Tíminn - 12.04.1972, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 12. apríl 1972.
TÍMINN
11
Lítið um
óvænt
úrslit
í körfunni
Litið var um óvænt úrslit i
„körfunni” um helgina. Það var
þú helzt, að IR-ingar höfðu
heppnina með sér gegn baráttu-
glöðu HSK-liði.
Munurinn i hálfleik, 42-39, og
það HSK-mönnum i vil, sýnir
aðeins réttu myndina af getu
HSK-liðsins, þegar það beitir sér,
sem það hefur ekki gert fyrr i
vetur. 1 fyrra lék liðið aftur á móti
alla leikina á þessum hraða, og
uppskar lika eitt af efstu sætun-
um.
Þegar aðeins 3 minútur voru
eftir af leiknum, voru HSK-menn
með unninn leik, en i stað þess að
leika rólega og yfirvegað gegn
maður á mann leik tR-inga og
reyna að fá villur og þar með
vitaskot, gerðu HSK-menn hverja
vitleysuna á fætur annarri,
töpuðu leiknum 75-73, og eru þvi
ennþá i fallhættu.
UMFS-KR
Eftir stórsigur UMFS yfir
Reykjavikurmeisturunum
Ármanni fyrir hálfum mánuði,
var maður viðbúinn miklum bar-
áttuleik, sem þó varð ekki.
KR-ingar eru of leikreyndir, og
með þvi að ráða hraðanum allan
leikinn, sigruðu þeir nokkuð auð-
veldlega 74-54.
Það er sama með Borgnesinga
og HSK-menn. t seinni hluta
mótsins eru bæði liðin loks að
komast i verulega gott form. Og
er leitt til þess að vita, að æfinga-
leysi skuli vera megin orsökin
fyrirhelmingi af tapi þessara liða
i vetur. Þessi lið eiga eftir að
leika innbyrðis einn leik, og
verður það fallbaráttuleikur
mótsins. Ef Borgnesingar vinna,
þarf hreinan úrslitaleik um
veruna i fyrstu deild, en vinni
HSK, hafa þeir 6 stig en Borgnes-
ingar aðeins 2.
UMFS-ÍR
Á sunnudagskvöldið voru Borg-
nesingar aftur á ferðinni, og að
þessu sinni kepptu þeir við IR-
inga. Framan af héldu Borgnes-
ingar i við tR-, og staðan i hálfleik
var ekki slæm, 45-30. En i séinni
hálfleik sigu IR-ingar fram úr,
náðu mjög vel saman, léku á
fulliri ferð, og sigur þeirra var
staðreynd, 110-73.
Ekki er ósennilegt að miklu hafi
ráðið um þessi úrslit, að Borg-
nesingar höfðu æft mjög mikið
fyrir þessa helgi, og áttu svo fyrir
utan það mjög þreytandi ferð til
Reykjavikur, en það er vani
þeirra og hreystimerki að ganga
til leiks beint úr lýjandi ferðalagi,
og má segja að þeir hafi gengið á
staurfótum fram að leiknum.
KR-ÍS
Yfirburðir KR-inga yfir önnur
lið i fyrstu deildinni i ár komu
greinilega i ljós i þessum leik.
Það er ekki heiglum hent að leika
á móti mönnum i landsliðsklassa,
eins og KR-ingar eru nú flestir
komnir i, og gegn einum af fimm
beztu leikmönnum Norðurlanda,
Kolbeini Pálssyni.
Átján stiga munur verður þvi
að teljast nokkuð góður árangur
hjá stúdentum, en leiknum lauk
með tölunum 94-76.
Valur-Þór
Þeir eru erfiðir heim að sækja,
Akureyringarnir, og engin lömb
að leika sér við, þegar leikið er i
Skemmunni. Og með áhorfendur-
na með sér, hafa Akureyringar
oft „pakkað” liðum að sunnan!
En þeir voru ekki i stuði á
laugardaginn á móti Val, og hef
ég ekki séð þá öllu lakari en þann
dag. Það var ekki fyrr en undir
lokin, að þeir sýndu sitt rétta and-
lit, en þá var það of seint.
Leiknum lauk þvi með naumum
sigri Vals, 65-64.
