Tíminn - 05.04.1972, Blaðsíða 20
Innrásarher N-Vietnama sækir
Sallustro
enn á lífi?
hlutlausa beltisins.
ins.
N-Vietnamar notuöu sérstaka
láös- og lagar-skriðdreka til að
fara á yfir ána Cua Viet, sem er
um 8 km sunnan við borgina Dong
Ha, og skömmu siðar tókst fót-
gönguliðum að ná á sitt vald stór-
skotaliðsstööinni Anne. Er þá stór
hluti varnarliðs S-Vietnama
umkringdur. Aðalstöövum þeirra
við Quang Tri er ógnað úr norðri
ogaustriaf skriðdrekasveitunum,
sem fóru yfir ána, úr vestri af
öðrum hluta innrásarliðsins og úr
suðri af fótgönguliðunurn, sem
náðu Anne.
Bandariskir flugmenn, sem
komu úr sprengjuflugi i gær,
sögðust hafa séð MIG-orrustuþot-
ur yfir vestur-hluta hlutlausa
beltisins og að N-Vietnamar
skytu loftvarnareldflaugum, eins
og þeir ættu óþrjótandi birgðir.
Bandariskar sprengjuflugvélar
Kúbumenn i
Kanada um-
kringdir
sprengjum
NTB—Montreal.
Kinn starfsmaður lét lffið,
er tvær öflugar sprengjur
sprungu f skrifstofu kúbönsku
verzlunarnefndarinnar f Mon-
treal i gærmorgun. Aðsetur
uefndarinnar er i 12 hæða
byggingu, sem skemmdist
mikið við sprengingarnar.
Ekki var búið að bera kennsl
á likið i gærkvöldi. Samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar
slösuðust ekki fleiri, en blaða-
menn, sem tókst að komast að
staðnum, voru margir fluttir á
nærliggjandi sjúkrahús, en
það er þó óstaðfest.
I fyrri viku fann lögreglan i
Ottawa sprengju við heimili
kúbanska sendiherrans, og I
fyrradag fannst önnur nokkra
metra frá sendiráðinu.
Melina fær
ekki að fylgja
föður sinum
til grafar.
NTB—Aþenu
Gríska leikkonan Melina
Mercouri fær ckki að koma
heim til Grikklands til að
fylgja föður sinum til grafar,
að þvi er móðir hennar skýrði
frá f gær. Móðirin kvaðst hafa
snúið sér til griskra yfirvalda
og sótt um leyfi til að Melina
og Spyros bróðir hennar
mættu fylgja liki föður sins til
Grikklands.
Faðirinn, Stamatis Mer-
couris, lézt f London fyrir
tæpum fimm árum, og hafa
jarðneskar leifar hans siðan
verið i sjúkrahúsi i London.
Nú vill fjölskyldan, að hann
verði jarösettur heima.
Frú Mercouri segir allt
benda til þess, að engin vand-
kvæði verði á þvi að fá lfk
manns sins flutt heim, þótt
börn hennar fái ekki að koma.
IRA verður ekki
enn við
bænum kvenna
NTB—Belfast
Kaþólskar konur á N-trlandi
hafa myndað með sér samtök,
scm þær kalla „Sameinaðar
konur”. Ætlun þeirra er að
reyna að beita áhrifum sinum
til að koma á vopnahléi. Þær
sendu IRA bænaskjal f gær
þess efnis, að hætt yröi að sk-
jóta á saklaust fólk og
sprengja byggingar i loft upp.
IRA svaraði með ákafri skot-
hríð á brezka hermenn.
Enginn meiddist þó i skot-
hriðinni, sem talsmenn hers-
ins segja einungis hafa veriö
gerðar til að minna fólk á, að
orð IRA eru enn lög i kaþólsku
hverfunun i Belfast.
Kvennasamtökin reyndu á
mánudag aö halda fund i
skólahúsi i Belfast, en hann
leystist upp vegna óláta ann-
arra kvenna úti fyrir.
Frú Monika Patterson, sem
er aðalskörungurinn i kvenna-
samtökunum, sagði i gær, að
konur viða á N-lrlandi hefðu
snúið sér til hennar með lof-
orði um stuðnihg við samtök-
in. Segist hún hafa stuðning
flestra kvenna i Andersons-
town i Belfast, þrátt fyrir and-
ófið gegn fundinum.
Sagði hún, að það stuðnings-
fólk ÍRA, sem hleypt hefði upp
fundinum, hefði aðeins gert
sjálfu sér bjarnargreiða með
þvi, og hún þykist sannfærö
um, að IRA muni bráölega
leggja niður hryðjuverk sin á
almannafæri.
Enn tefjast
verðlaunin
NTB—Stokkhólmi
Fastaritara sænsku aka-
demiunnar, Ragnari Gierow,
var i gær neitað um vega-
bréfsáritun til Sovétrikjanna,
þar sem hann ætlaöi að af-
henda Solsjenitsyn Nóbels-
verðlaunin. Ekki var gefin upp
nein ástæða fyrir neituninni,
en Sovétmenn segja, að það
megi ræða málið sfðar.
Neitunin kom óvænt eftir aö
tvö bandarisk blöð höfðu birt
langt viðtal við skáldið. Þar
sagði hann m.a., að ef Gierow
yrði neitað um vegabréfsárit-
un, yrði Nóbelsorðan senni-
lega að geymast i Stokkhólmi I
ein 10 til 20 ár i viðbót.
