Tíminn - 07.04.1972, Side 3
Föstudagur 7. april 1972.
TÍMINN
3
Heimsmeistaraeinvígið í skók:
Eðlilegt að Júgoslavar
fari fram á tryggingu
Oó—Reykjavik.
Allt er á liuldu um hvort þeir
Fischer og Spassky heyja ein-
vigið um heimsm eistara-
titilinn i skák i Beigrad og
Reykjavik, eins og samið var
um, eða hvort teflt verður á
öðrum stað eða stöðum, eða
hvort þeir tefla yfirleitt.
Undirbúningur ein vigisins
liggur nú að mestu niðri, enda
hafa skáksambönd á islandi
og i Belgrad sagt, að búiö sé að
ganga frá samningum, sem
ekki verði breytt, en Fischer
hefur sem kunnugt er, ekki
fallizt á þá samninga, sem
Alþjóöaskáksambandið stóð
að. Ilið nýjasta i þessum
málum er að Fischer er búinn
að fá sér nýjan umboðsmann,
og er hann á leið til Belgrad til
samninga þar en' Jú'gdslvar
segjast ekkert hafa við þann
mann að tala. Af þeirra hálfu
er máiiö útrætt.
Timinn spurði Guðmund G.
Þórarinsson, forseta Skák-
sambands lslands, um hans
afstöðu til mála, og hvort
.Skáksambandið hér muni
breyta afstöðu sinni.
—Ég hef ekkert af málunum
frétt, sagði Guðmundur, nema
að Júgóslavar eru ekki til-
búnir að taka þetta, þ.e. kröfu
Fischers um meira fé fyrir að
tefla, gilt, og hafa að minu viti
dálitið fyrir sér i þvi. Ég hygg
að málið sé ekki alveg búið,
eins og komið hefur fram i
fjölmiðlum, þvi að i þeim
skeytum, sem nýverið hafa
farið á milli, kemur fram að
Fischer muni sætta sig við að
tefla á þeim stöðum, sem um
er samið og á þeim tima sem
um er samið.
Það er ekki minnzt á fiár-
málahliðina, en hún er sá eini
liður, sem deilur stóðu um.
Talað er um að senda sér
stakan mann til viðræðna i
Belgrad, sem ekki væri
ástæða til, ef um væri að ræða,
að sætta sig við samningana.
Þeir telja að það hafi enga
þýðingu að vera að semja við
hann, það er alveg eins hægt
að segja á eftir, að hann hafi
ekkert umboð. En ég hygg, að
þetta sé runnið undan rifjum
Edmondson, sem sé að reyna
að bjarga þessu máli.
Það verður að segjast eins
og er, að Edmondson er búinn
að koma Fischer þetta áfram.
Fischer hljóp úr mótum, milli-
svæðamótum og fleiri mótum,
og siðan tók Edmondson að
sér að sjá um ýmsa samninga
fyrir hann. Hann fékk hann
saminn inn i millisvæðamót,
þar sem Fischer hafði ekki
rétt, og hefur siðan verið að
berjast i að hjálpa honum, og
mun þetta vera leið hjá Ed-
mondson til að finna lausn á
vandanum. En Júgóslvarnir
lita svo á, að samningarnir
gildi.
Við litum reyndar svo á
einnig. Samningarnir við
okkur og Júgóslavana voru
gerðir undir handarjaðri
Alþjóðaskáksambandsins, und
irritaöir at varalorseta þess.
Við töldum að þetta væru
endanlegir samningar og
malið þar með úr sögunni.
Okkar tilboð hefur ekki verið
Kennaraskóla-
kórinn í Noregi
SB—Reykjavik
Kennaraskólakórinn er þessa
dagana á söngferðalagi i Noregi.
Þar sein hann syngur i Ilamar,
Lillehanimer Þrándheimi, Levan
ger og Oslo, auk norska sjón-
varpsins. Eftir heimkomuna 13.
þ.m. mun kórinn syngja i Reykja-
vik, Keflavik og viöar.
Blandaður kór hefur verið
starfandi i Kennaraskólanum um
árabil undir stjórn Jóns Ásgeirs-
sonar tónskálds. 1 vetur hefur
starfsemin verið óvenju blórrileg
enda stefnt að Noregsförinni. 1
kórnum eru 30 félagar, auk undir-
leikarans, Karólinu Eiriksdóttur.