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
Landsliðsmennirnir spurðir að því í kvöld, hvort þeir
treysti sér til að taka þátt f ströngu æfingaprógrammi
undir Olympíuleikana f Miinchen
Alf-Reykjavik.
i kvöld heldur landsliðs-
nefndin I handknattleik fund
með landsliðsmönnunum, sem
þátt tóku i forkeppni OL á
Spáni. Á þessum fundi verða
þeir spurðir að þvi, hvort þeir
treysti sér til að taka þátt i
undirbúningsæfingum fyrir
keppnina i Miinchen, en lands-
liðsæfingarnar, sem hefjast
eiga um næstu helgi, verða
mjög strangar, og óliklegt, að
leikmennirnir geti sinnt
öðrum áhugamálum, t.d. æft
með sinum eigin félögum,
hvort sem það er i handknatt-
leik, knattspyrnu eða öðrum
greinum.
Að sögn Jóns Erlendssonar,
liðsstjóra og formanns lands-
liðsnefndar, er ráðgert, að
landsliðsæfingar hefjist um
næstu helgi, svo framarlega,
að unnt reynist að fá æfinga-
hús. Ráðgert er að æfa þrisvar
sinnum i viku — einn og hálfan
tima i senn — en auk þess,
munu leikmennirnir fá pro-
gramm, sem þeir eiga að æfa
eftir, utan hins venjulega
æfingatima. Verður pró-
grammið sniðið eftir þörfum
hvers og eins. Til að byrja með
verður lögð mikil áherzla á
þrekþjálfun með knatt-
æfingum.
Aðspurður um það, hvort
nýjum leikmönnum yrði bætt i
landsliðshópinn, sagði Jón, að
það yrði örugglega gert, en
hve mörgum, væri ekkj^ hægt
að segja um á þessu stigi, það
færi eftir svörum leikmanna-
nna á fundinum i kvöld. Ef um
veruleg forföll verður að ræða,
bætast eðlilega fleiri nýir leik-
menn við, sagði Jón.
Sérstök áherzla verður lögð
á þrekþjálfun til að byrja jneð,
eins og komið hefur fram, en
þegar komið verður fram i
mai og júni, verður byrjað að
æfa i stórum sal — og þá æft á
hverju kvöldi. Eins og skýrt
hefur verið frá áður stendur
isl. liðinu til boða að taka þátt i
stórmóti i Júgóslaviu i júli.
Segir Jón, að landsliðsnefnd
og landsliðsþjálfari séu sam-
mála um, að þátttaka i sliku
móti sé bráðnauðsynlegur
undirbúningur, og vænti þess,
að úr þátttöku geti orð. Eftir
slikt mót þarf islenzka lands-
liðið hvild, en siðan að taka
upp æfingar aftur i ágúst, allt
þar til keppnin i Múnchen
hefst.
Eins og af þessu má sjá, er
það ekkert sældarbrauð að
vera landsliðsmaður i hand-
knattleik, æfingar á æfingar
ofan, og mest öllum fritima
fórnað fyrir iþróttina. Og nú
þurfa handknattleiksmenn að
gera það upp við sig, hvort
þeir ætla að vera með eða ekki
— segja já eða nei — og þurfa
þeir að taka tillit til margvis-
lega sjónarmiða, áður en þeir
gera hug sinn upp endanlega,
ekki sizt fjölskyldumennirnir.
Sigurbergur Sigsteinsson, Fram, er einn þeirra leikmanna, sem eflaust eiga erfitt með að gera upp hug
sinn. Hann iðkar bæði handknattleik og knattspyrnu. Hann verður nú aö gera upp á milli greinanna, þvi
að tæplega getur hann sinnt báðum.
Spámaður okkar að þessu
sinni er hinn kunni forustu-
maður i handknattleiksmálum
Vals, Þórarinn Eyþórsson,
formaður handknattleiks-
deildar félagsins. Þórarinn er
reykvisku iþróttafólki að
góður kunnur fyrir afskipti af
iþróttamálum. Hann var um 9
ára skeið þjálfari l.deildar
liðs Vals i kvennaflokki, en
undir hans stjórn náði kvenna-
lið Vals þeim árangri að vera
nær ósigrandi, bæði i Reyk-
javikur og Islandsmóti.
