Tíminn - 05.04.1972, Qupperneq 17
Kristján R. Guðmundsson i 30 km. göngunni. Timamynd G.B.K.
3. Tómas Jónsson R
10.59 20.93 31.52
Úrslit i stórsvigi kvenna:
1. Margrét Þorvaldsdóttir A
89.52 85.69 175.21
2. Elísabet Þorgeirsdóttir 1
94.80 85.02 179.82
3. Áslaug Sigurðardóttir R
92.76 88.69 181.45
Úrslit i svigi kvenna:
1. Svandis Hauksdóttir A
56.50 59.73 116.23
2. Áslaug Sigurðardóttir R
57.58 58.77 116.35
3. Elisabet Þorgeirsdóttir I
59.82 59.62 119.44
Úrslit i Alpatvikeppni kvenna:
1. Áslaug Sigurðardóttir R
22.84 0.54 23.38
2. Elisabet Þorgeirsdóttir I
17.13 13.88 31.01
3. Margrét Þorvaldsdóttir A
0.00 48.20 48.20
Úrslit i sveitasvigi:
1. Sveit Akureyrar.
Jónas Sigurbjörnsson
52.84 56.83 109.67
Haukur Jóhannsson
53.02 54.36 107.38
Viðar Garðarsson
57.50 60.13 117.63
Árni Óðinsson
54.65 56.63 111.28
Samtals 445.96
2. Sveit tsafjarðar.
Samúel Gústafsson
52.79 54.87 107.66
Einar Hreinsson
116.35 61.78 178.13
Guðmundur Jóhannesson
55.51 57.30 112.81
Hafsteinn Sigurðsson
53.57 56.38 109.95
Samtals 508.55
Úrslit i Norrænni tvikeppni:
20 ára ög eldri:
göngust. Stökkst.
1. Björnþór Ólafsson Ó
240.00+215.5 = 455.50 st.
2. Steingrimur Garðarsson S
211.54 + 212.0 = 423.54 st.
17-19 ára:
1. Baldvin Stefánsson A
240.00 + 210.4 = 450.40 st.
2. Sigurgeir Erlendsson S
208.78+214.0 = 422.78 st.
Úrslit i 3x10 km boðgöngu.
1. Sveit Akureyrar:
Kristján Viih.ss. 47.48
Frimann Ásmundss. 41.43
Halldór Matthiass 41.23
Samt. 130.54
2. A Sveit tsfirðinga:
Sig.Gunnarss 44.38
Davið Höskuldss. 44.43
Kristján R. Guðm.ss. 41.58
Samt. 131.19
Úrslit i 15 km göngu karla:
1. (13) Halldór Matthiasson A
58.09
2. (12) Kristján R. Guðm.ss. I
58.46
3. ((11) Frimann Asmundsson A
59.10
Úrslit i 10 km göngu 17-19 ára:
1. (1) Reynir Sveinss. F 39.57
2. (7) Kristján Vilh.ss. A 44.27
3. (6) Baldv. Stefánss. A 44.50
Úrslit i 30 km göngu:
(10) 1. Halld. Matth.ss. A 1.42,31
(11) 2. Kr. R. Guðm.ss. I 1.45,40
(12) 3. Frim. Ásm.ss. A 1.49.32
FIRMA-
KEPPNI
Þar sem stjórn H.S.t. hefur ák-
veðið að kanna áhuga fyrir fir-
makeppni ihandknattleik, er þess
óskað.að þeir sem vildu taka þátt
i keppninni,tilkynni það i pósthólf
215 fyrir 12. April n.k.
1 tilkynningunni þurfa að koma
fram nöfn þeirra aðila.sem snúa
sér má til hjá viðkomandi fyrir-
tæki vegna væntanlegrar keppni.
Sigursveit Akureyringa að loknu sveitasviginu. Frá vinstri er Viðar Garðarsson, Arni óðinsson, Haukur Jó-
hannsson og Jónas Sigurbjörnsson. TlmamyndirÞó
Meira gert fyr-
ir karlmennina
en kvenfólkið
- segja íslandsm í alpagreinum kvenna
Skiðakonurnar frá Akureyri
stóðu sig vel að vanda á Skiða-
landsmótinu. Þær sigruðu bæði i
svigi, og stórsvigi, en aftur á móti
sigraði Aslaug Sigurðardóttir,
Reykjavík, i alpatvikeppni
kvenna.
Skiðakonurnar ungu frá Akur-
eyri, sem sigruðu i stórsviginu og
i sviginu, heita Svandis Hauks-
dóttir og Margrét Þorvaldsdóttir.
