Tíminn - 16.04.1972, Side 14

Tíminn - 16.04.1972, Side 14
14 TÍMINN Sunnudagur l(i. april 1972. — Hún hefur verið að ráðgera, að korma hingað, mér á óvænt. Stúlkan kom nú inn og, bar hún skýlu fyrir andlitinu, en Warner sá þó þegar, að það var ekki Grace. Bankastjórinn sltóð upp, og gerði sig mjög alúðlegan I mál- TÓmnum. — Má ég spyrja — sagði hann. Stúlkan lyfti þá skýlunni írá andlitinu, og hné Warner þá nið- ur í stólinn, og mælti: — Anna iStudly! XIX. KAPÍTULI. Wamer starði á hana, gagntek- inn af hræðsju. — Hann hafði tal- ið víst, að hún væri lömgu dauð og grafin.. Þegar hann frétti hvarf hennar, hafði hann talið víst, að hún hefði hlaupið í sjóinn, og drekkt sér. En nú stóð hún fyrir framan hann. Hann varð orðlaus, unz hann að lokum sagði, og þá allráimur. — Hvað — hvað veldur hing-! að koimu yðar? — Það var nú aðeins eitt, sem það gat megnað! svaraði hún, og einbjindi á hann. — Aðeins eitt, scim gat komið imér til þess, að hor'fa framan í yður, eins og ég hata yður! Ég á vinkonu, sem er aldavina min! Ég vairð að bjarga henni, og því kom ég hingað! Þér ætlið að kvongast Grace Middle- man, en því ætla ég að aftra. Warneir hafði nú jafnað sig. Hann hló fyrirlitlega, og varð honum það uppgerð, en engan veg inn honum eiginleigur hlátur. — Það gleður mig, að þér leys- ið frá skjóðunni, imælti hann. — Þér segið, að ég ætli að kvong- ast Grace Middleman, — og það igeri óg, hvað sem þér segið! — Rétt er nú það! En þá geri ég það hjjóðbært, sem ég helfi svo lengi þaigað yfir! Hann varð náfölur, en sýndi þó enn á sér fyrirlitningarsvip. — Þér virðist eigi vera vel að yður í lögum, mælti 'nann. — Vitn- isburður konunnar gegn eigin- manni hennar er ógildur, og mér veitist sá heiðurinn, að kalla yð- ur konuna mína! — Ágætt! mælti hún. — Ég er ánægð, er þér kannist við, að ég sé konan yðar, þá er Grace laus allra mála, nema þér gerið yður opinberlega sekan um tví- kvæmni. — En skipti ég mér ekkert af yður? rnælti Warner. — Hvað ger- ið þér þá? Ef ég segi, að ég þekki yður ekki? Og hvaða sönnun haf- ið þér fyrir því, að ég hefi myrt Walter Daimbf? — Lík Walters Dambfs hlýtur að vera falið einhvers staðar í Loddonford! Hann einblfndi á hana. — Hvar? sagði hann. Anna varð hrmdd f svip, en sagði síðan: Til _ allirar hamingju veit ég meira! Ég man vel eftir giullimu, Oig demöntunum! — Á heimili föður yðar? — Já, sagði Anna, — en það aftr ar mér ekki, því að mér- er ann- ara um velferð Grace's en föður míns. Annars er mér og ókunnugt um hvort hann er enn á lifi. Warner heyrði, að hún var ákveðin, og varð því hræddur. — Segði hún eitt orð, þá var úti um hann. >— Hann var þá eyðilagður maður. Hann stóð upp. — Hygginn maður gefst upp, er hann sér sig eigi geta unnið, mælti hann. — Þór heimtið, að óg segi trúlofuninni slitið, eigi það ekki að hafa ákveðnar afleiðing- ar fyrir mig! Hótanir yðar eru í fullri alvöru, og því læt ég und- an. — En segið þér eitt orð, bitn- ar það á föður yðar — — Ég heimta aðeins, að þér slítið trúlofuninni mælti, hún. — Þér getið blátt áfram sagt henni, að það sé óvæntra atvika vegna. — Ég hefi þegar lýst því, að ég verði að igefast upp, mælti hann. — Skrifið henni bréf, og skal ég þá fá henni það! — Hví get ég ekki