Á dagskrá Noregsferðarinnar
eru islenzk þjóðlög, flest i út-
sendingu söngstjórans, en auk
þess að syngja, mun kórinn heim
sækja norsku kennaraskólana,
kynna starfsemi þeirra og stuðla
að áframhaldandi góðum sam-
skiptum norskra og islenzkra
kennaranema.
Þar sem svona ferðalag hefur
að sjálfsögðu allmikinn kostnað i
för með sér, hefur kórinn haft úti
allarklær til fjáröflunar i vetur og
sungið hér og þar. Eftir heim
komuna verður haldið áfram að
afla fjár með söng i borginni,
Keflavik og kannske viðar.
BHBIl
Samúð með steikinni
Bandariski rithöfundurinn F.
Scott Fitzgcrald er sagður hafa
velt þvi fyrir sér, hvort rikt fólk
væri fallegra en fátækt. Það kom
auðvitað snúður á sérlega mál-
svarar fátæklinganna, bar jafn-
vel á þvi að hinir riku vildu ekki
við þetta kannast, og Ilemingway
fannst kollega óþarflega blá-
eygur. En þótt mönnum geti orðið
hált á kenningum, þá finnst þeim,
er þetta ritar, liægt að halda þvi
fram með nokkrum rétti, að
dýravinir séu fallegri en annað
fólk. Þessi kenning varð eiginlega
til undir sjónvarpsþætti, sem
Sigvaldi Iljálmarsson frá
Skeggjastööum stjórnaöi á
dögunum um samneyti manna og
dýra.
Vináttan viö dýr hefur aldrei
skemmt nokkurn mann svo vitað
sé. Hún hefur hins vegar efkU
aldrei verið neinn gróðavegur.
Bændur hændir að dýrum hafa
vist oft og tiðum hugsað meira
um vináttuna cn ágóöann, þegar
kom aö þvi að láta skepnuna lifa
lengur en arðbært gat talizt.
Mikill söknuður fylgdi því alltaf
þegar einstökum skepnum var
lógað, svo scm hcimalningum og
fallcga litu fé, forustuám,
heimilishestum, frábærum kúm.
Sönn er sagan af þvi, þegar
eigandi ágæts hcsts kom þar að
sem sctið varð að snæðingi, og
fékk sér bita með fólkinu. Þegar
honum var sagt að kjötið væri af
reiðhesti hans, stóð hann upp og
spúði,
Þekkingin á þessum kenndum
verður nú á stöðugt færri hön-
dum. Þá, eins og alltaf við
svipaðar aðstæður, hættir ein-
stökum aðilum til að.gera of
mikið úr málinu, og binda þaö of
einföldum atriðum. Særð rjúpa er
ekki umtals verð. Þær hafa alltaf
veriö skotnar með haglabyssum,
og liögl berast viöa i kringum
skotmark. Tilfinningalif laxins
hefur verið rannsakað i öfugu
hlutfalli við rannsóknina á
tilfin n ingalif i laxveiðimannsins.
Iluudar eiga allt gott skilið og
kcttir lika. En til cru dýr, sem
samkvæmt eðli málsins eru alin
til frálags. Svo er um lömb og
kindur, trippi, kýr og kálfa, sem
ilma af Ijúflyndi. Við getum horft
á eftir þessum dýrum mcð tárin i
augunum. Slátrun þcssara dýra
er nauðsyn. Við crum ekki hafin
yfir kjötát. Þess vegna þurrkum
við framan úr okkur og setjumst
að snæðingi. Vegna kröfunnar um
viðhald eigin lifs cykur það aðeins
á sálarstriðið að vcra aö ympra á
þvi að illa sé nú farið málum með
þvi að slátra blcssuðum skepnun-
um. Við höfum einfaldlega ekki
efni á þvi að vera slikir dýravinir.
Þcirsem boröa ekki annað en egg
og ost og brauö og mjólk sleppa
visu viö slikar áhyggjur. En þeir
eru fáir, sem stunda slíkt upp
heims mataræði. Kjötæturnar
verða hins vegar að láta sér
nægja að hafa samúð með steik-
inni.
Svarthöfði.
alturkallað. Við höfum ekki
sagt annað en að breytingar á
fjarmálahlið samningsins
komi ekki til greina. Að öðru
leyti höfum við ekki sett fram
kröfur. Við höfum sagt, við
stöndum við fjármálahlið
samninganna og breytum þar
engu um.
