Tíminn - 05.05.1972, Page 20
BÚIZT VIÐ STÓRÁRflS
A HUE UM HELGINA
- allir íbúarnir flúnir. Traustustu stuðningsmenn Nixons farnir að láta f Ijós efasemdir
Föstudagur 5. mal 1972.
NTB—Saigon
Hersveitir kommúnista sóttu að keisaraborginni
Hue frá þremur hliðum i gær og hófu sprengju-
árásir á ytri varnarlinu borgarinnar. Yfir 200
þúsund manns hafa flúið borgina. Formaður
varnarmálanefndar öldungadeildar Bandarikja-
þings, John C. Stennis, sagðist i gær ekki sjá betur,
en allt væri að tapast. Hann hefur fram til þessa
verið einn af þeim mönnum, sem hvað harðast
hefur varið stefnu Nixons i Vietnam.
Herir noröanmanna nálguöust I
gær Hue, og í vestri voru sveitir
þeirra aöeins 10 km. frá borginni
og vörpuðu þaöan sprengjum á
ytri varnarlinu borgarinnar.
Verstaóveður
í hálfa öld
NTB—Mexíkóborg
Eitt versta skýfall, sem orö-
iö hefur I hálfa öld, gekk yfir
30 ferkilómetra svæöi I Mexikó
i fyrrinótt. 21 maöur lézt, 15 er
saknaö, 216 eru slasaöir og
yfir 10 þúsund heimilislausir,
aö sögn starfsmanna Rauöa
krossins á staönum.
Ósköpin hófust I fyrrakvöld,
þegar tók aö hegla, og voru
kornin á stærö við sitrónur.
Eftir óveðrið var metraþykk
leöja yfir allt i suðurhluta
höfuöborgarinnar. Fólki var
komið fyrir i skólum, kirkjum
og vöruskemmum, þar sem
Rauöi krossinn sá um mat og
aöhlynningu.
58 menn enn
í námunni
NTB—Kellogg
Björgunarsveitir böröust I
gær viö aö komast niöur i
silfurnámuna, sem kviknaöi f I
fyrradag. Enn cru 58 náma-
menn þar innilokaöir og nám-
an full af rcyk.
Meö hverri stund sem liður,
minnka likurnar á, að
mennirnir séu enn á lifi. 24 lík
hafa þegar náðst upp úr nám-
unni, og létust þeir menn allir
af reykeitrun. Talið er von til
þess, aö þeir 58,sem enn eru
niöri hafi verið við loftop i
námunni. Þeir eru um 1100
metrum undir yfirboröi jarð-
ar.
Aöstandendur mannanna
hafast við i tjöldum við námu-
opið meðan þeir biða.
Harmleikur
í Danmörku
NTB—Kaupmannah öfn
Sextán ára gömul dönsk
stúlka sleit nýlega trúlofun
sinni og ungs Tyrkja, meö
þeim afleiöingum, aö hann
myrti foreldra hennar, særöi
hana og bróöur hennar, og
reyndi sföan aö fremja sjálfs-
morð.
1 fyrrinótt brauzt Tyrkinn,
sem er 18 ára og stariar í uan-
mörku, inn á heimili stúlkunn-
ar, skaut foreldra hennar til
bana með riffli, þar sem þau
lágu i rúmum sfnum, særði
stúlkuna og bróður hennar al-
varlega og hljóp siðan út i
garðinn og skaut sjálfan sig i
kviðinn. Tveimur öðrum
bræðrum hennar tókst aö
sleppa.
Stúlkan á barn með Tyrkj-
anum, en barnið var eina
mannveran i húsinu, sem
hann reyndi ekki að skaða.
Einnig voru sveitir kommúnista
suðaustan og noröan við borgina.
Hinn nýi yfirmaður sunnan
hersins i þessum landshluta gaf
fyrirskipanir um, að 100
brynvarðir bilar skyldu aka um
og sækja þá S—Vietnama, sem
hlaupizt hefðu á brott frá her-
sveitum sinum. Þeir, sem ekki
gæfu sig fram, yrðu skotnir.
Norðan við Saigon og á mið-
hálendinu hafa sunnanmenn
hafið gagnarásir, og tókst þeim
að hrekja norðanherinn aftur á
bak um nokkra kilómetra við An
Loc, sem verið hefur umsetin I
þrjár vikur.
Stjórnarherinn i Hue á von á
stórárás á borgina um helgina og
segja liðsstyrk vera á leiöinni.
Talsmenn hersins segjast vissir
um að geta varið borgina. Yfir
200 þúsund ibúar hafa flúið frá
Hue, og eina fólkið, sem þar er,
eru hermennirnir og hinir
örþreyttu flóttamenn frá Quang
Tri. 1 borginni Danang hefur verð
á nauðsynjavörum hækkaö um
30% síðustu dagana, eftir aö
þúsundir flóttamanna komu
þangað.
I Washington sagði talsmaður
varnarmálaráðuneytisins, að
Bandarikin væru að senda fleiri
sprengjuflugvélar á vettvang, og
mun vera um að ræða tvær flug-
sveitir. Thieu forseti gaf i gær
hálfri milljón opinberra starfs-
manna skipun um að gefa sig
fram til starfa við varnir
landsins. Þá sagði hann einnig, að
allir, sem yrðu uppvisir að ránum
og gripdeildum, yröu skotnir á
staðnum.
