Tíminn - 07.04.1972, Page 20
t
L
L
I
t
NTB—Islamabad
Zulfikar Ali Bhutto, forseti
Pakistans, hefur fengið bréf frá
Indiru Gandhi, forsætisráðherra
Indiands, þar sem hún stingur
upp á að þau haldi með sér fund.
Bhutto sagði blaðamönnum, að
hann væri að undirbúa svar við
bréfinu, sem svissneskir fulltrúar
afhentu honum fyrir þremur
dögum. t bréfinu stingur Indira
upp á samningaviðræðum án
fyrirfram skilyrða, og að full-
trúar landanna hittist fyrst til að
undirbúa fundinn.
Bhutto kvað bréfinu verða
svarað næstu daga, en ekki
hvernig svarið yrði.
Muskie
Þessi mynd var tckin I borginni Dong Ha, sem var yfirgefin, er N-Vfetnamar hófu stórsókn sina. Hermenn S-Víetnam komu aftur til borgar-
innar og sjást hér fjórir þeirra bfða eftir birgðaflutningabflum N-Vfetnama.
Sókn N-Vietnama nær
suður undir Saigon
- Alvarlegasta ógnunin síðan 1968
NTB—Saigon
Bandarfskar flugvélar og fall-
byssur skipa létu kúlnaregnið
dynja á skotmörkum f N-Vietnam
Svart: Reykjavik: Torfi
Stefánsson og Kristján Guð-
mundsson.
ABCDEFGH
I gær. Jafnframt voru háðir harð-
ir bardagar á tvennum vfgstöðv-
um i S-Vietnam. Bandarfskur
talsmaður I Saigon sagði, að að-
eins yrði varpað sprengjum á N-
Vietnam i takmarkaðan tfma, og
væru árásirnar svar við sókninni
suður yfir hlutlausa beltið.
Hanoi-útvarpið tilkynnti í gær,
að tiu bandariskar sprengjuflug-
vélar hefðu verið skotnar niður,
sjö þeirra yfir Quang-Binh-héraði
og þrjár yfir Vinh-Linh-svæðinu.
Árásum fimm sprengjuflugvéla
á Tonkinflóa var beint að birgða-
flutningaleiðum N-Vietnama til
sóknarhersins við hlutlausa belt-
ið.
Allir þeir 20 þúsund óbreyttu
borgarar, sem eftir voru i Quang
Tri-borg voru fluttir til Hue i gær,
en hún er aðeins 56 km sunnar. 1
Saigon sagði bandariski kap-
teinninn Parrish, aö Bandarikin
hefðu varað kommúnista við að
auka tilþrif sin og ógna lifi
Bandarikjamanna. Þeim hefði
verið gert það ljóst, að Ban-
darikin myndu svara árasum, ef
kommúnistar hæfu stórsókn
mynd Á mánudaginn tilkynntu
Bandarikjamenn, að þeir myndu
Moskusuxar fara
Pandabirnir koma
ABCDEFGH
Ilvftt: Akurcyri: Sveinbjörn
Sigurðsson og Hólmgrimur
Heiðreksson.
7. leikur Reykjavikur Rc6
NTB—Washington
Bandarisk herflugvél, hlaðin
tveimur Moskusuxum, lagði i gær
af stað frá Washington til Peking.
Eftir nokkra daga er flugvélin
væntanleg til baka með tvo
Panda-birni um borð. Þessi skipti
eru m.a. árangur af ferð Nixons
til Kina.
Tveir dýrafræðingar eru i för
með uxunum austur, og eiga þeir
að kenna Kinverjum meðferð
dýranna. Einnig koma tveir
kinverskir sérfræðingar með
Pandabjörnunum yfir hafið.
Dýragarðar um öll Bandarikin
hafa sótt um að fá þessar sjald-
gæfu skepnur til sin, en forsetinn
hefur ákveðið, að þjóðdýra-
garðurinn i Washington skuli fá
þá.
snúast til varnar þeim 95000
mönnum, sem enn eri i S-Viet-
nam.
mönnum, sem enn eru i S-VIet-
nam.
1 gær varð ljóst, að kommúnist-
ar hafa opnað nýjar vigstöðvar i
Binh Long-héraði, aðeins 96 km
norðan við Saigon. Þar hafa þeir
lokað þjóðveginum til landamæra
Kambódiu. Lengra norður frá
fóru herir N-Vietnam^ yfir ána
Cua Viet, sem takmarkar norður-
vigstöðvarnar 16 km sunnan hlut-
lausa beltisins.
Mikil skriðdrekaorrusta var
háð i gær beggja vegna árinnar,
en siðari hluta dagsins reyndu s-
vietnamskar hersveitir að reka
árásarmennina af höndum sér.
Samkvæmt óstaðfestum fréttum
særðust tveir bandariskir hernað-
arráðunautar, er þeir fylgdust
með skriðdrekaorrustunni.
Bandariskar og s-vietnamskar
flugvélar vörpuðu sprengjum á
herstöð kommúnista nálægt flota-
stöð Bandarikjamanna við Cua
Viet, en hún er nú yfirgefin. Tveir
skriðdrekar og tvær loftvarnar-
byssur voru eyðilagðar, og um 35
N-Vietnamar féllu.