Aðeins einu sinni tókst að
rjúfa sigurgöngu Vals á þessu
timabili, en Fram varð ts-
landsmeistari fyrir tveimur
árum.
Þórarinn er, auk þess að
Þórarinn Eyþórsson.
vera mikill áhugamaður um
handknattleik, áhugasamur
um knattspyrnu. Hann fylgist
jafnan með helztu knatt-
spyrnuleikjunum, og er einn
af mörgum Valsmönnum, sem
selja getraunaseðla fyrir félag
sitt.
Hér á eftir fer spá Þórarins
um leikina, sem háðir verða
n.k. laugardag, 15.april:
Leikir 16. aprll 1972 1 X 2
Arsenal — Stoke1 /
Birmingham — Leeds1 X
Coventry — Man. City2 X
Everton — Leicester2 /
Ipswich — Sheff. Utd " X
Man. Utd. — South’pton2 /
Tottenham — Chelsea2 /
West Ham — Liverpool2 X
Wolves — W.B.A.2 /
Cardiff — Carlisle3 X
Middlesboro — Norwich3 z
Swindon — Burnley3 X
Heiðraðir á
KSÍ-afmæli
1 tilefni 25 ára afniælis K.S.Í.
hélt sambandið afmælishóf i Sig-
túni 26. marz s.l. og nefndist hófið
„opið hús” — i hófinu bárust
margar góðar gjafir og heilla-
óskir til K.S.Í. Þá heiðraði stjórn
K.S.Í. allmarga menn fyrir vel
unnin störf að knattspyrnumál-
um.
Formaður KSt, Albert Guð-
mundsson, bauð gesti velkomna
og rakti siðan sögu Knattspyrnu-
sambands tslands, sem var
stofnað 26. marz 1947.
Siðan voru margir knatt-
spyrnuforustumenn sæmdir
heiðursmerkjum KSI fyrir vel
unnin störf að málefnum knatt-
spyrnunnar á undanförnum
árum. Þeir menn sem hlutu
gullmerki KSI voru:
Axel Kristjánsson
Birgir Kjaran
Einar Sæmundsson
Hafsteinn Guðmundsson
ltaraldur Gislason
Ingvar N. Pálsson
Jón Guðjónsson
Jón Þórðarson
Sigurður Halldórsson
Úlfar Þórðarson
Þeir, sem hlutu silfurmerki,
voru:
Andreas Bergmann
Árni Ágústsson
Atli Steinarsson
Bergþór Jónsson
Guðmundur t. Guðmundsson
Guðsveinn Þorbjörnsson
Gunnlaugur Lárusson
Halldór Sigurðsson (Þrótti)
Hallur Simonarson
Hans Kragh
Ilelgi Eysteinsson
Helgi V. Jónsson
Jón Sigurðsson
Karl Guðmundsson
Magnús Þórðarson
Ólafur Erlendsson
Óli Fossberg
Óli örn Ólafsson
Páll Jónsson
Ragnar Magnússon
Reynir Karlsson
Sigurður Ólafsson
Sigurður Steindórsson
Sigurgeir Guðmannsson
Steían Runólfsson
Vilhjálmur Pálsson.
Þá tók l'ormaöur afmælis-
nefndar KSt, Sveinn Zöega, til
máls og las hann upp fjöldan
allan af heillaóskaskeytum, sem
KSÍ bárust — einnig var KSt
l'ærðar margar fagrar gjafir. Að
lokum þakkaöi Albert Guð-
mundsson l'yrir gjafir og árnaðar
óskir. SOS.
FUNDUR
ÍÞROTTAKENNARA
Félagsfundur i Iþróttakennara-
félagi tslands verður haldinn i
Kristalsal Hótel Loftleiða þriðju-
daginn 18. april og hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Námskeið á skiðum i
Kerlingarfjöllum. Sýnd kvik-
mynd.
2. Forkeppni OL i handknatt-
leik. Jón Erlendsson og Hilmar
Björnsson.
3. Félagsmál. Stjórnin.
ENSKIR
FÉLAGSFÁNAR
PÓSTSENDUM
SPORTVÖRUVERZLUN
INGÓLFS
ÓSKARSSONAR
Klapparstig 44 — simi 11783
Reykjavik