Tíminn - 12.04.1972, Qupperneq 1
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
SfLNÐtBlL ASTÖDIN Hf
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR
Kristján Eldjárn.
Dr. Kristján
aftur í kjöri
OÖ-Reykjavik.
Forseti islands, dr. Kristján
Eldjárn, hefur ákveðið, að vera i
kjöri við næsta forsetakjör sem
vera á í júnimánuði n.k.
Dr. Kristján kallaði fréttamenn
blaða, útvarps og sjónvarps á
sinn fund i skrifstofu forseta i Al-
þingishúsinu, og afhenti þeim
cftirfarandi tilkynningu:
Þeim tilmælum hefur verið
beint til min, að ég gefi kost á mér
við forsetakjör, sem fram á að
fara hinn 25. júni næstkomandi,
fyrir kjörtimabilið 1972-1974.
Ég hef ákveðið að vcrða við þess-
um tilmælum.
Reykjavik, 10. april 1972.
| Blómin og þorskurinn
p f opnu blaðsins i dag, eru
0 greinar og myndir frá
p blómabænum Heragerði og
0 hinum ört vaxandi sjávarút-
p vegsstað Þorlákshöfn. Það má
^ segja að myndirnar tvæihértil
0. hliðar séu einkennandi fyrir
0 þessa tvo staði i Árnessýslu,
p sem eru aðeins með 23 kiló-
^ metra millibiii. Á öðrum
^ staðnum byggðist lifsafkoman
p á blómum og grænmeti sem
^ ræktað er þar með hjálp
^ hverahitans, en á hinum
^ staðnum byggist lifsafkoman
p á fiskvinnslu og miðunum,
Ú, sem liggja rétt fyrir utan
p hafnarmynnið oft á tiðum.
^ (Timamyndir Gunnar)
Ríkisstjórnin stuðlar að
smíði 8—10 skuttogara
hérlendis næstu 3-
Þó- Reykjavík.
Ríkisst jórnin ræddi
m.a. um eflingu skipa-
smiöaiönaöarins á fundi
sinum i gærmorgun. Á
fundinum var ákveðið,
að stefna að smíði 8-10
skuttogara af millistærð
hér á landi á næstu 3-4
árum.
A þessum fundi sinum ræddi
stjórnin mikið um skipu-
lagningu og uppbyggingu
skipasmiðaiðnaðarins á
grundvelli áætlana um reglu-
bundna endurnýjun fiskskipa-
flotans. Þá var- ákveðið að
stuðla að verkaskiptingu og
samvinnu innlendra skipa-
smiðastöðva og veita aðstoðog
fyrirgreiðslu við fjármögnun
þessa mikilvæga verkefnis.
Rikisstjórnin gerði svo-
hljóðandi samþykkt i málinu á
fundinum i-morgun:
„Rikisstjórnin ákveður að
bcita sér fyrir þvi, að islen-
zkar skipasmiðastöðvar geti
tekið upp raðsmiði á skutt-
ogurum af millistærð. Verði
að þvi stefnt, að siniðaðir
verði innanlands 8-10 á næstu
þromur til fjórum árum með
verkaskiptingu og samvinnu
innlendra skipasmiðastöðva.
Mun rikisstjórnin leggja
áherzlu á, að opinberir aðilar
og lánastofnanir stuðli að
framkvæmd þessa mikilvæga
verkefnis."
Ráðgerð kaup á 2 litlum
þyrlum auk þeirrar stóru
fyrir Landhelgisgæzluna
EB-Reykjavík.
Nú fer fram athugun á
því, hvort ekki sé rétt að
festa kaup á tveimurtil-
tölulega litlum þyrlum
til handa landhelgis-
gæzlunni til viðbótar
þyrlunni, sem búið er að
ganga frá kaupum á og
tveggja hreyfla flugvél-
inni, sem unnið er að út-
vegun á.
Kom þetta fram i ræðu, sem
Ólafur Jóhannesson, forsætis-
ráðherra, hélt á Alþingi i gær.
Ennfremur gat forsætisráö-
herra þess að skipuð hefur
verið nefnd þriggja ráðu-
neytisstjóra, þ.e. i dómsmála-
ráðuneytinu, sjávarútvegs-
ráðuneytinu og utanrikisráðu-
neytinu, en þeim var m.a.
falið að gera tillögur um
hvaða ráðstafanir sé nauðsyn-
legt að gera, með tilliti til út-
færslu landhelginnar 1. sep-
tember n.k.
Þá sagði forsætisráðherra í
sambandi við útvegun á
tveggja hreyfla flugvélinni, að
liklega yrði fyrir valinu
Fokker Friendship.
Forsætisráðherra sagði enn-
fremur m.a., að eðlilegt væri
að leyfi allra rannsóknarskipa
bæði innlendra sem erlendra,
er stunduðu visindastörf á
landgrunninu, yrði bundið þvi
skilyrði, að þau tilkynntu sig
að minnsta kosti tvisvar á dag
til landhelgisgæzlunnar og að
islenzku rannsóknaskipin til-
kynntu um leið, eins og varð-
skipin, hvaða erlend skip, þau
hefðu orðið var við, eða væru i
námunda við. Myndi vafalaust
verða af þvi mikil bót án veru-
legs aukakostnaðar.
Þorlákshöfn:
Búizt við
skaðabóta-
kröfum
ÞÓ-Reykjavik.
,,Ég býst við, að þegar komið er
i ljós hvað mikið tjón hefur hlotizt
hér á staðnum af oliunni, sem fór
i höfnina, verði settar fram
skaðabótakröfur,” sagði Rikharð
Jónsson i samtali við blaðið.
Það er ennþá verið, að hreinsa
oliuna upp úr höfninni, sagði Rik-
harð, og i gærmorgun komu menn
frá Oliufélaginu með enn betri
tæki, til að hreinsa upp oliuna.
Bátarnir hér i Þorlákshöfn eru
illa útlitandi og sömu sögu er að
segja af bryggjunum. 011 friholt
eru ónýt f oliumengun, sagði
Rikharð að lokum.