Tíminn - 12.04.1972, Síða 5
Miðvikudagur 12. aprll 1972.
TÍMINN
Mengunin ótrúleg
Ótrúlega mikil mengun hefur
reynzt vera viða i andrúmsloft-
inu i Sviss. A einum stað, við
landamæri Sviss og Þýzkalands
hjá Weil-Ottenbach nálægt
Basel hafa verið reistir turnar,
sem útbúnir eru tækjum, sem
draga i sig útblástur bifreið-
anna, sem þarna biða i löngum
röðum á meðan tollskoðun og
vegabréfaeftirlit fer fram.
Þrátt fyrir þessa turna er
ástandið svo alvarlegt, að ekki
er talið þorandi að láta tollverð-
ina vinna nema eina klukku-
stund i senn, þvi mengunin er
svo geysileg. Daglega fara
meira en tiu þúsund farartæki
um þessa landamæra stöð.
★
Svissiendingar
feröast mikið
62% Svisslendinga fóru að
minnsta kosti einu sinni i ferða-
lag árið 1970, er þetta ótrúlega
há tala, og samkvæmt skýrslum
ferðast aðeins Skandinavar
meira en Svisslendingarnir
gera. I ferðamálaskýrslum
kemur fram, að 29% ferðuðust
um Alpana, 20% fóru úr landi og
13% fóru i ferðalög bæði heima
og erlendis. 44% ferðuðust
aðeins að sumarlagi, 4% að
vetrinum, en 14% bæði vetur og
sumur.
★
Ástin ekki
500 milljón kr. virði
Það voru ekki nema 36 klukku-
stundir til brúðkaupsins, þegar
Abdul Majeed Bin Saud Bin Aziz
skipti um skoðun. Hann hafði
verið staðráðinn i að kvænast
hinni 23 ára gömlu Cheryl
Gilham frá Englandi, en ákvað
að láta ekki verða af þvi, þar
sem um leið hefði hann átt á
hættu að tapa 500 milljón króna
arfi sinum. Hann valdi milljón-
irnar, og þykir kanski engum
mikið, og þó! Cheryl sagði að-
eins, þegar hún fékk tiðindin: —
Ef svona smámunir geta komið
i veg fyrir, að hann kvænist
mér, þá er hann ekki þess virði
að verða eiginmaður minn. r—i
fatnaðar, sem þrátt fyrir allt
liktist nokkuð skófatnaði þeim,
sem kvenfólkið notaði á fimmta
áratug aldarinnar. Á sýn-
ingunni voru skór fyrir konur
frá 8 til 80 ára, en einna mest
bar á og mesta athygli vöktu
sandalar með þykkum sólum
★
auglýsinganna getur ekki farið
fram nema á mjög góðan
pappir. Nú þykir blöðunum sem
þau hafi komið með sterkan
mótleik gegn sjónvarpi og kvik-
myndahúsum, þvi ekki er hægt
að senda þar út ilmandi
auglýsingar þar sem ilmurinn
helzt allt of íengi i loftinu, og
blandast þá allt saman, Mætti
reikna með, að kaffilyktin yrði
ekki góð blönduð saman við
bensinþef.
*
Maraþonhlaup á skíðum
Hið upprunalega Maraþon-
hlaup, 42 km og 167 metrar var
að sjálfsögðu ekki farið á skið-
Tízkusólar
á tízkufætur
Hér sjáið þið skótizku sum-
arsins. Þessir skór voru sýndir
á skósýningu i Frankfurt am
Main, en þar mátti sjá fjöl-
breytilegt úrval sumarskó-
Angandi auglýsingar
Þá er komið að þvi, að auglýs-
ingarnar anga af þvi, sem
auglýst er i vikublöðunum i
Danmörku. Þessi nýbreytni
hefur reyndar ekki hafið innreið
sina þar i landi, en gerir það
alveg á næstunni. Lyktarefnum
verður blandað saman við
litinn, sem auglýsingarnar eru
prentaðar með, og strjúki
maður með fingri yfir auglýs-
inguna kemur ilmurinn fram.
Tryggt er, að lyktin finnst ekki
nema eftir núning, þvi annars
ættu auglýsendur á hættu, að
auglýsingarnar og jlman
þeirra blandaðist saman og gæti
orðið úr þvi heldur óþægilegur
fnykur. Ekki er enn hægt að
setja ilmandi auglýsingar ’i
dagblöð, þvi prentun ilm-
eins og þeir sem hér má sjá.
Skór þessir eru sagðir einstak-
lega þægilegir, og vona fram
leiðendurnir, að þeir eigi eftir
að fara þægilega á hinum ótölu-
lega mörgu gestum, sem
væntanlega verða i Þýzkalandi i
sumar vegna Olympiuleikanna.
um, en dag einn fékk Svisslend-
ingurinn Albert Scheuing frá
Engadin i Sviss þá hugmynd, að
vel mætti reyna við þessa vega-
lengd á skiðum, svo fremi nægi-
legur snjór væri fyrir hendi. I
Sviss er yfirleitt nógur snjór að
vetrarlagi, og fyrsta skiða
Maraþonhlaupið var háð árið
1969 og tóku þátt i þvi um 1000
hlauparar. Næsta ár varð þátt-
takan betri, þá voru þátt-
takendur um 2000 og i vetur,
þegar hlaupið var háð, nánar til
tekið 12. marz sl., höfðu um 5000
manns tilkynnt þátttöku sina.
Þátttakendurnir eru á öllum
aldri, bæði karlar og konur, og
mjög fáir þátttakenda hafa
orðið að hætta i miðju hlaupi
vegna brotinna skiða, eða vegna
þess að þeir hafi gefizt upp.
Aðeins sú staðreynd, að vatns-
veitan auglýsir ekki, hefur forðað
okkur frá auglýsingunni:
—Drekkið yður hraust.
—Athugið hvort það er ekki i
neðstu skúffunni, ungfrú Sex-
hólm.
Viðgleðjumannaðfólk meira með
mistökum okkar, en góðverkum.
í raun og veru skilja karlmenn
konur ágætlega. Þeir þykjast
bara ekki gera það, þvi það er
ódýrara.
—Kristján. Þú ætlar þó ekki að
fara og láta klippa þig i vinnu-
timanum.
—-Jú, hárið á mér óx i vinnu-
timanum.
—Þú sagðir svo margt heimsku-
legt I veizlunni i gærkvöldi. Ég
vona bara, að enginn hafi upp-
götvað, að þú varst edrú.
—Mamma, mig langar i nýja
dúkku.
—Nú, er hin ekki nógu góð?
—Var ég ekki nógu góð, fyrst litla
systir fæddist?
Að gefa út ljóðabók, er eins og
kasta rósarblaði niður af Mont
Blanc —og biða eftir bergmálinu.
—-Hvernig stendur á þvi, bróðir
Hans, að þú ert allt i einu orðinn
svona æstur að viðra hundinn?
Munið, að skipta upp dekk á
bilnum yðar, áður en loftið fer að
gægjast i gegn.
—Hvenær hættir laxinn eiginlega
að stækka?
—Þegar veiðimaðurinn sem
veiddi hann, deyr.
DENNI
DÆMALAUSI
Mamma áttu virkilega við, að
kakan eigi að standa þarna þang-
að til i kvöld, og enginn megi
snerta á henni?