Tíminn - 05.05.1972, Síða 16

Tíminn - 05.05.1972, Síða 16
TÍMINN Föstudagur 5. mai 1972. Úmsjón: Alfreð Þorsteinsson Morgunhanarnir fá ekki úrlausn strax OLYMPÍUSVÆÐI ÚR LEGO-KLOSSUM! Nú þegar setja Olympiuleikarnir og undirbúningurinn fyrir þá mikinn svip á daglegt lif i Þýzkalandi, svo ekki sé minnzt á sjálfa Miinchen. Danir hafa einnig lagt sitt fram til aö vekja athygli á OL, og I Karstadt vöruhúsinu hefur verið komið fyrir módeli af olympiusvæðinu á vegum Lego i Billund. Það eru 143.125 Lego-klossar i þessu módeli, og það nær yfir 60 fermetra svæði. Olympiúleikvangurinn er á 3,5 x 2,8 m svæöi, og sjónvarpsturninn og útsýnisturninn eru 2,6 m háir. Módelið gefur góða mynd af svæðinu, sem hefur kostað offjár.en ef allt stenzt, er um byltingu að ræða á þessu sviöi. A þessari mynd sjást arkitektarnir leggja siöustu hönd á „Olympiusvæðið.” Þann 30. april fór fram i iþróttahúsi Háskólans júdókeppni i frjálsum flokki, án tillits til þyngdar. Keppendur voru aðeins 15 að þessu sinni, en yfirdómari mótsins var hinn kunni júdó- meistari N. Yamamoto 5. dan Kodokan júdóprófessor. Var lotu- lengdin 5 min., og kepptu þessir til úrslita: Sigurður Kr. Jóhannsson 1. kyn J. R., ! Svavar M. Carlsen 1. dan J.R. og Össur Torfason 1. kyn A. Eftir fyrstu lotu skildu félagar Sigurður og Svavar jafnir. Næst kepptu brúnbeltarnir Sigurður og össur, og fékk Sigurður heilan vinning eftir 3 min. 44 sek. Siðan varð össur að keppa aftur við Svavar, og varðist hann frækilega i 4. min., áður en Svavar gat fellt hann og sigrað á gólfbragðinu hon kesa gatame. Keppa þeir annars I léttvigt og þungavigt. Að lokum glimdu þeir Sigurður og Svavar um 1. sæti og Islands- meistaratitilinn. Eftir lotuna voru þeir jafnir, enda náði hvorugur hreinu bragði. Var hún þá framlengd um 3 mín. til að hrista fram sigurvegarann, en allt kom fyrir ekki, svo að lengja varð keppnina enn um 3 mln. til úrskurðar. Með naumum meiri- hluta var Sigurði dæmdur sigur- inn fyrir meiri sókn. Aðspurður um keppnina sagði júdó- prófessorinn, að sér hefði þótt leitt, hve fári tóku þátt i henni, og að hún hefði verið allt of hæg og fá brögð notuð. En þetta myndi eflaust breytast, ef islenzkir júdómenn fengju tæki- færi til að keppa við erlenda júdóka til samanburðar. Morgunhanarnir, en svo kalla þeir sjálfa sig, hinir tryggu sundlaugagestir, sem mæta á sundstöðum borgarinnar í morgunsárið og þreyta sund og iðka orðsins list í heitu körunum hafa óskað eftir því, að sundstaðirnir opnuðu fyrr á morgnana en nú er gert. Hafa þeir óskað eftir því, að opnað verði kl. 7 en nú er opnað kl. 7.30. Iþróttaráð Reykjavikur fjallaöi um þetta mál á fundi sinum fyrir 3 vikum, og var þá samþykkt aö veröa við þessum óskum, svo framarlega, sem þaö væri fram- kvæmanlegt. En gallinn er sá, að starfsfólk sundstaöanna á óhægt um vik að mæta svona snemma á morgnana, þar sem strætisvagn- ar byrja ekki að ganga fyrr en kl. 7. Að sögn Stefáns Kristjánsson- ar, iþróttafulltrúa Reykjavíkur- borgar, hefur ekki fundizt lausn á þessu máli ennþá, en veriö er að athuga um möguleika á þvi aö semja viö aöila, sem annast fólksflutninga, um flutning á starfsfólki sundstaðanna á morgnana. A meöan verða morg- unhanar aö láta sér lynda að ekki skuli opnað fyrr en kl. 7.30. En vissulega er það nauðsynjamál, að þessi breyting komist á, þvi að margt fólk, sem hefur vinnu eða skólagöngu kl. 8 á morgnana, hef- ur litla möguleika á sundiðkun- um, nema opnað sé fyrr en nú er gert. Hér sjást þeir Svavar Carlscn og Sigurður Kr. Jóhannsson (snýr baki í mvndavélina) I úrslitakeppninni. Mega þeir ekki leika á striga- skóm? Er islenzkum knatt- spyrnumönnum heimilt að leika i strigaskóm i meist- araflokksleikjum? Knatt- spyrnumenn a.m.k. eins Reykjavikurfélaganna leika i strigaskóm með tökkum, en það er meistaraflokkslið KR. Hannes Þ. Sigurðsson, knattspyrnudómari, telur mjög vafasamt, að leik- mönnum sé heimilt að leika i skóm af þessari gerð og hef- ur skrifað stjórn Knatt- spyrnusambands Islands bréf vegna þessa, og er þess að vænta, að stjórn sam- bandsins taki þetta mál fyrir fljótiega. Þaö var oft hart barizt i keppninni, eins og sést á þessari mynd. ERFIÐ JÚDÓKEPPNI ASLAUG 0G HAKON SIGRUÐU I STÖRSVIGS- MÖTI ARMANNS Þann 1. mai fór fram Stórsvig- mót Armanns i hinu stórkostlega skiðasvæöi Bláfjalla. Veöur var hið bezta, glaðasólskin og bliöa- logn. Skráðir keppendur voru 23 i karlaflokki, en aðeins 2 I kvenna- flokki. Brautina lagöi Sigurður R. Guðjónsson, var hún 1100 metra löng með 43 hliöum. Sigurvegari i karlaflokki var Hákon Ólafsson, en þetta var annað mót vorsins.sem hann sigr- aði. Margt manna var á skiðum þennan dag, en þó færri en vildu, þar sem vegurinn i Bláfjöllum er ófær nema jeppum og stærri bil- um, en þaö stendur vonandi til bóta. Sjúkraskýli, ásamt talstöð og sjúkravörum, hefur verið komið upp á skiðasvæðinu. Kvennaflokkur: 1. Aslaug Sigurðard. 2. Hrafnhildur Helgad. Karlaflokkur: 1. Hákon Ólafs. Sigluf. 2. Tómas Jónss. A 3. Sig. Guðm.ss. A 4. Georg Guöjónss. A. 5. Helgi Axelsson ÍR 6. Haraldur Haraldss. ÍR 137.8 140.3 117.3 117.5 124.0 125.7 127.9 128.5

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.