Tíminn - 07.04.1972, Page 17
Föstudagur 7. april 1972.
TÍMINN
17
Settum markið hátt
- kannski of hátt
- segir Koibeinn PáSsson, sem kjörinn var einn af fimm beztu
leikmönnum Norðurlandamótsins í körfuknattleik
„Enda þótt Dönum hafi tekizt að sigra okkur
núna, er ég ekki tilbúinn að viðurkenna, að við
séum I afturför. Sannleikurinn er sá, að leikir
íslands og Danmerkur á undanförnum árurn
hafa alltaf verið hnifjafnir, og yfirleitt höfum
við aðeins sigrað það með eins eða tveggja
stiga mun. Nú geristþað hins vegar, að Dönum
tókst sérlega vel upp á lokaminútunum, og -
úrslit leiksins ráðast tveimur siðustu minút-
umun, en fram að þvi var staðan jöfn. Sést af
þessu, hve mjótt var á mununum.”
Þannig fórust Kolbeini Páls-
syni, sem kjörinn var einn af
fimm beztu leikmönnum
Norðurlandamótsins, orð, er
við ræddum við hann um
frammistöðu landsliðsins i
keppninni, sem haldin var i
Stokkhólmi um páskana.
,,Ég er i engum vafa um, að
það hafa orðið framfarir bæði
hjá Dönum og Islendingum frá
siðasta móti, en mestar eru þó
framfarirnar hjá Norðmönn-
um. Þær eru stórstigar.”
— Nú hefur verið rætt um
það, Kolbeinn, að niðurröðun
leikja i mótinu hafi verið
ykkur sérstaklega óhagstæð?
— Já, það er alveg rétt. Við
urðum að leika þrjá leiki á
sólarhring, og það hafði
óneitanlega áhrif til hins verra
á liðið.
— Tölduð þið ykkur vissa
um sigur gegn Dönum fyrir-
fram?
— Nei, engan veginn. Hins
vegar settum við markið hátt,
kannski of hátt. Við vorum
ekki með leikinn gegn Dönum
sérstaklega i huga, en vorum
aftur á móti staðráðnir i að
standa okkur vel á móti Finn-
um og Svium, sem hafa verið
og eru i sérflokki á Norður-
löndum. Hins vegar var það
aðalmarkmið Dana að sigra
tslendinga. Fyrir þvi hef ég
orð Þorsteins Hallgrimssonar,
sem umgengst danska körfu-
knattleiksmenn og þekkir þá
vel. Það hefur verið óska-
draumur Dana i mörg ár að
sigra okkur. Og nú tókst þeim
að ná þvi langþráða marki
eftir harða keppni. Við þvi er'
ekkert að segja. Þannig er
gangurinn i fþróttum, þegar
tvö jöfn lið mætast i keppni,
sigur i dag —ósigur á morgun.
En ég get viðurkennt, að ég
var heldur óhress eins og aðrir
yfir þessu tapi, var raunar bú-
inn að telja sjálfum mér trú
um, að ég ætti ekki eftir að
leika með landsliði, sem tap-
aði fyrir Dönum. En nú hef ég
að þvi marki að keppa, að
leika með landsliði, sem ætlar
sér að hefna ósigursins — og
vinna Dani, eins fljótt og auðið
verður.
— Þú talaðir um framfarir
islenzka landsliðsins. Eru
framfarirnar hjá okkur ekki
minni en hjá öðrum þjóðum, ef
Danir eru undanskildir?
— Það hafa orðið alveg ótrú-
lega miklar framfarir i körfu-
knattleik siðustu árin. Körfu-
knattleikur er þannig iþrótt,
að hann hefur næstum óen-
danlega þróunarmöguleika.
Leikaðferðir, sem notaðar
voru fyrir tveimur árum, eru
úreltar i dag. Vissulega háir
það okkur, hve erfitt það er að
fylgjast með nýjungum er-
lendis. Loksins þegar við kom-
umst i snertingu við þær, er
farið að breyta aftur — og við
orðnir á eftir timanum.
— Höfum við ekki ráð á að fá
erlenda þjálfara hingað?
— Ég get ekki sagt, að við
höfum ráð á þvi, þótt það hafi
verið gert. Við vorum svo
heppnir að fá hingað banda-
riskan þjálfara á siðasta
sumri. Byggðum við mjög á
þvi, sem hann kenndi okkur,
er við lékum nú i Norður-
landamótinu. En ég verð að
viðurkenna það, að ráðlegg-
ingum Bandarikjamannsins
var ekki fylgt nægilega eftir.
