Tíminn - 15.04.1972, Page 11

Tíminn - 15.04.1972, Page 11
Laugardagur 15. april 1972. TÍMINN 11 Umsjón: Alfreð Þorsteinsson Knatt- spyrnu- menn geta leikið d grasi í næsta mdnuði Klapparstig 11 — simi l lTx:i Kr\ kjavik Klapparslig 11 — simi I I7.s:í l!r\ kja \ ik SPORTVÖRUVERZLUN INGÓLFS SPORTVÖRUVERZLUN INGÓLFS ÓSKARSSONAR ÓSKARSSONAR „Ef tiöarfar helzt svip- að, er ég í engum vafa um, að við getum tekið Laugardalsvöllinn i notkun i næsta mánuði", sagði Baldur Jónsson, vallarstjóri, þegar við spurðum hann um ástand vallarins í gær. Baldur sagði, að völl- urinn hafi verið orðinn algrænn i febrúar, en siðan hafi komið hret, sem hefði spillt fyrir. Hins vegar hefði tiðin undanfarið verið svo góð, að völlurinn væri óðum að komast í gott lag. Þetta eru vissulega ánægjuleg tiðindi fyrir knattspyrnumenn, þvi að oft hefur það komið fyrir, að ekki hefur verið hægt að taka Laugar- dalsvöllinn í notkun fyrr en i júni, en samkvæmt upplýsingum Baldurs eru allar likur á, að völlurinn verði tilbúinn uppúrmiðjum maí. -alf. Stöðugt fjölgar þeim, er synda 200 metrana Alf-Reykjavik. Geysimikil þátttaka er i uorrænu sundkeppninni, i Reykjavik hafa þeir verið syntir yfir 35 þúsund sinnum, og þátt- taka i öðrum kaupstöðum er mjög mikil, en hér á eftir fer skrá yfir þátttökuna i keppninni, eins og hún var i gær: Reykjavik 35395 Kópavogur 4000 ENSKAR HLIÐARTÖSKUR Hafnarfjörður 3100 Keflavik 2760 Akureyri 4900 tsafjörður 2410 Akranes 1920 Húsavik 882 Darby-Liverpool M.United Sheff.United England-Brasiiia Arsenal-Chelsea Leeds-M.City Westham-Wolves Southampton-Stoke Tottenham-Everton Coventry-Þýzkaland. Nú er hafin keppni milli Reykjavikur, Hafnarfjarðar og Akureyrar, og hefur Akureyri forustu i keppninni, en miðað er við fólksfjölda, þegar stig eru reiknuð. Ekki hafa borizt tölur frá kauptúnum, en gaman væri að fá fréttir af þátttöku á minni stöðun- um, og eru menn hvattir til að hafa samband við iþróttasiðuna, ef þeir geta gefið fréttir. Baldur Jónsson. vallarstjóri, virðir grasvöllinn i Laugardal fyrir sér, en myndin var tekin i gær.iTimamynd Róbert)). núfAungu mennirnir TÆKIFÆRI TIL AÐ SÝNA HÆFNI SÍNA Eins og sagt hefur verið frá hér á siðunni, kemur hinn heims- þekkti knattspyrnumaður Bobby Charlton, hingað til landsins 13. mai — i tilefni þess, að komið hcf- ur verið á keppni, sem Ford-um- boðið hér á landi, stendur að i samvinnu við KSÍ, og hagað verður eins og Ford-kcppni, sem efnt hefur verið til viða annars staðar i Evrópu. Keppni þessi er liður i Evrópukeppni fyrir drcngi, og hefur Ford þegar gengizt fyrir slikri keppni i mörgum löndum, t.d. Austurriki, Belgiu, Frakk- landi, Möltu, Vestur-Þýzkalandi, llolandi, italíu og Sviss, og hefur keppnin hvarvetna tekizt mjög vel. Keppnin er opin öllum drengjum, sem fæddir eru 1959 til 1964 (bæði árin meðtalin). Keppt verður i sex andursflokkum 8,9,10,11,12 og 13 ára, og eiga keppendur að klæðast strigaskóm (ekki knattspyrnuskóm) þegar þeir mæta til leiks i Ford-keppn- inni. Fyrst verður um að ræða eins konar forkeppni, og siðan út- sláttarkeppni, en til úrslita keppa tiu drengir i hverjum aldurs- flokki. Þátttöku skulu knatt- spyrnufélögin tilkynna til skrif- stolu KSÍ i siðasta lagi klukkan tólf á hádegi þriðjudagsins 18. april þ.m. Úrslitakeppni drengjanna sextiu (tiu úr hverjum aldursflokki) verður með sérstökum hætti, og fer hún l'ram á Laugardalsvellinum 13. mai. Verður sérstaklega til hennar vandað, og verðlaunin (þrir stigahæstu drengirnir i hverjum flokki fá gull- silfur- og bronsstyttur) afhendirhinn kunni knattspyrnumaður Bobby Carlton, sem kemur hingað til lands eingöngu til þess. Forkeppnin hefst 18. april og stendur hún til 25. april, og verður hún haldin á vegum knattspyrnu- félaganna á landinu. Að lokinni forkeppni verða eitt þúsund stiga- hæstu drengirnir skráðir hjá Ford-umboðunum i útsláttar- keppnina. Skráning stendur yfir Irá 27. april til 3. mai og útsláttar- keppnin fer fram frá 6. til 10. mai. Til skráningarinnar verða kepp- endur að koma i fylgd með for- eldrum sinum, eða lorráða- mönnum, sem undirrita þátttöku- tilkynninguna. Hver keppandi fær þá afhent merki, bækling eftir Bobby Charllon, og skyrtu til að keppa i, og siðan geta keppendur l'engið sérstakt heiðursskjal að lokinni keppni. Keppendur eru lálnir reyna sig við þrjár þrautir, og l'á stig fyrir árangur þann, er þeir ná i hverri þraul. Þrautirnar eru valdar al' Bobby Charlton. KSÍ skipaði sérstaka nel'nd til að vinna að undirbúningi keppn- innar. i nefndinni eiga sæti Réynir Karlsson og Orn Steinsen, báðir úr stjórn Þjálfarafélags tslands, Bjarni Felixson, for maður Dómarasambands islands, Hreggviður Jónsson, for- maður tækninefndar KSÍ og Jón Asgeirsson, sem er fulltrúi Ford Motor Company og Ford-umboð- anna á islandi. Með þvi að kynna ungum drengjum á islandi þessa keppni, vona forráðamenn Ford-umboð- anna hér á landi, að hún verði til þess að auka áhuga þeirra á knattspyrnu, og lil að auka hæfni þeirra i iþróttinni. Takist það er megintilgangi keppninnar náð. SOS. ENSKIR OG ÍSLENZKIR FÉLAGSBÚNINGAR Flest tslenzku liðin Ensk lið t.d.: Leeds, Ar- senal, M. Utd. M. Citv, Stoke, W. llam., Tottcnham, Liverpool o.fl. Einnig búningar Brasiliu, E n g I a n d s, Þ ý z. k a 1 a n d s, Ajax, Celtic o.fl. o.fl. PÓSTSENDUM »*Sí>*0G«f Meðal þeirra, sem búnir eru að synda 200 metrana i Kópavogi, er Björgvin Sæmundsson bæjarstjóri, sem sést á þessari mynd ásamt ungum og upprennandi sundgörpum úr Kópavogi, sem búnir eru einnig að synda 200 metrana. (Ljósm. Sig. Geirdai). »>2{>*<3G4«

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.