John C. Stennis, formaður
varnarmálanefndar öldunga-
deildar Bandarikjaþings, lét i þaö
skina i gær, að nú gæti ekkert
bjargað i Vietnaní, nema Banda-
riskir hermenn á landi. Hann
sagði það staðreynd, að her
S—Vietnam biöi nú hvern ósigur-
inn á fætur öörum, þrátt fyrir
aðstoð frá bandariskum flug-
FRIÐARVIÐRÆÐURNAR
STRANOAÐAR A NÝ
NTB—Paris
Vietnam-viöræöurnar i Paris
strönduöu I gær i annaö sinn á sex
vikum. Bandarikjamenn og S-
Vietnamar neituöu aö haida við-
ræðunum áfram, á þeim forsend-
um, að kommúnistar hefðu lagt
fram harða útslitakosti og vikiö
sér undan rökrænum umræðum
um málin.
t fyrra skiptiö slitu Bandarikin
og S-Vietnam viðræöunum þann
23. marz, og það var fyrir orð
Nixons að þær voru teknar upp á
nv i fyrri viku. Meðlimur i stjórn-
málanefnd kommúnistaflokks N-
Vietnam, Le Duc To, kom til
Parisar á sunnudaginn til leyni-
legra viðræðna, sem enginn veit
enn, hvar eða hvenær hafa farið
fram.
Bandarikjamenn hafa ekkert
viljaö segja um, hversu lengi þeir
ætla að neita að halda fund, en
talsmaður utanrikisráðuneytisins
i Washington sagði, að þetta hefði
verið eina ráðið. Sérfræðingar I
Paris eru furðu lostnir yfir þessu,
þar sem ekki hefur borið á öðru
undanfarið, en allt væri i bezta
gengi.
Nikkelverksmiðjurnar
sprungu í loft upp
- Óttazt um heilsu íbúa Kristianssands
NTB—Kristianssand
Mikil sprcnging varð i
nikkelverksmiöjunum á
Falconbridge I Kristianssand i
Noregi laust eftir hádegiö I gær.
Enginn lét lifiö, en 5 manns voru
fluttir I sjúkrahús meö beinbrot
og taugaáfall. óttazt er aö fólk i
nærliggjandi fbúöahverfum kunni
að veikjast vegna eiturlofts i
reyknum frá verksmiðjunum,
sem stóðu I Ijósum logum fram á
kvöld. Tjón nemur hundruöum
milljóna fsl. króna.
Sprengingin varð klukkan 13.45
i gær að isl. tima, og fóru þá
almannavarnaflautur í bænum i
gang. Geysimikill svartur reykur
lagðist yfir ibúðahverfi i
nágrenninu, og var um tima talið,
að gripa yrði til þess að flytja fólk
þaðan burtu, þvi að i reyknum eru
margvísleg eiturefni. Slökkvi
liðið flutti þegar allt sjúkt fólk og
gamalmenni burtu úr hverfunum.
Sprengingin varð í þeim hluta
hússins, sem kóbolt er unniö.
Húsiö er um 300 fermetrar á
tveimur hæðum, og varð það
alelda á skammri stundu.
Nokkrir menn köstuöu sér út um
glugga og beinbrotnuðu við þaö,
en ekki munu margir starfmenn
hafa verið innanhúss, er óhappið,
vildi til.
Hjá fyrirtækinu starfa 1550
manns. Byggingin var fulltryggð
og aðeins 5 ára gömul.
Svart: Iteykjavik: Torfi
Stefánsson og Kristján Guð-
mundsson.
B C D E F G H
B C D X F G H
Hvftt: Akureyri: Sveinbjörn
Sigurðsson og,- Hólmgrimur’
Heiðreksson. •
16. ieikur Akureyringa: Rc3 x d5
vélum og herskipum. Hann sagði
þó,aðhann væri ekkiaðleggja til
að bandariskir hermenn yrðu
settir inn I strlðið á ný og aö
Nixon vildi það heldur ekki.
— Ef ástandið versnar enn,
sagöi Stennis, — mun bandariska
þjóðin verða aö þola meiri raun
en þessi kynslóð hefur áöur upp-
lifað. En hún mun standast það,
ef við segjum sannleikann.
Þetta er í fyrsta sinn, sem þessi
áhrifamikli talsmaður Nixon-
stefnunnar i Vietnam hefur látið
að þvi liggja, að ekki væri allt I
himnalagi þar fyrir austan.
Flugræningjarnir
NTB—Istanbul
Tyrkirnir fjórir, sem i
fyrradag rændu tyrkneskri
áætlunarflugvél með 60 far-
þegum og sneru tii Sofiu I
Búlgarfu, voru yfirbugaðir
þar i gær. Þeir höfðu hótað
að sprengja flugvélina I loft
upp, væru ekki þrir dauða-
dæmdir hryðjuverkamenn
látnir lausir.
Búlgarska lögreglan náði
vopnunum af ræningjunum
eftir 28 tima þóf á flugvellin-
um. Farþega og áhöfn vélar-
innar hafði ekki sakað, en
margir munu hafa verið
orönir slappir á taugunum.
BEKAERT
túngirðingarnet
vafhnýtt
Gert úr venjulegum zinkvörðum vir.
petta vafhnýtta net er ódýrt og hentar vel til
varnar gegn sauðfénaði og stórgripum.
Allar venjulegar stærðir og gerðir fást alltaf
En vér ráðleggjum yður sérstaklega að nota
þá gerð, sem hér er skilgreind, með tvöfaldri
zinkhúðun og tilsvarandi endingu, og þó ódýrt.
Rauði Bekaert Ursus merkimiðinn tryggir
yður góða vöru.
Gerð HæS í sm Strengir
635/12" 90 6
526/12" 67 5
Bil á milli þverstrengja: 30 sm
Lengd í rúllu: 100 metrar.
Þessi net fást einnig með 6“ bili
á milli þverstrengja.
:rr~
SAMBANDIÐ
BYGGINGAVÖRUR
simi 22648