Ég skil að Jugóslavar vilji
fá tryggingu fyrir að einvigið
verði haldið samkvæmt sam-
ningum. Þeir hafa lagt fram
mikið fjármagn til að halda
einvigið. Til dæmis er verið að
byggja þar sýningarborð, em
stjórnað er með rafeindatæki.
Er 10 manna hópur eðlis-
fræðinga að vinna að þessari
smiöi. Kosta borðin um tvær
millj. isl. kr. og þetta er ekki
nema hluti af þeim kostnaði,
sem þeir hafa lagt i. Er von að
þeir séu orðnir hugsi og viiji fá
einhverja tryggingu fyrir að'
einvigið fari fram eftir'
gerðum samningum.
Annað er, að þeir segja að til
greina komi að halda einvigið,
en ekki á þe'im tima "sém
samið var um, heldur siðar.
Vera má að það sé að einh-
verju leyti tengt bólustóttinni,
sem komið hefur upp þar i
landi. Þótt þeir verði búnir að
ráða niðurlögum hennar
þegar einvigið hefst, verður
fólk kannski hrætt við að koma
þangað.
Þann tima, sem vafi hefur
leikið á hvort einvigið fer fram
eftir gerðum samningum,
höfum við hér á landi haldið að
okkur höndum með undir
búning. Ég er ekki búinn að
sjá, að samkomulag náist i
Júgóslaviu. Við erum búnir aö
eyða i þetta hundruðum þús-
unda, og viljum helzt ekki
eyöa mikiu meira fé i þetta, ef
ekkert verður úr einviginu hér
á landi. Við erum vel settir að
þvi leyti, að Júgóslavarnir eru
i pressunni, en ekki við. Samið
var um að siðari hluti ein-
vigisins færi fram hér, og það
hefur sinar góðu hliðar. Ég er
þeirrar skoðunar, að þetta
einvigi verði það jafnt, að
minnsta kosti fyrri parturinn,
að betra sé að halda seinni
hluta einvigisins hér. Ei'tir
öllum þeim bréfum, sem
okkur berast, viröast menn
fyrst og fremst hafa áhuga á
að sjá seinni helminginn. Litið
er á hluta einvigisins sem for-
spil, og að hér verði úrslitin
ráðin.
Veðurathugunarmenn
á Hveravöllum
Veðurstofa íslands óskar að ráða tvo ein-
staklinga, hjón eða einhleypinga, til veð-
urathugana á Hveravöllum á Kili. Starfs-
mennirnir verða ráðnir til ársdvalar, sem
væntanlega hefst i siðari hluta ágústmán-
aðar 1972. Umsækjendur þurfa að vera
heilsuhraustir, og æskilegt er, að a.m.k.
annar þeirra kunni nokkur skil á meðferð
dieselvéla. Tekið skal fram, að starfið
krefst góðrar athyglisgáfu, nákvæmni og
samvizkusemi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
heilsufar, menntun, fyrri störf og með-
mælum, ef fyrir hendi eru, skulu hafa bor-
izt Veðurstofunni fyrir 30. april n.k.
Allar nánari upplýsingar gefur deildar-
stjóri áhaldadeildar Veðurstofunnar, Sjó-
mannaskólanum, Reykjavik.
1 x 2 - 1 x 2
(13. leikvika — leikir 1. april 1972)
Úrslitaröðin: 122 — 1X2 — 121 — 121
1. vinningur : 11 réttir — kr. 381.000.OOnr. 16050
2. vinningur : 10 réttir — kr. 7.400.00
nr. 2142 nr. 15499+ nr . 32980 nr. 62183+
— 6218 — 15896+ — 39995 — 64937 +
— 7046+ — 17673 + — 42268 — 66003 +
— 7271 — 17857 — 49545 + — 83010+
— 8119 — 20404 — 49637 — 87806+
— 9411 — 31267 4- nafnlaus seöill
Kærufrestur er til 24. april. Vinningsupphæöir geta
lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Vinningar fyrir
13. leikviku verða póstlagðar eftir 25. april.
Handhafar nafnlausra seðla verða að framvisa stofni
eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og
heimilisfang til Getrauna fyrir greiðsludag vinninga.
GETRAUNIR — lþróttamiðstööin — REYKJAVIK