Tíminn - 07.04.1972, Blaðsíða 16

Tíminn - 07.04.1972, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Föstudagur 7. april 1972. Ráðstefna um björgunarmál OÓ—Reykjavik. Skipulag og stjórnun á björgunaraögerðum og samvinna björgunarsamtaka við opinbera aöila verður umræðuefni ráð stefnu, sem Landssamband hjálparsveita skáta, sem haldin verður á morgun og laugardag. Þeir sem að ráðstefnunni standa, segjast vona, að upp verði tekið nánara samstarf viðkomandi aðila um skipulagningu björgunarmála. Ráðstefnuna sækja fulltrúar opinberra aðila, sem um björgunarmál fjalla, og fulltrúar björgunarsamtaka. Nálgast 11 ára gamalt íslandsmet! ÖE—Reykjavik. Fyrsta frjálsiþróttamót ársins utanhúss var háð viö Mánagarð i Nesjum á vegum Mána og Sindra, sem eru innan ÚSÚ i A—Skafa- fellssýslu. Mótið fór fram 19.marz og tókst hið bezta.Langbezt; afrek mótsins var kúluvarp Guðrúnar Ingólfsdóttur, Mána, sem varpaði 10,96 m, en það er héraösmet og aðeins 8 sm lakara en íslandsmet Oddrúnar Guðmundsdóttur, UMSS, en það var sett 1961 og 11 ára gamalt. Sigrún M. Benediktsdóttir, M, sigraði i 60 m hlaupi á 8,8 sek. og i langstökki, stökk 4,38 m. Jón M. Einarsson, M, sigraði i þremur greinum, hljóp 60 m á 8,8 sek., stökk 4,41 m i langstökki og varpaði kúlu 8,48 m. Hulda Laxdal Hauksdóttir, S, sigraði i kúluvarpi telpna, kastaði 7,80 m. Þá varpaði Sigurður Guðnason, S, kúlu pilta 9,22 m. Meðvindur var of mikill i 60 m hlaupinu. Óbreytt landslið Alf — Reykjavik. — 1 dag, föstudag, er bandariska lands- liðiö i handknattleik væntanlegt til landsins, en um helgina fara fram tveir landsleikir milli Islands og Bandarikjanna. HSt hefur nú tilkynnt, að engar breytingar verða á isl. liðinu frá Spánarförinni, nema hvað Axel Axelsson og Jón Hjaltalin eru for- fallaðir, Axel meiddur á fæti og Jón er við nám erlendis. Forsala aðgöngumiða er i Laugardalshöll i dag frá kl. 18-20. Þess má geta, að ýmsir aðilar hafa sýnt þakklætishug sinn til islenzka landsliðsins i verki með þvi að færa HSl peningagjafir, sem verja á til undirbúnings fyrir Olympiuleikana. Sæmdarkonan Helga Marteinsdóttir (Röðli) færði 10 þúsund króna gjöf, og skipsverjar á b/v Kaldbak, EA 1 hafa sent HSl 22.500 krónur. Stefán og kona hans, Kristin, með börn sin, sem þátt tóku f páskagöngunni og voru yngstu þátttakendurnir. Eins og kunnugt er, er Stefán fyrrum tslandsmeistari á skfðum. Lokastaðan og þeir markhæstu Hér kemur lokastaðan keppnismóti H.K.R.R.: i Hrað- Valur 6 6 0 0 53:37 12 Fram 6 4 0 2 46:39 8 Haukar 5 3 0 2 35:31 6 Þróttur 5 3 0 2 32:32 6 Grótta 4 2 0 2 29:26 4 FH 3 1 0 2 27:20 2 1R 3 1 0 2 20:18 2 Ármann 3 1 0 2 21:26 2 Vikingur 3 1 0 2 22:27 2 KR 2 0 0 2 13:16 0 Fylkir 2 0 0 2 8:18 0 Breiðablik 2 0 0 2 8:24 0 Markhæstu menn; Jón Karlsson Val 22 Hermann Gunnarsson Val 12 Björgvin Björgvinsson Fram 11 Bergur Guðnason Val 10 Þórarinn Ragnarsson FH 9 Helgi Þorvaldsson Þrótti 9 Svavar Geirsson Haukum 9 Sigurður Pétursson Gróttu 9 Ingólfur Óskarsson Fram 8 Einar Magnússon Viking 7 ÞRJU NY ÍSL.MET ÓE — Reykjavik. Þrjú met voru sett á innan- félagsmótum IR fyrir páska. Lilja Guömundsdóttir hljóp 600 m. á 1:52,4 min. og bætti eigið met. Þá setti Ásta Breiðfjörö telpnamet á sömu vegalengd, hljóp á 1:57,8 min., sem er betra en gamla tsl. met Lilju. Elias Sveinsson setti Unglinga- met i langstökki án atrennu, stökk 3.28 m. Valur sigraði í hraðkeppni Yngsti fjögurra ára Páskaganga Skiðafélags Reykja- vikur var haldin við Skiðaskálann i Hveradölum á skirdag kl. 2 e.h. Um 30 manns mættu til leiks, og var mótið opið fyrir almenning. Veðrið var gott, létt frost og sól- skin. Brautin var lögð á svæðið fyrir framan Skiðaskálann. Ræs- markið var við lyftuskúrinn. Brautin var vel merkt með flögg- um, og var gengið inn með daln- um. Jónas Asgeirsson S.R. setti mótið, og eftir keppnina var verð- launaafhending fyrir utan Skiða- skálann. Margt var um manninn þar efra. úrslit urðu sem hér seg- ír: Eldri flokkur: 1. Páll Guðb.s. Skf. Flj.m. 22.30 2. Hilmar Kristj.s. Sigluf. 