Tíminn - 07.04.1972, Blaðsíða 1
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
r
SEHDIBILASTODIN HT
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR
/"
IERA
kæli-
skápar
SMöiia/tvéXaA. MJ?
IU/THJADW n. KWMAMTMTI «3, *iM IUM
Olian barst upp i fjöruna við Meitilinn og fjörusteinarnir baöaöir oliu
Myndin var tekin þegar olian flæddi úr stafnhylki japanska skipsins I Þorlákshöfn (Timamynd At>)
Fimm tonn af olíu í
höfnina í Þorlókshöfn
ÞÓ—Þorlákshöfn.
Fimm tonn af dieseloliu fóru i
sjóinn i Þorlákshöfn i gærmorg-
un, þegar japanska frystiskipið
Chiyoda Maru 7 var að leggja að
bryggjunni, en það var á mikiili
ferð, að sögn sjónarvotta, eða
jafnvel 3-4 mílur, scm er mikið
þegar lagzt er að brvggiu.
Skipið l°nti á hafnargarðinum
um 30 metrum irá enda hans, og
rifnaði gat á stafnhylki skipsins,
en þar geymdu Japanarnir olíu. í
islenzkum skipum er hinsvegar
yfirleitt sjór i þessum hylkjum.
Kom um 50 sentimetra löng rifa á
skipið, og vall olian þar út i höfn-
ina. Skipið er um 2500 lestir að
stærð, og lestar það 200 tonn af
frystri loðnu.
Þegar áreksturinn átti sér stað,
stóð vindurinn inn höfnina,
þannig að olian hefur öll safnazt
saman i krikanum við frystihús
Meitilsins. Ef hinsvegar breytir
um átt, er hætta á að olian færi
um alla höfnina, og jafnvel á nær-
iiggjandi fjörur. Þó nokkuð af
æðarfugli var i höfninni þegar
Framhald á bls. 19
Ég þakka fyrir að vera við
góða heilsu, sagði Laxness
SJ—Reykjavik
Á fundi heimspckidcildar Ilá-
skóla islands 4. april var einróma
samþykkt að deildin sæmi Hall-
dór I.axness litlinum Doktor
litterarum islandi carum honoris
causa i tilefni af sjötugsafmæli
hans 23. april n.k. A fundi há-
skólaráðs (!. april var þetta
heiðursdoktorskjör Ilalldórs
l.axness staðfest samhljóða.
Halldór Laxness mun veita við-
töku heiðursdoktorsskjali sinu
þessari nafnbót til staðfestingar i
Framhald á bls. 19
Flugbrautarmálið:
Ákvörðunin í eðlilegu og rök-
réttu samhengi við fyrri afstöðu
r
sagði Olafur Jóhannesson, forsætisráðherra, i umræðum um utanríkis- og varnarmál á Alþingi í gær
EB—Reykjavík.
Ólafur Jóhannesson for-
sætisráðherra sagði á fundi I
Sameinuðu Alþingi i gær, að
afstaöa rikisstjórnarinnar
gagnvart þvi tilboði Banda-
rikjastjórnar að fjármagna
framkvæmdir við margum-
rædda flugbrautarlengingu á
Keflavikurflugvelli væri i rök-
réttu og eðlilegu samhengi við
þá yfirlýsingu, sem gefin væri
i stjórnarsamningum um af-
stöðuna til Atlantshafsbanda-
lagsins. Ráðherrar Fram-
sóknarflokksins og Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna
væri þeirrar skoðunar, að is-
land ætti að óbreyttum að-
stæðum að vera i bandalaginu
og þvi eðlilegt, að þeir hefðu
viljað taka tilboði Bandaríkja-
stjórnar. Sömuleiðis væri eðli-
legt, að ráðherrar Alþýðu-
bandalagsins hefðu viljað
hafna tilboðinu, þar sem þeir
væru andvigir aðild landsins
að bandalaginu.
Forsætisráðherra sagði
þetta, þegar fram var haldið i
þinginu umræðum um tillögur
Sjálfstæðisflokksins og Al-
þýðuflokksins um öryggismál
landsins, en frekari umræðum
um þessar tillögur var frestað
skömmu fyrir páska. Stóðu
umræður um tillögurnar i all-
an gærdag og fram á kvöld, og
tóku enn margir til máls um
þær, þar á meðal ráðherrarnir
Einar Ágústsson og Magnús
Kjartansson. A.uk þess, sem
rætt var almennt um utan-
rikis-og varnarmálin, snerust
umræðurnar mikið um ák-
vörðun rikisstjórnarinnar að
taka tilboði Bandaríkjsstjórn-
ar um fjármögnun fram-
kvæmda við flugbrautar-
lenginguna, og lýstu talsmenn
stjórnarandstöðunnar yfir
stuðningi sinum við þá á-
kvörðun meiri hluta ríkis-
stjórnarinnar.
1 ræðum sinum i þinginu i
gær lögðu þeir ólafur Jó-
hannesson forsætisráðherra
og Einar Agústsson utanrfkis-
ráðherra áherzlu á, að þrátt
fyrir þá ákvörðun Bandarikja-
stjórnar að standa straum af
kostnaði við flugbrautarleng-
ingu, myndi rikisstjórnin eðli-
lega ekki I neinu breyta stefnu
sinni i varnarmálunum.
Ákvörðun Bandarikjastjórnar
væri einhliða, og tilboði henn-
ar hefði verið tekið, þar sem
Bandarikjastjórn hefði fallið
frá þeim fyrirvara sinum, að
framkvæmdirnar yrðu ekki
fjármagnaðar að þeirra hálfu,
nema varnarliðið yrði hér
áfram um ófyrirsjáanlegan
tima.
Utanrikisráðherra sagði
m.a., að við gerð fram-
kvæmdaáætlunar þessa árs,
sem nú stæði yfir, og við gerð
framkvæmdaáætlunar næsta
árs, hefði verið ákveðið að
fjármagna framkvæmdirnar
á Keflavikurflugvelli með inn-
lendu fé, enda væri hér ekki
um óskaplegt fjármagn að
ræða.
Magnús Kjartansson, iðnað-
ar og heilbrigðismálaráð-
herra, itrekaði skoðun ráð-
herra Alþýðubandalagsins i
málinu, en minnti jafnframt á,
að afstaða rikisstjórnarinnar
þýddi ekki neinn brest i st-
jórnarsamstarfinu. Hann
lagði áherzlu á, að við tslend-
ingar stæðum sjálfir undir
framkvæmdum okkar. Við
ættum ekki að þiggja fé af er-
lendum aðilum til þeirra. Ráð-
herrann deildi hart á afstöðu
stjórnarandstöðunnar, eink-
um Sjálfstæðisflokksins i
utanrikis- og varnarmálum,
og hann minnti á, að Banda-
rikjastjórn væri sjálf að en-
durskoða herstöðvakerfi sitt,
enda sú skoðun rikjandi þar
vestra, að það væri úrelt orðið.