Tíminn - 14.04.1972, Blaðsíða 1
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
/■
S£HDIBILASTÖÐIN Hf
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR
84. tölublað — Föstudagur 14. apríl 1972 —56. árgangur.
Kjarval er
látinn
ÞÓ-Reykjavik
Jóhunnes Sveinsson Kjarval, listmálari, lézt á sjúkrahúsi i
Reykjavik i gær. Kjarval haföi átt viö vanheilsu aö striöa um all-
langt skeið.
Jóhannes Sveinsson Kjarval var fæddur 15.október 1885 að
Efri-Ey I Meöallandi, og var hann því á 87 aldursári er hann lézt.
Foreldrar Kjarvals voru Sveinn Ingimundarson og kona hans
Karitas Þorsteinsdóttir Sverrissen. Kjarval ólst upp frá 4 ára
aldri hjá hálfbróður móöur sinnar, Jóhannesi Jónssyni bónda i
Geitavik i Borgarfirði eystra og konu hans Guöbjörgu Gissurar-
dóttur.
Kjarval stundaöi sjómennsku til ársins 1911 en þá hélt hann
utan, fyrst til Lundúna og siðan til Kaupmannahafnar. Hann
lauk prófi frá Konunglega listaháskólanum I Khöfn 1918. Siðan
dvaldist hann i Rómaborg og viöar á ltaliu til 1920 og i Paris var
hann 1928.
Kjarval var listmálari i Reykjavik lcngst af frá árinu 1922.
Óþarft er að eyöa mörgum orðum um allar hans mörgu
sýningar, en margar myndir hans eru varöveittar á söfnum.
Haldnar hafa verið margar yfirlitssýningar á verkum hans, ba;öi
hérlendis og erlendis. Þá hafa og veriö gefnar út bækur um list
hans.
Kjarval kvæntist áriö 1915 Tove Marild, en þau skildu.
SJOMENN BIÐA ENN EFTIR
AÐ AFLAHROTAN KOMI
ÞÓ-Reykjavik
Timinn hafði samband við
nokkrar verstöðvanna i gær, og
hljóðið i körlunum þar var ekki of
uppörvandi.
Það er alltaf jafntregt fiskiri á
verstöövunum sunnanlands, en
þar segjast þeir ennþá biða eftir
hrotunni. Hún kom ekki fyrr en
um 18. april i fyrra. A Snæfells-
nesi hefur aflinn verið mjög góð-
ur, — en i fyrradag skipti alveg
um — og nú er aflinn þar alveg
dottinn niður.
A Ólafsvfk, sögðu þeir, að þetta
væri alveg dautt þessa stundina.
Mestur afli á bát hefði verið 11
tonn i fyrradag, og hann hefði
reyndar farið alveg niður i 1 tonn.
Ekki sögðust þeir svo sem vera
að kvarta vertiðin væri búin aö
vera þeim hagstæð og hæsti bát-
ur, Lárus Sveinsson, væri kominn
með 850 tonn, og margir bátanna
eru með 500-700 lestir. Aflinn hjá
þeim er talsvert mikið meiri en á
sama tima i fyrra.
Atvinna hefur verið mjög mikil
i Ólafsvik að undanförnu.
A Grundarfiröi var ágætt hljóö i
mönnum, þó að aflinn væri litill i
augnablikinu, og hefði farið alltnið
ur i 800 kg. í fyrradag- Daginn
áður hafði aflinn farið allt upp i 40
lestir.
Hæstu bátar i Grundarfirði eru
komnir vel yfir 700 tonn sem er jú
ágætisafli. Þeir sögöust vona, að
afli ætti aftur eftir að glæðast.
Vigtarmennirnir á Hellissandi
sögðu, að þar hefði verið tregt i
tvo daga, en vertiðin hefði annars
veriö góð hjá þeim, og aflinn
helmingi meiri en á sama tima i
fyrra, en heildaraflinn um þessar
mundir er kominn hátt i 6 þús.
lestir. Aflahæsti báturinn er
Skarðsvik meö um 1200 lestir, en
hún mun vera um 400 lestum
hærri en næsti bátur.
Þegar við töluðum viö Hellis-
sand voru þar 3 skip að lesta og
losa. óhemju atvinna hefur verið
á Hellissandi i vetur.
Það var ekki jafn gott hljóðið i
þeim i Grindavik. Aflinn i fyrra-
dag var beztur, 10 tonn á bát og
svo niður i ekki neitt eða 80 fiska i
6 trossur.
