Tíminn - 18.04.1972, Side 6
TÍMINN
Þriðjudagur 18. april 1972.-
Hagkvæmni í rekstri Mjólkurbús Flóamanna
vex sífellt og bætir hag bænda
Aðalfundur Mjólkurbús Flóa-
manna er liklega oftast fjölmenn-
asti bændafundur, sem haldinn er
á landinu. Þangað sækja bændur
af stærsta, samfellda undirlendi
landsins, allt vestan frá Hellis-
heiði austur að Skeiðarársandi.
Gestir slæðast einnig að. Hér eru
lika að sækja til fundar og ráða
málum til lykta eigendur stærsta
mjólkurbús á Norðurlöndum, að
þvi að talið er. Innleggjendur
mjólkur i búið voru á s.l. ári 939,
en hafði fækkað um 22.Þetta er
árviss þróun. Fyrir tæpum áratug
voru mjólkurbændur á svæðinu
um 1100. Fækkunin er raunar
meiri, en þessar tölur segja, þvi
að innleggssvæði mjólkurbúsins
hefur sifellt verið að stækka,
teygja sig autur á bóginn, unz nú
er komið að markalinu, sem ekki
verður farið yfir um sinn,
Skeiðarársandi, hvort sem öræf-
ingar fara að flytja mjólk vestur,
þegar vegurinn er kominn yfir
sandinn.
1 Árnessýslu fækkaði mjólkur-
bændum um 20, i Rangárvallasýslu
um 9, en i V-Skaft.-fjölgaði þeim
um 7. Þessar tölur sýna, að þeim
fækkaði raunverulega um 29 á
aðalsvæðinu, en nokkrir bættust
við á austurmörkunum, svæðið
stækkaði.
Arsfundur Mjólkurbús F’lóa-
manna, sem haldinn var i hinu
stóra og glæsilega félagsheimili
Gnúpverja að Arnesi s .1. föstu-
dag, varð þó ekki eins fjölmennur
og stundum áður. Þó munu hafa
sótt hann á fimmta hundrað
bænda, þegar flest var. Þarna var
afar rúmt um fundarmenn og að-
staða öll hin bezta. En nokkuð
langt er að sækja fyrir marga
bændur, og mun það að likindum
hafa valdið, að færri voru á fundi
en stundum áður.
Skipulag og hefð þessara funda
er á margan hátt til fyrirmyndar
um slika fulltrúafundi. Fulltrúar
eru tveir fyrir flestar deildir bús-
ins, en þrir fyrir þær stærstu og
einn fyrir þær minnstu. I þetta
sinn voru fulltrúar 55, auk stjórn-
ar og framkvæmdastjóra. Hinn
mikli fjöldi bænda á fundinum
fylgist hins vegar vel með störf-
Sigurgrimur Jónsson .stjórnarformaður, í ræðustól en Þorsteinn Sigurðsson á Vatnsleysu fundarstjóri til
vinstri.
um og fær að taka þátt i umræð-
um, að minnsta kosti hinum al-
mennu, sem fram fara að loknum
aðalfundarstörfum við reiknings-
skil og kosningar. Þær umræður
eru æfinlega fjörugar, og er kom-
ið viða við á hinum breiða vett-
vangi landbúnaðarmála, og
skoðanaskipti hressileg, þótt
fundirnir hafi jafnan fylgt þeirri
meginreglu, sem liklegust er til
þess að varðveita samstöðu um
samvinnustarfið innan MB. F. —
þ.e. vinnslu og sölu búvaranna —
að fara ekki svo að teljandi sé út
fyrir þann hring i fundarályktun-
um, heldur láta það eftir stéttar-
félögum bænda. Eigi að siður eru
málin rædd fullum hálsi eins og
þau ber að hverju sinni.
Mjólkurbúsfundurinn i Arnesi á
föstudaginn var engin undantekn-
ing um þetta. Þegar kosningum
var lokið ræddi Grétar Simonar-
son mjólkurbússtjóri nokkuð um
meðferð mjólkur, fituinnihald
hennar o.fl. og Birgir Guðmunds-
son, ungur mjólkurfræðingur,
sem sérstaklega hefur kynnt sér
eftirlit með mjaltavélum og kæli-
Óskilamunir
í vörzlu rannsóknarlögreglunnar er nú
margt óskilamuna, svo sem reiðhjól, fatn-
aður, lyklaveski, lyklakippur, veski,
buddur, úr, gleraugu, o.fl.
Eru þeir, sem slikum munum hafa týnt,
vinsamlegast beðnir að gefa sig fram i
skrifstofu rannsóknarlögreglunnar,
Borgartúni 7 i kjallara (gengið um undir-
ganginn) næstu daga kl. 2-4 og 5-7 e.h. til
að taka við munum sinum, sem þar kunna
að vera.
Þeir munir, sem ekki verða sóttir, verða
seldir á uppboði innan skamms.
HESTAMANNAFELAGID DREYRI
Akranesi og nágrenni
minnist 25 ára afmælis sins að Hótel Akra-
nesi, laugardaginn 22. april kl. 21.
Fjölbreytt skemmtiatriði — Kaffiveit-
ingar — Hljómsveit Á.G. leikur. Miða-
pantanir hjá Sigurði Björnssyni, Stóra-
Lambhaga og i simum 1332 og 1485 Akra-
nesi til fimmtudagskvölds, og við inn-
ganginn. Allir félagar eldri og yngri fjöl-
mennið og takið með ykkur gesti.
Nefndin.
tönkum á heimilum og leiðbein-
ingar um notkun þessara tækja
erlendis, flutti greinargott erindi
um þessi mál. Tankvæðing á
heildarútborgun til bænda fyrir
mjólkina, en árið 1971 5,4%. Um
66% af mjólk til búsins eru nú
flutt þangað i tankbilum.