— Hvað um framtið Körfu-
knattleiks á íslandi?
— Enda þótt sumir séu
svartsýnir eftir þetta Norður-
landamót, er ég bjartsýnn. Nú
eru að koma upp piltar i yngri
aldursflokkunum, sem greini-
lega hafa mikla hæfileika. Ef
okkur lánast að leysa leiðbein-
enda- og þjálfaramál okkar,
en á þessu sviði erum við i
vanda eins og svo margar aðr-
ar iþróttagreinar, er ég viss
um, að körfuknattleikur a eftir
að blómgast á Islandi og ná
enn meiri vinsældum, sagði
Kolbeinn að lokum. —alf.
Innanhússknattspyrnumótið:
ÚRSUTIN I RIÐLUNUM
Hér birtum við stöðurnar i
hverjum riðli fyrir sig i karla-
flokki islandsmótsins i innan-
hússknattspyrnu — og leiki þá
sem sigurvegararnir i hverjum
riðli léku i riðlunum.
A-riðill
Ármann—Stjarnan 6:4
Ármann—IA 8:3
Ármann—IS 7:7
Ármann—Fylkir 5:4
Ármann 4 3 1 0 26:18 7
IA 4301 30:23 6
Stjarnan 4 1 1 2 21:22 3
IS 4112 25:30 3
Fylkir 40 1 3 17:26 1
Vikingum. Valur tapaði bæði
fyrir Viking og KR, á skirdag —
daginn áður var árshátið Vals.
C-riðill
IBK-FH
ÍBK-Viðir
ÍBK—Reynir
IBK
FH
Reynir
Viðir
Viðir
.3:2
15:2
8:5
3 3 0 0 26: 9 6
3111 14:13 3
3 1 0 2 20:17 2
3012 20:17 2
3012 9:30 1
Mjög einkennileg niðurröðun
var i riðlinum — fyrsti leikur
riðilsins var úrslitaleikurinn i rið-
lingum ÍBK— FH.
D-riðill.
Þróttur—Hrönn 12:2
Þróttur - Breiðablik 11::
Þróttur—Fram
Þróttur
Fram
Breiðab.
Hrönn
6:6
32 1 0 29:11 5
3210 25:12 5
3102 15:21 2
3 0 0 3 9:34 0
Markatalan réði úrslitum i D-
riðlinum — þar sem Þróttur var
með betra markahlutfall en
Fram. Framarar voru ekki nógu
ákveðnir i leik liðsins gegn Þrótti
ungu leikmennirnir i liðinu,
voru ragir við að skjóta á mark i
opnumfærum. SOS.
Kolbeinn Pálsson, einn af beztu leikmönnum Norðurlandamótsins f
körfuknattleik.
Breiðholtshlaup
Í.R.-inga 9. apríl
Breiðholtshlaup 1R mun fara
fram i 4. sinn á vetrinum n.k.
sunnudag, 9. april, og mun hefjast
kl. 14,00.
I siðasta hlaupi tóku þátt 140.
þáttakendur, og hafa þar með
alls um 250 hlaupið einu sinni eða
oftar og eiga enn allir, sem hafa
hlaupið i vetur möguleika til að
vinna sér til verðlauna. Þvi er nú
búizt við enn fleiri þátttakendum.
— jafnvel nýju þátttökumeti og
þvi er þeim tilmælum beint til
allra, sem ætla að taka þátt, að
mæta timalega svo númera-
uthlutun og skrásetning nýrra
keppenda geti gengið fljótt fyrir
sig.
Þau úrslit, sem mest komu á
óvart i A-riðlinum, var sigur
Ármanns yfir IA — i hálfleik var
staðan .3:2 fyrir IA, en hið unga lið
Ármanns náði frábærum leik i
siðari hálfleik.
B-riðill
KR—Haukar
KR—Valur
KR—Völsungar
KR—Vikingur.
KR 4
Vikingur 4
Valur 4
Völsungur 4
Haukar 4
Þetta var lang sterkasti riðill-
inn — KR-ingar unnu Viking á
svæfingaraðferðinni, léku þeir
mjög rólega knattspyrnu, sem
dugði gegn hinum létt-leikandi
10:5
8:6
5:3
4:3
4 0 0 27:17 8
3 0 1 26:22 6
202 29:22 4
1 0 3 18:26 2
004 21:35 0
Frá leik Þróttar og Keflavikur. ólafur Brynjólfsson sækir að marki
Keflavikur. Guðni Kjartansson er til varnar.