Tíminn - 26.04.1972, Qupperneq 16

Tíminn - 26.04.1972, Qupperneq 16
16 TÍMINN Miövikudagur 26. april 1972 Umsjón: Alfreð Þorsteinsson HREINAR UNUK FENGUST Á BOTNINUM I 1. DEILD 1 — Borgnesingar falla í 2. deild, en Njarðvíkingar flytjast upp í 1. deild Allmargir leikir fóru fram körfuknattleiknum um helgina, og fengust þá hreinar linur á botninum i 1. deild, þar sem Borgnesingar uröu neöstir og falla niöur i 2. deild. Kinnig fékkst úr þvi skoriö, hvaöa liö flyt/.t upp i 1. deild úr 2. deild, en þaö er liö UMKN (Ungmcnnafélag Njarð- vikur). Ilér á eftir fer umsögn um leik- ina. Litum fyrst á úrslitaleikinn i 2. deild milli UMFN og Snæfells: UMFN-Snæfell Þessi leikur sýndi greinilega hve mikið bil er á milli fyrstu og annarrar deildar. Bæði liðin leika körfubolta, sem er langt frá þvi að geta talizt boðlegur i fyrstu deild. Snæfellingar hafa litla aðstöðu i sinum heimahögum til að taka út þroska, bæði vegna ónógrar að- stöðu, og einnig vegna örfárra leikja á ári. Fyrir utan það, að þeirra bezti maður um árabil, Sigurður Hjörleifsson, leikur nú með Val. F'orráðamenn UMFN eru nú vonandi að vakna og sjá, að upp- bygging yngri flokkanna er algert skilyrði til að hægt sé að leika körfubolta i meistaraflokki, enda eiga þeir bráðefnilegt lið i fjórða flokki. Þetta liö UMFN i meistaraflokki er ekki til neins annars en aö rokka milli deilda. Beztu menn UMFN i þessum leik voru eins og svo oft áöur i vetur, Brynjar og miðherjinn þeirra, en hann mætti vera miklu harðari af sér. Það er ekki við þvi að búast, að getan sé mikil hjá Snæfelli, og 71- 39 eru þvi sanngjörn úrslit. Þó má geta þess, að Hólmurum er ekki alls varnað i körfubolta, þvi að fyrir tveimur árum unnu Fram stofnar skíðadeild Knattspyrnufélagið Fram boðar til fundar að Hótel Esju i kvöld kl. 19.30 . A dagskrá fundarins verð- ur stofnun skiðadeildar. Fru Framarar hvattir til að fjölmenna á fundinn. stúlkurnar i öðrum flokki Islands- mótið, og voru vel að sigrinum komnar. UMFS-IISK Fallbaráttan var i algleymingi þetta kvöld, þvi að þar léku tvö neðstu liðin hvort gegn öðru, UMFS og HSK. UMFS-liðið hafði fjögur stig eftir sigur yfir stúdentum kvöldið áður, en HSK sex, og þurftu Borgnesingar að sigra i þessum leik til þess að fá hreinan úrslitaleik við HSK. Leikurinn var lika æsispennandi allt frá byrjun til loka. UMFS átti þó alltaf frumkvæðið i fyrri hálf- leik, og staðan þá var 43-36, þeim i hag. Það Voru fyrstu minúturnar i seinni hálfleik, sem gerðu alveg út um leikinn, þvi að á timabili hittu Borgnesingar ekki hót, og staðan breyttist þeim i óhag, 50- 44. Það virtist breyta litlu þótt Gunnar Gunnarsson hitti alveg óstjórnlega vel. En það er erfitt að ráða við Einar Sigfússon undir körfu i vörninni, þvi að þessi frá- kastsjötunn gengur hart fram og sýnir þó litil svipbrigði. Það var ekki fyrr en Einar fór út af, að Borgnesingum tókst að jafna, 68- 68, en timinn var naumur, og HSK-menn höfðu boltann, þegar staðan var 74-74, og þótt Anton Bjarnason væri einnig kominn út af, meö 5 villur, þá skoraði Þórður Óskarsson enn eina körfu fyrir HSK, og var það úrslita- karfa leiksins. Gunnar Gunnarsson átti af- bragðsgóðan leik og skoraði 30 stig, en Anton Bjarnason 25 stig fyrir HSK. Borgnesingar áttu setu i annarri deild í eitt ár, og svo fóru þeir beint upp. Það er eftirsjá að þessu liði, þvi að það stendur hin- um liðunum ekkert að baki. Það eina sem háir þvi er alltof litið húsnæði, en vonandi rætist úr þvi, þvi að á næsta ári á að risa i Borgarnesi iþróttamiðstöð fyrir Vesturland. Leikurinn milli KR-Þór Það er hæpið að IR-ingar geri nokkurt strik i reikninginn i úrslita-leiknum gegn KR um næstu helgi um fyrsta sætið i 1. deild. Það er langt siðan KR-ingar hafa sýnt svona sannfærandi leik eins og þeir sýndu þetta kvöld. Hraðupphlaupin, sem liðið sýndi er óvanalegt að sjá af þeirra hálfu, enda hefur