Tíminn - 18.04.1972, Page 14
14
TÍMINN
Þriðjudagur 18. apríl 1972.
— Hvað getur hún og hjálpað
gömlu konumni?
En jungfrú Middleman er einka
frænka hennar! mælti Anna.
Grale var á báðum áttuim.
— Ég verð þó að minnsta kosti
fyrst að skýra hr. Warmer frá því,
mælti hún. — Hann er unnust-
inn minn, og hitti ég hann í fyrra-
málið.
i— En þá kemurðu nú ef til vill
of seint, mæTti Anna. — Kæra
Grace ætlirðu að fara, verðurðu
að bregða strax við!
— Sé það þá svo! mælti Grace.
Frú Crutlhly andmælti enn um
hríð, sem hún igat, en það hafði
nú alls emgin áhrif.
Sagði hún þá að lokum, að
Grace yrði þó að minnsta kosti
að kveðja Wamer, áður en hún
fæiri.
Var þá gert boð eftir honum
,en hann var hvorki í bankanum,
né heima hjá sér. .
Tíminn leið nú, unz vagninn
kom, sem átti að flytja þær til
j árnbrautar stöðvarinnar.
Gíave leit aftur oig aftur út
um gluggann, til þess að vita,
hvort hún sæi Warner ekki koma,
en hann kom ekki.
Anna fór þá og að reka á eftir
henni.
Grace kvaddi frú Crutchly með
kossi, og bað hana, að bera Wam-
er beatu kveðju sína og segja, að
hún kæmi bnátt aftur, .
Þaar komu nú til járnbrautar-
stöðvarinnar, og keypti þjónn ung-
frú Middleiman þegar farmiðana
handa þeim, og sá um að far-
angri þeirra væri komið fyrir í
járnbrautarvagninum.
Stóð hann síðan, með hattinn
í hendinni, unz jámbrautarTestin
var þotin af stað —.
Nokkuð álengdar stóð og mað-
ur, sem þær veittu eigi eftirtekt,
og eigi vildi láta sjá sig.
Það var hr. Warner, og geta
menn gizkað á huigsanir hans.
— Bölvuð! mælti hann, er
hann gekk brott frá járnbrautar-
stöðinni. — Þú hefir fengið vilja
þínum framgengt. Og þýtur nú
burt með hana. Á morgun, eða
daginn þar á eifitiir, segirðu henni
svo, hvernig í öllu liggur!
— Hver verður nú næst? mælti
maður, alltötralega til fara, er í
þessum svifum gekk til hans, og
var ÍÖliuverður sláttur á mannin-
im
. KAPÍTULI.
Hefði Wamer svarað spuming-
unni þegar í stað, myndi hann
að líkindum þagar hafa sagt: —
Hver skyldi það verða önnur, en
fjandinn hún dóittir þín?
Maðurinn var sem sé enginn
annar, en kapt. StudTý.
Wamer brá illa við, er hann
kannaðist við manninn.
— Eruð það þér, kapteinn?
mælti hann glaðlega, þó að hon-
um hefði að visu verið það næst
skapi, að taka í hnakkadrambið á
honum, og hrista hann duglega,
til þess að venja hann af ósvilfn-
um spurningum. — Sannast að
segja, ætlaði ég alls ekki að
þekkja yður.
— Ég hefi breytzt svaraði
Studly og _ leit á fatnað-
sinn. — Ég tóri nú enn þá,
Warner, þó að það sé þér ef til
vill ekki nein sérstök gleði, og
þess vegna hagaði ég nú spurn-
ingu minni, eins og ég gerði áð-
an!
Það komu í svip hrukkur á enn
ið á iWamer.
— Hversvegna segið þér þetta?
mælti hann. Éig hefi eigi vænzt
þess af yður, þó að þér hefðuð,
sem alTs eigi var, haft ástæðu til
þess. — En verið mér nú sam-
ferða, Studly, og látum oss tala
saman stillilega! Ég ætlaði ein-
mitt að rita yður í dag! Hafið
þér fengið yður nokkuð að borða?
— Ég borðaði aðeins öigin af
kjötmat á skipinu, sem ég kom
með!
— Komið þá með mér!
Warner tók nú í höndina á
Studly, og ýtti hattinum betur
niður á ennið, itil þess að þekkj-
ast ekki, þar sem hann var með
slíkum manni, sem. Studly var nú
orðinn.
