Tíminn - 08.04.1972, Blaðsíða 1
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
/■
SENDIBIL ASTOÐIN HT
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR
Olían
komin
um alla
höfn
ÞÓ—Reykjavik.
„Þetta er voðalegur við-
bjóður, þvi nú hefur NA—
áttina lægt og olian hefur
dreifzt út um alla höfn, sagði
Rikharð Jónsson, forstjóri
Meitilsins h.f. i Þorlákshöfn,
er við ræddum við hann i
dag.
Tækin, sem mennirnir frá
Oliufélaginu notuðu i gær við
að ná oliunni, komu ekki að
þeim notum, sem til var ætl-
azt, sagði Rikharð. — Þvi
miður er það satt, sem Sig-
lingamálastjóri segir, að
engin tæki eru til i landinu til
að hreinsa upp oliu af haf-
fletinum. Við erum alveg
varnarlausir gagnvart
þessu. Olian liggur nú upp
við bryggjurnar og hér i fjör-
unni fyrir framan frystihús-
ið.
Þegar við ræddum við
Rikharð var að byrja að
flæða að, og bjóst hann við,
að ljótt yrði umhorfs i höf-
ninni eftir háflóð og seinni-
hluta dags áttu bátarnir,
sem allir voru á sjó, að koma
til hafnar, og mátti þá búast
við þvi að að þeir yrðu allir
löðrandi i oliu.
Rikharð, sagði að menn frá
Oliufélaginu h.f. hefðu aftur
átt að koma i gær með tæki
til að hreinsa oliuna upp úr
höfninni.
Kannski vcrður aftur farið að hengja upp skreið i ríkum mæli hér á landi, ef skreiðarmarkaðurinn i Nígeriu opnasl fyrir Islendinga.
Myndin er frá þeim tima, er skreiðarverkun var með blóma.
Gowon leyfir skreiðar-
innflutning til Nígeríu
Ætlar að veita innflutningsleyfi fyrir takmörkuðu magni. Islendingar leita fyrir sér um
Skólalíf
í Rvík -
sjá opnu
sölu ó skreið þangað eftir fimm óra hlé
KJ—Reykjavlk.
Gowon forseti Nigeriu hélt mikla ræðu á föstudaginn I fyrri
viku, 31. marz, og fjallaði hún að mestu um fjármál landsins
næsta árið. I ræðu þessari sagði Gowon m.a., að veitt yrðu tak-
mörkuð innflutningsleyfi fyrir skreið, en gat ekki nánar um
hvernig innflutningi þessum yrði háttað, né hverjir fengju leyfi
til að flytja inn skreið, eða frá hvaða löndum hún yrði flutt.
tslenzk stjórnvöld, og þeir sem
verzla með skreið, vinna nú að
nánari könnun þessa máls, og eru
likur fyrir þvi, að frjáls skreiðar-
sala geti farið fram frá tslandi til
Nigeriu i fyrsta skipti siðan 1967,
er styrjöldin brauzt út i Nigeriu.
Stefán Gunnlaugsson, deildar-
stjóri i viðskiptaráöuneytinu,
sagði i viðtali við Timann i gær,
að ekki hefðu borizt nákvæmar
fréttir um þetta, en i ræðu sinni
hefði Gowon sagt eftirfarandi um
skreiðina, eftir að hann hafði til-
kynnt um aðra hluti: „Leyfður
verður takmarkaður innflutning-
ur á skreið til að fullnægja eftir-
spurn i landinu eftir eggjahvitu-
auðugri fæðu, en haft verður i
huga að skerða ekki hagsmuni
fiskiðnaðarins i landinu.
Stefán sagði, að þessi mál
myndu skýrast á næstu dögum,
en bæði stjórnvöld og útflytjendur
ynnu nú að þvi að afla sér frekari
frétta af þessum ummælum
Gowons.
Þá sagði Stefán, að vitað væri
um ýmsa aðila i Nigeriu, sem
gerðu sér vonir um að fá inn-
flutningsleyfi, og geta siðan gert
innkaup á skreið á íslandi.
