eitthvað i sumar? — 1 sumar verður vinnan fyrst og fremst að sitja fyrir. Við ráðgerum samt að hlaupa, og ef við getum, þá skreppum við i Kerlingarfjöll. Akureyringar „stálu senunni” á landsmóti — hiutu 10 guilverðlaun af 13, sem þeir kepptu um „Heimavöllurinn" reyndist Isfirðingum ekki vel að þessu sinni Arni óðinsson, Akureyri, á fullri ferð í brautinni. bó—isafirði. Skiðalandsmóti islands lauk á isafirði i fyrradag. Mótinu lauk með þvi, að kcppt var i :í0 km göngu, sem varð að fresta á páskadag vegna veðurs. Veöur- guðirnir voru keppendum og mótsstjórn erfirðir að þessu sinni sem oft áður á landsmótum. Keppendur voru að þessu sinni 78, og voru þeir færri en oftast áð- ur. Enda er það svo, að núorðið mæta yfirleitt ekki aðrir til keppni en þeir, sem einhverja möguleika hafa á sigri. Eins og oft áður voru Akureyr- ingar sterkir i öilum greinum, sem þeir kepptu i, og að þessu sinni hlutu þeir 10 gullverðlaun. bessi 10 gull koma úr þeim 13 greinum, sem Akureyringar tóku þátt i og verður þetta að teljast i'rábær árangur. bað vakti at- hygli, að Isfirðingar skyldu ekki vera sterkari á heimavelli. Aldrei þessu vant hlutu þeir ekkert gull, en i sárabót kræktu þeir sér i nokkur silfur. Einhver lægð virð- ist nú vera meðal isfirzkra skiða- manna, en hún ætti ekki að vara lengi, þar sem þeir eru búnir aö koma sér upp frábærri aðstöðu. Nú siðast komu þeir sér upp skiðalyftu, sem nær upp á fjalls- brún á Seljalandsdal. Fullvist má telja, að Islending- ar hafi aldrei átt jafnsterkari skiöamenn en um þessar mundir. 1 alpagreinunum virðast framfar- irnar hafa orðið mjög miklar, og má þakka það hinni bættu aðstöðu við æfingar, sem orðið hafa sið- ustu árin. 1 alpagreinunum voru fjórir menn i sérflokki, en það voru Akureyringarnir Árni Óðinsson og Haukur Jóhannsson, Heykvikingurinn Tómas Jónsson og lsfiröingurinn Hafsteinn Sigurðsson. bess má geta, að þeir þrir fyrsl nefndu voru allir við æfingar erlendis i vetur. bátttak- Heynir Sveinsson endur i kvennaflokki voru kannski helzt til fáir. En kven- fólkinu hefur farið mikið fram siðustu árin, sérstaklega hvað þær eru orðnar jafnari, og þar af leiðandi verður keppnin skemm- tilegri. bað er leiðinlegt að þurfa að segja frá þvi, hve mikil lægð er i norrænu greinunum á Islandi um þessar mundir. bað eru sömu mennirnir, sem bera þetta uppi ár eftir ár. bó var það svo á þessu móti, að þrir ungir piltar vöktu eftirtekt i göngunni. bað voru Heynir Sveinsson, Fljóta- maður, Ilaildór Matthiasson, Akureyri, sem reyn'dar var þegar orðinn [íekktur göngumaður, og Davið Höskuldsson, tsafirði. Allir þessir menn eiga þess eflaust kost að ná langt i göngunni, ef þeir fá tækifæri og aðstöðu til að æfa af fullum krafti. Hér er stórt verkefni fyrir Skiðasambandið, og það verður að sjá til þess, að norrænu greinarnar skipi þann sess, sem þeim ber. Enda eru þær að mörgu leyti skemmtilegri iþrótt fyrir áhorfendur, en alpagreinarnar, þó svo að þær séu einnig skemm- tilegar. urslit á Skíðamóti íslands 1972. Úrslit i stökki. 1. Björn bór ólafss. Ó 212.6st 2. Steingr. Garðarss. S 212 st 3. Sig. borkelss. S 199.6 st 17-19 ára 1. Sigurg. Erl.ss. S 213.3 st 2. Hörður Geirss. S 209,3 st 3. Baldv. Stefánss. A 206.0 st Úrslit i stórsvigi karla: 1. Árni óðinsson A 79.80 73.51 153.31 2. Haukur Jóhannsson A 79.27 74.36 153.63 3. Tómas Jónsson R 80.26 75.50 155.76 Úrslit i svigi karla: 1. Haukur Jóhannsson A 62.17 57.88 120.05 2. Hafsteinn Sigurðsson I 63.67 58.35 122.02 3. Árni Óðinsson A 63.14 59.10.122.24 Úrslit i Alpatvikeppni karla: 1. Haukur Jóhannsson A 1.40 0.00 1.40 2. Árni Óðinsson A 0.00 9.59 9.59 Æfði einsamall í snjóleysinu Ungur Fljótamaður, Reynir Sveinsson, vakti óskipta athygli manna á landsmótinu á Isafirði. Reynir keppti i 10 km göngu 17-19 ára, þar sigraði hann með yfir- burðum, var tæpum 5 minútum á undan næsta manni. bá keppti Reynir i blandaðri sveit i 3x10 km göngu. bessi sveit samanstóð af einum Fljótamanni, sem var Reynir, Ólafsfirðingnum Birni bór Ólafsfirði og Norðmanninum Vidar Toreid. bessi sveit náði þriðja sæti i göngunni, og náði Reynir langbezta timanum og sló þar með alla sterkustu mennina i karlaflokkinum út. Ollum ber saman um að Reynir sé eitthvert mesta göngumannsefni, sem lengi hefur komið fram hér á landi. Við náðum tali af Reyni eftir að hann hafði sigrað 10 km gönguna. Reynir sagði okkur, að hann hefði þvi miður litiö getað æft i vetur, vegna snjóleysis i Fljótun- um, sem er mjög óvanalegt. En Reynir lét snjóleysið ekki á sig fá og hljóp þeim mun meira. bað sem háði Reyni mest var, að i all- an vetur æfði hann einsamall og þjálfaralaus. Tók hann aðeins þátt i einu móti, viku fyrir páska. Hvenær byrjaðir þú að keppa á landsmótum? — Ég hef verið á þrem s.l. Unglingalandsmótum, en þetta er i fyrsta skipti, sem ég keppi á Landsmóti. — bað hefur oft verið talað um, að norrænu greinunum,göngu og stökki, væri litill sómi sýndur hér á landi. Hvað viltu segja um það, og hvað telur þú að bezt væri til úrbóta? — bað er satt, að norrænu greinunum er alltof litill sómi sýndur. Við þurfum að fá góðan erlendan þjálfara og senda menn á þjálfaranámskeið. bá þarf enn- fremur að kenna göngu og stökk i skólum landsins. Siðast er ekki sizt þurfum við að koma á keppnum i norrænum greinum við einhverja þjóð, sem stendur okkur jafnfætis. Að lokum sagði Reynir okkur, að hann hefði áhuga á að komast út til Noregs til að þjálfa, og hann væri ákveðinn að halda áfram svo lengi, sem hann gæti. bess má geta, að Reynir er ný- lega orðinn 17 ára, og sagði hann, að sér hefði aldrei komið til hugar að hann myndi sigra á þessu móti.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.