Tíminn - 09.05.1972, Side 1

Tíminn - 09.05.1972, Side 1
IGNIS KÆLISKÁPAR RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIÐJAN SIMI: 19294 * * * RÍKIÐ BÝÐUR LÆKNUM 130 ÞÚS. Á MÁNUÐI Fjármálaráðherra skorar á lækna að endurskoða afstöðu sína Þó-Reykjavík. Nú er hafin endurbygging 'á austurenda austur-vestur flugbrautarinnar á Reykja- vikurflugvelli. Upp úr enda brautarinnar verða grafnir 50 þús. kúbikmetrar og siðan verður fyllt upp með efni, sem verður þjappað og mal- bikaö verður ofan á það. Gunnar Sigurðsson, flug- vallarstjöri, sagöi, að þetta verk kæmi i framhaldi af þvi, sem þeir hefðu áður gert á fíugvellinum, en á norður- suður brautinni hafa veriö styrktir kaflar á þennan hátt, og er þessu verki væri lokið, þá væri búið að styrkja brautirnar þaö mikið að þær teldust góðar. Sagði Gunnar, að þegar verkinu væri lokið, þá gætu allar vélar athafnað sig með góðu móti á þessari braut, jafnt þotur Fl, sem aðrar vélar, en brautin kemur lika til með að lengjast nokkuð, — en fram til þessa hefur brautarlengdin ekki verið það mikil, að þoturnar hafi getað athafnað sig á austur- vestur brautinni, nema þeg- ar vindur hefur verið næg- ur. EB-Reykjavlk. — Þeim iæknum, sem nú eru að segja lausum stöðum sinum hafa nú þegar verið boðin laun, sem eru með hófiegu vinnuálagi, sem svarar 110-130 þús. kr. á mánuði fyrir sérfræðinga og 90-100 þús. kr. fyrir aðstoðarlækna, og hækkunin ein, sem þeim hefur verið boðin, er 24-30 þús. á mánuöi, sagði Halldór E. Sigurösson, fjármálaráðherra á Alþingi i gær, er hann utan dag- skrár svaraði fyrirspurn frá Bjarna Guðnasyni um saninga- viðræðurnar um kjör lækna, sem staðið hafa yfir undanfarið. Fjármálaráðherra sagði í iok ræðu sinnar, að hér væri á ferö- inni mái, sem telja yröi, að varð- aði alþjóö að vissu marki, og hann kvaðst leyfa sér að fara þess á ieit við þá lækna, er hér ættu hlut að máli, að endurskoða afstöðu sina til þessa máls, og taka það til meöferðar á ný, og þá I ijósi þess, að á þessi mái sem önnur yröi að lita frá sjónarmiöi þjóöfélagsins i heild. Þegar f jármálaráðherra svaraði fyrirspurn Bjarna Guönasonar I þinginu i gær, minnti hann Iupphafi máls sins á, aö 1966 kom til harðvitugrar deilu milli sjúkrahúslækna og vinnu- veitenda þeirra um kjaramálin. 1 tengslum við þá deilu sögðu allir læknar sjúkrahúsanna upp störf- um að undanskildum yfirlæknum. Samningar tókust um siðir og höfðu þeir i för með sér stórkost- lega hækkun á launaútgjöldum spitalanna. Lýsti þáverandi fjár- málaráðherra samningunum svo Hér er unnið aö jarðvegsskiptinu á Reykjavikurflugveili I gær. Timamynd Gunnar. I fjárlagaræðu haustið 1966, að læknar hafi neytt þeirrar aðstöðu sinnar að hafa I bókstaflegri merkingu lif fjölda fólks i sinni hendi, og hefðu samningarnir af hálfu rfkisins verið algerir nauö- ungasamningar. — Siöan sagði Halldór E. Sigurðsson, fjármála- ráöherra: ,,1 stórum dráttum uröu þær breytingar á kjörum lækna áriö 1966, að fasta kaup þeirra hækkaði mjög mikið, en hins vegar áttu þeir aö skila lengri vinnutima