Þeir gengu nú í gistihús, sem
var afskekkt, og bað Wamer þar
um kvöldverð, með víni.
Kapt. Studly smjattaði með
munninum, er hann bragðaði á
víninu.
— Ætti ég dagleiga kost á því,
að drekka svona vín, þá yrði aft-
ur maður úr mér, mælti hann. En
nú vil ég eigi lifa lengur, eins og
ég hefi igert, — og því kom ég
nú hingað!
— Mér virðist þér eigi hafa
ástæðu, til að kvarta yfir neinu,
þar sem ég hefi veitt yður, sem
itengdaföður mínum, nokkur eftir-
laun, sem nægja til að lifa af,
þótt há séu þau að vísu ekki! Og
gætuð þér unnið eitthvað í spil-
um —.
— Já, igæti ég það! svaraði
Studly. — En ég er nú ekki eins
heppinn, og duglegur, eins og ég
var, enda ekki eins liðugur í fingr
unuim! Þess vegna skrifaði ég yð-
ur! Hafið þér ekki fengið bréf firá
mér?
— Jú.
— Sem forstjóri Middleman's
bankans hljótið þér að hafa há
laun! mælti Studly. Og nú ætlið
þér einnig að kvongast! Já ég
veit, hvað ég fer!
Warner gerðist nú allórólegur.
i— Hvaða giftingu eigið þér
við?
Kapteinninn tók bl'að upp úr
vasanum.
— Lítið á! mælti hann. — Það
átendur hérna!
— Fréttin er ekki sönn! mælti
Warner. — Hún er alveg röng!
Vitið þér, hvað ég var að gjöra
á jámbrautarstöðinni, er þér hitt-
uð mig?
Kapteinninn leit spyrjandi á
hann.
— Ég var staddur þar, af því
að ungfrú Middleman var að fara
til Þýzkalands, og verður þar um
óákveðinn tíma! En það hljótið
þér að skilja, að hún myndi eigi
hafa gert, hefði hún verið unn-
ustan mín! Þetta er nú sannleik-
urinn.
Kauteinninn hristi höfuðið.
— Getur vel verið, mæliti hann,
— en það skiptir nú reyndar alls
engu! Það er fortíðin, sem tengir
okkur böndum, og ef þér íhugið,
hvað ég gæti sagt, ef ég vildi —
Wamer hrökk við, en er hann
leit upp aftur, sá hann, að höfuð
kapteinsins var sigið ofan á brjóst
ið.
Hann var hálfsofnaður.
— Vínið hefir Þá verkað á
hann, þótt ekki væri það meira,
mælti hann við sjáTfan sig. —
Bezt væri, að hann væri kominn
í fjarlægt land, þar seim menn
skilja síður mglið í honum! En
hvað menn geta sokkið djúpt!
Hann sat nú stundarkom, og
starði á hann, en taldi að lokum
réttast, að vekja hann.
— Úff! sagði Studly, er Warn-
er ýtti ögn við honum. i— Skyldi
ég hafa sofnað? Jæja, það er þá
vínið, og veizlukrásirnar, sem
hafa valdið því! Allt kvöldið hefir
verið svo unaðsríkt, að ég hafði
næstum gleymt aðalatriðinu .—
ég á við eftirlaunahækkunina!
— Þér skuluð fá eftinTaunin
hækkuð! svaraði iWarner stutt-
lega. Hve mikið, get ég nú eigi
sagt yður í svip! En ég vil — heyr
ið þér það —, að þér búið á meg-
inlandinu, en ekki í Englandi!
Bregðið yður aftur til Ostende!
Ég skal skri'fa yður. En takið nú
við seðlinum þeim ama.
Hann rétti kaplteininum nú tíu
sterlingspunda seðil og kvöddust
þeir síðan.
Wamer stóð stundarkom, og
horfaði á eftir honum.
