Tíminn - 12.04.1972, Side 1

Tíminn - 12.04.1972, Side 1
BÍLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA SfLNÐtBlL ASTÖDIN Hf EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR Kristján Eldjárn. Dr. Kristján aftur í kjöri OÖ-Reykjavik. Forseti islands, dr. Kristján Eldjárn, hefur ákveðið, að vera i kjöri við næsta forsetakjör sem vera á í júnimánuði n.k. Dr. Kristján kallaði fréttamenn blaða, útvarps og sjónvarps á sinn fund i skrifstofu forseta i Al- þingishúsinu, og afhenti þeim cftirfarandi tilkynningu: Þeim tilmælum hefur verið beint til min, að ég gefi kost á mér við forsetakjör, sem fram á að fara hinn 25. júni næstkomandi, fyrir kjörtimabilið 1972-1974. Ég hef ákveðið að vcrða við þess- um tilmælum. Reykjavik, 10. april 1972. | Blómin og þorskurinn p f opnu blaðsins i dag, eru 0 greinar og myndir frá p blómabænum Heragerði og 0 hinum ört vaxandi sjávarút- p vegsstað Þorlákshöfn. Það má ^ segja að myndirnar tvæihértil 0. hliðar séu einkennandi fyrir 0 þessa tvo staði i Árnessýslu, p sem eru aðeins með 23 kiló- ^ metra millibiii. Á öðrum ^ staðnum byggðist lifsafkoman p á blómum og grænmeti sem ^ ræktað er þar með hjálp ^ hverahitans, en á hinum ^ staðnum byggist lifsafkoman p á fiskvinnslu og miðunum, Ú, sem liggja rétt fyrir utan p hafnarmynnið oft á tiðum. ^ (Timamyndir Gunnar) Ríkisstjórnin stuðlar að smíði 8—10 skuttogara hérlendis næstu 3- Þó- Reykjavík. Ríkisst jórnin ræddi m.a. um eflingu skipa- smiöaiönaöarins á fundi sinum i gærmorgun. Á fundinum var ákveðið, að stefna að smíði 8-10 skuttogara af millistærð hér á landi á næstu 3-4 árum. A þessum fundi sinum ræddi stjórnin mikið um skipu- lagningu og uppbyggingu skipasmiðaiðnaðarins á grundvelli áætlana um reglu- bundna endurnýjun fiskskipa- flotans. Þá var- ákveðið að stuðla að verkaskiptingu og samvinnu innlendra skipa- smiðastöðva og veita aðstoðog fyrirgreiðslu við fjármögnun þessa mikilvæga verkefnis. Rikisstjórnin gerði svo- hljóðandi samþykkt i málinu á fundinum i-morgun: „Rikisstjórnin ákveður að bcita sér fyrir þvi, að islen- zkar skipasmiðastöðvar geti tekið upp raðsmiði á skutt- ogurum af millistærð. Verði að þvi stefnt, að siniðaðir verði innanlands 8-10 á næstu þromur til fjórum árum með verkaskiptingu og samvinnu innlendra skipasmiðastöðva. Mun rikisstjórnin leggja áherzlu á, að opinberir aðilar og lánastofnanir stuðli að framkvæmd þessa mikilvæga verkefnis." Ráðgerð kaup á 2 litlum þyrlum auk þeirrar stóru fyrir Landhelgisgæzluna EB-Reykjavík. Nú fer fram athugun á því, hvort ekki sé rétt að festa kaup á tveimurtil- tölulega litlum þyrlum til handa landhelgis- gæzlunni til viðbótar þyrlunni, sem búið er að ganga frá kaupum á og tveggja hreyfla flugvél- inni, sem unnið er að út- vegun á. Kom þetta fram i ræðu, sem Ólafur Jóhannesson, forsætis- ráðherra, hélt á Alþingi i gær. Ennfremur gat forsætisráö- herra þess að skipuð hefur verið nefnd þriggja ráðu- neytisstjóra, þ.e. i dómsmála- ráðuneytinu, sjávarútvegs- ráðuneytinu og utanrikisráðu- neytinu, en þeim var m.a. falið að gera tillögur um hvaða ráðstafanir sé nauðsyn- legt að gera, með tilliti til út- færslu landhelginnar 1. sep- tember n.k. Þá sagði forsætisráðherra í sambandi við útvegun á tveggja hreyfla flugvélinni, að liklega yrði fyrir valinu Fokker Friendship. Forsætisráðherra sagði enn- fremur m.a., að eðlilegt væri að leyfi allra rannsóknarskipa bæði innlendra sem erlendra, er stunduðu visindastörf á landgrunninu, yrði bundið þvi skilyrði, að þau tilkynntu sig að minnsta kosti tvisvar á dag til landhelgisgæzlunnar og að islenzku rannsóknaskipin til- kynntu um leið, eins og varð- skipin, hvaða erlend skip, þau hefðu orðið var við, eða væru i námunda við. Myndi vafalaust verða af þvi mikil bót án veru- legs aukakostnaðar. Þorlákshöfn: Búizt við skaðabóta- kröfum ÞÓ-Reykjavik. ,,Ég býst við, að þegar komið er i ljós hvað mikið tjón hefur hlotizt hér á staðnum af oliunni, sem fór i höfnina, verði settar fram skaðabótakröfur,” sagði Rikharð Jónsson i samtali við blaðið. Það er ennþá verið, að hreinsa oliuna upp úr höfninni, sagði Rik- harð, og i gærmorgun komu menn frá Oliufélaginu með enn betri tæki, til að hreinsa upp oliuna. Bátarnir hér i Þorlákshöfn eru illa útlitandi og sömu sögu er að segja af bryggjunum. 011 friholt eru ónýt f oliumengun, sagði Rikharð að lokum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.