Tíminn - 18.04.1972, Page 2
2
TÍMINN
Þriðjudagur 18. apríl 1972.
Tímabil stórvirkja
Rikisstjórnin hefur setið i
niu mánuði. Morgunblaðið
gefur henni eftirfarandi
einkunn i Reykjavikurbréfi
s.l. sunnudag eftir þennan
reynslutfma:
„Flumbruskapur vinstri
stjórnarinnar er svo sannar-
lega einstæður. Engri rikis-
stjórn hefur farnazt jafnilla og
þeirri, sem nú er við völd,
enda er ekki of sagt, að ráð-
herrarnir séu heillum
horfnir.”
bað er ekki verið að sniða af
orðaleppunum, en hins vegar
skortir mjög á að gifuryröin
séu rökstudd, og sannast hér
enn, að þegar rökin þrýtur,
taka fáryrðin viö i ihaldsher-
búðum. Satt að segja getur
rikisstjórn félagshyggju-
manna varla óskaö sér betri
einkunnar ihaldsin^ en svona
gusu.
Menn taka eftir þvi, að
stjórnin er ekki sökuö um aö-
gerðaleysi heldur „flumbru-
skap”, en það þýðir einfald-
lega að stjórnin hafi tekið svo
rösklega til höndum að ryðja
brott ihaldsverkum siðustu
ára og hefja i verki félags-
hyggjusjónarmið, sem eru
mest eitur i beinum ihaldsins,
aö það getur ekki hljóðum
haldiö.
Sannleikurinn er sá, að það,
sem ihaldið kallar „flumbru-
skap”, eru mestu stórvirki
andstæð ihaldsstefnu, sem
nokkur islerfzk rikisstjórn
hefur unnið á jafnskömmum
tima siðan á á dögum stakka-
skiptastjórnarinnar 1927.
Þetta sannast bezt á viö-
brögðum ihaldsins. Vonandi
fær ihaldið að sjá meira af
slikum verkum þessarar
stjórnar verkum sem Mbl. á
engin önnur orð yfir en
„flumbruskapur”. Meðan
slikar einkunnir birtast dag-
lega i Mogga, hafa ráð-
herrarnir góðan áttavita, og
þeir vita, að óhætt er að sigla
sömu stefnu.
Staðlausar aðdróttanir
Morgunblaðið fyllyrðir lika
á sunnudaginn, að augljóst sé,
að engin ákvörðun um brottför
varnarliðsins verði nokkurn
tima tekin af núverandi rikis-
stjórn, þvi að „þrir af þing-
mönnum stjórnarflokkanna,
hafa lýst þvi yfir skýrt og
skorinort, að þeir muni ekki
ljá atkvæöi sitt til að gera ts-
land varnarlaust, eins og nú er
umhorfs i okkar heimshluta”,
eins og blaðið segir. Hér fer
blaðið með staðlausar að-
dróttanir, bæði um þessa þrjá
þingmenn og bandalagsþjóðir
okkar. Það eru staðlausir
stafir, að þingmennirnir hafi
gert slika yfirlýsingu. Þeir
hafa einmitt látið i ljós ein-
læga von um, að könnun á
varnarmálum leiði til þess
mats, að unnt veröi að láta
herinn fara. Það er þvi ó-
sæmandi aðdróttun við al-
þingismenn að þeir muni ekki
meta þetta mál hlutlægt eða
standa við þann málefna-
samning rikisstjórnarinnar,
sem þeir eru aðilar að.
Morgunblaðið stagast sifellt á
þvi, að Island verði „varnar-
laust” ' ef erlendi herinn fari.
Þetta er ósæmileg aðdróttun i
garð bandalagsþjóöa okkar
um að þær ætli að brjóta á
okkur Atlantshafssáttmálann,
sem gerir beinlinis ráð fyrir
þvi, sem eðlilegu ástandi
aðildar okkar að hér sé ekki her
á friðartima, en felur i sér
skuldbindingar ef til átaka
kemur. -AK
Enn úrtölunöldur
um Bændahöllina
E.G. úr Rángarvallasýslu
sendir Landfara eftirfarandi
pistilum Bændahöllina og ágrein-
ing þann, sem enn stendur um
hana og stækkun hennar.
„Landfari góður.
Þegar húsnæði Búnaðarfélags
Islands i Lækjargötu var orðið
svo litið, að hyggja varð að öðru,
greindi menn á, hvernig úr yrði
bætt. Vildu flestir byggja, en
sumir svo smátt, að aðeins nægöi
þörf félagsins á þeim tima. Hefði
hver sá, sem þangaö átti erindi,
orðið að sækja sér næringu og
náttstað eitthvað út i bæ. Slik
hefði aöstaðan verið, ef ráðum
þessara manna hefði verið fylgt.
