Tíminn - 11.05.1972, Blaðsíða 1

Tíminn - 11.05.1972, Blaðsíða 1
IGNIS KÆLISKÁPAR RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIÐJAN SÍMI: 19294 Forsætis- ráðherra á sjúkrahúsi Ólafur Jóhannesson, forsætis- ráðherra, dvelst um þessar mundir á Landakotsspitala, en þangað fór hann til rannsóknar þriðjudaginn 9. þ.m. Liðan hans er góð, og er ekki talið að um alvarleg veikindi sé að ræða. Reykjavik, lO.mai 1972. Forsætisráðuneytið Allir vilja á humar Þó-Reykjavik Samkvæmt upplýsingum, sem við fengum hjá Fiskifélagi Is- lands, þá höfðu borizt 126 um- sóknir til humarveiða i sumar. Aldrei fyrr hafa borizt svo margar umsóknir i byrjun maimánuðar, og fyrirsjánanlegt er, að mikill fjöldi umsókna á eftir að berast. Humarbátar eru venjulega flestir i júnimánuði, og i fyrra komust þeir upp i 140, sem er þaö almesta, sem verið hefur. Núna hafa borizt umsóknir frá nokkrum aðilum, sem ætla sér að gera út yfir 200 tonna báta til humarveiöa. Mikill kurr er i eigendum minni báta vegna þessa, en enginn reglugerð er til unvhversu margir bátar geta fengið leyfi til veiða á humri, eða hve stórir þeir mega vera. Flakið er illa farið SB-Reykjavík. Varðandi fréttina um flak Fairey Battle f lugvélarinnar sunnan Hofsjökuls, sem Tíminn birti fyrir skömmu, hefur Árni Guðmundsson, Múlakoti i Fljóts- hlið, látið þess gctið, að hann hafi farið að skoða flakið fyrir her- minjasafn RAF, og sé það mjög illa farið. Árni, sem er áhugamaður um flugvélar, sagði, aö flugvél þessi, númer L5343 hefði tynzt 13. september 1940 úr 98. flug- sveitinni, sem kom hingað i ágústlok sama ár. Vélin var smiðuð áriö 1939 og var þvi svo til ný er hún fórst. öllu nýtilegu sagði Arni, að hefði verið stolið úr flakinu, og yrði aldrei hægt að gera það flughæft aftur, en þó kannski að setja það á safnið. Þá bað hann okkur að geta þess, að ein Battle flugvél væri á safni i Ottawa og önnur, sem meira að segja er flughæf, er i Michigan i Bandarikjunum. Ekki kvaðst Árni vita neitt um, hvort Bretar væru farnir að hugsa til þess að sækja flakið, en það hlyti að koma i ljós bráðlega. Vegurinn þarna inn eftir væri þó gjörsamlega óakfær eins og er. Myndina tók Magnús Magnússon, um borð i einum netabátunum i vetur Lokadagur ÞÓ-Reykjavik. I dag, ll.mai er lokadagurinn gamli, ef svo má að orði komast, þvi nú mun langt siðan, að bátar hafa almennt tekið upp sin veiðarfæri á þessum degi. En samt er það svo, að þó að nokkur skip haldi áfram veiöum og reyni enn að bæta viö sinn afla, þá telja menn almennt að vertið sé lokiö með þessum degi. Vertið sú, sem nú er að ljúka, hefur reynzt sjómönnum ærið misjöfn, sumir hafa gert ágæta vertið, en aðrir haft litiö sem ekkert upp úr sjósókninni, þó stif hafi verið. Netavertiö hefur verið lang bezt á Snæfellsnesi, og hæsti báturinn þar mun vera kominn með hátt i 1500 tonn, sem er mjög góður afli og slagar upp i það, sem einn bátur hefur fengið mest á vetrartið, en það eru um 1700 tonn. En ekki er allt komið með tonnafjöldanum, þar sem hægt er að eyðileggja aflann með þvi að koma meö hann of gamlan að landi. Þvi hefur það breyzt á siöustu árum, og sjómenn eru farnir að leggja meira upp úr að vanda meðferð á fiskinum,og er það til heilla fyrir alla aðila, enda verða gerðar enn meiri kröfur á næstu árum til bættrar meðferðar á fiskinum. Styrjöldin i Vietnam rædd utan dagskrár á Alþingi: íslenzka ríkisstjórnin harmar óheillaþróunina í Vietnam - sagði Einar Agústsson utanríkisráðherra EB-Reykjavik. Einar Ágústsson