gegn þessu kaupi en almennt tlðkaðist. Læknarnir sættu sig og við yfirvinnukaup, sem telja verður að hafi veriö mjög hógvært miðað viö föstu launin. Form ráðningarinnar breyttist þannig, að gert var ráö fyrir tveggja mánaða uppsagnar- fresti af hálfu beggja samnings- aðila. Samningum þessum frá 1966 hefur siðar veriö breytt, en eigi geta þær breytingar talist úrskeiðis miðaö viö almenna launaþróun i landinu. Var það von manna aö átökin 1966 og eftirköst þeirra hefðu gert læknum ijóst, aö þpir væru ekki eins einangruö stétt i þjóðfélaginu og þeir hafa oft haldið fram, og að þjóðfélagiö sem slikt, gæti þvi illa unaö, aö ein stétt gæti nánast helgað sér hluta af ráöstöfunarfé þjóöfélags- ins að vild. Eins og getiö var um hér að framan settu læknar fram kjara- kröfur sinar 24. janúar s.l. Skrif- Framhald á bls. 19 Einar Agustsson KJ-Reykjavik — Undanfarna mánuði hafa embættismenn fjallað um landhelgismálið, en við teljum nú, og Bretar einnig, að málið sé komið á það stig að ráð- herrar ræðist við, sagði Einar Agústsson utanrikisráðherra i viðtali við Timann i dag um fyrirhugaðan fund i London 23. mai. Utanrikisráðuneytið til- kynnti i dag, að Einar Agústs- Lúðvik Jósefsson son utanrikisráðherra, og Lúðvik Jósefsson sjávarút- vegsráðherra myndu fara til London 23. mai, til við ræðna við Alec Douglas — Home utanrikisráðherra, og aðra brezka ráðamenn um útfærslu fiskveiðilögsögunnar. Þetta verður fyrsti formlegi fundurinn, sem izlenzkir og brezkir ráðherrar eiga um landhelgismálið, og er þess að Sir Alec væntatað fundur þessi marki timamót i landhelgismálinu. Embættismenn beggja rikj- anna hafa á undanförnum mánuðum átt tiðar viðræður um fyrirhugaða útfærslu fisk- veiðilandhelginnar, en eins og utanrikisráðherra sagði við Timann, þá er málið nú komið á það stig, að heppilegt þykir, bæði hér og i Bretlandi, að ráðherrar ræði saman um málið. Fólk býður gistingu fyrír einvígisgesti Guðmundur G. Þórarinsson í sjónvarpssamningum í London Þó-Reykjavík ,, Fólk er þegar farið að hringja til okkar og bjóða herbergi eða íbúð- ir til leigu á meðan ein- vígið milli þeirra Fisch- ers og Spassky stendur yfir” sagði Guðjón Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Skáksam- bands islands, er við ræddum við hann Guðjón sagði, að þetta sýndi viðbrögð fólks glögglega, og persónulega teldi hann hótel- vandamálið ekkert verulegt vandamál. I þessari viku mun Skáksambandið opna skrif- stofu og er nú verið að ráða starfsfólk til vinnu við undir- búning einvigisins. Guðmundur G. Þórarinsson fór út til Bretlands i fyrradag og á hann þar viðræður við sjónvarpsstöðvar um sýn- ingarrétt á skákunum. Mun Guðmundur ræða við nokkra menn frá sjónvarpsstöðvum i Evrópu og einn aðilinn er BBC i Bretlandi. Guðmund- ur er væntanlegur til landsins i dag, og mun hann þá skýra stjórnarmönnum skáksam- bandsins frá viðræðunum. A næstunni munu forráða- menn skáksambandsins eiga viðræður við fleiri sjónvarps- stöðvar þar á meðal bandariskar.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.