Tíminn - 16.04.1972, Qupperneq 20
Charles Duke, stjórnandi tunglferjunnar
Thumas Mattingly, stjórnar móðurskipinu
John Voung, stjórnandi feröarinnar
APOLLO 16.
LEGGUR AF STAÐ I DAG -
'I TÓLF SÓLARHRINGA FERD
Tunglvinnan
Með i þessari ferð verður tungl-
bill, sams konar og i þeirri
siðustu. Gert er ráð fyrir, að þeir
Duke og Young aki um 15 milur i
fjöllunum og setji upp margs
kyns mælitæki, safni grjóti og
sandi, taki myndir og geri ýmsar
mælingar. Hið eina nýstárlega,
sem gert er nú, er að notuð er
myndavél, sem nær útfjólubláu
ljósi, og verður hún notuð alla
leiðina til tunglsins, á tunglinu og
i bakaleiðinni og eru bundnar
miklar vonir við árangurinn.
Athuganir á fjallgrjótinu munu
einkum beinast að þvi að fá stað-
fest, það sem margir visinda-
menn vilja halda fram, aö fjöllin
séu úr annarskonar efni, en aðrir
hlutar tunglsins.* Þá verður
væntanlega hægt að komast að
þvi, hvort einhverntima hafa
veriö þarna eldgos. Menn eru
ekki sammála um, hvort tungl-
gigarnir eru gigar, eða för eftir
loftsteina. Sum fjöllin á Descares-
svæðinu likjast mjög eldfjöllum.
Alls munu þeir Young og Duke
dveljast á tunglinu i 73 klukku-
SB—Reykjavik
Apollo 16. hefur tunglferð sina frá Kennedyhöfða klukkan 17.54 að isl.
tima i dag og mun ferðalagið alls taka 12 sólarhringa, tvær klukkustundir
og36 minútur. í rúmlega 6 sólarhringa verður móðurskipið á tunglbraut og
mannleg augu, myndavélaaugu og rafeindaaugu rannsaka tunglið. Mann-
legu augun tilheyra þeim félögum, John Young, Thomas Mattingly og
Charles Duke.
stundir og er það nýtt met. Þeir
fara þrisvar i rannsóknarferöir,
en á meðan sveimar Mattingly
umhverfis i móðurskipinu.
Ferðaáætlunin
t stórum dráttum litur áætlun
þessar næstsiðustu Apollo-ferðar
þannig út: Skotið kl. 17.45
sunnudag 16. april frá Kennedy-
höfða. A tunglbraut kl. 20.23 mið-
vikudag 19.april. Lending á tungl-
inu fimmtudag 20. april kl. 20.41.
Rannsóknarferðir um yfirborð
tunglsins kl. 00.34 föstudag, 22.34
föstudag og 22.34 laugardag.
Tunglið yfirgefið sunnudag 23.
april kl. 21.39. Lagt af stað til
jarðar kl. 00.15 miðvikudag 26.
april og lent á Kyrrahafi kl. 20.30
föstudagskvöld 28. april.
berjumst
gegn
blindu
Söludagar 15. og 16. aprfl
Lionsumdæmið á Islandl
GARÐYRKJUBÆNDUR
Nú getum við útvegað yður plast gróður-
hús frá MUOYIHUONE i Finnlandi.
Lægri stofnkostnaður
Fljótleg uppsetning
Breidd 6,5 og 7,5 m, hæð 2,9 og 2,5 m
Lengd ótakmörkuð
Heilsárshús og sumarhús
Hringiö, skrifiö eöa komið og við munum gefa nánari upp-
lýsingar.
H.G. GUÐJÓNSSON
Stigahlið 45-7, Suðurveri,
Reykjavik, sími 37637.
Þessi ferð, sem er hin næst-
siðasta i Apollo-áætluninni, á að
færa til jarðar nýjar, dýrmætar
upplýsingar um tunglið og himin-
geiminn og nú i fyrsta sinn veröur
tunglið notað til að rannsaka
frekar, það sem er enn lengra i
burtu.
Apollo 16. er fyrsta og eina
tunglfarið i áætluninni, sem
lendir uppi I tunglfjöllunum, sem
raunar þekja um 70% af yfirborði
tunglsins.
Lendingarstaðurinn
Staðurinn, sem tunglferjan
lendir á, liggur um 2.400 metrum
hærra en-Haf Kyrrðarinnar, þar
sem Neil Armstrong á Apollo 11.
tyllti fyrst niöur mannlegum fæti.
fyrir tæpum þremur árum.
Svæðið er kennt viö franska heim
spekinginn : :Descartes, en fjöll
þarna eru talin nokkru eldri, en
steinar þeir, sem áhafnir Apollos
11. og 12. söfnuðu á sinum tima,
en hins vegar yngri, en sýnishorn
úr feröum þess'14. og 15. Þá má
geta þess, að þetta er i fyrsta
sinn, sem tunglfararnir lenda á
þeirri þlið tunglsins, sem alltaf
snýr að jörðu.
Bletturinn, sem tunglfararnir
feröast um aö þessu sinni, er lítill,
mun minni en sá, sem félagar
þeirra úr fyrri ferðum fóru yfir.
En i staö þess munu tæki móður-
skipsins gera öllu umfangsmeiri
rannsóknir á hringferðum sinum
og ná þær um allt tunglið.
Þremenningarnir
Fararstjóri ferðarinnar er John
Young, 41 árs gamall. Hann hefur
þrisvar áður farið i geimferðir,
fyrst með Gemini-3 i mars 1965 og
siðan með Gemini-10 i júli 1966 og
Apollo 10 mai 1969. Young er
kvæntur og á 13 ára son og 14 ára
dóttur.
Thomas Mattingly, stjórnandi
móðurskipsins, er 36ára og hefur
aldrei áður farið i geimferð. Hann
átti að fara með Apollo 13 I april
1970, en féll úr vegna þess, að
grunur lék á, að hann hefði
smitazt af mislingum. Mattingly
er kvæntur, en á engin börn.
Charles Duke, sem stjórna á
tunglferjunni, er 37 ára. Hann
hefur ekki farið i geimferð fyrr en
nú, en var þjálfaöur til að taka
viðstjórn tunglferju Apollos 13. ef
aðalmaðurinn heltist úr lestinni.
Duke er kvæntur og á tvo syni, 7
og 4 ára.
Sunnudagur 16. april 1972.
Fyrirlestur
Amerosinghe
á mánudag
Sendiherra Ceylon hjá Sam-
einuðu þjóöunum, Hamilton A.
Amerasinghe, er hér á landi i
heimsókn, og flytur hann fyrir-
lestur i 1. kennslustofu Háskólans
á mánudaginn. Hefst fyrir-
lesturinn kl. hálf sex. Amera-
singhe er formaður undir-
búningsnefndar hafréttarráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna, og
mun hann eiga viðræður við
stjórnvöld hér