liðið fengið það orð á sig að vera þungt lið, þó að það ætti innan sinna vébanda menn, sem ekki skorti hraða. Lita ber einnig á að mótstaðan var með minna móti þetta kvöld og Þórsarar höfðu litlu að tapa og ekkert að vinna. Þetta kvöld var einn maður i KR-liöinu, sem bar af og var það hinn ungi Bjarni Jóhannsson. Hann átti skinandi leik, náði frá- köstum og skoraði einnig mikið, — eða 32 stig. Annars átti KR-liðið allt góðan leik, og er gaman að sjá risana i KR berjast um fráköstin, en þeir hafa litið gert að þvi i vetur, — en þeir eiga að ná svo að segja öllum fráköstum i vörn. KR-ingar náðu þvi eftirsótta marki, að komast yfir 100 stigin, en þennan leik unnu þeir 105-73. Guttormur og Jón Héðinsson voru beztu menn Þórs og skoruðu þeir samtals 40 stig. ÍR-Stúdentar IR-ingarnir ætluðu að verða seinir i gang gegn Stúdentunum, þvi stúdentarnir höfðu yfir þegar nokkuð var liðið á seinni hálfleik. Þessi kafli stóð þó ekki það lengi, að liðið væri i baráttu á siðustu minútunum, þvi að áður en varði voru þeir komnir langt yfir og sigruðu með miklum mun, eða 91- 64. Þessir dauðu kaflar hjá IR-ing- um geta orðið þeim skeinuhættir um næstu helgi i leiknum gegn KR. Birgir Jakobsson var sá maður, sem IR-ingar geta þakkað sigur- inn þetta kvöld, en hann er sá maður, sem sjaldan bregzt. Stigahæstir i 1R þetta kvöld voru Agnar og Kristinn Jör., en þeir berjast um annað og þriðja sætið i stigaskorun, ásamt Einari Bolla- syni, en Þórir Magnússon er þar langhæstur á blaði með 29,3stig að meðaltali i leik i vetur, sem er mjög gott. Beztu menn stúdenta i þessum leik voru Bjarni og Stefán, en Stefán hefur leikið þá stöðu i vetur, sem hentar honum mun betur en framh. eða miðh.staðan, gjafir hans eru mjög góðar og ég man ekki eftir þvi, að hann hafi misst boltann úr höndum sér i allan vetur. Bjarni er sivaxandi leikmaður og hefur tekið ótrúlega miklum fram- förum i vetur. Leikur Ármanns-Þórs Það var eins og svo oft áður, að Armenningar hófu leikinn af miklum krafti og eftir örstutta stund var staðan orðin 12-2. Allt Armannsliðiö var mjög sannfær- andi fyrstu minúturnar. Leikið var upp á að láta Björn Ch. skjóta, og ef hann hitti ekki þá var Birgir Birgis kominn inn i teig og hirti frákastið, og er langt siðan ég hef séð Birgi i öðrum eins ham. Leikurinn átti þó eftir að jafnast, eins og staðan i hálfleik benti til: 38-32. Að öllum likindum hefur ráðið úrslitum i fyrri hálfleik að Gutt- ormur Ólafsson úr Þór hitti sára- litið og jafnvel einföldustu skot brugðust honum, en hann hitti ekkert úr sjö fyrstu skottilraun- um sinum. Armenningar skoruðu fyrstu körfu i siðari hálfleik og þeir áttu eftir að halda forustunni i sinum höndum allan leikinn út i gegn. Leiknum lauk með tölunum 80-69 og sigur Armenninga var aldrei i hættu. Það var búizt við liði Þórs sterkara i þessa keppni, og hafa þeir fengið allt of litið út úr leik sinum. Vörn Armanns var fyrst i stað svæðisvörn 2-3, þvi að öllum likindum hafa þeir óttazt hina stóru menn Þórsaranna undir körfunni og ætlað að tryggja sér frákastið, seinna breyttu þeir yfir i „maður á mann” undir körfu. Sókn Armenninga var að nokkru útilokanir á kantinum fyrir skot- mennina Björn og Hallgrim. Bæði liðin léku óreglulegan miðherja, Birgir Birgis út á kanti sem skotmaður, en Jón Héðinsson undir körfu og var mjög gaman að sjá leik hans gegn Birgi, en þarna voru á ferðinni tveir mið- herjar mjög álika að stærð og stökkkrafti. Jón virðist hafa tileinkað sér ýmsa takta Stefáns i KR, sem áður var leikmaður með Þór. Þar á meðal tveggja handa sniðskot upp við körfu eftir jafnvægisleysi varnarmiðherjans. Þessi skot eru ágæt, en Jón mætti gera meira að þvi að taka stökkskot af nokkru færi. Vörn Þórs var allan leikinn 2-3. I lokin er vert að minnast á snilldarlegan leik Sveins Ch. 1 þessum leik, og reyndar i allan vetur, er Sveinn að likindum