28.44 3. Stefán Björnss. (fyrrv. form. S.R. 29.13 Yngri flokkur 1. Vilhjálmur Guðm. 30.15 2. Þóra Reynisdóttir 30.30 3. Sverrir Jensson 30.50 Yngstu þátttakendur i göngunni voru: Anna Stefánsdóttir 6ára Ármanni og Stefán Stefánsson 4 ára Ár- manni, en foreldrar þeirra eru Kristín og Stefán Kristjánsson, iþróttafulltrúar. Kemur Charlton til íslands í næsta mánuði? Alf — Keykjavik. — tþróttasiöan hefur fregnaö, aö hinn heimsfrægi knattspyrnu- maöur, Bobby Charlton, sé væntanlegur til islands ein- livcrn timann I næsta mánuöi á vegum Knattspyrnu- sambands tslands. Ekki tókst að ná sambandi við Albert Guðmundsson, for- mann Knattspyrnusambands íslands, i gær til að fá þessa frétt staðfesta. Ekki er vitað, hvort Charlton kemur hingað til að taka þátt i knattspyrnuleik, en kona hans mun verða með honum i förinni, ef úr verður. Bobby Charlton er meðal þekktustu knattspyrnumanna heims. Hann hefur um langt árabil venð skærasta stjarna Manchester Utd. og enska landliðsins og átti drjúgan' þátt i sigri enska landliðsins i heimsmeistarakeppninni 1966. Bobby Charlton á marga að- dáendur á tslandi og yrði auð- fúsugestur hér. Valsliðiö varö Ilraðkeppnis- meistari H.K.R.R. I I handknatt- leik s.I. miövikudagskvöld — liöiö var eina liöiö sem tapaöi ekki leik I keppninni, sem var mcð úr- sláttarfyrirkomulagi, þannig aö lið það sem tapaði tveim leikjum féll úr keppninni. Var þetta siöasta leikkvöldiö I keppninni — sem hófst 12 marz s.l. Úrslit leikjanna s.l. miðvikud. voru þessi: Haukar—Fram 9:7 (6:2) Þróttur—Grótta 8:4 (4:1) Valur—Haukar 8:6 (3:4) Fram—Þróttur 9:3 (3:1) Valur—Fram 7:6 (4:4) Það var litil ógnun hjá Fram liðinu I leiknum gegn Haukum. Til dæmis um það, gerði Björgvin þrjú fyrstu mörk Fram — þar af tvö úr vitaköstum. Þegar 3 min. voru til leiksloka, var staðan 8:3 fyrir Hauka — þá fóru Framarar að leika maður á mann og náðu að komast i 8:6, voru með knöttinn — Ingólfur skaut i slá, Haukar náðu knettinum og skoruðu 9:6, en Sigurður skoraði siðasta mark leiksins — fyrir Fram 9:7. Þróttarar unnu Gróttu létt i leik liðanna — maðurinn hjá Gróttu sem ógnaði Þróttarliðinu, var Sigurður Pétursson (3 mörk). Valsmenn áttu i erfiðleikum með Hauka liðið. Þegar staðan var 6:5 l'yrir Val, átti Stefán Jónsson, Haukum, skot I stöng úr vitakasti. Stuttu seinna lét Stefán sem var búinn að skora 4 mörk — Jón Breiðfjörð verja skot frá sér, eftir hraðupphlaup. Ef Stefán hefði skorað úr þessum tæki- færum, er ekki hægt að segja hvernig leikurinn hefði fariö (það er einkennilegt með þetta — ef og ef). Fram átti aldrei i erfiðleikum meö Þrótt i leik liðanna — það eru þrir leikmenn i liði Fram, sem eiga skilið hrós fyrir frábært samspil — þessir leikmenn eru hinir frábæru linuspilarar liðsins Björgvin, Sigurbergur og Sigurður Einarsson, en þeir léku vörn Þróttar oft grátt — skoruðu samtals 7 mörk i leiknum. Úrslitaleikurinn: Leikur Vals og Fram var mjög jafn framan af — Framarar leiddu fyrri hálfleikinn, en Vals- mönnum tókst að jafna úr vita- kasti 4:4 fyrir leikhlé. Fyrstu min. i siðari hálfleik tókst Valsliðinu að skora þrjú mörk og komst yfir 7:4, og er hægt að segja að þeir hafi þá gert út um leikinn. Fram tókst að minnka muninn i 7:6 — voru með knöttinn, en misstu hann til Vals- manna, þegar nokkrar sek. voru eftir. Að lokum má geta þess, að Valsliðið notaði ekki landsliðs- mennina sina sex i mótinu — Umsjón: Alfreð Þorsteinsson Bobby Charlton sést hér á miöri myndinni, en til hægri er Allan Ball. sýnir það hvað breiddin er mikil hjá Val — þvi félagið sýndi i mótinu að það á marga góða handknattleiksmenn. SOS.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.