Nú hafa borizt á land i Grinda-
vik um 13000 tonn, en á sama tima
i fyrra höfðu borizt 18.000 tonn á
land þar.
Aflahæsti báturinn i Grindavik
er Bjartur NK með 770 lestir og
næstu bátar Geirfugl og Albert
nálgast 700 tonnin.
1 Grindavik lifa menn i voninni,
Framhald á bls. 6.
Fulltrúar minnihlutans á borgarstjórnarfundi gær. F.v. Adda Bára Sigfúsdóttir, Sigurjón Pétursson,
Guömundur G. Þórarinsson, Geröur Steinþórsdóttir, Kristján Benediktsson, Steinunn Finnbogadóttir og
Björgvin Guömundsson.
(Tímamynd G.E.)
Borgarstjórinn er ekki í
sparnaðarhugleiðingum
Ætlar að leggja 50% álag á fast
eignagjöld og jafnvel bæta álagi á
útsvörin ITka
Rekstrarliðir fjárhagsálælunarinnar
hækkaðir um 150 milljónir frá
upphaflegri gerð áætlunarinnar í
desember s.l.
Algjör samstaða borgarfulltrúa
Alþýðubandalagsins, Alþýðuflokksins,
Framsóknarflokksins og Samtaka
frjálslyndra og vinnstri manna
Minnihlutinn lét bóka ftarlegt sam
eiginlegt álit á fjárhagsáætluninni
við afgreiðslu hennar í gærdag
- Sjá bls. 3
Þriggja
Breta
leitað
- í gær norðan
Mýrdalsjökuls
SB-Reykjavik.
Óttazt var á miðvikudaginn um
þrjá Breta, fullorðinn mann og
tvo drengi, sem dvöldust i far-
fuglaheimilinu i Fljótsdal i
Fljótshlið. Fóru þeir þaðan á
sunnudag og ætluðu að ganga
eitthvað inn á hálendið.
Björgunarsveitarmenn Dagrenn-
ingar á Hvolsvelli fóru að leita
mannanna og fundust þeir i fyrri-
nótt heilir á húfi i leitarmanna-
kofa inni við Einhyrning.
Vitað var um ferðir þre-
menninganna, er þeir lögðu af
stað á sunnudaginn og ætluðu þeir
ekki að koma aftur fyrr en i gær.
En þegar fór að gera snjókomu og
misjafnt veður, þótti vissara að
huga að þeim, þar sem yngri
drengurinn var ekki nema 11 ára.
Fóru björgunarsveitar-
mennirnir, 6 að tölu, um 60 km
leið að leitarkofunum, þar sem
Bretarnir höfðust við, hressir og
kátir.
Verður
tíeyringur
lagður niður
TK-Reykjavik.
A ársfundi Seðlabanka
tslands i gær lagði banka-
stjórnin fram álitsgerð um
þær hugmyndir, sem uppi
hafa verið um breytingar á
islenzkri mynt. 1 niður-
stöðum bankastjórnarinnar
kemur fram, að hún telur, að
ekki sé timabært eða hag-
kvæmt að tifalda nú verð-
gildi krónunnar, en leggur
hins vegar til að 10 eyringur-
inn verði tekinn úr umferð og
nokkru siðar 50 eyringur.
Niðurstöður bankastjórn-
arinnar eru svohljóðandi:
1) Bankastjórn Seðla-
bankans er eindregið þeirrar
skoðunar, að á engan hátt sé
timabært eða hagkvæmt að
tifalda nú verðgildi krón-
unnar. Slik breyting mundi
hafa mikinn kostnað i för
með sér, en enga hagkvæmni
umfram það, sem þegar
hefur náðst. Sú eining, sem
út úr slikri breytingu kæmi,
væri þar að auki þegar of
litil, ef hún ætti eftir sem
áður að skiptast i 100 aura,
eins og krónan nú.
Bankastjórn Seðlabankans
getur þvi ekki mælt með, að
framlögð þingsályktunartil-
laga um þetta efni verði
samþykkt.
2) A hinn bóginn er orðið
ljóst, að 10 eyringurinn, sem
nú er smæsta mynteiningin,
er orðinn of verðlitill og þvi
óhagkvæmur bæði i við-
skiptum og sláttu. Banka-
stjórn Seölabankans leggur
þvi til, að lagaheimildar sé
aflað hið fyrsta til þess að
Framhald á bls. 6.