Tíminn - 18.04.1972, Síða 14

Tíminn - 18.04.1972, Síða 14
14 TÍMINN Þriðjudagur 18. apríl 1972. — Hvað getur hún og hjálpað gömlu konumni? En jungfrú Middleman er einka frænka hennar! mælti Anna. Grale var á báðum áttuim. — Ég verð þó að minnsta kosti fyrst að skýra hr. Warmer frá því, mælti hún. — Hann er unnust- inn minn, og hitti ég hann í fyrra- málið. i— En þá kemurðu nú ef til vill of seint, mæTti Anna. — Kæra Grace ætlirðu að fara, verðurðu að bregða strax við! — Sé það þá svo! mælti Grace. Frú Crutlhly andmælti enn um hríð, sem hún igat, en það hafði nú alls emgin áhrif. Sagði hún þá að lokum, að Grace yrði þó að minnsta kosti að kveðja Wamer, áður en hún fæiri. Var þá gert boð eftir honum ,en hann var hvorki í bankanum, né heima hjá sér. . Tíminn leið nú, unz vagninn kom, sem átti að flytja þær til j árnbrautar stöðvarinnar. Gíave leit aftur oig aftur út um gluggann, til þess að vita, hvort hún sæi Warner ekki koma, en hann kom ekki. Anna fór þá og að reka á eftir henni. Grace kvaddi frú Crutchly með kossi, og bað hana, að bera Wam- er beatu kveðju sína og segja, að hún kæmi bnátt aftur, . Þaar komu nú til járnbrautar- stöðvarinnar, og keypti þjónn ung- frú Middleiman þegar farmiðana handa þeim, og sá um að far- angri þeirra væri komið fyrir í járnbrautarvagninum. Stóð hann síðan, með hattinn í hendinni, unz jámbrautarTestin var þotin af stað —. Nokkuð álengdar stóð og mað- ur, sem þær veittu eigi eftirtekt, og eigi vildi láta sjá sig. Það var hr. Warner, og geta menn gizkað á huigsanir hans. — Bölvuð! mælti hann, er hann gekk brott frá járnbrautar- stöðinni. — Þú hefir fengið vilja þínum framgengt. Og þýtur nú burt með hana. Á morgun, eða daginn þar á eifitiir, segirðu henni svo, hvernig í öllu liggur! — Hver verður nú næst? mælti maður, alltötralega til fara, er í þessum svifum gekk til hans, og var ÍÖliuverður sláttur á mannin- im . KAPÍTULI. Hefði Wamer svarað spuming- unni þegar í stað, myndi hann að líkindum þagar hafa sagt: — Hver skyldi það verða önnur, en fjandinn hún dóittir þín? Maðurinn var sem sé enginn annar, en kapt. StudTý. Wamer brá illa við, er hann kannaðist við manninn. — Eruð það þér, kapteinn? mælti hann glaðlega, þó að hon- um hefði að visu verið það næst skapi, að taka í hnakkadrambið á honum, og hrista hann duglega, til þess að venja hann af ósvilfn- um spurningum. — Sannast að segja, ætlaði ég alls ekki að þekkja yður. — Ég hefi breytzt svaraði Studly og _ leit á fatnað- sinn. — Ég tóri nú enn þá, Warner, þó að það sé þér ef til vill ekki nein sérstök gleði, og þess vegna hagaði ég nú spurn- ingu minni, eins og ég gerði áð- an! Það komu í svip hrukkur á enn ið á iWamer. — Hversvegna segið þér þetta? mælti hann. Éig hefi eigi vænzt þess af yður, þó að þér hefðuð, sem alTs eigi var, haft ástæðu til þess. — En verið mér nú sam- ferða, Studly, og látum oss tala saman stillilega! Ég ætlaði ein- mitt að rita yður í dag! Hafið þér fengið yður nokkuð að borða? — Ég borðaði aðeins öigin af kjötmat á skipinu, sem ég kom með! — Komið þá með mér! Warner tók nú í höndina á Studly, og ýtti hattinum betur niður á