Gunnar Guðbjartsson
mjólkursvæði búsins hefur gengið
hratt siðustu árin, og komu fram
aí fundinum sérstakar þakkir til
Grétars Simonarsonar fyrir það,
hve ötulega hann hefði beitt sér
fyrir þvi máli. Bændur finna vel,
hve þetta er mikilvægt, bæði til
þess að tryggja gæöi mjólkurinn-
ar og ekki siður til þess að lækka
flutningskostnað að búinu. En
þessi tæki þurfa gott eftirlit, og
búið hefur stóraukið þessa aðstoð
af sinni hálfu Nú starfa hjá
Mjólkurbúi Flóamanna 8 rann-
sóknarmenn og leiðbeinendur, og
hefur þeim fjölgað mjög á seinni
árum.
Þótt allur flutningskostnaöur
hafi stórhækkað jafnt og þétt i
landinu hin siðustu ár, hefur
kostnaður við flutning mjólkur að
búinu farið töluvert lækkandi.
Arið 1960 var hann 8,15% af
Birgir Guömundsson,
mjólkurfræðingur.
Gestur fundarins var Gunnar
Guðbjartsson, formaður Stéttar-
sambands bænda, og flutti hann
glöggt erindi um hið nýja frum-
varp að framleiðsluráðslögum,
sem lagt hafði verið fram á þingi
nokkrum dögum áður. Hann gerði
grein fyrir þeim breytingum frá
eldri lögum, sem i frumvarpinu
felast, en þær eru allveigamiklar
bæði fyrir bændur og neytendur. í
frumvarpinu eru teknar til greina
flestar þær breytingartillögur,
sem Stéttarsamband bænda hefur
lagt til, en þessi mál hafa verið á
dagskrá aðalfunda þess að
undanförnu, og aukafundur hald-
inn um málið nú i vetur.
Á eftir erindi Gunnars snerust
umræður mest um breytingarnar
i frumvarpinu, og þó einkum um
heimild þess til þess að leggja
sérstakan skatt á innfluttan
fóðurbæti, en það mál hefur um
sinn verið nokkurt ágreiningsefni
meðal bænda landsins. Urðu um-
ræður allharðar, og mæltu sumir
með en aðrir á móti. Ýmsir töldu
mikilvægt, að bændastéttin hefði
þetta mál i sinni hendi og gæti
beitt heimildinni þegar þurfa
þætti og gert tvennt i einu að
mynda sjóð, sem gripa mætti til,
þegar útflutningsbætur dygðu
ekki til grundvallarverðs á þeim
vörum, sem fluttar væru út, og
eins að hafa hemil gegn þvi að bú-
vörur væru nær eingöngu fram-
leiddar á tollfrjálsu og ódýru inn-
fluttu fóðri, en siðan þyrfti að
flytja þær út með háum útflutn-
ingsbótum.
Aðrir töldu þetta varhugaverð-
an skatt, þvi að hann mundi koma
illa við þá, sem ekki hefðu næga
heyöflunarmöguleika til þess að
halda uppi nægilega stóru búi, og
eins væri viðbúið, að hann stuð-
laði að þvi að mjólkurframleiðsla
færðist meira á sumarið, en það
væri hættulegt vegna markaðs-
ins.
Fram komu tvær tillögur, sem
báðar lutu að þvi að mótmæla
skattinum.
Ágúst Þorvaldsson alþingis-
maður ræddi málið allitarlega og
kvað augljóst, að þessi skatt-
heimild hefði bæði kosti og galla,
og hefðu flest rök með og móti
komið fram i umíæðunum. Hann
benti hins vegar á það, að aðal-
fundir Mjólkurbús Flóamanna
hefðu jafnan fylgt þeirri reglu að
miða samþykktir sinar við
félagsmál. Þetta væru samtök
um vinnslu og sölu mjólkurvara
og til þess að efla samstöðu um
þau hagsmunamál, hefðu fulltrú-
ar talið farsælast að binda sig að
mestu við þau, en útkljá þar ekki
ágreining um önnur mál, heldur
láta stettar- og fagsamtök bænda-
stéttarinnar um það, þvi að þar
væri hinn rétti vettvangur til
þess. Hann kvað fundi Mjólkur-
bús Flóamanna ekki hafa gert
samþykktir með eða móti öðrum
sköttum eða sérgjöldum, sem
bændasamtökin eða rikisvald og
Alþingi hefðu lagt á búvörur,
heldur hefði álit um þetta komið
fram á öðrum vettvangi bænda-
samtaka. Hann lagði þvi til, að
fundurinn ályktaði um þetta
atriði frumvarpsins eitt með eða
móti, þótt hins vegar væri eðlilegt
að þetta væri rætt fram og aftur.
Tillögurnar voru siðan felldar,
önnur með jöfnum atkvæðum, 18
gegn 18, en hin með 21 atkv. gegn
18. Fulltrúar greiddu að sjálf-
sögðu einir atkvæði.
A fundinum kom fram mikil
ánægja með góðan rekstur
Mjólkurbús Flóamanna á s.l. ári.
Búið greiddi nú i fyrsta skipti
vexti til bænda af innstæðum,
sem standa tiltekinn tima, fyrir
innlagða mjólk, og töldu menn
það spor i rétta átt. Var greini-
legt, að hinn góði rekstur búsins á
árinu og siaukin hagkvæmni reið
baggamuninn um það, að fullt
grundvallarverð náðist nú fyrir
mjólkina á þessu svæði. —AK
Grétar Simonarson,mjólkurbússtjóri,flytur ræöu sina á aöalfundi MBF, en viö boróió sitja tunaarntararnir
Jón Helgason og Eggert ólafsson.