eini leikmaðurinn, sem hefur leikið frákastið eins vel og bezt er hægt að leika það. Leikur ÍS-UMFS í þessum leik var spurningin hvort UMFS tækist að vinna og þar með að siðasti leikurinn,- leikurinn milli UMFS OG HSK yrði hreinn úrslitaleikur, sem og varð, þvi að leiknum lauk með sigri UMFS, eftir að staðan i hálf- leik var jöfn 39-39. Leikurinn var æsispennandi allan leikinn og mátti ekki á milli sjá, hvort liðið mundi sigra, en nú, i fyrsta skipti i allan vetur, biluðu taugar stú- dentaliðsins á siðustu minút- unum. Sókn UMFS var að nokkru leyti frjáls og hornin notuð mikið og eins útilokanir fyrir Gunnar Gunnarsson, sem var i essinu sinu allan leikinn og skoraði ara- grúa stiga af löngu færi. Spil UMFS virðist léttara núna seinni- partinn i vetur en fyrr, og ræður ef til miklu, að nýr liðsstjóri er tekinn við liðinu nú. Vörn UMFS var 2-3 út allan leikinn og gafst vel og áttu þeir allir skinandi leik i vörninni, sér- staklega Pétur. Sókn 1S byggðist mikið upp á hreyfingum tveggja miðherja þeirra, annar lék lágan miðherja en hinn miðju miðherja. Hreyfingar þeirra voru yfirveg- aðar og um tima hélt maður að þeir myndu ráða úrslitum i leikn- um, en vörn UMFS átti eftir að þéttast. Vörn 1S var einnig 2-3 og gafst hún nokkuð vel, en enginn má við Borgnesingum i bana- stuði. Beztu menn voru Gunnar og Pétur og hjá stúdentum var Bjarni afgerandi maður. -ebj. Þróttur og Armann gerðu jafn- tefli 1:1 i Reykjavikurmótinu i knattspyrnu. Leikurinn, sem var leikinn á Mclavellinum s.l. mánu- dagskvöld — var mjög fátæk- legur. Eitt mark var skorað i fyrri hálfleik og skoruðu Þróttarar það. Helgi Þorvaldsson tók horn- spyrnu á 35. min. — knötturinn barst til Guðmundar Gislasonar, sem skoraði með skalla. Þróttarar áttu meira i hálfleikn- um — þótt þeir léku á móti vindi og rigningaskúrum. 1 siðari hálfleik náðu Armenningar smám saman tökum á leiknum —og á 18. min. tókst þeim að jafna. Benedikt Sigurjónsson (áður Þrótt Nes.) skoraði markið af 30 metra færi — knötturinn sveif yfir markvörð Þróttar óla Viðar, sem misreikn- aði skotið, sem lenti efst i hliðar- netinu. Ólafur Karlsson, verkstjóri, er spámaður á siðasta getrauna- seðlinum að sinni, en á honum eru blandaðir leikir, þ.e. islenzkir, enskir, skozkir og danskir leikir. Ólafur fylgist með ensku knatt- spyrnunni, eins og svo ótal marg- ir aðrir, og er tiður gestur á knattspyrnuvöllunum i Reykja- vik, þegar leikir i Reykjavikur- Og IslandsmÓtí fara frnm- Leiklr 6. og 7. maí 1972 1 X 2 Þróttur — Fram1 I.B.H. — l.B.K.2 ( I.A. — Breiðablik2 l Arsenal — Leeds3 / Celtic — Rangers/Hibs4 / Randers — Vejle6 / B 1901 — A.G.F.5 r B 1903 — Hvidovre5 )( Frem — Kögen / B 1909 — Brönshöj5 í Silkeborg — Svendborg6 / Álborg — Slagelse0 n X. 1 Fyrsta fimmtudags mótið á morgun Fyrsta Fimmtudagsmót sumarsins i frjálsum iþróttum fer fram á morgun á Melavellinum og hefst kl. 18.30. Keppt verður i lOOmetra hlaupi karla og kvenna, kúluvarpi karla og kvenna og kringlukasti karla. Það var fátt um fina drætti i leiknum — og þegar á þennan leik og þá leiki, sem hafa verið leiknir i Reykjavikurmótinu — er litið, má segja að knattspyrnan i höfuðborginni eigi langt i land, til að ná þeim gæðum, sem liðin geta sýnt. Einhver deyfð er yfir lið- unum — en vonandi fara þau að sýna þá knattspyrnu, sem vitað er að þau geta leikið. SOS. Fundurí fulltrúa- ráði Fram Fyrsti fundur nýskipaðs full- trúaráðs Knattspyrnufélagsins Fram verður haldinn að Hótel Esju kl. 20.30 i kvöld. Fulltrúaráðsmenn eru hvattir :il að fjölmenna. tslandsmótið i fimleikum hefst i kvöld í Laugardalshöllinni kl. 20. Mikil þátttaka er i mótinu og er ekki að cfa, að margir munu fylgjast með mótinu, en fimleikar eru taldir einhvcr fegursta iþrótt, sem iðkuð er i dag. FflTT UM FÍNfl DRÆTTI - þegar Þróttur og Ármann léku

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.