Tíminn - 16.04.1972, Blaðsíða 20

Tíminn - 16.04.1972, Blaðsíða 20
Charles Duke, stjórnandi tunglferjunnar Thumas Mattingly, stjórnar móðurskipinu John Voung, stjórnandi feröarinnar APOLLO 16. LEGGUR AF STAÐ I DAG - 'I TÓLF SÓLARHRINGA FERD Tunglvinnan Með i þessari ferð verður tungl- bill, sams konar og i þeirri siðustu. Gert er ráð fyrir, að þeir Duke og Young aki um 15 milur i fjöllunum og setji upp margs kyns mælitæki, safni grjóti og sandi, taki myndir og geri ýmsar mælingar. Hið eina nýstárlega, sem gert er nú, er að notuð er myndavél, sem nær útfjólubláu ljósi, og verður hún notuð alla leiðina til tunglsins, á tunglinu og i bakaleiðinni og eru bundnar miklar vonir við árangurinn. Athuganir á fjallgrjótinu munu einkum beinast að þvi að fá stað- fest, það sem margir visinda- menn vilja halda fram, aö fjöllin séu úr annarskonar efni, en aðrir hlutar tunglsins.* Þá verður væntanlega hægt að komast að þvi, hvort einhverntima hafa veriö þarna eldgos. Menn eru ekki sammála um, hvort tungl- gigarnir eru gigar, eða för eftir loftsteina. Sum fjöllin á Descares- svæðinu likjast mjög eldfjöllum. Alls munu þeir Young og Duke dveljast á tunglinu i 73 klukku- SB—Reykjavik Apollo 16. hefur tunglferð sina frá Kennedyhöfða klukkan 17.54 að isl. tima i dag og mun ferðalagið alls taka 12 sólarhringa, tvær klukkustundir og36 minútur. í rúmlega 6 sólarhringa verður móðurskipið á tunglbraut og mannleg augu, myndavélaaugu og rafeindaaugu rannsaka tunglið. Mann- legu augun tilheyra þeim félögum, John Young, Thomas Mattingly og Charles Duke. stundir og er það nýtt met. Þeir fara þrisvar i rannsóknarferöir, en á meðan sveimar Mattingly umhverfis i móðurskipinu. Ferðaáætlunin t stórum dráttum litur áætlun þessar næstsiðustu Apollo-ferðar þannig út: Skotið kl. 17.45 sunnudag 16. april frá Kennedy- höfða. A tunglbraut kl. 20.23 mið- vikudag 19.april. Lending á tungl- inu fimmtudag 20. april kl. 20.41. Rannsóknarferðir um yfirborð tunglsins kl. 00.34 föstudag, 22.34 föstudag og 22.34 laugardag. Tunglið yfirgefið sunnudag 23. april kl. 21.39. Lagt af stað til jarðar kl. 00.15 miðvikudag 26. april og lent á Kyrrahafi kl. 20.30 föstudagskvöld 28. april. berjumst gegn blindu Söludagar 15. og 16. aprfl Lionsumdæmið á Islandl GARÐYRKJUBÆNDUR Nú getum við útvegað yður plast gróður- hús frá MUOYIHUONE i Finnlandi. Lægri stofnkostnaður Fljótleg uppsetning Breidd 6,5 og 7,5 m, hæð 2,9 og 2,5 m Lengd ótakmörkuð Heilsárshús og sumarhús Hringiö, skrifiö eöa komið og við munum gefa nánari upp- lýsingar. H.G. GUÐJÓNSSON Stigahlið 45-7, Suðurveri, Reykjavik, sími 37637. Þessi ferð, sem er hin næst- siðasta i Apollo-áætluninni, á að færa til jarðar nýjar, dýrmætar upplýsingar um tunglið og himin- geiminn og nú i fyrsta sinn veröur tunglið notað til að rannsaka frekar, það sem er enn lengra i burtu. Apollo 16. er fyrsta og eina tunglfarið i áætluninni, sem lendir uppi I tunglfjöllunum, sem raunar þekja um 70% af yfirborði tunglsins. Lendingarstaðurinn Staðurinn, sem tunglferjan lendir á, liggur um 2.400 metrum hærra en-Haf Kyrrðarinnar, þar sem Neil Armstrong á Apollo 11. tyllti fyrst niöur mannlegum fæti. fyrir tæpum þremur árum. Svæðið er kennt viö franska heim spekinginn : :Descartes, en fjöll þarna eru talin nokkru eldri, en steinar þeir, sem áhafnir Apollos 11. og 12. söfnuðu á sinum tima, en hins vegar yngri, en sýnishorn úr feröum þess'14. og 15. Þá má geta þess, að þetta er i fyrsta sinn, sem tunglfararnir lenda á þeirri þlið tunglsins, sem alltaf snýr að jörðu. Bletturinn, sem tunglfararnir feröast um aö þessu sinni, er lítill, mun minni en sá, sem félagar þeirra úr fyrri ferðum fóru yfir. En i staö þess munu tæki móður- skipsins gera öllu umfangsmeiri rannsóknir á hringferðum sinum og ná þær um allt tunglið. Þremenningarnir Fararstjóri ferðarinnar er John Young, 41 árs gamall. Hann hefur þrisvar áður farið i geimferðir, fyrst með Gemini-3 i mars 1965 og siðan með Gemini-10 i júli 1966 og Apollo 10 mai 1969. Young er kvæntur og á 13 ára son og 14 ára dóttur. Thomas Mattingly, stjórnandi móðurskipsins, er 36ára og hefur aldrei áður farið i geimferð. Hann átti að fara með Apollo 13 I april 1970, en féll úr vegna þess, að grunur lék á, að hann hefði smitazt af mislingum. Mattingly er kvæntur, en á engin börn. Charles Duke, sem stjórna á tunglferjunni, er 37 ára. Hann hefur ekki farið i geimferð fyrr en nú, en var þjálfaöur til að taka viðstjórn tunglferju Apollos 13. ef aðalmaðurinn heltist úr lestinni. Duke er kvæntur og á tvo syni, 7 og 4 ára. Sunnudagur 16. april 1972. Fyrirlestur Amerosinghe á mánudag Sendiherra Ceylon hjá Sam- einuðu þjóöunum, Hamilton A. Amerasinghe, er hér á landi i heimsókn, og flytur hann fyrir- lestur i 1. kennslustofu Háskólans á mánudaginn. Hefst fyrir- lesturinn kl. hálf sex. Amera- singhe er formaður undir- búningsnefndar hafréttarráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna, og mun hann eiga viðræður við stjórnvöld hér

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.