Tíminn - 05.05.1972, Side 1
IGNIS
K/ELISKÁPAR
RAFTORG
SÍMI: 26660
RAFIÐJAN
SIMI: 19294
V.
„Legsteinn” iðnnema við hús Vinnuveitendasambandsins I Garðastræti. (Timamyndir G.E.)
Iðnnemar mótmæla aðstöðu sinni:
Héldu útifund við dyr
þingsins og minntust
„látins félaga”
EB—Reykjavik
Iðnnemar mótmæltu i gær þeim kjörum og
þeirri fræðslu, er þeir búa við, með útifundi
fyrir utan Alþingi og með minningarathöfn fyr-
ir utan Vinnuveitendasambandshúsið um ,,lát-
inn iðnnema Jón Jónsson”, sem lifði heiðar-
lega af launum sinum”. Ennfremur fjölmenntu
nemarnir á pöllum Alþingis.þegar þar var á
dagskrá frumvarp til laga um úrbætur i mál-
efnum þeirra.
Við mótmæli sin báru
iðnnemarnir rauðan borða,
þar sem á var letrað „bætt
kjör, betra nám”. 1 dreifibréfi
þeirra frá mótmælasamkom-
unni segja iðnnemarnir m.a.:
„Við krefjumst tafarlausra
samninga um kaup og kjör
allra iðnnema og við það sé
miðað, aðlaunin nægi þeim til
lifsviðurværis.
Við krefjumst þess að fá þau
sjálfsögðu mannréttindi að
semja sjálfir um kaup okkar
og kjör. Meðan svo er ekki,
eru iðnnemar settir skör neðar
i þjóðfélaginu en aðrir þjóðfé-
lagshópar og geta þannig ekki
litið á sig sem frjálsa menn.
Við krefjumst afnáms hins
Urelta meistarakerfis, sökum
þess að þvi eru ýmsir ann-
markar háðir og er allsendis
óhæft til að veita iönnemum
þá fræðslu, sem þeir eiga að
njóta.
Við krefjumst aukins fjár-
magns til iðnfræðslumála, svo
iðnfræðslulöggjöfin komi til
fullra framkvæmda”.
Þegar iðnnemar svo höfðu
hlýtt á umræður í þinginu um
bætta aðstöðu þeim tii handa,
héldu þeir af stað til Vinnu-
veitendasambandsins i
Garðastræti, þar sem þeir
afhjúpuðu minnisvarða um
„iðnnemann Jón Jónsson, sem
lifði heiðarlega af launum sín-
um”. Var minnisvarðinn
sæmilega stór steinn. Var þar
siðan haldin hugljúf minning-
arræða um Jón, og höfðu allir
gaman af, lögreglumenn jafnt
sem iðnnemar og annað fólk.
Að ræðu lokinni vottuðu nem-
arnir látnum félaga virðingu
sina, og var samkomu þeirra
þar með lokið. Brutu lögreglu-
menn því næst minnisvarðann
i sundur og héldu á brott með
hann.
Lögregluþjónn ber „legstein
inn” i lögreglubilinn.
A sextánda hundrað
unglinga hefja
landspróf í dag
OÓ-Reykjavík.
A 16- hundrað nemenda
landsprófsdeilda hefja próf sin i
dag. Fjölgar landsprófsnemum
um 10% miðað við siðasta ár, og
hafa þeir aldrei áður verið jafn-
margir og nú. Landsprófunum
lýkur 29.mai, en tekin eru próf i
niu greinum, og lætur nærri að
prófaðsé þriöja hvern dag meöan
landsprófin standa yfir.
Arni G. Stefánsson, formaður
landsprófsnefndar sagði, að
miðað við reynslu siðustu ára,
mætti búast við að 2/3 þeirra, sem
ganga undir landspróf standist
það og fái sex I aðaleinkunn, sem
gefur þeim rétt á að setjast i
menntaskóla. t fyrra stóðust 69%
prófið. 62% stóðust framhalds-
einkunn á vorprófi, og nokkuð
bættist við á haustprófi, en þeir
sem fengu oft neðan við tilskylda
einkunn, fengu þó að taka prófið
aftur að hausti.
Nú er búið að opna mennta-
skólanna meira en áður var, og
getur gagnfræðapróf veitt, svipuð
réttindi og landspróf, en um þetta
atriði er heimild i menntaskóla-
lögunum. Má þvi búast viö, að
auk landsprófshafa leiti gagn-
fræðingar og fólk úr fram-
haldsdeildum gagn-
fræðaskólanna, inngöngu i
menntaskóla næsta haust.
Ekki er óliklegt, að erfitt veriö
að koma öllum þeim nemendum,
sem standast prófið, i mennta-
skóla næsta vetur, verði aðsóknin
jafn mikil og hún hefur verið
undanfarin ár. Það eru að visu
ekki okkar áhygjijur i landsprófs-
deild, sagði Arni, en vist er, að
það horfir mjög illa með húsnæði i
menntaskólum, en við verðum að
vona að þau mál leysist i tima.
ASTAND VEGA ER
MJOG GOTT MIÐAÐ
VIÐ ARSTlMA
ÞÓ—Reykjavik.
— Jú, það er óhætt að fullyrða, að vegirnir eru i
mjög góðu ástandi miðað við árstima. Þeir eru að
visu sums staðar nokkuð blautir, en ef þurrviðri
helzt, þá verða þeir orðnir góðir eftir stuttan tima,
þar sem litið sem ekkert frost er i jörðu, sagði Adolf
Petersen hjá Vegagerðinni, er við ræddum við
hann.
Adolf sagði, að ástand vega
væri nokkuð gott sunnanlands, en
þegar komið væri norður, væru
þungatakmarkanir á vegum, og
væri miðað viö 7 tonna öxul-
þunga. 1 innsveitum norðanlands
er 5 tonna öxulþungi.
A Vestfjörðum fer færð óðum
skánandi, en aðeins er fært fyrir
jeppa IA—BarðastrandarsýSlu og
á Dynjandisheiði, og á fjarða-
vegunum eru öxultakmarkanir.
Möðrudalsöræfi eru ekki enn
orðin fær eftir snjókomuna fyrir
helgina, en á Austfjörðum fer
færð skánandi, og verið er að
ryðja Oddsskarð og Fjarðarheiði.
Færð suður með fjörðum er góð,
nema hvað Breiðdalsheiði er ófær
vegna snjóa.
Utflutningsverðmæti
Sambandsfrystihúsa
jókst um 24% s.l. ár
ÞÓ—Reykjavik.
Afkoma Sambandsfrystihús-
anna var dágóð á siðasta ári, og
m#ðalágóðinn var 5-6%, áður en
dregið var frá til skatts, og er það
svipaö og árið áður.
Þetta kom m.a. fram á
aðalfundi Sambandsfrystihús-
anna, sem haldinn var fyrir sfð-
ustu helgi, en þann fund sátu um
35 manns.
A árinu fluttu Sambandsfrysti-
húsin út 32.329 tonn af fiski, á móti
31.971 tonni 1970. Af þessu magni
fóru meira en 80% til Bandarikj-
anna, 10% til Rússlands, 5% til
Þýzkalands og afgangurinn til
annarra landa. Markaðsverð á
árinu var það hæsta, sem nokk-
urn tíma hefur verið, og er svo
enn. En að sögn forráðamanna
frystihúsanna er ekki gott að
segja um framhaldið.
Heildarútflutningsverðmæti
Sambandsfrystihúsanna nam
rúmum 2 milljörðum, sem er 24%
aukning frá árinu áður.