Tíminn - 11.05.1972, Side 3

Tíminn - 11.05.1972, Side 3
Fimmtudagur 11. maí 1972 TÍMINN 3 Húsbyggjendur segjast greiða 25% meira fyrir steypuna — en Verðlagseftirlitið heimilaði 10% hækkun á steypu Klp-Reykjavik. Þeir sem staöiö hafa i hús- byggingum að undanförnu, hafa haft orö á þvi, aö steypa frá steypustöðvunum hafi hækkaö mun meir en um þau 10%, sem þær fengu leyfi fyrir i marz s.l. Er þvi haldið fram aö hækkunin nemi allt aö 25% Margir hafa talaö viö Verð- lagseftirlitiö út af þessu, en þaö hefur enn cngar sannanir fengiö. Hjá steypustöðvunum var hcldur tregt að fá upplýs- ingar um þetta mál, — en þó fékkst það upp, að um skipu- lagsbreytingar hafi verið aö ræöa, og aö steypan hafi þar af leiöandi hækkaö nokkuð. Hjá Verðlagseftirlitinu fengum við þær fréttir, að i marz s.l. hefðu steypustöðvar fengið leyfi til að hækka verðið um 10%, og að verð á steypu yrði þá 1000 kr. á rúmmetir. Siðan hafi margir haft tal af Verðlagseftirlitinu og talið sig geta fullyrt, að hækkunin hafi orðið meiri en þessi 10%. #Við höfum beðið fólk um að koma með reikninga, þessu til sönnunar, en við höfum enn enga fengið og þvi er ekkert hægt að gera i málinu.” Forráðamenn steypustöðv- anna vildu ekkert um málið segja, er við höfðum tal af þeim. bó fengum við það upp, að ýmislegt hafi orðið þess valdandi, að til hækkunnar hafi orðið að koma. Sements- verð hefði hækkað um 10% og svo væri farið að gera meiri kröfur en áður til steypunnar, eins og t.d. að bæta i hana er- lendum efnum og öðru, sem gerði það að verkum, að dýr- ara væri að framleiða hana en áður. Margt fleira kæmi til, eins og að nú yrði sett á jafnaðar- gjald i stað nætur- og eftirvinnu. Og svo væri lika rétt að geta þess, að verð á steypu hefði ekki hækkað sið- an 1969. 1 gær náðum við i tvo menn, sem báðir eru að byggja meðalstórt ibúðarhús ásamt bilskúr. beir sögðu báðir, að þeir borguðu nú i dag 24% hærra verð fyrir sama magn af steypu, og þeir keyptu fyrir hina leyfilegu 10% hækkun. Báðir voru þeir búnir að reikna þetta út, og höfðu feng- ið sömu útkomu. Þeir töldu, að steypu- stöðvarnar reiknuðu verðið nú öðruvisi út en fyrir hækkun. En hvernig svo sem það væri nú gert, væri þetta 60 til 70 þúsund króna aukabaggi fyrir þá, og munaði um minna. Að- spurðir um, hvers vegna þeir færu ekki með reikningana til Verðlagseftirlistsins, svöruðu þeir — „Við erum enn að byggja. °g ef við gerum það, þá fáum við ekki steypuna áfram á vixlum, og þá töpum við öllu.” Hreindýr heimsóttu Eskfirðinga ÞÓ-Heykjavík. Atta hreindýr spókuöu sig á hafnarbakkanum i fyrramorgun, og dvöldu þau þar góða stund og önduöu að sér fersku sjávarloft- inu. Sigmar Hjelm, fréttaritari Timans á Eskifirði sagði, að það hefði verið um kl. 6,að fólk varð vart við hreindýrin á strandgöt- unni fyrir ofan höfnina. Fór fólkið þegar að skoða dýrin og ungur piltur kom með myndavélina sýna og tók myndir af dýrunum. Þegar hann nálgaðist dýrin færðu þau sig rólega niður i fjöruna og siðan niður á hafnarbakkann. Komst drengurinn mjög nálægt dýrunum með myndavélina, og er talið að hann hafi staðið i