Margrét sigraði í stórsviginu með
töluverðum mun. Eftir fyrri ferð-
ina þar hafði Svandis reyndar
betri tima, en i seinni ferðinni
hlekktist henni illa á og varð hún
að láta sér nægja 5. sætið. Svandis
sigraði svigið eftir geysiharða
baráttu við Aslaugu Sigurðar-
dóttur, Reykjavik. Reyndar hafði
verið tilkynnt að Aslaug væri sig-
urvegarinn, en þegar farið var að
bera timana betur saman kom i
ljós, að Svandis var sigurvegar-
inn, hafði sigrað með 1/100 úr
sekúndu.
Svandis varð einnig fyrir
óhappi i sviginu eins og stórsvig-
inu, en hún missti stafinn i fyrri
ferðinni. Hún lét það ekkert á sig
fá og komst klakklaust i gegn.
Við ræddum stutta stund við
þær Svandisi og Margréti, en þær
eru báðar i skóla á Akureyri.
Margrét iGagngræðaskólanumog
Svandis i Menntaskólanum.
Þær sögðu okkur, að þær hefðu
æft eins vel og þær hefðu getað i
vetur, en snjórinn hefði verið
helzt tii litill.
— Hvenær byrjuðuð þið að
keppa?
— Arið 1968, segir Svandis
— Og þótt maður ætli sér
að taka Menntaskólanámið fram
yfir skiðin, þá eiga skiðin hug
manns allan, þó svo að maður ætli
sér það ekki. Margrét sagðist
vera alveg sammála Svandisi og
bætti við, að þær myndu æfa i
sumar ef þær gætu. En annars
veitti þeim ekki af að vinna, þar
sem þær væru i skóla, og svo væri
skiðaiþróttin dýr iþrótt, þegar út i
keppni væri komið.
— Hafið þið eitthvað verið er-
iendis við skiðaiðkanir?
— Já, segir Svandis. — Ég hef
verið i Bandarikjunum, Noregi og
Sviþjóð, en i þessum löndum hef
ég keppt. Það er alveg gifurlegur
munur á aðstöðu i þessum lönd-
um og hér heima.
— Hvað finnst ykkur helzt
vanta i kvennakeppnina?
— Fyrst og fremst vantar kven-
fólk. Við erum alltof fáar þannig
að oft á tiðum er um litla keppni
að ræða. Ástæðan íyrir þvi, hve
fáar við erum i kvennaflokkun-
um, er kannski sú, hve litið er
gert fyrir okkur miðað við karla.
Svandis Hauksdóttir
Margrét Þorvaldsdóttir
Skíðapallurinn
horfinn að morgni
Björn Þór ólafsson frá ólafs-
firði sigraði i stökki og norrænni
tvikeppni 3ja árið i röð. Það er
óhætt að fullyrða, að þetta sé vel
af sér vikið hjá Birni, þar sem
hann stendur nú á þritugu, og var
með eldri keppendum á mótinu.
Hefur þú æft mikið i vetur,
Björn Þór? — Ég hef ekkert getað
æft, t.d. hef ég aðeins getað farið
á stökkskiði um eina helgi. Tiðar-
farið hefur verið þannig, að þótt
ég hafi byggt mér stökkpall einn
daginn, þá hefur hann verið horf-
inn að morgni þess næsta, þegar
við höfum ætlað að fara aö stökk-
va.
— Þið ólafsfirðingar hafið lagt
mikla áherzlu á norrænu grein-
arnar, er ekki erfitt að stunda
þær?
— Jú, það er óhætt að fullyrða
það. Aðstöðuleysið veldur þar
mestu, og nú orðið má segja, að
stökkið sé svo til eingöngu stund-
að af Ólafsfirðingum. En við eig-
um núna mikið af efnilegum
unglingum I norrænu greinunum
á Ólafsfirði. Og til þess að bæta
upp aðstöðuleysið, höfum við
tekið upp það ráð að senda okkar
menn út til Noregs til æfinga.
Þetta hefur gefið góða raun, og
höfum við hugsað okkur að halda
þvi áfram.
— Hvað ert þú búinn að keppa
lengi á landsmótum, Björn Þór?
— Eg er búinn aö keppa frá
1957, en það ár varð ég unglinga-
meistari i stökki. Svo sleppti allri
keppni frá 1958 til 1962, en siðan
hef ég verið með, og ég er ákveð-
inn i að halda áfram eins lengi og
ég get, og með því að halda áfram
er helzt hægt að drifa unglingana
út i þetta.
Björn Þór ólafsson hlaðinn verð-
launagripum