Tökin hert á
sovézkum
Gyðingum
NTB—Tel Aviv
Innflytjendur, sem nýlega
komu til israel frá Sovétrikj-
unum, skýrðu frá þvi I gær, að
yfirvöld I Sovétrikjunum
heföu nú gripið til nýrra ráð-
stafana gegn sovézkum Gyð-
ingum, sem sækja um leyfi til
aö flytjast til israel.
Tekin eru af þeim ökuskir-
teini og þeim visað úr háskól-
um, um leið og þeir hafa sótt
um leyfið.
tsraelska útvarpið tilkynnti,
að tveir sólódansarar við
Kirov-ballettinn i Leningrad,
hefðu verið reknir úr starfi
fyrir að sækja um útflutnings-
leyfi. Hinir dansararnir hefðu
neitað að dansa með þeim og
þá hefði stjórn ballettsins
sagt, að þau yrðu aö fara.
Landamærin milli Austur- og
Vestur-Berlinar voru opnuö
klukkan sex á miðvikudagsmorg-
uninn i fyrsta skipti í sex ár.
Flykktust þá V-Berlinarbúar yfir
um til að heimsækja ættingja
sina, eftir þennan langa aðskiln-
að. Mikil fagnaðarlæti voru við
hliðin og mörg gleðitár féllu.
NTB-Buenos Aires.
Nú er komið á þriðju viku siöan
italska Fiatforstjóranum Sallu-
stro var rænt i Argentinu. Lög-
reglan í Buenos Aires tilkynnti i
gær, aö hún hefði handtekiö ung
hjón, sem hefðu lánaö heimili sitt
til að geyma Sallustro á.
Lögreglan segist einnig hafa
handtekiö 5 af þeim 10 mönnum,
sem rændu Sallustro, og hafa slð-
an hótað að taka hann af lifi, ef
rikisstjórnin og Fiat-verksmiðj-
urnar komi ekki til móts viö kröf-
ur þeirra um lausnargjald. Tveir
hinna handteknu segjast ekki vita
annað en Sallustro sé enn á lifi.
Svart: Reykjavik: Torfi
Stefánsson og Kristján Guð-
mundsson.
ABCDEFGH
ABCPEFGH
Hvitt: Akureyri: Sveinbjorn
Sigurðsson og Hólmgrimur
Heiðreksson.
mjög fram og nálgast nú Hue
NTB—Saigon
Fótgönguliða- og
skriðdrekasveitir Norð-
ur-Vietnama brutust i
gær gegnum varnarlinu
S-Vietnama og náðu á
sitt vald mikilvægri
stórskotaliðsstöð. Sókn
N-Vietnama er nú hörð,
og náigast þeir keisara-
borgina Hue. Stjórn S-
Vietnam hefur beðið SÞ
og allar friðelskandi
þjóðir um hjálp til að
brjóta á bak aftur sókn
N-Vietnama sunnan
héldu frá stöövum I S-Vietnam og
frá flugmóðurskipum á Tonkin-
flóa og gerðu mörg hundruð árás-
irá stöövar N-Vietnama. Útvarp-
ið i Hanoi tilkynnti, aö þetta væri
frekleg ógnun og bætti þvi við, aö
N-Víetnamar berðust þar til sigur
ynnist.
Fjórtánda
stöðin
Anne er 14. stórskotaliðsstöðin,
sem S-Vietnamar hafa misst sið-
an á skirdag, og segja heimildir
hersins, aö missir hennar sé bein
ógnun við öryggi Hue, sem var i
höndum kommúnista i Tet-sókn-
inni miklu árið 1968. Hue er þriðja
stærsta borg i S-Vietnam, og þar
búa um 200 þúsund manns.
A sléttunum nálægt borginni
Quand Tri var aðeins um minni
háttar bardaga að ræða I gær, þvi
kommúnistar eru greinilega að
raöa upp liði sinu á ný eftir
sprengjuárásir Bandarikja-
manna. Fótgönguliðar S-Viet-
nama gerðu gagnárás vestan við
Dang Ha og tilkynntu, að þeir
hefðu fellt 95 N-Vietnama og tekið
15 fanga.
1 tilkynningu noröan frá, segir
að sveitir kommúnista hafi veitt
stefnu Bandarikjamanna I Viet-
nam reiðarslag, er þeir hafi gert
óvirka 7.700 menn.
Innrás
A þingi S-Vietnam var i gær
samþykkt yfirlýsing, þar sem
sagði,að n-vietnamskar hersveitir
hefðu farið yfir hlutlausa svæðið
og gert innráðs i S-Víetnam.
Fréttastofan Nýja Kina fordæmdi
viðbúnað Bandarikjamanna til
gagnárása og lét i ljós ánægju
með sókn N-Vietnama i Quang
Tri-héraðinu.
Otvarp þjóöfrelsishreyfingar-
innar hvatti s-vietnamska her-
menn til að gerast liðhlaupar og
taka þátt i frelsun S-VIetnam.
Sagt var, að þúsundir stjórnar-
hermanna hefðu þegar gert upp-
reisn, og skyldu fleiri herdeildir
gera slikt hið sama.
* '
Miðvikudagur 5. apríl 1972
-
6. leikur Reykjavikur e4-e5