Tíminn - 15.04.1972, Blaðsíða 12
12
TÍMINN
Laugardagur 15. apríl 1972.
svo að verið igetur, að hann
gleyrni yfirsjón yðar. — Það er
maðiur inni hjá honum núna, og
annar bíður — þama!
Hanm benti á lágvaxinn mann,
illa til fara, er sat á mahonístóln-
um við dymar á skrifstofu banka-
stjórans.
— Hvað er hann að vilja?
mælti Smoller, allfyrirliitlega.
— Þekkið þér hann? spurði
Rumbold.
— Nei, guði sé lof! svaraði
Smoller, — nema hvað vitað er að
hann er ósvífinn þorpari, sem
reynir að hafa fé út úr mönnum!
Hann kom einu sinni til frænda
míns, sem er forstjóri ábyrgðar-
félags, og kvaðst þá vera ritstjóri
blaðsins, „Argus", sem er sorp-
blað. — Tjáðist hann hafa verið
á aðalfundi félagsins, og skrifað
fundarskýrslm, er hann ætlaði
birta í blaði sínu.
— Frændi minn las hana.
mælti Smoller ennfiremur.
— Mjög fallega mælt, sagði hann.
— Jæja! svaraði hinn. — Ég vona
þá ,að þér auglýsið ögn í blaði
mínu, verðið er þetta! — Frændi
minn neitaði því, — Gerið ekki!
svaraði hinn. — Ég hefi hérna
aðra skýrslu um fundinn! Lesið
þér hana! í skýrslu þessari úði og
grúði af ákæruatriðum igegn fé-
laginu.
— Og það er sami maðurinn,
sem situr þarna við dyrnar?
mælti dyravörðurinn. Hvemig tók
frændi yðar honum?
— Hann rak hann últ!
Rumbold fór að hlæja, og
brettu upp frakkaermarnar.
- Ég er hræddur um, að við-
tökumar, sem hann fær hérna,
verði ekki skárri, mælti hann.
— Þegar „gamli maðurinn" sér
fantaásjónuna á honum, vísar
hann honum þegar á dymar.
Þetta fór þó allt á aðra leiðina.
Hr. Warner tók manninum vin
gjarnlega, og lokaði hurðinni,
jafnskjótt er hann var kominn
inn, og spjölluðu þeir saman all-
lengi.
— Jæja, Hollebone! mælti
hann. — Þarna ertu þá kominn!
Hvenær komstu?
— í igærkveldi.
— Funduð þér þá það, sem þér
ætluðuð að finna?
Þá hljótið þér að hafa komið
frá Ostende!
■— Alveg rétt! svaraði Holle-
bone. — Hvemig vitið þér það?
— Af itilviljun, Hollebone, —
rétt af tilviljun! En segið mér nú,
hvernig ferðin gekk.
— 'Ég 'fór þá fyrst til Briissel,
mælti Hollebone, og tók upp vasa-
bókina sína, er hann hafði ritað
í ýmislegt sér til minnis. — Ég
fór á gistihúsið: Flandrischen
Hof, og byrjaði eftirgrennslanir
mínar. — Kapteinninn var þaæ þá
eigi, en dyravörðurinn kannaðist
við hann, — hélt sig hafa séð
hann fyrir mánuði, og gizkaði á,
að hann hefði farið til Baden, til
þess að vera þar við dúfu-veiðar.
— Kvað hann hafa gist í veitinga-
húsiniu „Flandrischen Hof“, og
haft þá talsvert af peningum. —
En í Baden kvað dyravörðurinn
hann hafa verið óheppinn, og ekki
hafa komið þaðan með hinni dúfu
skyttunni, en dyravörðurinn sagði,
að hann hefði sagt sér, að hann
hefði veðjað um mikið fé, og tap-
að því. — Síðar hefði þó aftur
orðið vart vi,ð hann í Briissel, en
þá ekki á fymgreindu, en mun
lakara gistihúsi. — Hefði hann þá
verið mjöig fátæklega til fara, og
dyravörðurinn, sem þyrfti að
finna hann, orðið að borga vín-
föngin, er þeir neyttu. >— En vel
hefði hann þá staupað sig.
— Drakk hann? greip Warner
fram í. — Ég held það, svaraði
Hollebone. — En víkjum nú að
efninu! Samkvæmt fyrirmælum
yðar, reyndi ég að komast eftir
því, hverja hann umgengist. —
En hann varðist þar um allra
frétita, — sagði aðeins, að hann
ætlaði að bregða sér til Ostende,
til að vera nær Englandi, og
varð ég honum þá samferða þang
að.