fjögurra metra fjarlægð frá þeim.er hann tók myndirnar, en yfirleitt er mjög erfitt að komast i færi við hreindýr. Af þessum átta dýrum voru 5 fullvaxin og 3 kálfar. Talið er að þetta séu dýr, sem hafa haldið sig sunnan við Oddsskarð i vetur. En er dýrin yfirgáfu Eskifjörð tóku þau stefnuna upp i fjallið i átt að Sellátradal, en hann er fyrir sunn- an Oddsskarð. Jón Sigurðsson 70 ára 12. maí Miðstjórn ASl og stjórnir Sjó- mannssambands Islands og stjórn Sjómannafélags Reykja- vikur gangast fyrir samsæti til heiðurs Jóni Sigurðssyni for- manni Sjómannasambands Is- lands i tilefni af sjötugsafmæli hans þann 12.mai. Samsætið verður haldio laugar- dag þann I3.mai i Atthagasal Hótel Sögu kl. 6.00 Þeir, sem óska að taka þátt i samsætinu, tilkynni þátttöku sina til skrifstofu Sjómannafélags Reykjavikur, simi: 11915, skrif- stofu ASI simi: 19348 eða til Magnúsar Guðmundssonar Hrafnistu 35133. VIÐRÆÐUR UM LANDHELGISMALIÐ ÞÓ-Reykjavik. 1 dag og á morgun fara fram viðræður i Reykjavik á vegum, Kynna starfsemi Skálatúnsheimilisins Alþjóðasambands flutninga- verkamanna, milli Sjómanna- sambands Islands og brezka flutningaverkamannasam- bandsins. I þessum viðræðum verður einkum fjallað um land- helgismálið, og hefur Jack Jon- es, framkvæmdastjóri brezka flutningaverkamannasam- bandsins, látið hafa eftir sér, að hann sé bjartsýnn á, aö honum takist að fá forystumenn is- lenzka sjómannasambandsins á sitt band. 1 viðr-takaþátt f-Bretlands hönd: Jack Jones, Dave Schen- ton, Frich Annerl og Charles Life, framkvæmdastjóri Al- þjóðasambands flutningaverka- manna. Jón Sigurðsson, for- maður Sjómannasambands ts- lands veröur i forsæti fyrir is- lenzku fulltrúana. - OG SELJA HANDAVINNU VISTMANNA OÓ-Reykjavik. A föstudag og laugardag verður haldin sýning i Félagsheimili Kópavogs á handavinnu, föndur- munum, vinnubókaverkefnum og fleira, sem heimilisfólkið i Skála- túni i Mosfellssveit hefur gert. Tilgangur sýningarinnar er tvi- þættur, — að kynna starfsemi heimilisins og vekja áhuga á mál- efnum vangefinna og að sýna og selja þá muni, sem þar eru búnir til, en meðal þeirra er mikið af út- saumi alls konar og teppum og mottum. Agóðinn rennur til vist- fólksins og verður notaður til ferðalaga og skemmtana. Siðan starfræksla heimilisins hófst 1954 hafa dvalið þar samtals 112 vistmenn. Nú dvelja þar 52, sem er nokkru fleira en gert er ráð fyrir að heimilið taki, en eftir- spurn er mikil og reynt er eftir megni að taka við vangefnum, sem þurfa á heimili að halda við sitt hæfi, þar sem reynt er að kenna þeim og koma hverjum og einum til þess þroska sem tök eru á. Vistmenn á Skálatúni eru á aldrinum 4ra til 28 ára, 18 drengir og 34 stúlkur. 