Tíminn - 03.05.1972, Qupperneq 9

Tíminn - 03.05.1972, Qupperneq 9
Miðvikudagur 3. mai 1972 TÍMINN 9 ótrúlegt en satt Sænsku tviburabræðurnir Ingvar og Thomas Nilsson, sem nú eru 17 ára gamlir reyndust báðir 49 cm, þegar þeir fæddust. En þegar þeir voru orðnir fimm mánaða hætti Thomas að stækka eðlilega, en það gerði Ingvar hins vegar ekki. Hann hefur alla tið stækkað eðlilega, og nú er hann 193 cm á hæð, en Thomas er aðeins 153 cm. Læknar hafa komizt að raun um, að Thomas skortir hormón og er afleiðingin sú, að hann stækkar ekki eins og hann annars myndi gera. En læknar i Sviþjóð búast við, að eftir aðeins fá ár verði orðið mögulegt að bæta úr þessu, og þá verði hægt að gefa Thomasi viðeigandi meðöl, þannig að hann geti orðið að minnsta kosti 175 til 180 cm á hæð. Vill veröa frægur á ný Dægurlagasöngvarinn Ricky Nelson, sem var meðal vin- sælustu dægurlagasöngvara heimsins árið 1960 hefur ekki mikið komið við sögu síðan þá. Meðan hann var hvað vin- sælastur seldi hann yfir 30 milljónir grammofónplata i Bandarikjunum og viða um lönd. Nú hefur hann ákveðið að reynd að komast á hátind frægðarinnar aftur, og i þeim tilgangi hefur hann haldið til Bretlands, til þess aö halda þar hljómleika. Ekki er vist, hvernig honum á eftir að ganga, en hann mun gera sitt berzta. • Getur ekki verið — Þetta getur alls ekki verið, sagði fólk, sem sá þessar fjórar nunnur i Budapest i Ungverja- landi standandi i sólskininu með sigarettur á milli fingranna og meira að segja hafði einn þeirra dregið upp nunnuklæðin, og stungið höndunum i rassvasana á bláu gallabuxunum sinum. — Er þetta það, sem koma skal, sagði fólk, en svo kom i ljós, að þetta voru nunnur, sem leika i kvikmynd þeirri, sem Richard Burton hefur verið að leika i i Budaþest i vetur. Þegar kvik- myndavélarnar fóru aftur að snúast, heöi engum geta dottið i hug annað en að þetta væru raunverulegar nunnur. Tamirskaga nyrzt i Sfberiu, langt norðan heimsskauts- baugs. Þó er ein slik heilsu- ræktarmiðstöð i 15 km fjarlægð frá borginni Norilsk i Siberiu, þar sem frost leysir aldrei úr jörðu. Allt svæöið þarna er undir gleri, heilsuhæli, gróður- lendi, tónleikasalur, kvik- myndahús, Iþróttahús, jafnvel svæði til skiðaiðkana. Byggingaframkvæmdir hófust þarna á siðasta áratug, er aðstreymi fólks til þessara norðlægu slóða hófst að ráði vegna námuvinnslunnar. Um 4500 manns geta dvalizt 1 þessari heilsuræktarmiðstöð ár- lega og þessi fjöldi tvöfaldast bráðlega þegar lokið er stækk- unarframkvæmdum, sem unnið er að. Kostnaður við dvöl verka- manna og fjölskyldna þeirra i þessari „gróðurvin” i freð- mýrunum er að langmestu leyti greiddur af sjóðum verkalýðs- félaga og almannatrygginga. Malilyn — Mao. Ekki vitum við, hvernig Salvador Dali datt i hug, að skella saman mynd af Marily Monroe og Mao Tse Tung formanni i Kina, en hér sjáið þið árangurinn, Kanski hefur Dali viðja sýna að með smálagfæringum og finpúss- ingu geta jafnvel hinir and- stæðustu pólar mætzt og runnið saman. Hvernig likar ykkur svo samsteypan. Heilsuræktarmiðstöð undir gleri i freð- mýrunum Heilsuhæli munu flestir setja i samband við suðlæg sólarlönd, en fáir nefna staði eins og Ekið hafði verið yfir fjölskyldu- köttinn og ódæðismaðurinn, ungur piltur á skellinöðru, spurði heimilisföðurinn, hvort hann gæti ekki bætt köttinn upp. —Ja, það fer eftir þvi, hvað þér eruð duglegur að veiða mýs, svaraði hann. — Þetta var nú ekki það sem ég meinti, þegar ég sagði segul- bandsleikur. Nauðasköllóttur maður kom inn til rakarans og settist I stólinn. Rakarinn, sem alltaf var að reyna að vera fyndinn, klappaði honum á skallann og sagði: — Þetta er bara alveg eins og að klappa konunni minni á endann. Maðurinn greip yfir skallann á sér og sagði svo: — Já, það er alveg rétt hjá þér. Rakarinn var kunnur fyrir orð- inyttni, en einnig fyrir ást sina á 'löskunni. Dag nokkurn kom aresturinn til aö láta raka sig og akki leið á löngu, unz hann var aúinn að fá skurð á vangann. -0,þessi spiritus.þessispiritus, :autaði hann. —Já, hann gerir húðina svo inýta, svaraði rakarinn. Vatnið er svo öflugt, að jafnvel sterkasti maður getur ekki haldið þvi til lengdar. Kónguló, fluga og bjalla sátu og oiðu eftir fjórða manni i bridge. Loks eftir þrjá tima var barið og mn kom þúsundfætla. Oskapa tima tekur þig að komast hingað, kvartaði bjallan, —Já, en það stendur á skiltinu þarna frammi: —Munið að þurrka fæturna á mottunni........ Láttu hundinn þinn koma i simann, Snati ætlar að gelta til hans. DENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.