Tíminn - 12.04.1972, Síða 3
Miðvikudagur 12. april 1972.
TÍMINN
3
MARGRET DROTTN-
ING KEMUR VARLA
Á ÞESSU ÁRI
OÓ-Reykjavik.
Það hefur verið athugað hvort
Margrét drottning geti komið i
opinbera heimsókn til Islands á
þeim tima, sem til stóð að Friðrik
faðir hennar sækti okkur heim,
sagði Kristján Eldjárn i gær, —
en af heimsókn hennar getur
varla orðið á þessu ári. Margrét
er nýkomin til valda og hefur
mörgu að sinna heima fyrir.
Þeim þjóðhöfðingjum, sem
boðið hafa okkur i opinberar
heimsóknir, sagði forsetinn,
verður boðið i opinberar heim-
sóknir til tslands smátt og smátt,
eftir þvi sem ástæður leyfa, en
mál þessi eru i deiglunni og
ekkert ákveðið hægt um þau að
segja að svo stöddu.
Stjórnarfrumvarp:
Bannað verði að henda úr-
gangsnetum og vörpumísjó
••
Onfirðingar Sunnanlands
Aðalfundur önfirðingafélagsins i
Reykjavik verður haldinn þriðjudags-
kvöldið 18. april, kl. 20.30 i Tjarnarbúð
(uppi). Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
Samningarnir gilda
frá 8. þessa mán.
i sjó, var lagt fyrir Alþingi nú fyrr
i vikunni.
1 athugasemdum við frumvarp-
ið segir, að alkunnugt sé, að oft sé
skemmdum veiðarfærum eða úr-
gangshlutum úr þeim fleygt i sjó-
inn af fiskiskipum. Siðustu ár hafi
orðið mikil breyting á efnum til
veiðarfæra i sjó, en almennt séu
nú notuð gerviefni með litla eðlis-
þyngd. Séu þau efni miklu sterk-
ari og endingarbetri en eldri efnin
og fúni seint eða aldrei. — Siðan
segir i athugasemdunum:
„Hér hefur þvi komið til nýtt
vandamál vegna hinna nýju efna,
þar sem linur og net og önnur
veiðarfæri eða hlutar úr þeim,
sem fleygt er i sjó, sökkva ekki né
eyðast, heldur fljóta og eru til
tjóns, bæði fyrir dýralif i sjónum
og auk þess hættuleg fyrir sigl-
ingar, þar sem þessir úrgangs-
hlutir flækjast oft i skrúfu skipa
og geta þvi valdið ófyrirsjáanlegu
tjóni og hættu.
Þar sem ekki er heimild i lög-
um til að banna að henda úr-
gangsnetum eða vörpum i sjó.
Þykir nauðsynlegt að lögfesta
slikt bann og er það tilgangur
þessa frumvarps.”
Or leikritinu „Landbrugg og ást”, sem Leikfélag Sauöárkróks sýnir i
Sæluvikunni. A myndinni eru Kári Jónsson, sem leikur Grundersen
lækni og Valgerður Valdimarsdóttir, sem fer með hlutverk Finu
frænku af Skaganum.
Mynd Stefán Pedersen.
OÓ-Reykjavik.
Rangt var farið með i frétt um
samkomulag um sérsamningana,
sem birtust i blaðinu i gær, að
þeir giltu frá 4. des. s.l. Hið rétta
er að samningarnir gilda frá
undirskriftardegi, 8. april s.l.
’*”***> mta
Sjálfkjörin, handa hverju
fermingarbarni,
Úrsmiður
Helgi
Júlíusson
Akranesi
Við bjóðum ykkur hin
velþekktu,
Vatnsþétt, höggheid, og
sjálftrekt.
Sýna tvö leikrit
í Sæluvikunni
Sæluvika Skagfirðinga hófst á
Sauðárkróki s.l. sunnudag með
frumsýningu Leikfélags
Sauðárkróks á gamanleiknum
Landbrugg og ást eftir Riemann
og Schumarts. Leikstjóri er Kári
Jónsson. Leikmynd gerði Jónas
Þór Pálsson.