48 þeirra eru i ein- hvers konar kennslu, þar af 20 i bóklegu námi. 20 i handavinnu- kennslu, 29 i föndri og forskóla- kennslu 48 i söngkennslu og 39 stunda leikfimi reglulega. Sund- námskeið eru haldin á vorin, en fyrir nokkrum árum gáfu foreldr- ar þeirra,sem þarna dvelja heim- ilinu sundlaug, og er hún vel nýtt allan ársins hring, þótt námskeið standi þar ekki yfir nema tiltölu- lega stuttan tima. Sérþjálfaðir kennarar á hverju sviði annast kennsluna. Auk þeirra starfa við heimilið for- stöðukona, matráðskona, tveir þroskaþjálfar og 27 starfsstúlkur. Skálatúnsheimilið var upphaf- lega stofnað af umdæmisstúkunni nr. 1. I.O.G.T.,en er sjálfseignar- stofnun og er rekið á ábyrgð heimilisstjórnar. Formaður stjórnarinnar er Jón Sigurðsson, borgarlæknir, aðrir i stjórn eru Páll Kolbeins, Vilhjálmur Árna- son lögfræðingur, frú Guðrún Sigurðardóttir og Magnús Kristinsson, forstjóri. Sýnishorn af vinnu þeirra sem dvelja á Skálatúni (Timamynd G.E.) VILL M0GGINN EKKI ÚRKLIPPUR? TK-Reykjavik Mbl. ræðst að blaðafulltrúa rikisstjórnarinnar i gær, vegna þess að hann leyfði sér að senda til fjölmiðla ljósrit af blaðaúrklippu með frétt úr brezka blaðinu Hull Daily Mail, þar sem fjallað er um landhelgismálið og viðræður Geirs Hallgrimssonar við brezka ráðamenn. Þessi úr- klippa er send athugasemda- laust af blaðafulltrúans hálfu, nákvæmlega eins og allar þær blaðaúrklippur úr erlendum blöðum, sem blaðafulltrúinn hefur sent öllum fjölmiðlum undanfarna mánuði. Blaðaúr- klippur þessar fiytja fréttir um málefni er lsland varða. Þessi þjónusta blaðafulltrúans er ómetanleg og ber að þakka hana en ekki vanþakka. Það er Geirs Hallgrimssonar að leiðrétta þau ummæli, sem iiann telur ranglega eftir sér höfð i erlendum blööum, en ekki blaðafulltrúa rikis- stjórnarinnar. Það var hins vegar öllum þeim fjölmiðlum, sem greindu frá yfirlýsingu Geirs Hallgrimssonar á Alþingi um þessa fregn i Hull Daily Mail, til gagns og hag- ræðis, að hafá þessa úrklippu við hendina til að sjá hvernig ummæli Geirs voru rangfærð i þessu erlenda blaði. Arás Mbl. á blaðafulltrúann fyrir þessa þjónustu við blöðin er þvi meira en ómarkleg. Það fer Mbl. illa að krefjast heiða! legara vinnubragða af öörum, er það flytur slikar dólgsiegar árásir á mætan embættis- mann. Hannes Jónsson blaða- fulltrúi rikisstjórnarinnar hafði þetta um málið að segja i gær: ,,Að undanförnu hefur embætti mittsent fjölmiðlum i Reykjavik ljósrit af úr- klippum úr erlendum blöðum, þar sem landhelgismálið hefur verið gert að umræðu- efni. Hafa þannig verið sendar út athugasemdalaust og meö kveðjukorti ýmsar greinar, þ.a.m. grein Benedikts Gröndla og Ólafs Guðmunds- sonar úr brezkum blöðum, svo og greinar byggðar á frétta- viðtölum, þ.á.m. greinar með viðtölum við Jónas Arnason, og grein Hull Daily Mail frá 27.april um viðræöur Geirs Hallgrimssonar við brezka þingmenn. Hafi Hull Daily Mail birt leiðréttingu eftir Geir Hallgrimsson, verður hún að sjálfsögöu send út með sama hætti. Hingað til hefur þó engin slik leiðrétting borizt með blaðaúrklippum frá Bret- landi og er mér ekki kunnugt um að Hull Daily Mail hafi birt leiðréttingu frá Geir Hallgrimssyni. En ef og þegar hún berst verður ljósrit af henni sent á sama hátt. Að gefnu tilefni skal tekið fram, að æskilegt væri, að þeir fjölmiðlar, sem ekki kæra sig um þessa þjónustu embættis mins, við þá, létu mig vita. Verður þá hætt að senda þeim slikar úrkiippur.”

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.