Tíminn - 21.04.1972, Page 1

Tíminn - 21.04.1972, Page 1
BÍLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA N S£IÍDIBILASTÖÐIN HF EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR - Komið verði upp orkufrekum iðnaði við hverja stórvirkjun - sagði Magnús Kjartansson iðnaðarráðherra við þingsetningu ársþings iðnrekenda í gær ÞÓ—Reykjavik. Heildarútlán til iönaðarins (aö frátöldum byggingariðnaði) námu í árslok 1970 2.326 milljónum kr. eða 14.5% af heildarútlánum innlánsstofnana. t árslok 1971 voru þessi lán 2.465 millj. eða 12.6% og höfðu þau þvi lækkað hlutfallslega miðað við aðra lánaflokka. Stofnlán eru hér ekki meðtalin, en engu að slður er hér um að ræða þróun, sem er óviðunandi með öllu. Þess vegna beitti iðnaðarráðuneytið sér fyrir þvl að samið var frumvarp til laga um veðtryggingu iðn- rekstrarlána. Aö meginefni er frumvarpið á þessa leið: Iönfyrirtækjum er heimilt að setja banka eða sparisjóði að sjálfsvörzluveði hráefni, vörur I vinnslu og fullunnar, sem veðsali á eða eignast á tilteknu tlmabili, allt að einu ári I senn. Þetta kom m.a. fram I ræðu iðnaðarmálaráðherra, Magnúsar Kjartanssonar, við setningu árs- þing Félags Isl. iðnerkenda, sem haldið var i Reykjavik i gær. Arsþingiö var sett af formanni F.t.I. Gunnari J. Friðrikssyni. Sagði hann m.a. i ræðu sinni, að þróun efnahagsmála hér á landi hefði einkennzt af áframhaldandi hröðum vexti eftirspurnar og framleiðslu Aætlað væri, að þjóðarframleiðslan hefði aukizt um 9% á siðasta ári, og virtist það mesta aukning þjóðarframleiðslu I Evrópu. Þessu til stuðnings nefndi Gunnar nokkur dæmi um það. Gunnar sagði, að eins og un- danfarin ár hefði F.I.I. staðið, I samvinnu við Landsamband iðnaðarmanna, fyrir árs- fjórðungslegum könnunum um horfur og ástand í iðnaði. Benda þær upplýsingar til, að aukning iðnaðarframleiðslunnar sé um 12—15%. Einnig kemur fram, að framleiðsluaukning sé almenn. A síðasta ári nam útflutnings- verömæti iðnvarnings, að áli undanskyldu, 889 millj. kr., og hafði aukizt um 227 milljónir frá fyrra ári. A eftir Gunnari J. Friðrikssyni, tók iðnaðarráðherra, Magnús Kjartansson, til máls og ræddi hann mikið um framtfð Islenzks iðnaðar, m.a. stóriðju, og stór- virkjanir. I þvi sambandi sagði hann m.a.: „Vandi okkar i sambandi við stórvirkjanir er sá, að markaðurinn innanlands er enn mjög lltill, og þvi verður að leggja höfuð áherzlu á að koma upp orkufrekum iðnaði I sam- bandi við hverja stórvirkjun. Þá skiptir meginmáli, að sllkur iðnaður skili sem mestum arði til Islendinga, þótt sjálfsagt sé að leita eftir samvinnu við erlenda aðila um fjármagn, tækni- þekkingu og markaði. Slíkar samningaviðræður við marga aðila hafa staðið yfir að undan- förnu, og hefur sérstök nefnd á vegum ráðuneytisins annazt þær. Ráðherra ræddi um væntan- legan stóriðnað og minntist á sjó- efnaiðnaðinn og þær rannsóknir, sem hafa staðið yfir um alllangt skeiö og virðast ætla opna mjög álitlegt svið. Þá sagði ráðherra, að einnig stæðu yfir rannsóknir á gosefnum, og minntist hann á perlustein, vikur og önnur frauð- kennd efni frá gosstöðvunum. Einnig er væntanlegur hingað sérfræðingur frá SÞ til aö kanna möguleika á að vinna frumefnió titan úr sandi, sem ekki slzt mun kominn úr Kötlugosum. Magnús sagði, að þegar þeim virkjunarframkvæmdum, sem nú