Tíminn - 26.04.1972, Síða 20
Norðanmenn ryðjast áfram
þrátt fyrir sprengjuregn
- Erlendir borgarar fluttir brott frá Kontum
NTB-Saigon
Bandarlskir og evrópskir
borgarar voru i gær fluttir frá
borginni Kontum í miðhálendi S-
Vietnam, meöan stjórnarherinn
bjó sig undir að mæta skriödreka-
sveitum norðanmanna skammt
noröan við borgina, en herinn
ruddist þar fram eftir þjóð-
vcginum og þúsundir flótta-
manna fóru á undan.
Samkvæmt heimildum eru i
þessum her norðanmanna um
4000 fótgönguliðar, studdir skrið-
drekum og stórskotaliði.
Kommúnistar hafa fram að þessu
náð að minnsta kosti niu stöðvum
á hálendinu og farið framhjá
fimm öðrum, þrátt fyrir
stanzlaust sprengjuregn
bandariskra flugvóla.
Ein stórsveit úr her S-VIetnam
hefur heitið, að verja bæinn Dak
To, 40 km NV af Kontum, „til
siðustu stundar” þrátt fyrir fyrir-
skipanir um, að hörfa.
Dak To er umkringd og sam-
kvæmt sumum fréttum er bærinn
NTB-Houston
Dremenningarnir i Apollo 16.
fengu að sofa fram yfir áætlun,
meðan geimfarið bar þá nær
jörðu. Klukkan 20 i gærkvöldi fór
Mattingly i gönguferð i geimnum
þegar fallinn.
Nú hafa norðanmenn setið um
An Loc i 19 daga og segja
heimildir, að þar standi varla
steinn yfir steini, en samt er
barizt þar grimmilega um allar
götur.
til að sækja 2 km af filmum, sem
voru i hylki utan á farinu.
Hraðinn var þá 48 þús. km á klst.
Búizt er við góðu veðri á
lendingarsvæðinu á morgun.
Staðurinn er um 2400 km sunnan
við Honolulu.
Allt í lagi um borð
I fótspor innbrotsþjófs
OÓ-Heykjavik.
Hann þóttist öruggur með sig
náunginn, sem var aö bera segul-
bandstæki milli húsa i Ileykjavik
s.l. sunnudag,en einhverjum, sem
til sá, þótti hann grunsamlegur og
lét lögregluna vita. Kom i ljós, að
þarna var stolið tæki, og var
þjófurinn að koma þvi i örugga
geymslu.
Seguibandstækinu var stoiið i
heildverzlun J.P. Guðjónssonar
við Skúlagötu S.febrúar s.l. en þá
var brotizt þar inn og stolið segul-
bandstækjum að verðmæti 119
þús. kr. En það tæki sem nú kom i
leitirnar, er stórt og kostar 40 þús.
kr. Sá handtekni harðneitaði aö
hafa stolið öðru úr verzluninni og
viðurkennir jafnvel ekki að hafa
brotizt þar inn.
Hann segist hafa verið á gangi
framhjá verzluninni umrædda
nótt, og séð brotinn glugga, sem
hægt var að komast inn um. Fór
hann inn, leizt vel á umrætt tæki
og labbaöi með það út um
gluggann. Hins vegar segir hann,
áö sér hafi aldrei dottið i hug, að
fara að brjótast inn.
Sá sem greiddi götuna fyrir
siðari þjófinn, stal nokkrum
minni segulbandstækjum.
Farið hefur verið fram
á mun meiri hækkanir
en leyfðar hafa verið
OÓ-Heykjavik.
Viðskiptaráðuneytið lét
gera yfirlit um helztu ákvarð-
anir verðlagsnefndar og ráðu-
neyta um hækkanir, sem
leyfðar hafa verið á vörum og
þjónustu eftir 4. des. 1971,
vegna fyrirspurnar Gylfa. Þ.
Gislasonar, á Alþingi um
verðlagsmál. Astæðan fyrir
þeim hækkunum, sem leyfðar
hafa verið eru vegna hækkun-
ar vinnulauna, lækkunar á
niðurgreiðslum, hækkana á
einstaka vörutegundum á
heimsmarkaði og aukins
rekstrarkostnaðar fyrirtækja.
1 allmörgum tilfellum hefur
verið farið fram á leyfi til mun
meiri hækkana, en leyfðar
voru.
14. des. 1971 samþykkti
verðlagsnefnd að Meistara-
félagi by gginga ma nna ,
Meistarafélagi járniðnaöar-
manna og Bilgreinasamband-
inu að hækka útsöluverð um
5% vegna nýgerðra kjara-
samninga.
I. febrúar lá fyrir beiðni
kexverksmiðjanna um 12%
hækkun og var hún heimiluð.
Astæðan var veruleg hækkun
á sykri á heimsmarkaðsveröi
og vinnulaunahækkunin i des.
s.l.
Ofnasmiðjan bað um 12.6%
hækkun á framleiðsluvörum
sinum vegna hráefnahækkana
og vinnulaunahækkana. Var
12% hámarkshækkun leyfð.
II. febrúar var brauð-
gerðarhúsum heimilað að
hækka framleiðsluvörur sinar
um 12% til 13%, en þó vinar-
brauð um 19%. Bakarar fóru
fram á 24% til 32% hækkun.
Ástæðan fyrir hækkuninni
voru kauphækkanirnar 1. jan.
og hækkun á efnisvörur til
brauðgerðar, sérstaklega
verðhækkun á sykri.
Beðið var um 35-50% hækk-
un á oliuflutningum innan-
lands með skipum, en rikis-
stjórnin ákvað 20% hækkun
vegna hallareksturs skipanna
á s.l. ári og aukins reksturs-
kostnaðar, m.a. vegna launa-
breytinga.
Hárskerameisturum var
heimiluð 21.7% hækkun.
12. jan. var samþykkt aö
hækka hámarksverð á unnum
kjötvörum frá 8.4% til 18% i
smásölu, og var þá reiknað
meö óbreyttri 'smásölu-
álagningu i krónum. Astæðan
var lækkun á niðurgreiðslum á
kjöti og hækkun á vinnulaun-
um.
Fyrirtækjum i málmiðnaði
og öðrum hliðstæðum rekstri
var heimilað að hækka álagn-
inguna um 69 kr. á hverja
unna klukkustund, miðað við
þriggja ára svein, en farið var
fram á 104 kr. álagningu.
Beðið var um 61 kr. hækkun
á álagningu i byggingariðnaði
miðað við unna klukkustund,
en leyfð var 25 til 30 kr. álagn-
ing.
Heimiluð var hækkun á fiski
til neyzlu innanlands um 7.3%
til 10.9% og var ástæðan hækk-
un fiskverðs og einnig smá-
vægileg hækkun álagningar,
sem þýðir hækkun á launum
fisksalans.
25. febrúar fengu veitinga-
hús leyfi til að hækka verð á
veitingum, annarra en áfengis
öls og gosdrykkja. Farið var
fram á 14% hækkun en 10%
hækkun leyfð.
Eigendur leigu- og sendibila,
báðu um 9,3% hækkun en var
heimiluð 8% hækkun, vegna
hækkunar á vinnuliðum i
rekstrargrundvelli og hækkun
erlendis á bilum og varahlut-
um.
Hárgreiðslustofum var leyfð
21,7% hækkun á þjónustu, en
farið var fram á 60-70% hækk-
un.
3. marz var leyfð hækkun á
unnum kjötvörum sem nam
9,5-12,1% vegna verðákvörð-
unar Framleiðsluráðs land-
búnaðarins á landbúnaðarvör-
um 1. marz.
Finpússningagerðin fór fram
á 25% hækkun 10. marz. Rikis-
stjórnin ákvað 10% hækkun.
Björgun h.f. bað um að fá að
hækka verð á sandi um 24,2%
og á möl 33%. Rikisstjórnin
leyfði 10% hækkun.
Steypustöðvar fóru fram á
34-39% hækkun, en fengu að
hækka um 10%.
Bilaryðvörn og Ryðvörn h.f.
báðu um 10-13% hækkun, al-
gengust 6-8% hækkun, en
fengu heimild til allt að 10%
hækkunar.
Beðið var um 28-30% hækk-
un á öli og gosdrykkjum, en
heimilað var 12% hækkun
vegna verulegrar hækkunar á
sykri og á vinnulaunum.
Heimiluð var 13-15% hækk-
Framhald á bls. 19
Taka
varð
fótinn af
konunni
DÓ-Reykjavik.
Aðfaranótt föstudagsins
21.april s.l. skaut maður á
eiginkonu sina með hagla-
byssu og lentu öll höglin i
öðrum fæti hennar. Var sárið
svo mikið að taka varð fótinn
af konunni og var aðgerðin
framkvæmd i Borgar-
spitalanum i fyrradag. Hlaup
byssunnar var rétt við hné
konunnar, þegar skotið reið
af, og lentu höglin i
hnjáliðnum og umhverfis
hann.
Eins og sagt var frá i
Timanum varð atburður þessi
i svefnherbergi hjónanna.
Kvöldið áður voru þau i sam-
kvæmi, en þegar þau komu
heim um nóttina sinnaðist
manninum eitthvað við
konuna og endaði það með þvi,
að hann greip haglabyssu,
sem hann átti, hlóð hana, og
veifaði vopninu i svefn-
herberginu fyrir framan konu
sina, og svo fór að skot hljóp i
fót hennar.
Fór þá maðurinn út, en 15
ára gömul dóttir þeirra,
vaknaði og hringdi þegar i lög-
reglu og sjúkralið. Var konan
flutt i Borgarspitalann, en er
lögreglumenn voru enn að
rannsak vettvang, kom
maðurinn heim. Viðurkenndi
hann þegar, að vera valdur að
meiðslum konu sinnar. Var
hann úrskurðaður i 6 vikna
gæzluvarðhald.
Konan er 33 ára gömul en
maðurinn 37 ára.
J
.. ...——— 1 N
Miðvikudagur 26. april 1972
-
Svart: Reykjavik: Torfi
Stefánsson og Kristján Guö-
mundsson.
ABCDEFGH
Hvftt: Akureyri: Sveinbjbrn
Sigurðsson og: Hólmgrimur
Heiðreksson. *
14. leikur Reykjavikur: Bc8 % e6
Chi-Chi er að
deyja úr elli
SB-Reykjavik
Pandabirnan Chi-Chi, sem búið
hefur i dýragarðinum I London i
12 ár, virðist nú komin að fótum
fram. Siðustu vikurnar hefur hún
legið og sofið næstum allan sólar-
hringinn, hvað sem á gengur i
kring um hana. Chi-Chi er nú 15
ára og er það mjög hár aldur i
Panda-árum.
Eins og kunnugt er, hafa verið
gerðar árangurslausar tilraunir
til að koma á sambandi milli Chi-
Chi og An-An sem er karlpanda i |
dýragarðinum i Moskvu.
Cavalier
VÖNDUÐ
HJÓLHÝSI
FYRIRLIGGJANDI:
HJÓLHÝSI
JEPPAKERRUR
HESTAKERRUR
MEÐ BEZTU KVEÐJU
Gísli Jónsson
& Co. h.f.
Skúlagötu 26. Sími 11740