Við voruim saman þrjá eða fjóra
daga, og hresstist hann þá við sjó-
loftið. — En I fyrradag kom
hann til mín, og var þá mjög æst-
ur, kvaðst hafa lesið eitthvað í
ensku blaði — en hvað, vildi
hann ekki segja. — Hann drakk,
og drakk, og með því að ég taldi
miig eigi geta orðið neins meira
vfsari, taldi ég ráðlegast að snúa
heimleiðis, og gefa yður skýrslu
um för mína.
— Það var alveg rétt! sagði
Warner, eftir dálítinn umhugs-
unartíma. — En þér vissuð eigi,
hvað gerði hann svona æstan?
— Ég hefi engan grun um það,
svaraði Hollebone, — og hefi ég
þó lesið ensku blöðin síðustu dag
ana, en ekki séð neitt öðru nýrra.
— Þá er ég fróðari, en þú vin-
ur minn! mælti 'Warner, er Holle-
bone var farinn. — En hann var
þó svo hygginn, drykkjurúturinn,
að hann gat þagað.
Hann tók nú bréf upp úr fór-
um sínum.
— Þessar línur sanna það!
mælti hann.
Hann kveikti nú I vindli og las
bréfið síðan að nýju, og var þá
allskjálfhentur.
Bréfið var svo Játandi:
„Ostende
Sebastian-stræti.
Kæri Warner!
Enda þótt þér hafið óskað þess,
að óg eigi skrifaði yður, nema um
viðskipitamá] væri að ræða, verð
ég þó — vðgna auglýslngar í
ensku blaði —, að gera undan-
tekningu frá téðri reglu.
Ég óska yður allra heilla og
hamingju í hjónabandinu. — Kom
mér það og eigi á óvart, að hæfi-
leikar yðar myndu einhvem tíma
gera mikinn mann úr yður.
En ég vona, að yður i^leymist
eigi að veiíta mér hlutdeild í ham-
ingju yðar, oig hefir mér lengi
fundizt ástæða til að bera mig
upp undan því, hve lág^eru eftir-
launin, sem ég fæ frá yður, og
hefir méir eigi dulizt, að þér haf-
ið verið þess vel megnuigur, að
hafa þau hærri, er £ hlut átti
maður, sem yður er jafn nákom-
inn, sem ég er.
Fer ég nú fram á það, þar sem
þér eruð að verða einn af mestu
auðmönnum Lundúnaborgar, að
eftirTaunaupphæðin tij mín sé
tvöfölduð.
Þá kom ég eigi til Englands,
en fer ef itil vill til Ameríku.
Ég sendi bréfið til yðar, eins
og vant er, til bankans, ■— þessa
banka, sem missti bankastjórann
sinn á svo hræðilega leyndardóms-
fullan hátt! En sólin leiðir allt
I ljós, — hvort sem það leynist
i jörðunni, eða í vatninu.
Yðar einTægur.
Eduard Studly."
Bankastjórinn náfölnaði, og
stakk bréfinu I skrifborðsskúff-
una sína.
— Það er enginn vafi á því,
hvað þrællinn á við, mælti hann
við sjálfan sig. — Hótunin í enda
bréfsins er að minnsta kosti nógu
skýr fyrir mig! Tvöfalda eftir-
launin! En færir hann sig þá
ekki enn upp á skaftið? Það itjá-
ir ekki, að vera of eftirgefanleg-
ur, er slíkur piltur á hlut að máli!
Þá yrði hann brátt óþolandi. En
verst er, að hann skuli vera far-
inn að drekka! Hann hefur þá
eigi gát á munninum á sér.
En nú var barið að dyrum.
— Afsakið, geri ég yður ónæði?
sagði einn af starfsmönnum bank
ans, er hann kom inn. *— En hr.
Rumbolt var af tiiviljun ekki við,
og það er kominn kvenmaður, er
igjarna vilT ná tali yðar.
— Kvenmaður! láttu hana
koma inn, svaraði Wamer.
— Það hlýtur að vera Grace,
mælti hann síðan við sj'álfan sig.
LAUGARDAGUR15. april.
7.00 Morgunútvarp. i vikulok-
in kl. 10.25.
13.00 óskalög s júklinga.
Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
14.30 Viðsjá. Haraldur Ólafs-
son dagskrárstjóri flytur
þáttinn.