1086
Lárétt
1) Hrópa,- 6) Piltur,- 10)
Rot.- 11) Kemst.- 12) Rætt.-
15) Flækingur,-
Lóðrétt
2) Ávarp.- 3) Aria.- 4) Tind-
ur.- 5) Reiói.- 7) Hás.- 8)
Spil.- 9) Kona,- 13) Svik.- 14)
Draup.-
Ráðning á gátu No. 1085
Lárétt
1) Bátur,- 6) Blikana.- 10)
ÓO.- 11) Ól,- 12) Taflinu.- 15)
Siðla,-
Lóðrétt
2) Aði.- 3) USA.-4) Abóti,- 5)
Valur,- 7) Lóa,- 8) Kál,- 9)
Nón,- 13) Fri.- 14) 111.-
V M
12 r" 15 |/v
■rl n rm
HVELL
G
E
I
R
I
D
R
E
K
I
...merki frá yfirboðara þeirra, Trigon
''^Fljótur, læknir, inn''
i
llÍlf IlfÍí
Þriöjudagur 18. apríl.
7.00 Morgunútvarp. Morgun-
stund barnannakl. 9.15. Viö
sjóinn kl. 10.25: Ingólfur
Stefánsson ræðir við Guðna
Þorsteinsson fiskifræðing.
Fréttir kl. 11.00. Stundarbil
(endurtekinn þáttur F.Þ.).
Endurtekið efni ki. 11.30:
Hallgrimur Jónasson rithöf-
undur flytur brot frá bern-
skutið. (Aður útv. 25. febr.
s.l,).
13.15 Húsmæðraþáttur. Dag-
rún Kristjánsdóttir hús-
mæðrakennari svarar bréf-
um frá hlustendum.
13.30 Eftir hádegið Jón B.
Gunnlaugsson leikur létt lög
og spjallar við. hlustendur.
14.30 Norska skáldið Aas-
mund Olavson Vinje. Guð-
mundur Sæmundsson flytur
siðara erindi sitt.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
15.15 Miðdegistónleikar:
Pianóleikur.
16.15 Veðurfregnir. Létt lög.
17.00 Fréttir
17.10 Framburðarkennsla
Þýzka, spænska og
esperanto.
17.35 útvarpssaga barnanna:
„Steini og Danni i sveitinni”
18.00 Frcttir á ensku
18.10 Létt lög. Tilkynningar.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Heimsmálin. Tómas
Karlsson, Asmundur Sigur-
jónsson og Haukur Helgason
sjá um þáttinn.
20.15 Lög , unga fólksins.
Ragnheiður Drifa Stein-
þórsdóttir kynnir.
21.05 iþróttir Jón Asgeirsson
sér um þáttinn.
21.30 Útvarpssagan: „Tónió
Kröger” eftir Thomas Mann
Gisli Asmundsson is-
lenzkaði. Árni Blandon
byrjar lesturinn.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Tækni og
visindi.Páll Theódórsson
eðlisfræðingur og Guð-
mundur Eggertsson
prófessor sjá um þáttinn.
22.35 Kammertónlist The
Fine Arts kvartettinn leikur
Strengjakvartett i Es-dúr
op. 12 eftir Mendelssohn.
23.00 A hljóðbergi „The Great
White Hope” eftir Howard
Sackler, fyrri hluti. Leikrit
þetta er byggt á sögu Jack
Johnsons, fyrsta svert-
ingjans sem varð heims-
meistari i hnefaleikum. Meö
aðalhlutverkið fer James
Earl Jones. Leikstjóri er
Edwin Sherin.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Þriöjudagur 18. april.
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Smyglararnir. Fram-
haldsleikrit frá danska sjón-
varpinu eftir Leif Panduro.
1. þáttur. Maðurinn með
hattinn.Leif Panduro hefur
á undanförnum árum verið
einn afkastamesti rit-
höfundur Dana og samið
jöfnum höndum sögur og
leikrit, ýmist alvarlegs eðlis
eða i léttum tón. Leikritið
um smyglarana er saka-
málaleikrit og greinir ann-
ars vegar frá samkeppni og
innbyrðis striði tveggja
smyglhringa, og hins vegar
frá tilraunum yfirvalda og
einstaklinga, til að fletta
ofan af starfsemi þeirra.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpið). Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir.
21.20 Fljótalandið Guyana.
Þriðja myndin i flokki
fræðslumynda (Vattnets
land), sem sænskir sjón-
varpsmenn gerðu um dýra-
og fuglalif i frumskógum
Guyana i Suður-Ameriku.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpið). Þýðandi og þulur
Gylfi Pálsson.
21.50 Setið fyrir svörum. Um-
sjónarmaður Eiður Guðna-
son.
22.25 Dagskrárlok