skýrt henni frá því sjálfur? svaraði Warner. — Af því að ég vil ekki, að þér | sjáið hana fyrst uim sinn, og helzt j vil ég, að þér sjáið hana aldirei. Hann yppti öxlum, sottist við skrifborðið, og fór að skriía, og rétti Önnu síðan bréfið. — Þetta hljótið þér að vera i ánægð með, mælti hann. — Ég 1 segi hanni, að ég verði að slíta ; trúlofuninni, en ástæðurnar iget i ég ekki ium, en fel yður allar ! frekari skýrimgar! — Ég er ánægð með bréfið mælti Anna, — Oig þá er nú sam- tali okkar lofið. — Hinkrið ögn við! mælti IWamer. — Mætti ég spyrja, hvað þér ætlið nú fyrir yður? — Hvemig igetur yðuæ þótt það nokkru skipta? — Jú! sgaði hann. — Þér vitið, að þér eruð konan mín, og er mér orðið ljóst, að þér eruð hygg- inn, og viljasterkur kvennmaður, og gætuð því orðið mörgum mamn inum til ómetanlegs gaigns. .— Guði sé lof fyrir það! mælti hún, — að þér hefið mig eigi á yðar valdi, en óg á alls kosti við yður! Að svo imæltu skundaði hún brott, án þess að virða hann þess, að líta á hann. En Warner lét þegar kalla á hr. Hollebone. — Flýtið yður, mælti hann, er Hollebone kom. — Rétt í þessu gekk héðan igrannvaxinn kven- maður, svartklæddur, imeð skýlu fyrir andlitinu, og getur enn tæp- ast verið komin út á götu! Flýt- ið yður! Farið á eftir henni, og segið mér svo, hvert hún fer! — Hm! mælti Warner, er hann var orðinn einn. — Dugnaðar kvendi, þessi Anna StudTy, sem er betra að eiga að vin, en að óvini. En í þetta skipti var ég neyddur til þess, að láta undan J henni. Anna Studly gekk nú rakleiðis þangað, er Grace átti heirna, en taldi þó eigi ráðlegt, að segja henni þegar, sem var, — vissi, að hún var einþykk, og bjóst við, að það lundareinkenni hennar hefði ef til vill fremur vaxið, en minnk- að með auðnuim. Af bréfum hennar vissi hún, og hve einkar annt henni var um Wamer, og því eigi ólíklegt, að hún teldi hvern, þann fremur óvin, en vin, er reyndi, að spilla milli þeirra. Hún ásetti sér því, að nefna að fá hana til þess, að bregða sér tif Þýskalands. Anna lét segja, að frú Veller vildi fá að tala við Grace, og kannaðist hún fyrst eigi við nafn- ið. en er þær þekktust, féllust þær f faðma. Frú Crutchly datt þá og strax í hug, að þetta væri stúlkan er ,ungfrúin skrifaðist svo oft á við. — Ert það þú, Anna! mmlti Grace. — Þú komin til Lundúna! Annað var þó á þér að heyra, en að það myndi verða í bráðina! — Ég varð að koma, — þín vegna! svaraði Anna. — Ég skil, grpip Grace fram í. i— Þú hefi.r fengið bréfið frá mér, — frétt trúlofun mína og Warn- er‘s, og bá hefurðu flýtt þér —. — Ekki var það nú eingömgu það, imælti Anna, — en því mið- ur segi ég sorrlegar fréttir! Frænka þín er mjög veik, og er- indið er, að biðja þig, að heim- sækja hana! — Nú! Anna! i — Já! Þegar í dag! — En eiigi ég nú ómögulegt með það —? Frú Cruthly igreip nú fram í, og sagði, að eigi gæti komið itil neinna mála, að hún færi, þar sem gesta væri von næstu dagana, og ýmis heimboð þeigar ákveðin. Ili 1085 Lárétt 1) Prammi,- 6) Karlfuglana,- 10) Vein- 11) Reim,- 12) Skákinni,- 15) Seint.- Lóðrétt 2) Hvildi.- 3) Riki,- 4) For- stöðumaður,- 5) Fugl,- 7) Fugl.- 8) Grænmeti,- 9) Mið- degi,- 13) Leyfi,- 14) Vond,- Ráðning á gátu No. 1084 Lárétt 1) Sálma,- 6) Landinn - 10) II.