Nú sér enginn islenzkur bóndi
eftir þvi að hafa átt svo framsýna
framámenn að koma sliku húsi
upp, sem Bændahöllin er nú,
þegar borgarstjórn Reykjavikur
bauð þessa glæsilegu lóð með
þeim skilyröum, að þar yrði um
leið hótel og gistiaðstaða.
Nú þegar fyrirhuguð er betri
nýting þess húsakosts, sem fyrir
er, með viðbótarbyggingu, byrjar
sami söngurinn um að þetta eigi
bændur ekki að gera, en engin rök
færð fyrir þvi, að þetta eigi, ekki
að gera, þótt hver einasti Is-
lendingur, sem einhver umsvif
hefur, kappkosti eftir mætti að
hagræða vinnuafli og tækjab-
únaði til sem beztrar nýtingar,
svo að eftirtekjan verði sem
mest. Þetta mega forráðamenn
Bændahallarinnar ekki gera að
þeirra mati, sem svona syngja.
Fyrstur reið á vaðið bóndinn á
Sandi, sem virðist vera orðinn
einn aðalráðgjafi Morgun-
blaðsins, og var þá slegin
barlómsbumban. Siðan kom
borgfirzkur bóndi fram i
Timanum og sagði, að þetta ættu
bændur ekki að gera, en hvers
vegna nefndi hann ekki. Svo
hleypur súkkulaðidrengur af
Rangárvöllum hvað eftir annað i
útvarpið til að vara bændur við
þessari hættu.
En hvað er að óttast? Halda
menn að Þorvaldur i Sild og fisk
sé að stækka Hótel Holt, eða Lúð-
vik Hjálmtýsson að byggja
stærðar gistihús aðeins til þess að
koma aurunum sinum i lóg fyrir
fullt og allt. Trúlegt þykir mér, að
þeir eigi einhverja gróðavon i
leynum hugans. Þessu er ekki
andmælt, þegar einstaklingar
ráðast í slika fjárfestingu, en ef
stjórnendur Bændahallarinnar
hyggjast bæta rekstraraðstöðuna
og vinnuhagræðingu með þvi að
bæta við byggingu, og um leið
stækka bændasamtök landsins i
augum allra, þá er risið upp til að
andmæla.
Dagblaðið Visir segir i frétt 25.
febr. s.l.: „Samkvæmt rekstrar-
áætlun, sem Hagvangur h.f. hefur
gert i samvinnu við forráðamenn
Bændahallarinnar, mun við-
byggingin skila umfram skulda-
vexti 190 milljónum á árunum
1975—1985.” Eftir þessu að dæma
er áhætta ekki mikil, svo framar-
lega sem hægt er að fá innlent
fjármagn. Samkvæmt rekstrar-
reikningi Bændahallarinnar tvö
s.l. ár, er hagnaðurinn á tiundu
milljón, og verður þaö að teljast
gott, miöaö við aðstööu ög aö
þurfa aö búa við erlend lán, sem
hækkaði skuldina um 35 millj. i
gengislækkunum „viöreisnar-
innar”. Væri gaman að fá út
reiknað, hve hagnaður þessa húss
væri mikill s.l. ár, ef aðeins inn-
lent fjármagn hefði verið notað i
bygginguna i fyrstu.
Vonandi lætur stjórn Bænda-
hallarinnar þetta úrtölunöldur
afturhaldsmanna sem vind um
eyru þjóta, þvi að þeirra ráð hafa
aldrei reynzt happadrjúg, hvorki
fyrir einstaklinga né þjóðarheild.
E.G. Rangárþingi.
Garðahreppur
FRÁ BARNASKÓLA GARÐAHREPPS
Fólk, sem flytur i Garðahrepp á þessu ári,
er vinsamlegast beðið að innrita skóla-
skyld börn sin, 6-12 ára nú þegar. Tekið á
móti umsóknum i simum skólans 42756 og
42680 kl. 10-12 og 13-15.
Skólastjóri.
Skólatöflur
Nú er tímabært að panta fyrir næsta haust.
Við getum boðið yður mjög vandaðar emalieraðar stál-
plötur, fyrir segul. Hægt er að fá þær með útbúnaði til að
hækka þær og lækka.Einnig með hliðar vængjum, sem
geta verið strikaðir, eða meö myndloða og sýningartjaldi.
Bréflegar fyrirspurnir og pantanir óskast.
STAFN H/F, Brautarholti 2,
Box 5143, Reykjavik.
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Staða framkvæmdastjóra við frystihús og
útgerðarfélag á Norð-Austurlandi er laus
til umsóknar nú þegar.