Er þetta annað verkefni Leik-
félags Sauðárkróks á leikárinu
1971-1972. Húsfyllir var á sýning-
unni, og virtust leikhúsgestir
skemmta sér konunglega. Fyrra
verkefni Leikfélagsins á þessum
vetri var sjónleikurinn „Allir
synir mínir” eftir Arthur Miller,
sem hefur verið sýndur 5 sinnum
við góða aðsókn og mjög góðar
undirtektir. Enda tvimælalaust
ein af beztu sýningum sem Leik-
félag Sauðárkróks hefur sýnt.
Þá sýnir Kvenfélag Sauðár-
króks „Saklausa svallarann”
eftir Arnold og Bach. Leikstjóri
er Jón Ormar Jónsson. Verður
fyrsta sýning á miðvikudag kl. 17,
fimmtudga kl. 20,30. föstudag kl.
17, laugardag kl. 15 og siðasta
sýning sunnudag kl. 20,30. A
þriðjudag syngur karlakórinn
Heimir, söngstjóri Arni Ingi-
mundarson. Dansað verður 6
kvöld. Hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar leikur fyrir dans-
inum.
Kvikmyndasýningar verða alla
daga vikunnar, sýndar verða úr-
valsmyndir. g.Ó.
Olafur Þ. Þórðarson
Tók sæti
á Alþingi
EB-Reykjavik.
Ólafur Þ. Þórðarson, skóla-
stjóri, 2. varaþingmaður Fram-
sóknarflokksins i Vestfjarðakjör-
dæmi, tók i gær sæti á Alþingi i
stað Steingrims Hermannssonar,
sem er á förum til útlanda i opin-
berum erindum. Ólafur Þ.
Þórðarson hefur ekki setið á
Alþingi áður.
Auglýsið
í Tímanum
Húsgagnavikan var opnuð f Laugardagshöiiinni s.l. laugardag og er tileinkuð 40 ára afmæii Húsgagna-
meistaraféiags Reykjavikur, sem stendur fyrir sýningunni ásamt Meistarafélagi húsgagnabólstrara. Eru á
sýningunni fjöimargar gerðir húsgagna og annarra innanstokksmuna, en alls sýna 33 fyrirtæki og stofnanir
framleiðsiu vörur sínar. Húsgagnasýningin verður opin til 17. april. Myndin er úr einum sýningarbásnum.
Tímamynd GE
EB-Reykjavik.
Stjórnarfrumvarp þess efnis að
bannaö verði að henda hvers kon-
ar netum, vörpum eða öðrum
veiðarfærum eða hlutum úr þeim
FEKK 90 RAUÐMAGAI EITT NET
KlpReykjavík.
Grásleppukarlarnir
hér fyrir sunnan myndu
gera sér glaðan dag, ef
þeir kæmust i annað eins
mok og kollegi þeirra
einn norður á Kópaskeri
komst i núna fyrir
nokkrum dögum. Hann
fór út til að vitja um
rauðmaganetin og kom
þá að einu þar sem
fiskur var við fisk i
möskvunum. Honum
tókst að hala það inn
fyrir borðstokkinn og
taldi úrþvíhvorki meira
né minna en- 90 búsna
rauðmaga.
Hér fyrir sunnan telst
það mjög gott, ef menn
fá eitthvað nálægt þessu
úr 40 netum, en þess ber
að geta, að yfirleitt er
betri rauðmagaveiði
fyrir norðan en hér á
Suðurlandi.
Á Kópaskeri eru fyrstu
bátarnir farnir að leggja
grásleppunetin og er
búizt við að sú veiði verði
eitthvað stunduð þar í
vor. Aftur á móti er lítill
áhugi á grásleppuveið-
inni á Þórshöfn. Þar
hafa menn enn ekki
tekið fram netin og er
litill áhugi fyrir því, þar
sem mönnum þykir
verðið lágt fyrir hrognin.