Um eitt og hálft ár er nú siðan
siðast var seld skreið héðan til
Nigeriu, og var það þá skreið sem
Alþjóða Rauði krossinn keypti
Frh. á bls. 15
Leyfi veitt til kaupa á 8
japönskum skuttogurum
- sem kosta um 900 milljónir króna. Allir togararnir komnir hingað í maí á næsta óri I
1 gær var endanlega gengið frá
kaupum á átta japönskum skut-
togurum, 490 tonn að stærð, til
islands, og liklegt er að rikis-
stjórnin gefi einnig leyfi til kaupa
á níunda togaranum.
Japönsku viðsemjendurnir i
þessum viðskiptum eru
Ataka/Taiyo, og höfðu þeir gefið
frest þar til i gær, að ganga en-
danlega frá samningunum. A
fimmtudaginn gaf rikisstjórnin
leyfi sitt til að kaupa mætti þessa
skuttogara til landsins, og endan-
lega gáfu bankarnir leyfi sitt til
kaupanna i gær. Verð skipanna er
380 - 393 milljónir yena, en það
mun samsvara eitthvað i kring
um 110 milljónum islenzkra
króna. Þeir sem fá þessa átta
skuttogara, eru: Sildarvinnslan
h.f. Neskaupstaö, Bergur og
Huginn S. F. Vestmannaeyjum,
Tangi h.f. Vopnafirði, Miðfell h.f.
Hnifsdal, Hvalbakur h.f. Stöðvar-
firði, en það félag er sameign
Stöðfirðinga og Breiðdælinga.
Sjötta togarann fær Jökull h.f.
Raufarhöfn, sjöunda Útgerðar-
félag Skagfirðinga, Sauðárkróki,
og áttunda - Hraðfrystihús
Fáskrúðsfjarðar, Fáskrúðs-
firði. Niunda togarann hafa svo
Ólafsfirðingar pantað, en ekki
hefur verið veitt endanlegt leyfi
fyrir kaupunum á honum, enn
sem komiö er. Togararmr veroa
afgreiddir til kaupenda i sömu
röð og að framan greinir, og
verða tveir þeir fyrstu afhentir i
Japan i desember, 2 i janúar, 3 i
febrúar og 1 i marz á næsta ári.
Heimsiglingin mun taka um 6
vikur, svo að i mai á næsta ári
munu átta eða niu japanskir skut-
togarar, að verðmæti samtals
nærri einn milljarður, hafa bætzt
i togaraflota Islendinga. — KJ
Fjárdráttur |
hjá embætti 1
bæjarfógeta (
á Akureyri (
Talið að tveir starfs ]
menn hafi dregið sér ]
á þriðju milljón króna ]
KJ — Reykjavik. g
Tveir nienn, sem störfuöu j§
hjá emhætli bæjarfógetans á =
Akureyri við afgreiðslu toll- E
skjala, hafa orðið uppvisir að =
miklum fjárdrætti hjá em- 1
hættinu. Er talað um, að hér =
sé um á þriöju milljón króna E
að ræða. Mennirnir hafa sett =
tryggingu fyrir upphæðinni =
og eru byrjaðir aö greiða fé i
til baka.
Ófeigur Eiriksson bæjar- E
fógeti á Akureyri, sagði i við- ||
tali við Timann i gær, að =
fjárdráttur þessi hefði j|
komizt upp fyrir nokkru, og =
_ hefði undanfariö verið unnið E
j| að þvi að kanna, hve um- =
= fangsmikill hann væri. Ekki E
= vildi bæjarfógeti nefna neina =
= ákveðna upphæð i þessu 1
= sambandi, en staðfesti, að =
i um væri að ræða nokkur E
= hundruð þúsund krónur.
= Bæjarfógeti sagði, að =
= þessir tveir starfsmenn =
E Frh. á bls. 15 g
ÍIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIÉ