Tíminn - 25.04.1972, Side 1

Tíminn - 25.04.1972, Side 1
BÍLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA N S£MVBJLASTÖDIH HT EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR ■- 92. tölublað — Þriðjudagur 25. april 1972 — 56. árgangur. Utanríkisráðherrarnir sem komu til Reykjavíkur i gærkvöldi. F.v. Sorsa utanrikisráðherra Finna, þá Cappelen utanrikisráðherra Noregs og VVickman utanrikisráðherra Svia. Til hægri við ráðherrana eru sendiherrar Noregs og Sviþjóöar á tslandi. (Timamynd Gunnar) Norrænu utanríkisráðherr Reykjavík KJ-ReykjavIk. 1 dag verður árlegur vor- fundur utanrlkisráðherra Norðurlandanna haidinn i Reykjavik og sitja allir nor- rænu utanrikisráöherrarnir fundinn. Um tima leit út fyrir að ein- hver forföll yrðu á fundinum, vegna þoku, sem hamlaði flugi á SV landi I dag, en klukkan kortér fyrir sjö renndi Boeing- þota Flugfélagsins sér niður á Viöurkenning Austur- Þýzkalands verður til umræðu á fundinum, eftir þvi sem K.B. Andersen utanrikisráöherra Dana hefur látið hafa eftir sér. Þá má búast við aö Stokk- hólmsráöstefna Sameinuöu þjóðanna um mengun og um- hverfisvernd veröí til umræðu hjá ráðherrunum, meö tilliti til þátttöku i Stokkhólmsráð- stefnunni. Reykjavikurflugvöll, en innanborðs I henni voru m.a. utanrikisráöherrar Finnlands, Sviþjóðar og Noregs. Utan- rikisráðherra Dana kom hingað á sunnudaginn. I gær unnu embættismenn að undirbúningi dagskrár fundarins, en utanrikisráðu- neytið gat ekki I dag, gefið upplýsingar um einstok mál, sem verða þar til umræöu. Alls munu 43 sitja utanríkis- ráðherrafundinn, sem haldinn verður i Atthagasal Hótel Sögu, og hefst klukkan hálf tiu. Ráðgert er að fundinum ljúki siðdegis i dag, og strax á eftir veröur efnt til blaðamannafundar, þar sem skýrt verður frá niðurstööum fundarins. Kjarval jarðsetturá miðvikudag SJ-Reykjavik. tltför Jóhannesar Kjarvals iist- málara fer fram kl. 11 á miöviku- dagsmorgun frá Dómkirkjunni. Jaröarförin veröur á kostnað rikisins I virðingarskyni við hinn látna. Kjarval verður grafinn I Gamla kirkjugaröinum viö Suðurgötu. Torfbærinn brann til kaldra kola Klp-Reykjavik. 1 fyrrinótt brann bærinn Bakkagerði viö Hjalteyri til kald- ra kola. Bærinn, sem var gamall torfbær, hefur undanfarin ár verið notaður sem sumarbú- staður og mun eigandinn hafa verið I honum um helgina, en enginn var þar þegar eldurinn kom upp. Eldurinn sást frá lögreglustöð- inni á Akureyrþen þá var búiö aö gera viövart. Þegar slökkviliöið kom á staöinn var húsiö brunnið, enda logaöi vel i margra ára gömlu timbrinu og torfinu. Halldór Laxness í ávarpi til Háskóla íslands NEFNDU NAFNIÐ MITT EF ÞÉR LIGGUR LÍTIÐ VIÐ OÓ-Reykjavík. — Nefndu nafnið mitt ef þér liggur Htiö við, sagði Halldór Laxness við Háskóla islands er, hann var sæmdur heiðurs- doktorsnafnbót á sjötugsafmæli sinu sl. sunnudag. Löng biðröö var við samkomu- hús lláskólans við Hagatorg löngu áður en hátiðarsamkoman hófst. Þegar afmælisbarniö, forseti íslands og háskólarektor gengu i salinn, var hann þétt- setinn fólki á öllum aldri og áttu liklega allar starfsgreinar sina fulltrúa þarna. Margt var til skemmtunar. Magnús Már Lárusson, háskólarektor, setti samkomuna I himinblárri og skinnbryddaðri skykkju sinni. Þá sté forseti Heimspekideildar, Sveinn Skorri Höskuldsson, á svið og lýsti kjöri heiðursdoktors. Rakti hann for- sendur þeirrar ákvörðunar Háskóla íslands, Heimspeki- deildar og Rannsóknarstofnunnar I bókmenntafræði, aö kjósa Hall- dór Laxness Doctor litterarum Islandicarum honoris causa, og afhenti skáldinu doktorsskjal. Forseti Heimspekideildar gekk af sviðinu og eftir stóö nýkjörinn heiðursdoktor. Hann sagði: „Háttvirti forseti Islands, Rektor Háskóla Islands, Háttvirti forseti Heimspekideild- ar Háskóla tslands, Háttvirta samkoma. ÉG vil leyfa mér aö þakka Háskóla Islands og Heimspeki- deild Háskólans fyrir þann ein- staka virðingarvott, sem mér hefur verið sýndur á þessum degi, þar sem ég hef verið kallaður hingaö á svæði Háskólans til þess að taka á móti einstakri heiöurs- viðurkenningu. Ég er ekki háskólamaöur, þó að ég hafi orðið var við það aftur og aftur, að Háskóli tslands hefur lagt fram, eða stutt með meðmæli sínu, nokkra þá hluti, þar sem mitt nafn var við bendlað, þá er það I raun og veru i fyrsta skipti i dag, sem fundum minum og Háskól- ans bera saman. Ég vil leyfa mér að óska Háskólanum til hamingju með, aö ég hygg, þá nýbreytni, að ljá áhrifavald sitt, til þess að veita viöurkenningu mönnum, sem kannski um langan aldur hafa starfað að menningarstörfum, sem þó ekki tilheyra I raun réttri neinni skýrt afmarkaðri grein, sem Háskólinn hefur afmarkað sér. Ég veit ekki hvort þessari heiðurs nafnbót fylgir jus docendi, hvað sem það er, þá veit Háskólinn nú hvar mig er að finna og ég segi eins og gamla fólkið sagði stundum við mann: Nefndu nafnið mitt ef þér liggur litiö viö.” Siöan hófst söngur á ljóðum og upplestur á sögum eftir Halldór Laxness. Halldór Laxness ávarpar samkomuna f Háskólabióiá sunnudaginn. (TímamyndG.E.)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.