Tíminn - 13.04.1972, Side 1
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
/■
S£NDIBILASTÖÐIN HT
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR
-
83. tölublað — Fimmtudagur 13. april 1972—56. árgangur.
Sudurtands
braut 22
4 björguðust
- þegar m.b. Hafliði Guðmundsson sökk
ÞÓ-Reykjavík.
Vélbáturinn Ilafliöi Guömunds-
son sökk i gær, er hann var aö
draga netatrossu út af Hópsnesi.
Fjögurra manna áhöfn bátsins
var bjargað um borð i Hafnartind
frá Hafnarfirði.
Hafliði Guðmundsson var að
draga netin grunnt út af Hópsnes
inu, er óhappið vildi til. Mun neta-
stjóri hafa verið fastur i botni, og
er haldið var áfram að draga á
spilinu af fullum krafti, lagðist
báturinn á hliðina, og rétti hann
sig ekki við aftur. Mennirnir lentu
allir i sjónum en Hafnartindur,
sem var á veiðum á næstu grös-
um, kom fljótlega til hjálpar.
Voru allir mennirnir við sæmi-
lega heilsu er þeir náðust upp úr
sjónum, nema fullorðinn maður,
sem mun hafa verið hálfmeð-
vitundarlaus.
Hafnartindur fór með mennina
inn til Grindavikur. Er fréttist um
óhappið i landi, lagði bátur úr
höfn i Grindavik, og ætlaði hann
að freista þess að draga Hafliða
til hafnar. Skipverjar sáu til báts-
ins, þar sem hann maraði i kafi,
en rétt áður en þeir komu á stað-
inn, sökk Hafliði Guðmundsson.
Þegar óhappið vildi til, var
veður ágætt, SA-kaldi og kvika.
Hafliði Guðmundsson var nýr
bátur, 11 lestir að stærð, og gerð-
ur út frá Gerðum i Garði.
Lög um bann við
losun hættulegra
efna í sjó
EB-Reykjavik
Frumvarpið um bann viö losun
hættulegra efna í sjó, sem rikis-
stjórnin lagði fyrir Aiþingi i
haust, var í gær samþykkt sem
lög frá Alþingi. Nær þetta bann
yfir öll eiturefni, lffræn og
ólifræn, auðleysanleg og tor-
leysanleg sambönd málma og
málmleysingja, geislavirk efni og
sprengiefni.
Þungatakmarkanir á
Egilsstaðaflugvelli
— geta tafið flugið um völlinn í sumar
JK-Egilsstöðum.
Það sem af er
þessari viku, hefur
flug gengið erfiðlega
til Egilsstaða, sökum
aurbleytu á flug-
vellinum. Á mánudag
féll flug alveg niður af
þessum sökum, og á
þriðjudag tafðist vél,
sem átti að millilenda
hér á leið sinni frá
Neskaupstað. Varð
vélin að biða i 2 tima i
Neskaupstað, á
meðan bleytan á
vellinum minnkaði.
Samkvæmt upp-
lýsingum Jóhanns
Jónssonar,
flugvallarstjóra, biðu
60 manns eftir fari
austur og 70 manns
eftir fari suður um
hádegi i fyrradag. Að
auki biðu flutnings 4
tonn af fragt.
Astand vallarins lagaðist er
leið á þriðjudaginn, og i gær
var flogið eðlilega.
Jóhann sagði að miðkafli
brautarinnar væri lélegastur
og að sýnilegt væri, að i
bleytutið þyrfti að takmarka
þunga vélanna i lendingu og
flugtaki. Þetta gæti haft al-
varlegar afleiðingar fyrir
flugið i sumar, ef sumarið yrði
úrkomusamt.
Fyrir páskana brá til
norðanáttar með élagangi á
Héraði, en fram til þess tima
hafði verið einstaklega sn-
jólétt. 1 þessu hreti urðu fjall-
vegir ófærir, en litið snjóaði i
byggð. Nú hefur allan snjó
tekið upp, og vegir innan
héraðs eru allir vel færir og
klaki mun vera litill i jörðu.
Frá ársfundi Seðlabankans i gær á Hótel Sögu. Sex ráöherranna viö borð vinstra megin, og fremst á myndinni ýmsir framámenn I atvinnulifinu.
Frá ársfundi Seðlabanka Islands í gær:
GERA VERÐUR RÁÐSTAFANIR
TIL AÐ DRAGA ÚR ÞENSLU
Samkeppni
um skipulag
á Þingvöllum
Klp-Reykjavik.