standa yfir, væri lokið, yröi vinnslugeta vatnsaflstöðva á tslandi ekki nema 8.2% þeirrar vatnsorku, sem talið er borga sig virkja. Arsþingi iðnrekenda lauk slö- degis i gær, og i stjórn F.t.I. voru kosnir Gunnar J. Friöriksson for- maður, og meðstjórnendur Davíð Sch. Thorsteinsson og Björn Þorláksson, Varamenn I stjórn voru kjörnir Pétur Pétursson og Björn Guðmundsson. Fyrir i stjórninni sem meöstjórnendur eru: Kristinn Guöjónsspn og Haukur Eggertsson. Laxness 70 ára Heiðursborgari og doktor SJ—Reykjavlk Sjötugsafmælis Halldórs Laxness á morgun, 23. aprll, veröur minnzt á marg- vlslegan hátt. Laxness hefur verið kosinn heiðursborgari Mosfellshrepps og verður afhent bréf þess efnis i kaffi- samsæti hreppsnefndarinnar I dag. A morgun verður hann sæmdur heiðursdoktorsnafn- bót Háskóla tslands á hátlðarsamkomu i Háskóla- blói. Annað kvöld er frum- sýning I Þjóöleikhúsinu á leikritinu Sjálfstæðu fólki, Atómstööin verður leikin í Iðnó sama kvöld, en I kvöld sýnir Leikfélag Reykjavíkur Kristnihald undir Jökli I 137. sinn A mánudagínn hefst sýning á verkum rit- höfundarins I Landsbóka- safninu, m.a. handritum og þýðingum. A mánudag kl 5 siðdegis hefur rikisstjórnin boö inni I ráðherra- bústaönum, skáldinu til heiðurs. Bókaútgáfan Helgafell hefur gefið út Skeggræður gegnum tlðina, viðtalsbók þeirra Matthíasar Jóhan- nessens ogHalldórsLaxness, og Norðanstúlkuna, leikrits- gerð Atómstöðvarinnar, og senn kemur Bjartur I Sumarhúsum og Blómiö, leikhandritiö að Sjálfstæöu fólki. Þá er komið út auka- hefti af tímaritinu Scan- dinavlca, sem gefið er út I London, Er það helgaö Laxness I tilefni af sjötugsaf- mælinu. Einnig mun Bókaút- gáfa menningarsjóðs gefa út á þessu ári safn ritgeröa Laxness um Islenzk skáld og rithöfunda. Hannibal segir að leggja eigi Húsnæðismálastofnun niður - og færa verkefni hennar inn í bankakerfið — Reykjavik. Hannibal Valdimars- son félagsmálaráð- herra sagði á Alþingi i gær, að sú væri skoðun sin, að leggja ætti Húsnæðismála- stofnun rikisins niður og færa verkefni hennar inn i banka- kerfið. Sagði ráðherr- ann þetta, þegar hann mælti fyrir stjórnar- frumvarpinu um breyting á lögum stofnunarinnar, þar sem m.a. er lagt til að lánafyrirkomulag stofnunarinnar verði réttlátara. Nokkrar umræður urðu i þing- inu I gær, þegar þetta frum- varp var á dagskrá. Ólafur G. Einarsson (S) vakti á þvi at- hygli, að með frumvarpinu væri verið að draga úr fjár- magni Byggingasjóðs, og spurðist fyrir um það, á hvern hátt ríkisstjórnin ætlaði aö leysa fjárþarfarvandamál sjóð- sins. 1 þessum umræðum upplýsti Hannibal Valdimarsson félags- málaráðherra, að tekjur Hús- næöismálastofnunar á þessu ári væru áætlaðar 1 milljarður og 13 milljónir króna, en samt sem áður væri um verulegan fjár- skort að ræða, enda hefði I tlð fyrrverandi ríkisstjórnar þannig veriö staöiö að þessum málum, að tekjur stofnunar- innar hefðu verið étnar fyrir- t gær voru kunngerð úrslit I skoðanakönnun Timans um „Hand- knattieiksmann ársins”. Var Geir Hallsteinsson, handknatt- leiksmaður úr FH, kjörinn, en þetta er I þriðja sinn, sem Geir hlýtur þetta sæmdarheiti. A myndinni sést Indriði G. Þorsteinsson, ritstjóri, afhenda Geir styttu þá,sem keppt var um. Sjá nánar á bls 11. (Tfmamynd GE).

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.