ennið, itil þess að þekkj- ast ekki, þar sem hann var með slíkum manni, sem. Studly var nú orðinn. Þeir gengu nú í gistihús, sem var afskekkt, og bað Wamer þar um kvöldverð, með víni. Kapt. Studly smjattaði með munninum, er hann bragðaði á víninu. — Ætti ég dagleiga kost á því, að drekka svona vín, þá yrði aft- ur maður úr mér, mælti hann. En nú vil ég eigi lifa lengur, eins og ég hefi igert, — og því kom ég nú hingað! — Mér virðist þér eigi hafa ástæðu, til að kvarta yfir neinu, þar sem ég hefi veitt yður, sem itengdaföður mínum, nokkur eftir- laun, sem nægja til að lifa af, þótt há séu þau að vísu ekki! Og gætuð þér unnið eitthvað í spil- um —. — Já, igæti ég það! svaraði Studly. — En ég er nú ekki eins heppinn, og duglegur, eins og ég var, enda ekki eins liðugur í fingr unuim! Þess vegna skrifaði ég yð- ur! Hafið þér ekki fengið bréf firá mér? — Jú. — Sem forstjóri Middleman's bankans hljótið þér að hafa há laun! mælti Studly. Og nú ætlið þér einnig að kvongast! Já ég veit, hvað ég fer! Warner gerðist nú allórólegur. i— Hvaða giftingu eigið þér við? Kapteinninn tók bl'að upp úr vasanum. — Lítið á! mælti hann. — Það átendur hérna! — Fréttin er ekki sönn! mælti Warner. — Hún er alveg röng! Vitið þér, hvað ég var að gjöra á jámbrautarstöðinni, er þér hitt- uð mig? Kapteinninn leit spyrjandi á hann. — Ég var staddur þar, af því að ungfrú Middleman var að fara til Þýzkalands, og verður þar um óákveðinn tíma! En það hljótið þér að skilja, að hún myndi eigi hafa gert, hefði hún verið unn- ustan mín! Þetta er nú sannleik- urinn. Kauteinninn hristi höfuðið. — Getur vel verið, mæliti hann, — en það skiptir nú reyndar alls engu! Það er fortíðin, sem tengir okkur böndum, og ef þér íhugið, hvað ég gæti sagt, ef ég vildi — Wamer hrökk við, en er hann leit upp aftur, sá hann, að höfuð kapteinsins var sigið ofan á brjóst ið. Hann var hálfsofnaður. — Vínið hefir Þá verkað á hann, þótt ekki væri það meira, mælti hann við sjáTfan sig. — Bezt væri, að hann væri kominn í fjarlægt land, þar seim menn skilja síður mglið í honum! En hvað menn geta sokkið djúpt! Hann sat nú stundarkom, og starði á hann, en taldi að lokum réttast, að vekja hann. — Úff! sagði Studly, er Warn- er ýtti ögn við honum. i— Skyldi ég hafa sofnað? Jæja, það er þá vínið, og veizlukrásirnar, sem hafa valdið því! Allt kvöldið hefir verið svo unaðsríkt, að ég hafði næstum gleymt aðalatriðinu .— ég á við eftirlaunahækkunina! — Þér skuluð fá eftinTaunin hækkuð! svaraði iWarner stutt- lega. Hve mikið, get ég nú eigi sagt yður í svip! En ég vil — heyr ið þér það —, að þér búið á meg- inlandinu, en ekki í Englandi! Bregðið yður aftur til Ostende! Ég skal skri'fa yður. En takið nú við seðlinum þeim ama. Hann rétti kaplteininum nú tíu sterlingspunda seðil og kvöddust þeir síðan. Wamer stóð stundarkom, og horfaði á eftir honum. 1086 Lárétt 1) Hrópa,- 6) Piltur,- 10) Rot.- 11) Kemst.- 12) Rætt.- 15) Flækingur,- Lóðrétt 2) Ávarp.- 3) Aria.- 4) Tind- ur.- 5) Reiói.- 7) Hás.- 8) Spil.- 9) Kona,- 13) Svik.- 14) Draup.- Ráðning á gátu No. 1085 Lárétt 1) Bátur,- 6) Blikana.- 10) ÓO.- 11) Ól,- 12) Taflinu.