-.11) Án,- 12) Kastali.- 15) Ættin,- cr Lóðrétt 2) Áin.- 3) Mói,- 4) Bliki,- 5) Unnið,- 7) Ala,- 8) Dót,- 9) Nál.- 13) Sæt,- 14) Ali,- 10 \ir 12 15 14 — HVELL G E I R I D R E K I Hornhákarlar Hvell sortnar lyrir augum, en sér sem J þoku.. ----- Trigons - hákarlar! 2 km neðansjávar, án vonar um björgun — Hvellur reynir að sökkva árásarskipinu. máttfarinn til aðiyfta byssunni! Niutiu sekúndur- Hvell er þungt fyrir brjósti — en tekst að opna aðra lestarlúgu. Itill Ittiill L, Sunnudagur 16. april 8.30 Létt morgunlög. 9.00 Fréttir. Útdráttur úr forustugreinum dagblað- anna. 9.15 Morguntónleikar. 11.00 Messa i Grenjaðar- staðarkirkju. (Hljóðr. um s.l. helgi). Prestur: Séra Sigurður Guðmundsson prófastur. 13.15 Sjór og sjávarnytjar, sjöunda erindi. Aðalsteinn Sigurðsson fiskifræðingur talar um flatfiska. 14.00 Miðdegistónleikar. 15.30 Kaffitiminn. Létt lög. 15.55 Fréttir. Skáldsagan „Virkisvetur” cftir Björn Th. Kjörnsson. 16.55 Veðurfregnir. 17.00 A hvitum reituin og svörtum.Sveinn Kristinsson flytur skákþátt. 17.40 Útvarpssaga barnanna: „Steini og Danni i sveitinni” eftir Kristján Jóhannsson. 18.00 Stundarkorn með brasiliska pianóieikaranum Yzra Bernette. 18.30 Tilkynningar 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.30 Bækur og bókmenntir. 20.00 Gestir i útvarpssal. Denis Zsigmondy leikur á fiðlu og Anneliese Nissen á pianó. 20.20 „Og svo fór ég að sk- jóta”. Frásagnir banda- rfekra 'hermanna úr Viet- nam-striðinu. Félagar úr leikklúbbnum Grimu flytja bókarkafla eftir bandariska lögmanninn Mark Lane undir stjórn Mariu Krist- jánsdóttur. — Á eftir stjórn - ar Arni Gunnarsson frétta- maður umræðum um bókina og styrjöldina i Vietnam. 21.20 Poppþátturi umsjá Ástu R. Jóhannesdóttup og Stefáns Halldórssonar. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir. Danslög. 23.25 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. 1 iiill Sunnudagur 16. april. 17. Endurtekið efni. Ekki er fast undir fótum. 17.30 „Gekk ég mig á græna slóð”. Söngtrióið þrjú á palli” flytur islenzk þjóðlög. 18.00 Helgistund.Sr. Sigurður Haukur Guðjónsson. 18.15 Stundin okkar. 20.00 Fréttir 20.20 Veður og auglýsingar 20.25 A reginfjöllum 1. Sjón- varpsmenn fóru i sumar norður yfir hálendið, frá Veiðivötnum norður Sprengisandsleið og i Jökul- dal við Tungufellsjökul, og þaðan norður fyrir Tungna- fellsjökul og austur með norðvesturhorni Vatna- jökuls, svokallaða Gæsa- vatnaleið. 20.55 Á Myrkárbökkum. 4. þáttur. 21.35 Hernaður til sölu. (Sell- ing of the Pentagon). Mynd þessa gerðu fréttamenn frá bandarisku sjónvarpsstöð- inni CBS um upplýsinga- starfsemi stærstu stjórnar- deildar Bandarikjanna, her- málaráðuneytisins. Greint er frá hergagnasýningum, sem haldnar eru fyrir al- mannafé, og brugðið upp köflum úr áróðursmyndum, sem enn er verið að sýna á vegum ráðuneytisins, enda þótt margir telji, að kalda striðinu sé lokið. 22.25 Umræðuþáttur i beinu framhaldi af efni myndar- innar á undan. bátttak- endur: Árni Bergmann, blaðamaður, Björn Jó- hannsson, fréttastjóri, Hannes Jónsson, blaða- fulltrúi rikisstjórnarinnar, Þorbjörn Broddason, lektor, og Eiður Guðnason, frétta- maður, sem stýrir um- ræðunum. 23.00 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.