Tíminn - 09.04.1972, Qupperneq 1
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR
80. tölublað — Sunnudagur 9. april 1972 — 56. árgangur.
Loðnan gaf
800 millj. kr.
í útflutnings-
verðmæti í ór
KJ-Heykjavik.
Ueildarútflutiiingsverðinæti
loðnuaflans á siðustu vertið er
nærri átta hundruð milljónir, eftir
þeim upplýsingum, sem Tiniinn
liefur fengið lijá Jóni Sigurðssyni
hagrannsóknastjóra hjá Krain-
kvæmdastofnuninni. Kr þetta
rúmlega tvö hundruð milljóna
króna meira útflutningsverðmæti
fyrir loðnu, en á vertiðinni 1971.
A vertiðinni i ár er talið að
heildaraflinn hafi verið 278 þús-
und tonn og aflaverðmætið upp úr
sjó hafi verið ca. 360 milljón
króna virði.
Á vertiðinni 1971 var heildarafl-
Stokkseyri
ÞÖ-Reykjavik.
Þaöerekki ofsagt, að fjaran
á Stokkseyri sé falleg, það
urðu blaðamaður og ljós-
myndari Timans áþreifanlega
varir við, er þeir komu þangað
i vikunni, sem leið.
Erokkur bar að garði, iðaði
fjaran af lífi. Börnin voru ails
staðar að leika sér, fuglarnir
syntu á milli skerjanna og úti
fyrir lét brimið öllum illum
látum.
Gunnar ljósmyndari tók
þessa fallegu mynd neðst i
fjörunni, og um leið veifuðu
börnin til hans glöð að vanda.
t þessari viku munu koma
greinar og myndir i
Timanum úr byggðar
lögunum a u s ta n f ja 1 ls .
Hveragerði, Þorlákshöfn,
Selfossi, Stokkseyri og Eyrar-
bakka.
Júgurbólga veldur bændum
70-80 millj. kr. tjóni á ári
Klp-Reykjavik.
Dagana 20. til 25. marz s.l. var
lialdin Ráðunautaráðstefna
Búnaðarfélags tslands. Sóttu
hana að jafnaði um 80 manns,
þ.á.m. allir hérðasráðunautarnir
30 talsins. Aðalmál ráðstefnunnar
var nautgriparæktin, og fjölluðu
35 af þeim 50 fyrirlestrum, sem
fluttir voru, um mál sem snerta
nautgriparækt.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi i fyrradag, þar sem þeir
Olafur E. Stefánsson og Jóhannes
Eiriksson ráðunautar og Ingi
Tryggvason, blaðafulltrúi
Búnaðarfélagsins, ræddú við
fréttamenn um ráðstefnuna og
þau lög sem samþykkt voru á
Alþingi I vikunni. bar sem m.a.
segir að landbúnaðarráðherra
geti heimilað innflutning á djúp-
frystu sæði úr nautum af
Gallowaykyni. (Sjá opnu)
Það kom glöggt fram á þessari
ráðstefnu, að mikill áhugi er á að
auka kjötframleiðsluna með
blendingsrækt, og kýr af þvi tagi
yrðu jafnframt notaðar til
mjólkurframleiðslu. Með þvi væri
hægt að koma á meiri jöfnuði i
framleiðslunni en nú er.
Skýrsluhald i nautgriparæktar-
félögunum hófst áriö 1903. Fyrstu
árin var litil breyting á ársnyt
kúa, en siðan hefur afurðasemi
kúa hjá félagsbundnum bændum
Framhald á bis. 12
Þó-Reykjavík.
í fyrrakvöld náðust upp 2-3
tonn af oliu úr Þorlákshöfn. Er þá
búið að ná upp helmingi oliunnar,
sem fór i sjóinn úr japanska
skipinu.
Benedikt Thorarensen, frét-
taritari Timans i Þorlákshöfn
sagði, að menn frá Oliufélaginu
hefðu náð þessu magni upp, með
Tþv'l a'ö nota krana og mál, sem
uyu var í sjóinn.
Að sögn Benedikts, er spáð suð-
austan átt i Þorlákshöfn i dag, og
ef olian næst ekki upp áöur en
áttin snvr sér, þá er hætt við þvi
að hún berist út úr höfninni.
Ekki er vitað til þess að
fugladauði hafi orðið, enda hefur
verið reynt aö varna að æðar-
fuglinn komist i oliuna með þvi að
skjóta skotum upp i loftið. Þannig
hefur verið hægt að halda honum
frá brákinni.
inn 182 þúsund tonn og aflaverð-
mætiðúrsjó um 280 milljónir, en
þá mun heildarútflutnings
verðmætið hal'a verið 599 mill-
jónir. Stærsti liðurinn I út-
flutningnum er loðnumjölið, en
lramleiðslan á þvi nam rúmlega
40 þúsund tonnum, og er svo til
allt mjölið selt. Mjölið er selt eftir
próteineiningum, og reiknast
Timanum til að útflutningsverð-
mæti mjölsins hafi verið eitthvað
nálægt 650 milljónum. Loðnu-
lýsið mun einnig vera að mestu
selt, en talið er að heldur meira
lýsi hafi fengizt hlutfallslega á
þessari vertið en áður. Þá er nú
verið að afskipa frystu loðnunni
til Japan, en hún var öll fyrirfram
seld. Erfitt er að fá nákvæmar
tölur um heildarmagniö af frystri
loðnu, sem seld var, en Iróðir
menn gizka á að heildarmagnið
hafi verið 4.500 tonn, og er þessi
hluti loðnuaflans verðmætastur.
Nýtt Mafíu
stríð í N.Y.
NTB-New York. Mafiu-strið
virðist nú vera i fullum blóma i
New York. Mafiuleiðtoginn
Joseph „Crazy Joe” Gallo hefur
verið drepinn og tveir minni-
háttar foringar, allir á einum
sólarhring. Lögreglan hefur upp-
lýst að þetta sé strið.
Gallo var skotinn til bana, þar
sem hann var að halda upp á
fertugasta og annan afmælisdag
sinn i italska hverfinu i New
York. Morðið á honum var það
þrettánda i röðinni af þeim
drápum sem skrifuð hafa verið á
reikning Mafiunnar á einu ári. öll
þessi manndráp hafa átt sér stað
eftir að annar Mafiuforingi,
Joseph Colombo særðist i skot-
árásá fjöldafundi i Central Park i
júni I fyrra. Talið er að Colombo-
menn hafi staðið að moröinu á
Gallo.
Hætta á að olían breiðist út
Hækkun
blaðgjalda
- sjá bls. 9
A vítateig
- sjá bls. 13