- 15) Siðla,- Lóðrétt 2) Aði.- 3) USA.-4) Abóti,- 5) Valur,- 7) Lóa,- 8) Kál,- 9) Nón,- 13) Fri.- 14) 111.- V M 12 r" 15 |/v ■rl n rm HVELL G E I R I D R E K I ...merki frá yfirboðara þeirra, Trigon ''^Fljótur, læknir, inn'' i llÍlf IlfÍí Þriöjudagur 18. apríl. 7.00 Morgunútvarp. Morgun- stund barnannakl. 9.15. Viö sjóinn kl. 10.25: Ingólfur Stefánsson ræðir við Guðna Þorsteinsson fiskifræðing. Fréttir kl. 11.00. Stundarbil (endurtekinn þáttur F.Þ.). Endurtekið efni ki. 11.30: Hallgrimur Jónasson rithöf- undur flytur brot frá bern- skutið. (Aður útv. 25. febr. s.l,). 13.15 Húsmæðraþáttur. Dag- rún Kristjánsdóttir hús- mæðrakennari svarar bréf- um frá hlustendum. 13.30 Eftir hádegið Jón B. Gunnlaugsson leikur létt lög og spjallar við. hlustendur. 14.30 Norska skáldið Aas- mund Olavson Vinje. Guð- mundur Sæmundsson flytur siðara erindi sitt. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. 15.15 Miðdegistónleikar: Pianóleikur. 16.15 Veðurfregnir. Létt lög. 17.00 Fréttir 17.10 Framburðarkennsla Þýzka, spænska og esperanto. 17.35 útvarpssaga barnanna: „Steini og Danni i sveitinni” 18.00 Frcttir á ensku 18.10 Létt lög. Tilkynningar. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.30 Heimsmálin. Tómas Karlsson, Asmundur Sigur- jónsson og Haukur Helgason sjá um þáttinn. 20.15 Lög , unga fólksins. Ragnheiður Drifa Stein- þórsdóttir kynnir. 21.05 iþróttir Jón Asgeirsson sér um þáttinn. 21.30 Útvarpssagan: „Tónió Kröger” eftir Thomas Mann Gisli Asmundsson is- lenzkaði. Árni Blandon byrjar lesturinn. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Tækni og visindi.Páll Theódórsson eðlisfræðingur og Guð- mundur Eggertsson prófessor sjá um þáttinn. 22.35 Kammertónlist The Fine Arts kvartettinn leikur Strengjakvartett i Es-dúr op. 12 eftir Mendelssohn. 23.00 A hljóðbergi „The Great White Hope” eftir Howard Sackler, fyrri hluti. Leikrit þetta er byggt á sögu Jack Johnsons, fyrsta svert- ingjans sem varð heims- meistari i hnefaleikum. Meö aðalhlutverkið fer James Earl Jones. Leikstjóri er Edwin Sherin. 23.55 Fréttir i stuttu máli. Þriöjudagur 18. april. 20.00 Fréttir 20.25 Veður og auglýsingar 20.30 Smyglararnir. Fram- haldsleikrit frá danska sjón- varpinu eftir Leif Panduro. 1. þáttur. Maðurinn með hattinn.Leif Panduro hefur á undanförnum árum verið einn afkastamesti rit- höfundur Dana og samið jöfnum höndum sögur og leikrit, ýmist alvarlegs eðlis eða i léttum tón. Leikritið um smyglarana er saka- málaleikrit og greinir ann- ars vegar frá samkeppni og innbyrðis striði tveggja smyglhringa, og hins vegar frá tilraunum yfirvalda og einstaklinga, til að fletta ofan af starfsemi þeirra. (Nordvision — Sænska sjón- varpið). Þýðandi Dóra Haf- steinsdóttir. 21.20 Fljótalandið Guyana. Þriðja myndin i flokki fræðslumynda (Vattnets land), sem sænskir sjón- varpsmenn gerðu um dýra- og fuglalif i frumskógum Guyana i Suður-Ameriku. (Nordvision — Sænska sjón- varpið). Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson. 21.50 Setið fyrir svörum. Um- sjónarmaður Eiður Guðna- son. 22.25 Dagskrárlok

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.