15.00 Fréttir.
15.15 Stanz.Jón
15.55 islenzkt mál.
16.15 Veðurfregnir. Barna
timi. a. Siðari hluti leik
ritsins ,,Á eyðiey” eftir Ein-
ar I.oga Einarsson b.
Merkur islendingúr. Jón R.
Hjálmarsson skólastjóri
segir frá Jóni Trausta.
16.50 Barnalög sungin og
leikin.
17.00 Fréttir. A nótum
æskunnar. Pétur Stein-
grimsson og Andrea Jóns-
dóttir kynna nýjustu dægur-
lögin.
17.40 Úr myndabók náttúrunn-
ar.Ingimar Óskarsson nátt-
úrufræðingur talar um tvær
' mikilvægar nytjajurtir á
norrænum og suðrænum
slóðum.
18.00 Söngvar i léttuin tón.
King-bræður syngja.
18.25 Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 i sjónhending. Sveinn
Sæmundsson talar við Óskar
Valdimarsson vélstjóra um
björgunarafrek i siðari
heimsstyrjöld o.fl.
20.00 Hljómplöturabb
Guðmundur Jónsson
bregður plötum á fóninn.
20.45 Smásaga vikunnar:
. „Talað i rör” eftir Véstein
Lúðviksson. Borgar Garð-
arsson leikari les.
21.05 Gestur islendinga i vor,
Willi Boskovsky frá Vinar-
borg, stjórnar Strauss-
hljómsveitinni á útvarps-
tónleikum þar i borg við
flutning á tónlist eftir
Strauss-feðga.
21.45 Innan hringsins. Arn-
heiður Sigurðardóttir
magister les ljóð eftir Guð
mund Böðvarsson.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.55. Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Laugardagur 15. apríl
17.00 Slim John Enskukennsla
i sjónvarpi. 20. þáttur.
17.30 Enska knattspyrnan
Birmingham City gegn Mill-
wall.
18.15 i þróttir Frá Skiðamóti
íslands á ísafirði. Um-
sjónarmaður óm a r
Ragnarsson.
Hlé
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar;
20.25 Hve glöð er vor æska
Brezkur gamanmyndaflokk
ur. Aftur til starfa Þýðandi
Jón Thor Haraldsson.
20.50 Nýjasta tækni og visindi.
Gjörgæzla hjartasjúklinga,
Verðmætum bjargað úr
skipsflökum. Bilharzia,
hitaheltissjúkdómur. Þriöja
tunglráðstefnan. Umsjónar-
maður örnólfur Thorlacius.
21.15 Vitið þér enn? Spurn-
ingaþáttur i umsjá Barða
Friðrikssonar. Keppendur
Eirikur Eiriksson frá Dag-
verðargerði og Auðunn
Bragi Svinsson, kennari.
21.50 Alexander Nevsky.Kvik-
mynd frá árinu 1938, gerð af
rússneska leikstjóranum og
kvikmyndagerðarmannin-
um Sergei Eisenstein. Tón-
list við myndina samdi
Sergei Prokofieff. Mynd
þessi gerist á 13. öld og
greinir frá bardögum Rússa
við krossriddara vestan úr
Evrópu. Titilhlutverkið
leikur Nicolai Tsjerkasov.
Þýðandi Magnús Jónsson.
Formálsorð flytur Erlendur
Sveinsson.
23.35 Dagskrárlok
1084
Lárétt
1) Hymna,- 6) Bruggið.- 10)
Þófi.- 11) Utan.- 12) Virki.-
15) Kynið.-
Lóðrétt
2) Fljótið.- 3) Þýfi.- 4) Æðar-
fugl,- 5) Sigrað.- 7) Fæða.- 8)
Hlutir,- 9) Verkfæri.- 13)
Sykruð.- 14) Fæði.-
Ráðning á gátu No. 1083
Lárétt
1) Glata.- 6) Campari,- 10)
LL.- 11) At.- 12) Vaknaði.-
15) Bloti.-
Lóðrétt
2) Lóm,- 3) Tia,- 4) DCLVI.-
5) Ritið,- 7) Ala,- 8) Pan,- 9)
Ráð,- 13) Kál,- 14) Att.-
ir
12 15 /V
JppH
HVELL
G
E
I
R
I
Eitt hvað
sem getur
komið mér á
rétt spor um
hann
Lyftudrengurinn
sagði. að hann væri
hálftima úti með
hundinn Ég hef
nægan tima