Stjórnin i Saigon gaf fyrirskip-
Framhald á bls. 8.
ekki af
baki dottinn
NTB—Chicago
öldungadeildarþingmaðurinn
Edmund Muskie, sem varð að
láta sér nægja fjórða sætið I próf-
kosningunum i Visconsin, sagði i
gær, að hann mundi halda áfram i
kapphlaupinu um að verða út-
nefndur forsetaefni demókrata.
Hann myndi heldur ekki breyta
baráttuaðferðum sínum.
Muskie hélt fjögurra klukku-
stunda fund bak viðiokaðar dyr,
með ráðamönnum sinum og
þeim, sem styðja hann fjár-
hagslega. Joho Tunney
öldungadeildarþingmaður frá
Kaliforniu, hefur ráðlagt Muskie
að taka ekki þátt i prófkosningum
I sex smárikjum, en leggja þess i
stað alla áherzluna á próf-
kosningarnar i Kaliforniu, Penn-
sylvaniu og Ohio.
Liíbke látinn
NTB—Bonn
Heinrich Lubke, fyrrum forseti
V-Þýzkalands, lézt i gær á
sjúkrahúsi i Bonn, 77 ára að aldri.
Banamein hans var magasár.
Lúbke fæddist i Westfalen 1894.
Hann stundaði nám við háskólana
i Bonn, Berlin og Múnster, i land-
búnaðar og viðskiptafræðum.
Þegar Hitler kom til valda árið
1933 var Lúbke rekinn úr öllum
stöðum og handtekinn
margsinnis. t fangelsi sat hann 20
mánuði 1934 — 35. Eftir siðari
heimsstyrjöldina gekk Lúbke i
flokk Kristilegra demókrata.
Hann varð forseti 1959 og sagði af
sér i júli 1969, tiu vikum áður en
annað kjörtímabil hans rann út.
Kosygin fagnað f Irak
Föstudagur 7. april 1972.
Indira vill
hitta Bhutto
Indland og Sovét vilja að
Bhutto viðurkenni Bangladesh
- til að beinar samningaviðræður geti hafizt
viðræður muni útiloka
Sovétríkin sem sáttasemjara i
deilunni, eins og varð i
striðinu milli Indlands og
Pakistan 1965.
I yfirlýsingunni segir enn-
fremur, að þjóðirnar tvær vilji
auka samvinnu sina á sviði
stjórnmála, visinda, tækni og
viðar, án þess að farið væri út i
nánari skýringar.
NTB—Moskvu
Indland og Sovétrikin hafa
orðið ásátt um, að koma þurfi
á viðræðum milli Indlands,
Bangladesh og Pakistan um
lausn mála i Suður—Asiu.
Þetta segir i sameiginlegri
yfirlýsingu, sem birt var i
Moskvu i gær, eftir heimsókn
Swaran Sings, utanrikisráð-
herra Indlands.
Fréttaskýrendur i Moskvu
túlka yfirlýsinguna sem
áskorun til Bhuttos forseta
Pakistan um að viðurkenna
Bangladesh og koma þar með
á viðræðum aðilanna þriggja.
Sovétrikin og Indland eru
hlynnt friðsamlegri lausn
deilunnar gegn um viðræður
eins fljótt og hægt er, segir i
yfirlýsingunni.
UPI segir, að beinar
Itrekar stuðning við Araba gegn ísrael
NTB-Beirut
Kosygin, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, kom til Bagdad I
gær I broddi fylkingar háttsettra
fulltrúa sovézka kommúnista-
flokksins og stjórnarinnar. Til-
gangur heimsóknarinnar cr
trúlega að styrkja samband
Sovétrikjanna og íraks og leggja
áherzlu á stuðning Sovétrikjanna
við Arabaþjóðirnar i deilunni við
ísrael.
Þúsundir manna hylltu Kosygin
við komuna, og höfðingjar úr
irakska byltingarráðinu heilsuðu
honum með vinsemd og virðingu.
Irakska fréttastofan tilkynnti,
að i dag muni Kosygin verða við-
staddur opnun nýs oliusvæðis I
suðurhluta landsins. Þar mun
framleiðslan ná 40 milljónum
lesta af oliu á ári fyrir 1979.
Sovézk herskip munu heirrsækja
hafnir i Irak, meðan Kosygin
dvelst þar. Hann mun taka þátt i
25 ára afmælishátið Baath-flokk-
sins. Þetta er i fyrsta sinn, sem
Kosygin kemur til íraks, og er
hann hæstsetti Rússi, sem komið
hefur þangað siðan Podgorny var
þar árið 1967, eftir ósigurinn við
Israel.
Fréttaskýrendur segja, að
heimsóknin muni veita Rússum
tækifæri til að auka pólitisk og
efnahagsleg áhrif sin i landinu og
telja jafnvel möguleika á að
gerður verið samvinnu— og
vináttusáttmáli á borð við þann,
sem gerður var við Egypta i
fyrra.
Heimsóknin stendur i fimm
daga.