Tíminn - 07.04.1972, Blaðsíða 19
Föstudagur 7. april 1972.
TÍMINN
19
Sæluvikan hefst á sunnuaag
GÓ—Sauðarkróki. Kvenfélag Sauðárkróks sýnir
Sæluvika Skagfirðinga hefst á Saklausa svallarann, og verður
Sauðárkróki sunnudaginn 9. april
og stendur til 16.april. Að vanda
verður þar margt til skemm-
tunar.
Fyrsta atriði Sæluvikunnar er
frumsýning Leikfélags Sauðár-
króks á leikritinu Landabrugg og
ást. Leikstjóri er Kári Jónsson.
Verður leikurinn sýndur nokkrum
sinnum Sælu viku
það leikrit frumsýnt á miðviku-
dag. Leikstjóri Svallarans er Jón
Ormar Ormsson. Verður
Það leikrit sýnt á hverju kvöldi
fram á sunnudag.
Á þriðjudaginn syngur Karla-
kórinn Heimir. Dansleikir verða
haldnir fimm kvöld vikunnar.
Kvikmyndasýningar verða aila
dagana.
Æ vakna vel
DRALON sængin fæst í þrem stærðum
og'er fyllt með fjaðurmagnaðri
DRALON kembu frá Bayer.
DRALON SÆNG — LETT OG HLY
DRALON SÆNG —
Á SANNGJÖRNU VERÐI - - ,
alon
BAYER
Urvals tref/aefni
GEFJUN AKUREYRI
Ég þakka Framhald af bls. 1
Háskóla tslands kl. 2 siðdegis á
afmælisdaginn 23. april 1972.
Halldóri Laxness var tilkynnt
um þessa ákvörðun i dag, en hann
dvelst nú i Kaupmannahöfn og
hefur verið i Sandinaviu undan-
farinn mánuð. Timinn átti simtal
viö Halldór Laxness og óskaði
honum til hamingju með væntan-
lega heiðursnafnbót.
— Ég er ósköp ánægður með að
góðir menn vilja sýna mér hlý-
hug, sagði Laxness, — þessi frétt
kom alveg flatt upp á mig nú fyrir'
skammri stundu ég hafði alls ékki
gert ráð fyrir þessum heiðri.
Laxness kvaðst alls ókunnugur
öllum aðdraganda þess, að ák-
veðið var að sæma hann heiðurs-
doktorstitli. — Ég hef heyrt eitt-
hvað mjög lauslega um málið, en
það er algerlega fyrir utan mig,
og ég get ekkert um það sagt,
sagði Laxness.
— Mér er sagt að einn maður
hafi verið andvigur málinu sam-
vizku sinnar vegna.
Við spurðum nóbelsskáldið
hvort tregða sú, sem reyndist á að
hann hlyti þennan heiðurstitil,
varpaði nokkrum skugga á vænt-
anlegan atburð i hans huga.
— Nei, það varpar ekki skugga
á hann fyrir mér, þar sem ég veit
ekkert um þetta, ef til vill varpar
það skugga á hann fyrir einhverj-
um öðrum.
Halldór Laxness bjóst við að
koma heim um 17. april. Við
spurðum hann loks hvort mikið
yrði um dýrðir hjá honum á af-
mælinu.
— Það eru aðrir góöir menn,
sem halda uppi allri dýrð af þvi
tilefni. 1 sjálfu sér er ekki svo
mikil dýrð að verða sjötugur. Ég
þakka fyrir að vera við góða
heilsu. Það er sú mesta dýrð,
þegar maður er kominn á þennan
aldur.
Olía Framhald af bls. 1
óhappið varð, en mönnum tókst
að flæma fuglinn út. Ein kolia
mun þó hafa drepizt, og kalla
menn það vel sloppið.
Strax eftir óhappið var haft
samband við Olíufélagið h.f. i
Reykjavik, sem sendi strax menn
austur með efni til að eyða oli-
unni, eða fjarlægja hana á annan
hátt.
Nokkrar skemmdir urðu á
bryggjunni við áreksturinn, en
þær eru ekki að fullu kannaðar.
Sjópróf fóru fram i Þorlákshöfn
i gær. Til marks um magnið sem
fór i sjóinn, þá samsvarar það
stóru bilhlassi af oliu.
Þykkt lag af oliu var komið i
krikann við Meitilinn i gær, og
var þar ljótt umhorfs.
Björgunaraðgerðir
Eftir hádegið var byrjað að ná
oliunni úr höfninni, og var dælu-
bfll hafður á bryggjunni, sem
dæla átti sem mestu af oliunni i.
Siðan var ráðgert að dreifa zetor
efni yfir afganginn, en efnið hefur
þau áhrif, að olian fer i kekki,
sem sökkva til botns og leysast
upp i sjóinn.
Japanirnir héldu i fyrstu að 35
tonn hefðu farið i sjóinn en siðar
kom i ljós, að dælt hafði verið úr
stafnhylkinu á leiðinni til Þor-
lákshafnar frá Vestmannaeyjum,
en verr hefði farið, ef 35 tonn
hefðu farið i höfnina i Þorláks-
höfn.
VIPPU - BlLSKÚRSHURÐIN
Lagerstærðir miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm
210 - x - 270 sm
Aðrar stærðir. smíðaðar eftir beiðni.
GLUGGAS MIÐJAN
Síðumúla 12 - Sími 38220
New Holland bindivélar
Þœr binda vidstödulaust
Þegar bindivél er notuð, þarf að vinna viðstöðulaust við
mikið álag.
Þess vegna byggir New Holland styrkleika og nákvæmni
inn í sinar bindivélar. Styrkleika til að standast langt og
viðstöðulaust erfiði. Nákvæmni til að baggarnir verði
með rétta lögun, þéttir og vel hnýttir— sem sagt galla-
lausir.
Við gefum allar nánari upplýsingar um New Holland
bindivélarnar, þeirra óvenju hagstæðu verð og greiðslu-
skilmála.
Hafið samband við okkur.
1 mmm U/ODUSf
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555
JFHA FLUGFÉLAGMIVL/
SKRIFST0FUF0LK I
SÖLUSKRIFSTOFU
Flugfélag Islands h.f. óskar að ráða mann
og konu nú þegar til að starfa i söluskrif-
stofu Lækjargötu 2, Reykjavik.
Verzlunarskólapróf eða hliðstæð menntun
nauðsynleg.
Umsóknareyðublöðum, sem fást á skrif-
stofum félagsins, sé skilað til starfs-
mannahalds i siðasta lagi þann 12. april.
FLUGFELAGISLANDS
Aðstoðarforstöðu maðu r
Staða aðstoðarforstöðumanns við
Gæzluvistarhælið i Gunnarsholti. Rangár-
völlum, er laus til umsóknar frá 1. júli n.k.
Laun samkvæmt kjarasamningum opin-
berra starfsmanna. Nánari upplýsingar
veitir forstöðumaður hælisins, simi um
Hvolsvöll.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist Skrifstofu
rikisspitalanna, Eiriksgötu 5, fyrir 1. mai
n.k.
Reykjavik, 6. april 1972
Skrifstofa rikisspitalanna