utanrikis- ráöherra sagði á Alþingi I gær, að hann hefði s.l. þriðjudag átt sam- tal við sendiherra Bandarikjanna hér á landi og gert honuin, I Ijósi siðustu atburða I Vletnam, grein fyrir þvi hversu Islenzka rikis- stjórnin hlyti að harma þá þróun, sem styrjöldin I Vietnam heföi nú tekið. Ennfremur sagði utanrikis- ráðherra, aö á fundi hans með Wiliiam Rogers, utanrikisráð- herra Bandarikjanna 3.aprll, s.L, hefði hann látið I Ijósi við Rogers ^hyggjur islenzku rikisstjórnar- innar út af gangi mála I Vietnam. Sagði ráðherrann þetta, er hann utan dagskrár svaraði fýrirspurn frá Svövu Jakobsdóttur um, hvort rikisstjórnin hefði tekið afstöðu til siöustu viðburða i Vietnam, hver sú afstaða væri og hvort hún hefði verið látin I Ijósi við rétta aðila eða ríkisstjórnin hyggðist gera það. Einar Agústsson, utanrikisráð- herra minnti á, að á utanrikisráð- herrafundi Norðurlandanna, sem haldinn var i Reykjavik 25.april s.l. var eftirfarandi samþykkt gerð einróma: „Þaö hefur ávallt verið álit Norðurlandanna, að deildan i Vietnam, sem rekja má til ný- lendutimanna, verði ekki leyst með hervaldi. Varanlegum friöi i Vietnam og annars staðar i Indo- Kina verði aðeins náð á stjórn- málalegum grundvelli, sem tryggi viðkomandi þjóðum rétt til að taka ákvarðanir um framtið sina án ihlutunar utanaðkomandi rikja. Það er einnig hætta á þvi, að aukinn striðsrekstur i Vietnam geti haft neikvæð áhrif á sam- band stórveldanna og tilraunir til að draga úr spennu. Noröurlöndin hvetja þvi viðkomandi aðila ein- dregið til þess aö taka hið fyrsta upp aftur friðarviðræður”. —Þessi ályktun,sem er hluti af meira máli, var send til allra fjöl- miðla sama dag, svo og til sendi- ráða Islands erlendis, sagði utan- rikisráðherra. — A fundi með William Rogers utanrikisráö- Framhald á bls. 15 KÍNA OPNAR SENDI- RÁÐ í REYKJAVÍK Sjö sendiráðsstarfsmenn koma frá Peking i þessum mánuði — Óráðið um íslenzkt sendiráð i Peking — ísland og Indland taka upp stjórnmálasamband KJ-Reykjavik -Kinverjar hafa tilkynnt okkur, aö þeir muni senda hingaö scndi- fulltrúa og sex aöra Kinverja, fyrir lok mánaöarins, en þeir munu eiga aö setja á stofn sendi- ráð hér I Reykjavik, sagöi Pétur Thorsteinsson, ráðuneytisstjóri I utanrikisráðuneytinu i dag. Sendifulltrúinn, sem hingað kemur, heitir Lin Hua, og með honum verða tveir aðrir menn eða konur meö diplomataréttind- um, auk fjögurra aöstoðar- manna. Kemur þetta fólk hingað beint frá Peking með viðkomu I Kaupmannahöfn. Öll samskipti um sendiráðs- stofnunina i Reykjavik, hafa sendiráð tslands og Kina i Kaup- mannahöfn annazt. ' Pétur Thorsteinsson sagði, að ekkert væri ákveðið hverjir af islenzku sendiherrunum myndu einnig verða sendiherrar i Kina, eða hvernær af þvi yrði. Stjórnmálasamband við Indland 1 gær tilkynnti utanrikisráðu- neytið, að rikisstjórnir fslands og Indlands heföu ákveðið að taka upp stjórnmálasamband. Sendi- herra Indlands i Osió, mun jafn- framt gegna störfum sendiherra á lslandi, en ekki hefur veriö ákveðið hverjum verður faliö að gegna störfum sem sendiherra lslands hjá Indlandsstjórn. Ráðuneytisstjórinn i utanrikis- ráðuneytingu sagði i viötali viö Timann i dag, aö viðræður um stjórnmálaskipti milli landanna hefðu að mestu legiö niðri frá þvi 1967, en Indverjar hefðu fyrir nokkru vakið máls á þessu aftur og i framhaldi af umræöum, sem fram hefðu fariö milli landanna, hefði verið ákveöið,aö þau tækju upp stjórnmálasamband sin á milli.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.