Lysthafendur vinsamlegast leggi nöfn sin
inná afgreiðslu blaðsins, ásamt upp-
lýsingum um aldur, menntun og fyrri
störf, kaupkröfum og öðrum þeim upplýs-
ingum er umsækjendur vildu láta koma
fram, merkt „FRAMKVÆMDASTJÓRI”
ferðaskrifstofa bankastræti 7
travel
símar 16400 12070
Mallorka — (London) 8-28 dagar verð frá kr. 12.800.-
Brottför hálfsmánaðarlega og vikulega frá 27/7-21/9. Þér veljið um
dvöl á hótelum og ibúðum. Eigin skrifstofa Sunnu i Palma með
islenzku starfsfólki veitir öryggi og ómetanlega þjónustu. Mallorka
er fjölsóttasta ferðamannaparadis Evrópu, sólskinsparadis vetui;
sumar vor og haust. Glæsileg hótel, fjölbreytt skemmtanalif, ekkert
veður en sjórinn og sólskinið eins og fólk vill hafa það. Fjölskylduaf-
sláttur.
Costa del Sol — (London) 8-28 dagar verð frá kr. 12.800.-
Brottför hálfsmánaðarlega með viðkomu i London á heimleið og
beint leiguflug frá 15/6. Hálfsmánaðarlega og vikulega 27/7-til 21/9.
Þér veljið um dvöl i góðum hótelum (Alay og Las Palomas) og
ibúðum (Sofico, Perlas Olimpo og luxusibúðunum Playaman.Costa
del Sol er næst vinsælasta sólskinsparadisin við Miðjarðarhafið.
Fjölskylduafsláttur fyrir þá sem búa i ibúðum, Tveir islenzkir
fararstjórar og skrifstofuaðstaða Sunnu i Torremolinos.
Kaupmannahöfn 8-28 dagar.
Ótrúlega ódýrar ferðir i áætlunar- og leiguflugi. Eigin skrifstofa
Sunnu i Kaupmannahöfn tryggir farþegum góða fyrirgreiðslu og út-
vegun framhaldsferða frá Kaupmannahöfn m.a. með Tjæreborg,
sem Sunna hefir söluumboð fyrir.
London 8-28 dagar.
Ótrúlega ódýrar ferðir með áætlunarflugi á nýjum fargjöldum árið
um kring nema 1/6-1/9 (þann tima örlitið hærra verð).
Aðrar Sunnuferðir með íslenzkum fararstjórum.
Norðurlandaferð 15 dagar brottför 29. júni.
Kaupmannahöfn, Oslo og Þelamörk. Ekið um Svfþjóð og vatna-
héruðin á leið til Kaupmannahafnar frá Noregi.
Kaupmannahöfn-Rínarlönd 15 dagar, brottför 6. júli og 3. ágúst.
Þetta er vinsæl ferð. Fólk kynnist sumarfegurð og gleði i Kaup-
mannahöfn. Ekið um Þýzkaland til Rinarlanda, þar sem dvalið er i
nokkra daga.
Skemmtisigling á Miðjarðarhafi 15 dagar, brottför 7. sept.
Ótrúlega ódýr ferð með skemmtiferðaskipi um Miðjarðarhafið.
Flogið til Feneyja og siglt þaðan. Komið við og dvalið i Kaup-
mannahöfn á heimleiðinni.
Kaupmannahöfn — Rom-Sorrento. 21 dagur, brottför 13. júli.
Dvalið i viku i Rómaborg. Borgin skoðuð. önnur vika I hinum
undurfagra bæ Sorrento, þar sem aðstaða er til sólbaðsdýrkunar á
baðströnd og skemmtiferða við hinn undurfagra Napoliflóa. Vika i
Kaupmannahöfn á heimleið.
Paris — Rínarlönd — Sviss.16 dagar, brottför 20. ágúst.
Þessi vinsæla ferö er farinsvo til óbreytt ár eftir ár og lýkur á Vin-
hátfðinni þegar drottningin er krýnd i Rinarlandabyggðum.
London — Amsterdam — Kaupmannahöfn. 12 dagar, brottför 13.
ágúst.
Þessi vinsæla ferð gefur fólki tækifæri til að kynnast þremur
skemmtilegum stórborgum. Hægt að framlengja dvöl I Kaup-
mannahöfn.
Tokyoferðir.
Ótrúlegt tækifæri fyrir fólk I viðskiptaerindum, eða skemmtiferð-
um. lOdaga ferðirfyrir kr. 94.000. Flugferðir og hótel.
Kynnið ykkur verð og gæði Sunnuferðanna með áætlunarflugi eða
hinu ótrúlega ódýra leiguflugi. SUNNA gerir öllum kleift að ferðast.
Farið aldrei í ferðalag án þess að kanna ferðalagið fyrst hjá Sunnu.
Sunna er alþjóðleg ferðaskrifstofa; viðurkennd af IATA og selur
flugfarseðla með öllum flugfélögum, um allan heim.
Sunna annast
einstaklingsferðii'
fyrir mikinn
fjölda fyrirtækja
og stofnana.
snnna
Sunnuferðir
Utanlandsferðir við allra hæfi 1972