Skipulagsstjórn rikisins hefur
ákveðið, i samráði við þingvalla-
nefnd að Arkitektafélag tslands,
að efna til hugmyndasamkeppni
um skipulag þjóðgarðs á Þing-
völlum og nágrennis.
Skipuð hefur verið dómnefnd,
og eiga eftirtaldir menn sæti i
henni: Eysteinn Jónsson forseti
sameinaðs þings, formaður,
Gunnlaugur Halldórsson arki
tekt, Haukur Viktorsson arkitekt,
Iiörður Bjarnason húsameistari
rikisins, Sigurður Þórarinsson
prófessor, Valdimar Kristinsson
viðskiptafr. og Þór Magnússon
þjóðminjavörður. Einnig mun
Zóphanias Pálsson skipulags-
stjóri starfa með nefndinni, auk
ýmissa sérfræðinga, sem kallaðir
verða til ráðuneytis. Mun fljót-
lega verða gengið frá útboðsskil-
málum samkeppninnar.
Nauðsyn aukins frjáls sparnaðar og gefa verður hagsmunum sparenda meiri gaum en gert hefur verið
TK-Reykjavik.
Arsfundur Seðlabanka íslands
vegna staðfestingar reikninga
bankans fyrir árið 1971 var
haldinn i gær. Aður hafði verið
haldinn bankaráðsfundur, þar
sem bankamálaráðherra Lúðvik
Jósefsson staðfesti reikningana
og ársskýrsla bankans fyrir s.l.
ár var lögð fram.
1 framhaldi fundar banka-
ráðsins boðaði bankinn til árs-
fundarins að Hótel Sögu, þar sem
viðstaddir voru ráðherrar og
fulltrúar banka og innlánsstofn-
ana og fleiri gestir. Birgir
Kjaran, bankaráðsformaður
bauð gesti velkomna og gerði
grein fyrir islenzkri myntsögu.
Þvi næst flutti formaður banka-
stjórnar Seðlabankans, Jóhannes
Nordal, ræðu fyrir hönd banka-
stjórnarinnar.
1 ræðu sinni sagði Jóhannes, að
efnahagsástandið hefði á undan-
förnum misserum einkennzt af
eftirspurnarþenslu, sem leitt
hefði til viðskiptahalla við útlönd
og umframeftirspurnar vinnu-
afls. Þyrfti að gera samræmdar
ráðstafanir til þess að hemja
aukningu neyzlu og fjárfestingar.
Nauðsyn væri á meiri fjárhags-
myndun i landinu með frjálsum
sparnaði, og yrði að gefa hags-
munum sparenda meiri gaum i
framtiðinni en gert hefði verið hin
siðustu ár.
Að fundinum loknum bauð
bankinn fundarmönnum til há-
degisverðar. Lúðvik Jósefsson,
bankamálaráðherra, ávarpaði
gestgjafa og gesti i lok hans.
Lúðvik sagði að árið 1971 hefði
orðið þjóðinni mjög hagstætt og
sýnt væri að árferði mundi einnig
verða gott á árinu 1972. Samt væri
við erfiðleika að etja i efnahags-
málum, en þeir erfiðleikar væru
fylgifiskar góðærisins og það
þyrfti sterk bein til að þpla góða
daga. Úr þeim vanda sem nú væri
við að glima, yrði að leysa og
frammi fyrir þvi stæði nú öll
þjóðin.
- sjá bls. ©
Islendingaþættir
ásamt efnisyfirliti
fyrir árið 1971
fylgja með
Tímanum í dag
Kjör bænda verði sambærileg við
kjör annarra vinnandi stétta
EB-Reykjavik.
llalldór E. Sigurðsson, land-
búnaöarráöherra mælti á fundi i
neöri deild Alþingis i gær fyrir
stjórnarfrumvarpinu um Fram-
leiðsluráð iandbúnaöarins, en
höfuðmarkmiö frumvarpsins er
að tryggja, að kjör bænda verði
sambæriíeg við kjör annarra
vinnandi stétta, og jafnframt að
tryggja neytendum sæmilega
ódýra og góða vöru og sem bezta
nýtingu hennar.
Aðalbreytingarnar frá gildandi
lögum, sem felast i frumvarpinu,
eru þessar:
Gert er ráð fyrir nýrri Sex-
mannanefnd, sem skipuð verði
„ Frh. .á_bls. 15